Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1998, Qupperneq 26
MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 1998
_____
Afmæli
Sigurður A. Magnússon
Sigurður A. Magnússon rithöf-
undur, Kópavogsbraut 62, Kópavogi,
verður sjötugur þann 31.3. nk.
Starfsferill
Sigurður fæddist að Móum á Kjal-
amesi. Hann lauk stúdentsprófi frá
MR 1948, stundaði guðfræðinám við
HÍ 1948-50 og síðan nám við Kaup-
mannahafnarháskóla 1950-51, Aþ-
enuháskóla 1951-52, Stokkhólmshá-
skóla 1952 og The New School for
'%Social Research i New York 1953-55
og lauk þaðan BA-prófl í saman-
burðarbókmenntum.
Sigurður var ritstjóri Kristilegs
skólablaðs 1944-48, kenndi við Stýri-
mannaskóla íslands 1948-50, við
Gagnfræðaskóla Austurbæjar
1949-50, umsjónarmaður íþróttavall-
ar KFUM í Kaupmannahöfn 1950-51,
veitingaþjónn í New York 1953-55,
fréttamaður útvarpsins hjá SÞ
1954-56, kennari og fyrirlesari við
The City College of New York
1954-56, blaðamaður við Morgun-
blaðið 1956-67 og ritstjóri Lesbókar
1962-67, ritstjóri Samvinnunnar
1967-74, skólastjóri Bréfaskólans
1974-77 og leiðsögumaður ferða-
. jnanna erlendis 1962-97.
Sigurður var formaður Kristilegs
félags Gagnfræðakólans í Reykjavík
1943-44, formaður íslendingafélags-
ins i New York 1955-56, sat í stjóm
Íslensk-ameríska félagsins 1957-59,
varaformaður Stúdentafélags
Reykjavíkur 1958-59, formaður Fé-
lags íslenskra leikdómenda 1963-71,
formaður Grikklandshreyfingarinn-
ar 1968-74, formaður Rithöfundafé-
lags íslands 1971-72, formaður Rit-
höfundasambands íslands hins
fyrra 1972-74, formaður Rithöfunda-
-jsambands íslands hins nýja 1974-78
og er heiðursfélagi þess frá 1994, for-
maður Norræna rithöfundaráðsins
1976-77, formaður Norræna félags-
ins í Mosfellssveit 1977-78, formaö-
ur Grikklandsvinafélagsins
HELLAS 1985-88, formaður Islands-
deildar Amnesty Inernational
1988-90 og 1992-95, situr í varastjórn
Máls og menningar ffá
1982, átti sæti í alþjóð-
legri dómnefnd um The
Neustadt International
Prize for Literature, 1986,
og sat í dómnefnd um
Bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs 1990-98.
Hann hefur flutt fyrir-
lestra um íslenskar bók-
menntir og fleiri efni við
HÍ, háskóla í Grikklandi
og Tyrklandi og fjölda há-
skóla í Bandarikjunum
og Indlandi.
Helstu ritverk Sigurðar: Grískir
reisudagar, 1953; Krotað í sand, ljóð,
1958; Nýju fótin keisarans, greinar,
1959; Dauði Baldurs og önnur ljóð (á
grísku), 1960; Hafið og kletturinn,
ljóð, 1961; Næturgestir, skáldsaga,
1961; Gestagangur, leikrit, frumsýnt
1962, prentað 1963; Við elda Ind-
lands, ferðasaga, 1962; önnur útgáfa
1983; Sjónvarpið, 1964; Smáræði, tólf
þættir, 1965; Sáð í vindinn, greinar,
1967; Þetta er þitt líf, ljóð, 1974; í
ljósi næsta dags, ljóð, 1974; Fákar -
íslenski hesturinn í blíðu og stríðu,
1978; Undir kalstjörnu - Uppvaxtar-
saga, 1979 (þýdd á ensku og þýsku);
Möskvar morgundagsins - Uppvaxt-
arsaga, 1981; í sviðsljósinu - Leik-
dómar 1962-73,1982; Jakobsglíman -
Uppvaxtarsaga, 1983; Skilningstréð
- Uppvaxtarsaga, 1985; Úr snöru
fuglarans - Uppvaxtarsaga, 1986;
Hvarfbaugar - Úrval ljóða, 1952-82,
1988; Sigurbjörn biskup - Ævi og
starf, 1988; ísland er nafn þitt, 1990;
önnur útgáfa 1995; Grikklandsgald-
ur, 1992; írlandsdagar, 1995; íslenski
hesturinn - Litir og litbrigði, 1996;
Með hálfum huga - Þroskasaga,
1997; í tíma og ótíma - Ræður og rit-
gerðir ásamt ritaskrá 1944-98, 1998.
