Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1998, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 7. MAÍ1998
Fréttir
Leigutilboð borgarstjóra til Sonju Guðrúnardóttur:
Loksins eitthvaö
- segir formaður Leigjendasamtakanna
„Úr því að borgarstjóri gat gert
þetta núna, af hverju var það ekki
gert þegar áður en íbúðimar voru
seldar Félagsbústöðum hf. þannig að
fólk hefði vitað hvaða kjör það ætti
að búa við? Engin svör við því hafa
fengist hingað til. Það eina bitastæða
sem gefið hefur verið út af hálfu
Félagsbústaða og borgarstjóra er það
að leigan skyldi hækka um 100%,“
segir Jón Kjartansson, formaður
Leigjendasamtakanna, um tilboð
sem borgarstjóri lagði fyrir Sonju
Guðrúnardóttur, íbúa í félagslegu
leiguhúsnæöi hjá Reykjavíkurborg.
Eins og greint
hefur verið frá í DV
er leigusamningur
Sonju útrunninn og
henni gert að gera
nýjan en við Félags-
bústaði sem yfirtek-
ið hafa leiguíbúðar-
húsnæði Reykjavík-
urborgar. Sonja hef-
ur neitað að semja
nema þá aftur við
Reykjavíkurborg, en viðbrögð Félags-
bústaða voru þau að hóta henni út-
burði um síðustu mánaðamót.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri gekk í málið eftir að forsíðu-
frétt um framgöngu Félagsbústaða
gegn Sonju birtist í DV í fyrradag, og
gerði henni tilboð um nánast sömu
leigugreiðslubyrði og hún hefur bor-
ið hingað til. Frá því var sagt í frétt
DV í gær.
„Við höfum ítrekað en árangurs-
laust gengið eftir svörum hjá borgar-
stjóra og Félagsbústöðum um leigu-
mál hjá borginni. Við höfum kvartað
undan því við umboðsmann Alþingis
aö fólk hafi engin svör fengið. Þetta
er í fyrsta sinn sem borgarstjóri
svarar einhverju varðandi þetta mál
en við vitum ekkert enn hvort þetta
á bara að gilda fyrir Sonju Guðrún-
ardóttur eða aðra leigjendur. Það er
eins gott að borgarstjóri tilkynni
fólkinu það. Hingað til hefur ekkert
komið frá henni nema rakalausar
fullyrðingar sem hafa hrunið jafnóð-
um og hún þurft að éta þær ofan í sig
hverja eftir aðra. Hún skrökvaði því
meira að segja í beinni útsendingu
um síðustu helgi að það hefði aldrei
staðið til að leiguverð hækkaði," seg-
ir Jón Kjartansson, formaður Leigj-
endasamtakanna. -SÁ
Skógræktarstjóri reisir einbýlishús í Skriödal á Héraöi:
Stærsta bjálkahús landsins
DV, Egilsstöðum:
„Það má segja að þetta hafi verið draumur
skógræktarmannsins. Þegar ég ákvað að
byggja kom aldrei annað en timburhús til
greina. Kveikjan að þessu var kannski sú að
fyrst Ámi Johnsen gat reist bálkahús á Stór-
höfða í Vestmannaeyjum þá var alveg eins
hægt að reisa bjálkahús á Héraði," sagði Jón
Loftsson skógræktarstjóri í samtali við DV í
gær.
Afrakstur vetrarins hjá Jóni er sá að 330 fer-
metra bjálkahús er risið í Stóra-Sandfelli I í
Skriödal á Héraði - um tíu mínútna akstur frá
Egilsstöðum á þjóðvegi 1, skammt frá Hallorms-
stað. Húsið er kjallari, hæð og ris - stærsta ein-
býlishús á íslandi reist úr bjálkum. Ekki þarf að
einangra útveggi því bjálkamir em heilar níu
tommur í þvermál. Auk þess er hljóðeinangmn
mikil. Þegar DV var í húsinu i gær heyrðist vart
þegar stór flutningabíll ók fram hjá rétt við hús-
ið.
Eiginkona Jóns er norsk og ólst hún upp í
svipuðu húsi. Viðurinn verður ekki lakkaður að
innan heldur verður grænsápa borin á yfirborð-
ið - sennilega gamalt norskt vinnulag.
