Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1998, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1998, Blaðsíða 18
26 FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1998 Spurt í Sandgerði Hver veröa úrslit sveitar- stjórnarkosninganna í Sandgeröi? Sveitarstjórnarkosningar 1998 Guðmundur Pálmason tækja- stjóri: K-listinn vinnur og held- ur meirihluta. Gunnþór Bragason verkstjóri: B-listinn verður sigurvegari kosninganna. Kári Jónsson afgreiðslumað- ur: Ég spái því að K-listi fái fjóra menn, D-listi tvo og B-list- inn einn. Jón Björn Orrason sjómaður: K-listamenn vinna þetta alveg örugglega. Valdimar Birgisson sjómaður: Sjálfstæöismenn verða sigurveg- arar kosninganna. Hrafnkell Óskarsson bíl- stjóri: Ég held að K-listinn vinni og fái áfram meirihluta. Sveitarstjórnarkosningar í Sandgerði: Umhverfismál og innri mál skólans Þrír flokkar bjóða fram í sveitar- stjórnarkosningunum í Sandgerði. Um er að ræða K-lista óháðra borgara og alþýðuflokksmanna, D- lista sjálf- stæðismanna og B-lista Framsóknar- manna og óháðra. K-listinn hlaut hreinan meirihluta í síðustu kosningum. D-listi, sem hafði verið í meirihlutasamstarfi með K- listanum 1990-1994, tapaði einum manni og fékk aðeins tvo kjöma. B- listinn fékk aðeins einn mann en var aðeins 18 atkvæðum frá því að ná öðr- um manni inn. Umhverfismál og innri mál grnnn- skólans virðast vera aðal baráttumál- in fyrir koamndi kosningar. Þá eru fráveitumál bæjarins og uppbygging hafnarinnar einnig heit mál sem list- amir hafa ofarlega á stefnuskrám sín- um. Skuldir bæjarins hafa aukist tölu- vert á síðasta kjörtimabili. Mikið fjár- magn hefur farið í framkvæmdir við höfnina. Sú uppbygging sem þar hefur átt sér stað er nú farin að skila sér og hefur höfnin hægt og sígandi byrjað að borga skuldir sínar. Baráttan verður án efa hörð í Sand- gerði. Athygli vekur að töluverður hasar hefur verið um uppstillingu bæði K- og D-listans. Uppstillingar- nefnd D-listans ýtti Reyni Sveinssyni úr oddvitasætinu. Hann hafði neitað að vera á listanum nema hann væri í efsta sætinu. Reynir kom hins vegar með fylgismenn sína og endurheimti efsta sætið. Þá urðu átök í prófkjöri K- listans þar sem tekist var á um efstu menn. Óskar Gunnarsson leiðir list- ann. Reynir og Óskar eru án efa reyndustu sveitarstjórnar- mennimir í bænum. B-listinn er með yngsta og óreyndasta listann. Þrátt fyrir það er hug- ur í framsóknarmönnum að vinna aftur manninn sem þeir misstu í síðustu kosningum. -RR Uppbygging viö höfnina skilar sér „Við stefnum að sjálfsögðu að því að halda okkar meirihluta. Bærinn stendur nokkuð vel fjárhagslega mið- að við þær fram- kvæmdir sem hafa verið í gangi. Bæj- arsjóður stendur tiltölulega vel ef við lítum á meða- tal yfir landið. Við erum að ljúka upp- byggingu grann- skólans sem fjöldi sveitarfélaga á eft- ir að gera. Við höf- um verið að fjár- festa aðallega í kringum höfnina og teljum það vera fjárfestingu til framtíðar. Hún er þeg- ar að skila sér til okkar með miklum umsvifum við höfnina. Það er stefnt að dýpkun innan hafnar, að auka löndunar- og viðlegurými við höfnina og undirbúa lóðir þar,“ segir Óskar Gunnarsson, oddviti K- listans. „Skólinn verður kominn í gagnið í haust. Þar verður nægjanlegt hús- næði til að mæta einsetningu skólans. Við ætlum að bæta enn frekar allan aðbúnað og innra starf skólans. Það er metnaður okkar að skólinn hér í Óskar Gunnars- son, oddviti K- listans. Sandgerði verði með því besta sem gerist. Það er á stefnuskrá okkar að stækka leikskólann. Þegar því er lok- ið viljum við taka þar upp sveigjan- lega dagvistun barna. Umhverfismál era líka forgangsmál og þar er geysistórt verkefni fyrir höndum sem er framtíðarlausn á öllum frárennsli- málum. Það liggur þegar fyrir hönn- unarvinna og áfangaskipting á þessu verkefni og nú er heitt mál að hefja framkvæmdir. Við viljum vinna að fegrun bæjarins með aukinni gróður- rækt og endumýjun gangstétta. Við höfum hugsað 'okkur að gera átak í þessum málum á næsta kjörtimabili. Æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamál skipta að sjálfsögðu miklu máli,“ seg- ir ðskar. Laga innri mál skólans „Helstu