Sigurður hefur samið ýmis rit á
ensku um ísland og íslendinga, hef-
ur þýtt fjölda erlendra ritverka, rit-
stýrt safnritum og verið meðrit-
stjóri erlendra tímarita um skáld-
skap og Jóns á Bægisá, tímarits þýð-
enda, frá 1995. Ljóð, smásögur og
greinar hans hafa birtst í tuttugu
löndum.
Sigurður var sæmdur
gullkrossi grísku Fön-
ixorðunnar 1955, hlaut
verðlaun í leikritasam-
keppni Menningarsjóðs
1961, Menningarverðlaun
DV í bókmenntum 1980,
og Evrópsku Jean-Monn-
et-bókmenntaverðlaunin
1995.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 16.11.
1996 Sigríði Friðjónsdóttur, f. 16.11.
1961, tónmenntakennara, dóttur
Friðjóns Sveinbjörnssonar, f. 1933,
d. 1990, sparisjóðsstjóra í Borgar-
nesi, og Bjarkar Halldórsdóttur, f.
1939, póstafgreiðslukonu í Borgar-
nesi.
Stjúpdóttir Sigurðar er Guðný
Andrésdóttir, f. 16.10.1984.
Fyrsta kona Sigurðar var Andrea
Þorleifsdóttir, f. 9.1. 1927, skrifstofu-
maður.
Dóttir Sigurðar og Andreu er
HOdur, f. 27.7. 1957, flugfreyja, var
gift Jóni Helga Jóhannessyni fram-
kvæmdastjóra en þau skildu og eru
börn þeirra Andri Þór, f. 15.9. 1980,
Helga Snót og Hildur Sif, fæddar
29.7. 1983.
Önnur kona Sigurðar var Svan-
hildur Bjarnadóttir, f. 8.2. 1937, full-
trúi hjá Flugleiöum.
Böm Sigurðar og Svanhildar eru
Magnús Aðalsteinn, f. 23.6. 1964,
fornleifafræðingur en sambýliskona
hans er Ragnheiður Valdimarsdótt-
ir forvörður; Sigurður Páll, f. 13.12.
1968, kennaranemi en sambýliskona
hans er Hulda Magnúsdóttir há-
skólanemi og er þeirra sonur Magn-
ús Aron, f. 12.11. 1997.
Stjúpsynir Sigurðar em Bjami
Þórarinsson, f. 4.3. 1957, meðferðar-
fulltrúi; Guðmundur Þórarinsson, f.
19.7. 1958, kvikmyndagerðarmaður;
Ragnar Þórarinsson, f. 16.2. 1961,
sjávarlíffræðingur í Noregi.
Dóttir Sigurðar og Ingveldar H. B.
Húbertsdóttur, f. 28.10. 1928, tal-
símakonu er Kristín, f. 14.10. 1953,
yfirpóstafgreiðslumaður, gift Gunn-
ari Val Jónssyni, trésmíðameistara
og tollverði, og era þeirra börn Inga
Dóra Aðalheiður, f. 3.1. 1974, stúd-
ent, Húbert Nói, f. 21.9. 1980,
menntaskólanemi og Anton Smári,
f. 23.9. 1988.
Dóttir Sigurðar og Ragnhildar
Bragadóttur, f. 27.7. 1952, bóka-
safnsfræðings, er Þeódóra Aþ-
anasía, f. 23.12. 1991.
Alsystkini Sigurðar: Sverrir
Magnússon, f. 5.5. 1929, eftirlitsmað-
ur hjá ESSO í Svíþjóð; Lára Jónína,
f. 4.6.1930, húsfreyja í Reykjavík.
Hálfsystkini Sigurðar, samfeðra:
Hlln Schlenbaker, f. 30.3. 1925, hús-
freyja í Bandaríkjunum; Magnea
Hulda, f. 1.2. 1926, húsfreyja í
Reykjavik; Hilmar Thorberg, f. 2.12.