„Ég reikna meö að þegar upp verður staöið
muni kostnaðurinn við þetta hús verða svipaður
og viö að reisa hefðbundið hús af sömu stærð,“
sagði skógræktarstóri. Húsið veröur tekið í
notkun í sumar. Yfirsmiður er Sigfús Þór Ing-
ólfsson. Bjálkamir em fluttir inn frá Finnlandi.
-Ótt
-jJíSSí
Si jff' IjjjfcM 'jr 1 III
Sigfús Þór Ingólfsson, „yfirsmiöur" bjálkahúss skógræktarstjóra í Stóra-Sandfelli I í Skriödal á Héraöi viö
vinnu sína í gær. Bygging hússins hófst á síöasta ári og veröur þaö tekiö í notkun í júlí. Þetta er stærsta ein-
býlishús úr bjálkum á íslandi. DV-mynd Brynjar Gauti
/ vaðmálið aftur
Kommamir eru loks að koma út úr
skápnum. Þeir vom sýnilegir á árum áður
þegar sósíalisminn var og hét. Svo hmndi
allt saman með falli Berlínarmúrsins auk
þess sem sjálf Sovétríkin liðuðust í sundur.
Þá þótti ekki fint að vera kommi. íhaldið
heimtaði uppgjör við fortíðina. Allar þess-
ar hremmingar urðu til þess að kommam-
ir drógu sig inn í skelina og létu lítið fyrir
sér fara.
Áður en Ólafur Ragnar tók að sér for-
setaembættið hafði hann nútímavætt Al-
þýðubandalagið í krafti formennsku sinn-
ar. Gamla flokkseigendafélagið var gleðis-
nautt en réð ekki við formanninn. Hann
tók söfnuðinn með handafli og færði úr
þjóðernisrómantík og vaðmáli í nýjan bún-
ing. Hann fór jafnvel að líta á NATO sem
friðarins samtök, nokkuð sem nálgaðist
guðlast, að mati gamalla og gróinna sósí-
alista. Jafnvel Óli kommi gekk kapítalism-
anum á vald eftir að hann hætti vitavörsl-
unni á Hombjargi. Það var aðeins Jón
Múli sem viðurkenndi enn trúna á Stalín
heitinn.
Flokkseigendur máttu enn bíta í súrt
epli þegar Margrét Frímannsdóttir, póli-
tísk uppeldisdóttir Ólafs Ragnars, lagði
fulltrúa flokkseigendafélagsins, Steingrím J„ í for-
mannskosningum. Hún vildi, líkt og Ólafúr, vað-
málið burt. Vaðmálssósíalistamir hafa samt ekki
gefist upp. Þeir hafa nýtt tímann og safhað vopnum
sínum. Næsta stig nútímavæðingar Alþýðubanda-
lagsins er nefnilega eitur í þeirra beinum. Margrét
stefnir lóðbeint í eina sæng meö Sighvati og hinum
krötunum. Það geta sannir sósíalistar ekki hugsað
sér. Allt er hetra en útþynntur kratisminn.
Þvi stígur foringi vaðmálssósíalistanna,
Ögmundm Jónasson, á stokk og segir: Hing-
að og ekki lengra. Hann boðar klofning í Al-
þýðubandalaginu og vill út með hina hrein-
ræktuðu. Krataliðið, áhangendur Ólafs
Ragnars og síðar Margrétar, má éta það sem
úti frýs, ganga í björg með Sighvati ef það
kýs svo. Ögmundur er heppilegur til þess að
brjóta ísinn. Hann var kosinn á vegum Al-
þýðubandalagsins með óháðan titil aö auki.
Hann hefúr því frírra spil en aðrir.
Þess verður þó ekki langt að bíða að hin-
ir raunverulegu flokkseigendm láti á sér
kræla. Tæplega er Steingrímur J. mjög sátt-
m við kratadaðrið í formanninum og ólík-
legt er að Svavar láti lengi bíða eftir sér.
Hjörleifm hefur ekki farið dult með skoðun
sína. Þar með er komið gamla valdagengið í
Alþýðubandalaginu, ráðherralið fyrri tíðar.
Hið endurvakta Alþýðubandalag vað-
málssósíalistanna hefúr þegar komið sér
upp vinnuheitinu Stefna. Þar er stefnan
skýr og lítt kratísk. Þar skal efla samfélags-
vitund og hafiia einkavæðingu og markaðs-
áhrifum. Aftm í ullarbrókina, hvað sem
tautar og raular.
