Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1998, Page 17
16
+
25
íþróttir
FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1998
FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1998
DV
íþróttir
Draumalið DV
Lesendur DV hafa aö vanda tekið vel við sér í draumaliðsleik DV og
draumaliðin hafa streymt til blaðsins síðan leikurinn var kynntur í
síðasta mánudagsblaði.
Tilvísunamúmer og nöfn þátttökuliða verða birt á íþróttasíðum DV
jafnóðum og þau eru skráð í tölvukerfi leiksins og hér að neðan er fyrsti
skammturinn.
Þátttakendur verða að hafa hraðar hendur við að senda inn liðin því
þátttökufresturinn rennur út þann 14. mai.
00002 Breiöablik
00003 Frátenging
00004 Bóluhjálmar og
vörtumar
00005 Razor Blades
00006 Háagerði United
00007 Stigamenn
00008 Sparkverjar
00009 IVsku gárhundamir
00020 Fimmtíu kallarnir
00022 Umbro Team
00023 Pina Colada
00024 FC Dalglish
00025 Askur
00026 VR
00027 Newcastle II
00028 Nesquick FC
00029 Apalíus
00030 Rúsínubolla
00032 Arsenal The
Champions
00033 Draumalið ársins 98
00034 5. JÓ
00035 Svín
00036 Michael Owen er
langbestur
00037 Fótboltastrumpur
00038 Skyndisókn
00039 Brynjar
00040 Dream Team of
the Year’98
00042 Emirnir
00043 ÞAL-67
00044 SKM
00045 ÞAL-17
00046 ÞAL-13
00047 JÁ
00048 Andri Fannarpool
00049 Allt klárt
00050 Melavegur 21
00052 Igúls-Görl
00053 Maöurinn sem
kom að sunnan ...