1935, leigubílstjóri í Reykjavík; Að-
alheiður, f. 6.6. 1941, húsfreyja i
Reykjavík; Ágústa Jóna, f. 9.3. 1943,
verkakona í Reykjavík; Magnús, f.
15.3. 1944, verkamaður i Reykjavík;
Jóhanna, f. 16.12. 1945, húsfreyja í
Reykjavík; Lárus, f. 14.6. 1947,
verkamaður í Reykjavík; Rannveig,
f. 16.8. 1950, húsfreyja í Reykjavík;
Kristinn Janus, f. 9.4. 1954, verka-
maður í Reykjavík; Hrafnhildur, f.
I. 10. 1956, húsfreyja í Reykjavík.
Látnir eru tveir albræður, sex hálf-
bræður og ein hálfsystir.
Foreldrar Sigurðar: Magnús Jóns-
son, f. 8.7. 1893, d. 19.6. 1959, verka-
maður í Reykjavík, og Aðalheiður
Jenný Lárusdóttir, f. 7.6. 1907, d.
II. 7. 1937, húsmóðir.
Sigurður verður staddur í Stokk-
hólmi á afmælisdaginn þar sem
hann heldur erindi á ráðstefnu
UNESCO og tekur þátt í pall-
borðsumræðum ráðherranefndar
Norðurlandaráðs. Hann og Sigríður
taka því á móti ættingjum, vinum
og velunnurum í Borgartúni 6, 4.
hæð, fóstud. 27.3. kl. 20.00. Blóm era
vinsamlega afþökkuð.
I tilefni afmælisins sendir
Háskólaútgáfan á markaö bókina í
tíma og ótíma - Ræður og ritgerðir
ásamt ritaskrá 1944-1998.
Sigurður A.
Magnússon.
Leó E. Löve
Leó Eirikur Löve lögfræðingur,
Klapparstíg 1, Reykjavík, er fimm-
tugur í dag.
Starfsferill
Leó fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í Vesturbænum. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR 1968, embætt-
isprófi í lögfræði frá HÍ 1973, kynnti
sér störf og starfshætti umboðs-
manns danska þjóðþingsins 1977-78
og öðlaðist hdl.-réttindi 1986.
Á námsárunum var Leó þing-
fréttaritari Tímans 1969 og sölumað-
ur á fasteignasölu 1970, var fulltrúi
Garðars Garðarssonar hrl. í Kefla-
vík sumarið 1973, fulltrúi bæjarfó-
getans í Kópavogi 1973-82, aðalfull-
trúi þar frá 1974 og settur bæjarfó-
-geti í Kópavogi haustið 1979. Leó
var starfandi stjómarformaður ísa-
foldarprentsmiðju hf. 1982-94 en hef-
ur sinnt eignaumsýslu og stundað
lögmennsku síðan.
Leó var formaður FUF í Kópavogi
1968-70 og FUF í Hafnarfirði
1970-72, var ýmist aðal- eða vara-
maður í miðstjórn Framsóknar-
flokksins 1971-82, varamaður í út-
varpsráði 1971-78, í stjórn Félags ís-
lenskra bókaútgefenda 1983-94,
varamaður í bankaráði Seðlabanka
íslands frá 1985 og í stjóm Fjölíss,
samtaka um gæslu eftirgerðarrétt-
ár, 1986-1994.
Út hafa komið eftir Leó bækurnar
Mannrán, útg. 1989; Fómarpeð, útg.
1990, og Ofurefli, útg. 1991. Þá hefur
hann skrifað blaöagreinar, einkum
um efnahags- og þjóðfélagsmál.
Hann sat í ritstjórn og skrifaði
grein í Ólafsbók, afmælisrit um dr.
Ólaf Jóhannesson.
Fjölskylda
Leó kvæntist 15.11. 1969 Eygló
Guðmundsdóttur, f. 3.12.1949, BA og
kennara við MH. Hún er dóttir Guð-
mundar Björgvinssonar, rafvirkja-
meistara í Reykjavík, og k.h.,
Hildigunnar Sveinsdóttur verslun-
armanns. Leó og Eygló skildu.
