Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1998, Side 28
60
MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 1998 DV
onn
Ummæli
Frjálshyggju-
stjórnin
Ríkisstjórn íslands kennir
sig við frjáls-
! hyggju, en þeirri
stjórnarsteftiu er
. ekki sérlega ætl-
{ að að gera þegn-
ana frjálsa,
heldur gefa
þeim sem eiga
fjármagn frelsi
til að nýta það á kostnað
hinna.“
Árni Björnsson læknir, í DV.
Hannaðir
stjómmálamenn
„Ég sé ekki tilganginn í
því að vera í pólitík eigi aug-
lýsingastofur að sjá um
hönnunina á stjórnmála-
mönnum og reglan verði sú
að sá sem getur keypt sig inn
í prófkjör fyrir fimm milljón-
ir króna ráði þjóðfélaginu."
Svavar Gestsson alþingis-
maöur, í Degi.
Stjórnarandstaðan
„Ásaki menn stjórnmála-
andstöðu fyrir að
vera slappa er
skýringin ekki
sú að forsætis-
ráðherra sé
skemmtilegur.“
Sighvatur Björg-
vinsson alþing-
ismaöur, í Degi.
Tekur því ekki að
stela
„Það er engin ástæða til að
vera að stela vörunum frá
okkur. Það tekur því ekki að
reyna þaö, verðiö er svo
lágt.“
Jón Steingrímsson, for-
stöðum. BT-tölva, eftir að
reynt var að brjótast inn, í
Degi.
Útvegsmenn ljúga
Þeír hafa i rauninni aldr-
ei verið að greiða
það sem þeir
hafa sagt þjóð-
inni að þeir hafi
verið að greiða.
Það er bara
lygi og ekkert
annað."
Guðjón A.
Kristjánsson, form. Far-
mannasambandsins, um
útgerðarmenn, í Morgun-
blaðinu.
Ólæsi og læsi
„Áður stafaði ólæsi af því
að fólk hafði ekki lært að lesa
... Nú er öldin önnur. Ólæsi
manna stafar af því að þeir
hafa lært að lesa og gengið í
skóla.“
Guðbergur Bergsson rit-
höfundur, í DV.
Málfríður Lorange sálfræðingur:
Ofvirkni í börnum algengari
en fólk gerir sér grein fyrir
A vegum nýstofnaðrar fræðsluþjón-
ustu um uppeldi og geðheilsu barna
og unglinga, sem hlotið hefur nafnið
Eirð, verður haldið námskeið í Gerðu-
bergi um ofvirkni bama og unglinga á
fostudag og laugardag. Að Eirð stend-
ur fagfólk sem starfar á Barna- og
unglingageðdeild Landspítalans og
Dalbrautarskóla. Öll hafa þau langa
reynslu í greiningu ----------------------------------
og meðferð ofvirkra Maður dagsins
er því mikilvægt að gera sér grein fyr-
ir því að skilgreiningin er alltaf líf-
fræðileg. Börnin koma síðan til okkar
í nákvæma úttekt og mat með tilliti til
þroska og hegðunar."
Málfríður segir að ekki séu til tölur
um það hversu algeng ofvirkni er hjá
íslenskum börnum. „Við höfum ekki
verið nógu dugleg að gera fagfræðileg-
barna og unglinga
og ráðgjöf við foreldra og kennara.
Ein úr hópnum er Málfríður Lorange
sálfræðingur og var hún spurð um
þetta námskeið: „Námskeiðið verður
um athyglisbrest og ofvirkni hjá börn-
um og unglingum og er tekið á málinu
frá ýmsum hliðum, meðal annars fjall-
að um greiningu, framvindu og horf-
ur, orsakir, lyfjameðferð og hvernig
fjölskyldan á að nálgast vandamálið.“
Málfríður hefur starfað á Barna- og
geðdeild Landspitalans hálft annað ár
og því kynnst vel börnum sem eru
haldin ofvirkni: „Til okkar er vísað
börnum sem hafa fengið frumgrein-
ingu. Þetta eru böm með viðvarandi
hegðunarröskun sem kemur fram fyr-
ir sjö ára aldur og lýsir sér einkum í
athyglisbresti, hvatvísi og mikilli
hreyfivirkni. Orsakirnar eru líffræði-
legar, annaðhvort er þetta meðfætt
ástand eða það getur komið fram sem
afleiðing af áfalli, til dæmis heila-
himnubólgu eða slysi. Stundum er
þetta kallað dulin fötlun vegna þess að
fólk áttar sig ekki strax á þessu. Þá er
oft kennt um slæmu uppeldi, óþekkt,
leti eða einhverju öðru
utanaðkomandi. Það Málfríöur Lorange.
ar rannsóknir, sem
ætti samt að vera
tiltölulega auðvelt
hér á landi. Erlend-
ar tölur eru alveg
frá 4% upp í 7% og
ef við mundum
skjóta á að það væri
4% hjá okkur
þá er það
há tíðni.
Ég vil
taka
það
fram að yfirleitt eru þessi börn vel
gefin. Ofvirkni og athyglibrestur
stafar ekki af greindarskorti, langt í
frá, en það má segja það að ofvirkni í
bömum er tiltölulega algengari held-
ur en fólk gerir sér grein fyrir og það
er mikilvægt að þessi börn fái með-
ferð við hæfi snemma."
