Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1998, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1998, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1998 9 DV Ítalía: Tugir fórust í aurskriðum „Fjallið opnaðist og aurinn streymdi úr því á frmm stöðum eins og hraunalda. Þetta var hræðileg sjón. Þriggja hæða hús eru á kafi undir svörtum aurnum." Þetta er lýsing lögreglumanns á náttúruhamförunum í suðurhluta Ítalíu í gær er tveggja metra djúpar aurskriður flóðu eftir götum bæja og þorpa. I gærkvöld höfðu fúndist lík þrjátíu og þriggja manna. Sjötíu var saknað í kjölfar jarðvegshnmsins og skriðufallanna í Kampaníuhéraði umhverfis Napólí. Yfir hundrað manns slösuðust og mörg þúsund urðu að yfirgefa heim- ili sín. í bænum Sarno féll aurskriða á sjúkrahús. Stigi hrundi 1 sjúkrahús- inu og urðu bæði læknar og hjúkr- unarkonur undir honum. 1 bænum Bracigliano fundu björgunarmenn lík 34 ára konu og þriggja bama hennar. Sjónarvottar sögðust hafa séð þau þeytast burt með aurskriðu. Úrfelli hafði verið á þessum slóð- um i nokkra daga áður en jarðvegur- inn lét undan síga. Sérfræðingar segja að vegna lélegs skipulags byggðanna hafi afleiðingar skýfalls- ins orðið svo alvarlegar. „Þetta eru engar náttúruhamfarir heldur afleiðingar kerfisbundinnar misnotkunar á svæðinu þar sem jafnvægi í umhverfinu og öryggi hef- ur orðið að víkja,“ sagði talsmaður stærstu umhverfisvemdarsamtaka Ítalíu. Slökkviliðsmaöur bjargar aldraðri konu í bænum Sarno úr aurnum sem flóöi yfir bæinn snemma í gærmorgun. Símamynd Reuter _______________Útlönd Páfagaröur leynir engu Joaquin Navarro-Walls, tals- maður páfagarðs, sagði í gær aö ekki hefði neinu verið haldið leyndu um morðið á yfirmanni svissneskra lífvarða páfa og eigin- konu hans á mánudagskvöld og sjálfsmorði ódæðismannsins. Krufning líkanna hefur staðfest að Alois Estermann, nýskipaður yfirmaður lífvarðanna, varð fyrir tveimur skotum og kona hans einu. Morðingi þeirra, undirfor- inginn Cédric Tornay, skaut sjálf- an sig síðan í munninn. Navarro-Walls sagði að það væri undir fjölskyldu Tomays komið hvort bréf, sem hann skrif- aði skömmu áður en hann framdi morðin í stundarbrjálæði, yrði gert opinbert. Estermann og eiginkona hans voru jarðsett við hátíðlega athöfn í páfagarði í gær. Stjórnarmyndun hafin í Þórshöfn Annfmn Kallsberg, formaður Fólkaflokksins I Færeyjum, hóf fyrir alvöru stjómarmyndunar- viðræður við leiðtoga Þjóðveldis- flokksins og Sjálfstýriflokksins í gærkvöld. Ef flokkamir, sem allir em fylgjandi ýmist aukinni sjálf- stjóm eða sjálfstæði frá Dan- mörku, koma sér saman um að mynda nýja stjóm mun hún hafa stuðning átján þingmanna af 32 sem sitja á færeyska lögþinginu. í lögþingskosningunum í Fær- eyjum fyrir einni viku fengu þeir flokkar sem leggja áherslu á auk- ið sjálfstæði eyjanna góðan meiri- hluta. Búast má við nokkram breytingum á sambandinu við Dani í kjölfarið. (jjÞMetabo MeÍdbo borvélar Sjálfvirk Metabo S-kúpling. Metabo S-kúplingin eyðir óvæntum bakslögum og forðar meiðslum. (jjj)Metabo (UWlnausÍN Sölustaðir um allt land Sími 535 9000 77 að hvað er ég lengi heijra frá Orlanao til Ðoston ? íí www.fjolnet.is/svarid Smelltu þér á netið islan islandia intemet Elnatakllngmþjónumtm Átak í §ö(nun Spilliefna Látum ekki spilliefni safnast saman í heimahúsum, geymslum eða á lóðum. Notum nú tækifærið, gerum hreint fyrir okkar dyrum og komum hættulegum efnum í öruggar hendur. Borgaryfirvöld, í samvinnu við spilliefnanefnd, standa fyrir móttöku spilliefna laugardagana 2. og 9. maí á eftirtöldum stöðum: Skeljungur v/Birkimel og Hraunbæ. ^Lasp- Olís v/Álfabakka, Gullinbrú, Álfheima og Sæbraut/Kleppsveg. —Esso v/Stóragerði. . , verk' Endurvinnslustöðvar Sorpu. SýitHin Verum samtaka í söfnun spilliefna. Borgarstjórinn í Reykjavík - hreinsunardeild gatnamálastjóra

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.