stefnu- mál okkar eru að fjármálum bæjar- ins verði haldið innan skynsam- legra marka. Það þarf að laga innri málefni skólans, stuðla að því að laða að fleiri hæfa kennara. Á Reynir Sveins- þessu kjörtíma- son> oddviti D- bili hefur verið listans. Framboðslistar í Sandgerði unnið að innri málefnum skólans, t.d. gæðastjórnun en þar þarf að taka þessi mál fastari tökum. Þá stefn- um við að því að ljúka við nýbyggingu skólans ásamt lóð og leiksvæði. Það þarf að hefja stækk- un á húsnæði leikskólans og boðið verði upp á heilsdagsvistun," segir Reynir Sveinsson. „Umhverfismál eru ofarlega i huga fólks. Við stefnum að því að vinna skipulega að því að ljúka við ýmis svæði í bænum og hvetja ein- staklinga og fyrirtæki til að hafa snyrtilegt á lóðum sínum. Frá- veitmnálið er stærsta umhverfis- málið hér á næstu árum. Þetta er dýr framkvæmd sem kostar yfir 110 milljónir og þarf að vera lokið fyrir 2005. Mjög brýnt er að hefja framkvæmdir á hafnarsvæðinu. Hvergi er landað meiri bolfiski hér á landi en í Sandgerðishöfn og hún er með flestar landanir á hverjum sólarhring. Þar stefnum við að því að vinna áfram að dýpkun og leng- ingu hafnargarða. Á undanfornum árum hefur höfnin tekið mikið fé úr bæjarsjóði. Nú er svo komið að tekjur hafnarinnar hafa aukist og hún er farin að greiða upp í skuld- ir sínar við bæjarsjóð. D-listinn leggur áherslu á að hafist verði handa við að byggja upp miðbæjar- kjarna. Þar munu ýmsar þjónustu- miðstöðvar vera til húsa. Við mun- um áfram stuðla að öflugu félags- starfi og mjög brýnt er að koma á fót félagsmiðstöð fyrir unglinga auk þess að huga vel að vimuefna- vömum,“ segir Reynir. Hann segir að D-listinn stefni að því að ná aft- ur þriðja manni sem hann missti við síðustu kosningar. K-listi D-listi B-listi 1. Óskar Gunnarsson 1. Reynir Sveinsson 1. Heimir Sigursveinsson húsasmiður. rafverktaki. húsasmíðameistari. 2. Sigurbjörg Eiríksdóttir 2. Eyþór Jónsson 2. Rakel Óskarsdóttir húsmóðir. framkvæmdastjóri. nemi. 3. Jóhanna S. Norðfjörð 3. Salome Guðmundsdóttir 3. Heiðar Ásgeirsson húsmóðir. húsmóðir. byggingafulltrúi. 4. Sigurður H. Guðjónsson 4. Hildur S. Thorarensen 4. Jóhann Kjærbo byggingastjóri. lyfjafræöingur. bankastarfsmaður. 5. Ingþór Karlsson 5. Guðjón Ólafsson 5. Þorbjörg Friðriksdóttir véifræðingur. útgerðarmaöur. verslunarmaður. 6. Sólveig Sveinsdóttir 6. Árni Sigurpálsson 6. Guðmundur Skúlason skólaritari. hafnarvörður. iðnnemi. 7. Gunnar Guðbjörnsson 7. Karl G. Karlsson 7. Anna Bjömsdóttir húsasmiður. sjómaður. verslunarmaður. Atak við fegr- un bæjarins Umhverfismálin eru efst á blaði nú fyrir þessar bæjarstjórnarkosn- ingar. Það þarf að gera mikið átak við fegran bæjar- ins. Fjaran er í mjög slæmu ástandi. Þar þarf að hefja fram- kvæmdir við safn- ræsi, hreinsistöð og útrás. Þetta er forsenda þess að fjaran geti hreins- að sig og orðið sú He,|T,,r Sigur- náttúruperla sem sveinsson, odd- hún ætti að vera. Vltl B' ,stans' Einnig þarf að ráðast í að rækta upp heiðina sem er eitt flakandi sár eftir malarnám und- anfarinnar áratuga. Gangstéttarmál og fegrun opinna svæða verða líka að hafa forgang," segir Heimir Sigur- sveinsson, oddviti framsóknar- manna og óháðra. „Skólamálin eru mikið í umræð- unni og það þarf að huga alvarlega að innri málefnum skólans. Einsetn- ing hefur enn ekki náðst þar sem skólahúsnæði hefur enn ekki klárast þrátt fyrir fogur loforð núverandi meirihluta. Foreldrar gera kröfur um meiri gæði og metnað í kennsl- unni og það er bæjarfulltrúa að fylgja þessum málum eftir. Við vilj- mn að forstöðumenn stofnana bæjar- ins taki meiri ábyrgð og verði ein- ungis ráðnir til fjögurra ára í senn. Þeir hafi mannaráðningar í sínum höndum því það ætti að koma í veg fyrir pólitískar ráðningar. Við vilj- um leita allra ráða til að draga úr skuldasöfnun bæjarins. Skuldir bæj- arfélagsins hafa tvöfaldast á síðasta kjörtímabili. Skuldirnar hafa aukist úr 179 þúsund á hvem íbúa Sand- gerðis 1993 í 251 þúsund 1997,“ segir Heimir. Hann segir það raunhæfa möguleika að B-listinn nái tveimur mönnum inn í bæjarstjóm í kom- andi kosningum. -RR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.