Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1998, Síða 32
V I K I N G A
.'•fcyfr Jd fri'ilýrí
L&rm
alS vinncq
IFRETTASKOTIÐ
HflSÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í stma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
t hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 1998
4 kíló fíkniefna vantar:
Mjög alvar-
legt mál
- segir lögreglustjóri
„Það verður að rannsaka þetta
mál afar ítarlega. Þetta er mjög al-
varlegt mál. Við báðum um þessa
úttekt sjálfir en það óraði engan fyr-
ir þessari niðurstöðu. Það er eftir að
ræða við vörslumenn efnanna. Eftir
á séð er ljóst að kerfi okkar varð-
andi geymslu fíkniefna hefur ekki
verið í lagi,“ segir Böðvar Bragaon,
lögreglustjóri í Reykjavík.
í úttekt ríkislögreglustjóraemb-
ættisins á fikniefnageymslu lögregl-
unnar í Reykjavík kemur fram að
rúm fjögur kíló af fíkniefnum af
ýmsu tagi virðast vera horfin. Eng-
ar skýringar er að finna á hvað orð-
ið hefur af þeim.
*“"=* Úttektin á fikniefnageymslunni
nær allt frá 1981 til 1. júlí 1997, þeg-
ar ný lög tóku gildi. Guðmundur
Guðjónsson yfirlögregluþjónn
óskaði eftir því síðastliðið sumar,
þegar hann tók við yfirstjórn rann-
sóknardeildar lögreglunnar, að sér-
stök úttekt yrði gerð af hlutlausum
aðilum á fíkniefnageymslu lögregl-
unnar. -RR
Gullbátaslagur:
Málið í hönd-
um lögmanna
„Málið er í hondum lögmanna en
meira get ég ekki sagt,“ segir Krist-
inn Jón Jónsson,
bæjarstjóri ísa-
fjarðarbæjar, um
tilraun bæjarins
til að komast inn
i kaupsamning að
krókabátnum
Unni ÍS frá Þing-
eyri.
Báturinn var
seldur til Hafhar-
fjarðar í desem-
. ber sl. með aflaheimildum á 22 millj-
ónir króna en er nú tæpum þremur
mánuðum síðar metinn á tæplega 40
milljónir króna. Nú vill bæjar-
stjórnin komast yfir bátinn á grund-
velli laga um forkaupsrétt sveitarfé-
laga á skipum og kvótum.
Sjá nánar á bls. 4. -rt
Kristinn
Jónsson.
Jón
Árekstur
í Njarðvík
Sex manns sluppu meö skrekkinn
þegar tveir bílar skullu saman rétt
sunnan við svokallaðan Grænás í
Njarðvik í nótt. Fólkið fór í læknis-
skoðun eftir áreksturinn en fékk að
- T"*fara heim að henni lokinni. Bílarn-
ir skemmdust mikið. -sv
Islenska operan kynnti blaðamonnum i gær verkefni sitt fyrir Listahátíð í vor sem er popp-rokk-salsa óperan Carmen Negra. Tónlistin er sem fyrr eftir Bizet
en Stewart Trotter hefur gert nýjan texta og fært sögusviðið til Suður-Ameríku í nútfmanum. Aðalhlutverkið syngur enska söngkonan Caron en í kringum
hana raðar sér íslenska landsliðið í dægurtónlist. Á myndinni eru Egill Ólafsson, Bubbi Morthens, Gunnar Þórðarson, Valgerður G. Guðnadóttir og Helgi
Björnsson. DV-mynd Hilmar Þór
Áform ríkisstjórnarinnar um lagasetningu á sjómannadeilu vekja úlfúö:
Mistök ríkisstjórnar
- segir forseti Farmannasambands - áframhaldandi átök boöuö
„Þetta eru einhver agalegustu
mistök sem ein ríkisstjórn hefur
gert og kallar launalækkun yfir
stærstan hluta sjómannastéttarinn-
ar,“ sagði Guðjón A. Kristjánsson,
forseti Farmanna- og fiskimanna-
sambands íslands, í samtali við DV
í morgun um það ákvæði fyrirhug-
aðra frumvarpa ríkisstjórnarinnar
sem snýr að skiptakjörum í kjara-
samningi sjómanna og útgerðar-
manna.
Mikil reiði er meðal forystu-
manna sjómanna vegna fyrirhug-
aðra lagafrumvarpa rikisstjómar-
innar til lausnar á sjómannadeil-
unni. Ríkisstjórnin kynnti í gær
lagafrumvörpin sem hafa að geyma
miðlunartillögu sáttasemjara og að
auki ákvæði um skiptakjör þegar
um er að ræða fækkun i áhöfnum
skipa. Kveðið er á um að i þeim til-
vikum sem mönnum fækkar skuli
það ekki leiða til aukinna útgjalda
útgerðar svo sem nú er. Þá er einnig
ákvæði fyrir sjómenn sem kveður á
um kauptryggingatímabil á út-
hafsveiðum. Sjómannaforystan met-
ur það svo að með aukaákvæðunum
sé ríkisstjómin að ganga erinda út-
vegsmanna og ráðast á skiptakjörin
með ósvífnum hætti. Það sem vegur
þyngst í málinu samkvæmt heimild-
um DV er aö með óbreyttum lögum
lækka laun sjómanna beinlínis og
þeir vildu selja breytingu á skipta-
kjöram dýrt en fá samkvæmt fram-
varpinu litið sem ekkert fyrir sinn
snúð komi til lagasetningar. For-
ystumenn sjómanna funduðu stíft í
morgun í því skyni að finna mótleik
í stöðunni. Vilji var til þess að af-
lýsa verkfalli og safna síðan vopn-
um að nýju og boða til nýs verkfalls
síðar á árinu. Helgi Laxdal, formað-
ur Vélstjórafélags íslands, sagði í
morgun að til greina kæmi að aflýsa
verkfalli og slá þannig af hinar nýju
greinar um breytingu skiptakjara.
Þar með stæði upp á ríkisstjórnina
að leggja fram hugmyndir þríhöfða-
nefndar óbreyttar.
„Við verðum þar með samnings-
lausir og í nákvæmlega sömu stöðu
og hefðu lög ríkisstjórnarinnar náð
fram að ganga á sínum tíma að því
tilskildu að niðurstaða þríhöfða-
nefndarinnar hefði verið inni,“
sagði Helgi.
-rt
Veðrið á morgun:
Élja-
gangur
Á morgun verður norðaustan-
gola eða kaldi á landinu en þó
stinningskaldi á Vestfjörðum.
Víðast verða él, þó síst vestan-
lands. Frost verður á bilinu 1 til
7 stig.
Veðrið í dag er á bls. 61.
Enn betra
braefð...
mmm enn meiri
angan
Nescafé
MERKILEGA MERKIVELIN
brother PT-220 ný véi
íslenskir stafir
Taska fylgir
8 leturgeröir, 6 stærðir
6, 9, 12, 18 mm borðar
Prentar í 4 línur
Aðeins kr. 10.925
Nýbýlavegi 28 Simi 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4