Málfríður er spurð um Eirð og
tilefnið af stofnun þjónustunnar: „Það
hefur verið mikil ásókn til okkar
sem störfum að þessum málum um
að halda fyrirlestra um geðheilsu
barna og unglinga og þar sem við
eram öll önnum kafrn vantaði gott
skipulag á þessa starfsemi og því
var Eirð stofnað í þeim tilgangi að
halda betur utan um starfsemina,
sjá um skipulagningu fyrirlestr-
anna og ráðleggingar og er hugmynd-
in sú að í framtíðinni verði starfs-
fræðsluþjónustunnar víðara,
meðal annars tekið á hegðunar-
vandkvæðum, þunglyndi og
fleira. Þá má geta þess að
næsta námskeið sem við
munum halda er ein-
göngu fyrir foreldra. Það
skiptir miklu máli að for-
eldrar viti mn hvað málið
snýst og hvaða aðferðum á
að beita, en alltof oft hefur
það gerst að foreldrar em í
einrúmi að reyna eitthvað
sem ekki gengur. Það eru til
þekktar leiðir sem hafa gefist
vel og þær leiðir þurfa foreldrar
að kunna og það er okkar að
koma þessum upplýsingum til
þeirra."
Tjarnarkvartettinn syngur í
Hafnarborg í kvöld.
Tónlist fyrir alla
Tjarnarkvartettinn úr
Svarfaðardal lýkur tón-
leikasyrpu sinni í tónleika-
röðinni Tónlist fyrir alla
annað kvöld í Hafnarborg
kl. 20.30. Á dagskrá er ís-
lensk tónlist, meðal annars
fimmundarsöngur og fá-
breyttur rímnasöngur. Þá
^erður fjallað um íslensk
tónskáld í tali og tónum.
Tjarnarkvartettinn skipa
Kristján Hjartarson, bassi,
Hjörleifur Hjartarson, ten-
ór, Kristjana Amgrímsdótt-
ir, alt og Rósa Kristín Bald-
ursdóttir, sópran.
Tónleikar
Skátasöngur
í kvöld standa Skátakór-
inn í Hafnarfirði og Skáta-
kórinn í Reykjavík fyrir
sameiginlegum tónleikum í
Friðrikskapellu kl. 20.30. Á
efnisskrá eru blanda af
skátalögum og öðrum lög-
um og munu kóramir
syngja saman og í sitt
hvoru lagi. Kórstjórar eru
Kristjana Þórdís Ásgeirs-
dóttir og Steingrímur Þór-
hallsson.
Myndgátan
Glaseygður maður
Myndgátan hér að ofan lýsir athöfn.
FH og Haukar í leik fyrr í vetur.
FH og Haukar í
úrslitakeppninni
Úrslitakeppnin i 1. deild karla í
handboltanum heldur áfi’am og
era í kvöld tveir leikir. Það vekur
athygli að Hafnarfjarðarliðin
mætast í innbyrðis slag um sæti í
fjórðungsúrslitum og er fyrsti
leikurinn í kvöld. FH á heima-
leik. í Framhúsinu leika Fram og
ÍBV sinn fyrsta leik. Báðir leik-
irnir hefjast kl. 20.
í úrslitakeppninni í körfubolta
er i kvöld oddaleikurinn á milli
KR og Tindastóls og er hann leik-
inn á Seltjamamesi.
íþróttir
í kvöld gæti ráðist hverjir
verða íslandsmeistarar i blaki
karla, þá leika Þróttur Reykjavík
og Stjarnan sinn þriðja leik.
Þróttarar eru þegar búnir að inn-
byrða tvo sigra og vinni þeir í
kvöld eru þeir íslandsmeistarar.
Nokkrir leikir eru í fótboltan-
um í kvöld. I deildarbikar karla
leika á Ásvelli, Grindavik-Kefla-
vík kl. 18.30 og FH-Selfoss kl.
20.30. í Reykjavíkurmótinu era
þrír leikir, Þróttur-Víkingur
leika í Laugardal kl. 20.30,
ÍR-Leiknii’ á Leiknisvelli kl. 18.30
og Fjölnir-Ármann á sama velli
kl. 20.30.
Bridge
í undankeppni Islandsmótsins í
sveitakeppni voru spiluð forgefin
spil og sömu spil spiluð í öllum
leikjum. Það fyrirkomulag gerði all-
an samanburð skemmtilegri og um-
ræður oft fjörugar um spilin. I
þessu spili í 6. umferð mótsins er 6
tígla samningur borðleggjandi og
þarf lítið að hafa fyrir því að fá 12
slagi. Hins
vegar reyndist
það mörgum
pörum erfitt
að ná þeim
samningi,
enda náðu AV
oft að hindra
hressilega með spaðasögnum. Svo
skrýtilega sem það hljómar, þá var
algengar að NS spiluðu 4 hjörtu á
hendur NS heldur en hinn upplagða
slemmusamning í tígli. Legan var
vægast sagt óhagstæð sagnhafa í
fjórum hjörtum og fóra þeir yfirleitt
2-4 niður í þeim samningi. NS áttu
hægar um vik ef AV fóra sér rólega
í sögnum. Sagnir gengu þannig á
einu borðanna, suður gjafari og AV
á hættu:
4 G103
m -
4 DG109754
* 1097
4 Á542
«4 G96532
♦ -
4 642
4 6
44 ÁK10874
♦ ÁK8
4 ÁK5
Suður Vestur Noröur Austur
14 14 pass 3 4
dobl pass 5 4 pass
64
Suður lendir í miklum vandræð-
um ef austur stekkur alla leið í 4
spaða og óvíst er að NS hefðu þá
náð slemmunni. Samningurinn var
4 hjörtu á hinu borðinu í leiknum
sem fóra 3 niður og sveiflan því 14
impar. ísak Öm Sigurðsson
4 KD987
44 D
4 632
4 DG83
i
i
I
I
i
I
I
i
I
(
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i