Nú fer maðm að kannast við sig aftm.
Það skyldi þó aldrei fara svo að jafnvel her-
stöðvaandstæðingar lifni á ný og verði grænir aft-
m eins og símastamamir í ljóði Tómasar.
Dagfari
Stuttar fréttir i>v
Mótmæla niöurröðun
Náttúrufræðingar á Ríkis-
spítölum mótmæla harðlega
hvemig þeim hefm verið raðað
innan launakerfisins. Úrskmðir
um niðurröðunina séu ónothæf-
ir og ábyrgðin hjá Ríkisspítölum
og heilbrigðisráöherra.
Málþóf
Andstæðingar hálendishluta
sveitarstjórnarfrumvarps Páls
Péturssonar beita
málþófi á Alþingi
og halda langar
ræðm. Páll segir
það engu breyta
um þá fyrirætlan
að afgreiða frum-
varpið sem lög fyrir þinglok.
Breytt áætlun
Flugleiðir hafa breytt bráða-
birgðaáætlun sinni til Hamborg-
ar sem gildir meðan verkfall
stendur í Danmörku. Flogið
verðm framvegis einu sinni á
dag milli Hamborgar og Kefla-
víkur í stað tvisvar.
Bleikjan athuguð
Veiðimálastofnun hefm birt
niðmstöðm einstæðrar rann-
sóknar á sjóbleikju úr Hópinu.
Á bleikjunum var rafeindabún-
aðm þannig að fylgjast mátti
með öllu atferli þeirra og um-
hverfi.
Hagnaður minnkar
Hagnaðm fyrirtækja sem
skráð eru á Verðbréfaþingi ís-
lands minnkaði um 15% miðað
við árið á undan. Viðskiptablað-
ið hefm kannað þetta.
Samskiptasvið HÍ
Háskólaráð hefm ráðið Mar-
gréti S. Björnsdóttm fram-
kvæmdastjóra
samskiptasviðs
stjómsýslu Há-
skólans. Verksvið
framkvæmda-
stjóra er m.a.
innri og ytri sam-
skiptamál Háskólans og al-
mannatengsl.
Kaupfélög í bata
Kaupfélögin KA á Selfossi og
KS á Sauðárkróki snem tapi í
hagnað á síðasta ári. KÁ græddi
18,5 milljónir í stað 97 milljóna
taps árið á undan. KS græddi 8,6
milljónir í stað 164 milljóna taps
árið á undan. Viðskiptablaðið
segir frá.
Meiri vernd
Sjúkrasjóöm Verslunar-
mannafélags Reykjavikur hefur
verið að auka tryggingavernd
VR-félagsmanna og ganga
stöðugt lengra inn í hlutverk al-
mannatrygginga. Eftir fyrsta
maí mðu dánarbætur með böm-
um innan 21 árs aldurs 800 þús-
und krónur en voru 160 þúsund.
Viðskiptablaðið segir frá.
Minni velta
Velta hlutabréfa á Verðbréfa-
þingi íslands hefm minnkað
fýrstu fjóra mánuði ársins um
helming miðað viö sama tíma í
fyrra. Verri ávöxtun hlutabréfa
hefm dregið úr eftirspum eftir
hlutabréfum segir Viðskipta-
blaðið.
Hætta í Fríkorti
Flugfélag íslands og Toyota
umboðið P. Samúelsson hf. hafa
hætt þátttöku í
Fi-íkortinu. Páll
Halldórsson, for-
stjóri Flugfélags-
ins, segir það gert
til að spara en
Toyota hættir
vegna þess að fríkortsviðskipti
eigi síðm við bílaviðskipti en
önnm dagleg viðskipti einstak-
linga. Viöskiptablaðið segir frá.
Vinnslubúnaður
Grandi hf. hefm keypt nýjan
fiskvinnslubúnað frá Marel.
Sams konar búnaðm hefúr verið
settm upp í nokkrum bolfisk-
vinnsluhúsum og þykir hafa
skilað betri nýtingu, verðmætari
afúrðasamsetningu og aukinni
framlegð, að því er segir i til-
kynningu frá Granda og Marel.
Viðskiptablaöið segir frá. -SÁ