Böm Leós og Eyglóar eru Guð-
mundur, f. 8.6. 1967, rekstrarhag-
fræðingur í Reykjavík, en kona
hans er Hrefna Þorsteinsdóttir arki-
tekt; Yrsa Björt, f. 13.8. 1971, lækna-
nemi í Reykjavík, en maður hennar
var Stefán Eiríksson lögfræðingur
og eiga þau tvo syni; Áskell Yngvi,
f. 12.11. 1977, nemi i Reykjavík.
Sambýliskona Leós er Anna Lísa
Kristjánsdóttir, f. 10.3. 1959, ritari.
Hún er dóttir Kristjáns Grétars
Sveinssonar, bifreiðarstjóra í
Reykjavík, og k.h., Margrétar
Sveinsdóttur húsmóður.
Systir Leós er Sigrún, f. 9.1. 1942,
kennari i Garðabæ, gift Jóhanni
Ólafssyni kennara og eiga þau þrjú
börn.
Foreldrar Leós: Guðmundur
Löve, f. 13.2. 1919, d. 3.5. 1978, fram-
kvæmdastjóri Öryrkjabandalags ís-
lands, og k.h., Rannveig Ingveldur
Eiríksdóttir Löve, f. 29.6. 1920, BA,
fyrrv. kennari við Melaskólann og
síðar kennsluráðgjafi Reykjanes-
umd.
Ætt
Guðmundur var sonur Sophusar
Carls Löve, skipstjóra og vitavarðar
á Hornbjargsvita, sonar Frederiks
Löve, ljósmyndara og kaupmanns á
ísafirði, Reykjavík og Kaupmanna-
höfn, Rasmussonar Löve,
skipstjóra og veitinga-
manns í Rudköbing á
Langalandi, af stórri skip-
stjóraætt, og Marenar
Ballieu, frá Rudköbing,
afkomanda Jean Babtiste
Ballieu herforingja, sem
barðist við Dani um yfír-
ráðin yfir Lundi og Skáni
1676. Móðir Sophusar var
Sigríður Sæunn Jónsdótt-
ir, b. á Bjarnastöðum í
Vatnsdal, Jónssonar og
Steinvarar Magnúsdóttur
Óbeðssonar.
Móðir Guðmundar var Þóra, dótt-
ir Jóns, dýralæknis á Laugabóli,
Þórðarsonar, b. á Kistufelli, Jóns-
sonar. Móðir Þórðar var Guðríður
Sveinsdóttir, pr. í Grímsey, Jóns-
sonar, prófasts á Stað í Steingríms-
fírði, Sveinssonar. Móðir Jóns á
Laugabóli var Guðríður Þorvalds-
dóttir, b. á Stórakroppi, Jónssonar,
dbrm. í Deildartungu, Þorvaldsson-
ar, ættfoður Deildartunguættarinn-
ar. Móðir Guðríðar var Guðrún
Finnsdóttir, hreppstjóra í Miðvogi,
Narfasonar. Móðir Finns var Guð-
laug Sigurðardóttir. Móðir Guðlaug-
ar var Guðríður Björnsdóttir, systir
Snorra á Húscifelli. Móðir Þóra var
Vigdís Jónsdóttir b. í Arnardal, Sæ-
mundssonar, b. í Amardal, Árna-
sonar. Móðir Vigdísar var Þóra
Magnúsdóttir, b. í Þjóðólfstungu,
Ámasonar, bróður Sæmundar.
Móðir Þóru var Sigríður Halldórs-
dóttir, hreppstjóra á Kirkjubóli, og
Kristínar Guðmundsdóttir, hrepp-
stjóra I Neðri-Amardal, Bárðarson-
ar ættfóður Amardalsættarinnar,
Illugasonar.
Leó E. Löve.
Rannveig er ein af hin-
um fimmtán Réttarholts-
dætrum, dóttir Eiríks, b. í
Réttarholti við Reykjavík,
Einarssonar, b. i Suður-
Hvammi í Mýrdal, Þor-
steinssonar, b. í Suður-
Hvammi, Einarssonar, b.
í Kerlingardal, bróður
Bjarna amtmanns, fóður
Steingríms Thorsteins-
sonar skálds. Einar var
sonur Þorsteins, b. í Kerl-
ingardal, Steingrímsson-
ar, bróður Jóns eldprests.
Móðir Eiríks í Réttarholti var Ing-
veldur Eiríksdóttir, b. á Mið-Fossi,
Sverrissonar og Svövu Runólfsdótt-
ur, skálds í Skagnesi, Sigurðssonar,
pr. í Reynisþingum, bróður Sæmund-
ar, fóður Tómasar „Fjölnismanns".
Sigurður var sonur Ögmundar, pr. á
Krossi, Presta-Högnasonar, Sigurðs-
sonar. Móðir Sigurðar var Salvör
Sigurðardóttir, systir Jóns, afa Jóns
forseta.
Móðir Rannveigar var Sigrún
Kristjánsdóttir, hreppstjóra á Bíldu-
dal, Jónssonar og Rannveigar Árna-
dóttur, b. í Krossadal í Tálknafírði,
Magnússonar.
Leó tekur á móti gestum og vonar
að sem flestir vinir, kunningjar,
samstarfsmenn og skólafélagar sjái
sér fært að gleðjast með glöðum í
Sunnusal Hótel Sögu í dag milli kl.
17.00 og 19.00.
Afmælisbamið atþakkar vinsam-
legast blóm og gjafir en bendir gest-
um á að láta fremur andvirðið
renna til Bamaspítala Hringsins.
Sparibaukur, sem börn á spítalan-
um hafa útbúið, verður í anddyri
veislusalarins.
DV
Tll hamingju
með afmælið
25. mars
90 ára
Gissur Jónsson,
Valagerði, Seyluhreppi.
Jenný Ásmundsdóttir,
Akurgerði 7, Reykjavík.
75 ára
Gunnar H. Eiríksson,
Flétturima 6, Reykjavík.
Katrín Eliasdóttir,
Háaleitisbraut 45, Reykjavík.
70 ára
Ása Leósdóttir,
Goðabyggð 15, Akureyri.
Elsa Guðjónsdóttir,
Álfaskeiði 51, Hafnarfirði.
Kolbrún Bjarnadóttir,
Ystafelli II, Ljósavatnshreppi.
Sigurður Magnússon,
Vaðlaseli 10, Reykjavík.
60 ára
Elín Guðnadóttir,
Tjamargötu 39, Keflavík.
Gylfi Jónsson,
Sunnubraut 45, Kópavogi.
Jökull Guðmundsson,
Skarðshlíð 13 E, Akureyri.
Kristín Guðbjartsdóttir,
Heiðarbóli 10 H, Keflavík.
Sigfús Björnsson,
Unnarbraut 19, Seltjamarnesi.
Svanberg Þórðarson,
Kambagerði 6, Akureyri.
50 ára
Guðmundur Guðmundsson,
Norðurvangi 48, Hafnarfirði.
Halla Halldórsdóttir,
Austurgerði 5, Kópavogi.
Hannes Gíslason,
Skógarhæð 8, Garðabæ.
Jóhanna Hjartardóttir,
Garðabraut 45, Akranesi.
Kristinn Aadnegard,
Austurgötu 41, Hafnarfirði.
Valgerður Ólafsdóttir,
Dvergabakka 14, Reykjavík.
40 ára
Benedikt Benediktsson,
Birkibergi 2, Hafnarfirði.
Garðar Jónsson,
Stóru-Völlum,
Bárðdælahreppi.
Gísli Ólafsson,
Heiðarbóli 11, Keflavík.
Guðrún Erna
Baldvinsdóttir,
Næfurási 3, Reykjavík.
Ingibjörg A.
Guðmundsdóttir,
Kaplaskjólsvegi 60, Reykjavík.
Jenný Jóhannsdóttir,
Búastaðabraut 8,
Vestmannaeyjum.
Kristbjörg Lára
Helgadóttir,
Fagrabergi 10, Hafnarfirði.
Kristinn Jónsson,
Rangárseli 20, Reykjavík.
Leifur Kristinn Ólafsson,
Leirubakka 18, Reykjavík.
Sigurlín Sigurðardóttir,
Öldugerði 14, HvolsveHi.
Þuriður Guðrún
Reynisdóttir,
Gai-ðarsbraut 61, Húsavik.
XJrval
góðurferðafélagi
- til fróðleiks og
skemmtunar á ferðalagi
eða bara heima í sófa