00054 Orri frá Þúfu
00055 P-ið
00056 Amason
00057 Owen er bestur
00058 Eldibrandur
00059 Dúddi
00060 KGB
00062 FBI
00063 CIA
00064 Lötu svlnin
00065 Bumley FC
00066 Þalla
00067 Njörður
00068 A-deildin
00069 Of seinn í mat
00070 Andlausir og
bamalegir
00072 Saurlífisseggimir
slkátu
00073 Stöngin inn
00074 Dómarinn
00075 Betra mark
00076 Beckham’s
00077 Gummagys
00078 Gott Ámi
00079 Púta FC
00080 Orbit Winterfresh
00082 Tottenham 187
00083 Lasarus
00084 Sprettaramir
00085 Djokers
00086 Elvis
00087 Beckham er bestur
00088 Coltinn
00089 Gummaglens
00090 Gummagrín
00092 Chelsea best
00093 Kött 256
00094 Cancer
00095 Eving
00096 Ingeva
00097 Leifur heppni
00098 1505
00099 Meistaraliðið úr
Vesturbænum
00200 Mjólkurdýrið
00202 Bakkus-182
00203 Bio Pimp’n
00204 Skúrkarnir
00205 Gullsteinn
00206 Patrek’s FC
00207 Flokkur 65
00208 Hrakfallabálkamir
00209 Sexy Players
00220 Hof og Gron
00222 Rus-lið
00223 FC Freyr
00224 Arsenal ÞS
00225 Rakel Utd
00226 Þorskhausar
00227 Márus 013
00228 Teiknari
00229 Stinni stuð
00230 Æflngaakstur
00232 Yorke nr. 10
00233 Úlfarnir GÞS
00234 Impara l’italiano
00235 Guinness
00236 Óli Bjarni
00237 Blóðreflar
00238 Döðlusmyglarinn
00239 Plagióklas
00240 Kæfan
00242 Kúmenbræður
00243 Sigurliðið
00244 UMF Napoli
00245 Margeir 1.
00246 Queens Park
Rangers FC
00247 Trigger FC
00248 ÓBÓ
00249 Kristján Arason
the best
00250 Hlíð Utd
00252 Banine Utd
00253 Á toppnum
00254 Glæsimennin
00255 Fontur
00256 Jontrada
00257 Daníel sullskór
00258 Steikt ýsa County
00259 Lötu beljumar
00260 Hákon Ingi
00262 M.Schumacher
00263 Crackers
00264 UMFL
00265 Sveppir em vondir
00266 Lötu hrossin
00267 Þoturnar
00268 Kóngsi
00269 Einar Jón Geirss.
00270 Skvabbi
00272 Eiríkur kóngur
00273 Finlandia
00274 Ýktu spaðamir
Ólögleg lið:
Wuppertal
Daði Hafsteinsson
Dýrleif og dátarnir
Bimbó boltastrákru-
HÞS
Mabbutt
Ólæsileg á faxi:
Vip - Addý
Ónógar upplýsingar:
Dodda Team
Korsíkurallið:
McRae sigurvegari
Bretinn Colin McRae vann öruggan sigur í Korsíkurallinu sem lauk í
gær. McRae, sem ók á Subaru, hafði forystu í keppninni allan tímann og
kom i mark 27,2 sekúndum á undan Frakkanum Francois Delecour sem
ók Peugout 306 bifreið. Með sigrinum komst McRae í toppsætið í heims-
meistarakeppninni en sex keppnir eru að baki.
Spánverjinn Carlos Sainz er tveimur stigum á eftir McRae í baráttunni
um heimsmeistaratitilinn en hann varð í 8. sæti í Korsíkurallinu eftir að
hafa tapað dýrmætum tíma á 15. sérleiðinni. -GH
Þjóðverji
til Eyja í dag
- skoraði þrennu fyrir Liibeck í gær
Jens Paeslack, þýskur sóknarmaður, kemur til reynslu til íslands-
meistara ÍBV í knattspymu á morgun. Eyjamenn stefna að því að nota
hann á laugardaginn þegar þeir mæta Keílvíkingum í meistarakeppni
KSÍ.
Paeslack er 24 ára, hávaxinn og kraftmikill framherji sem leikur með
3. deildar liðinu LUbeck. Hann kemur heitur til landsins því hann skor-
aði þrennu í 6-3 sigri Lúbeck í deildaleik í gærkvöld.
„Við emm að leitast við að styrkja hópinn og stefhum að því að hafa
tvo menn að keppa um hverja stöðu í liðinu. Við verðum með Þjóðverj-
ann til reynslu fram yfir helgina og sjáum vonandi á laugardaginn hvað
hann getur. Samningur hans við LUbeck er runninn út þannig að við
þurfum ekki að greiða þýska liðinu fyrir hann ef af verður," sagði Jó-
hannes Ólafsson, formaður knattspymuráðs ÍBV, við DV í gærkvöld.-VS
LEIKFANGAVERSLUN GOLFARANS
Nethyl 2, Reykjavik « Sími: S77-2S25
Netfang Draumaliðsins
Netfang Draumaliðs DV, sem auglýst var
í blaðinu á mánudag og þriöjudag,
virkaði þvi miður ekki sem skyldi, eins
og margir þátttakendur hafa rekið sig á.
Beðist er velvirðingar á þessu en
netfanginu var endanlega kippt í liðinn
um miðjan dag í gær. Þeir sem höfðu
reynt að senda lið sin í tölvupósti fram
að því þurfa að gera það aftur.
Netfangið er: draumur@fT.is
Blcrnd í poka
Zoran Miljko-
vic, knattspymu-
maðurinn öflugi
frá Júgóslavíu, er
kominn til liðs
við Eyjamenn og
verður með þeim
gegn Keflavík í
meistarakeppni
KSÍ á laugardaginn. Miljkovic kom til
ÍBV i lok júlí í fyrra og átti drjúgan
þátt i velgengni þeirra á lokaspretti
Islandsmótsins.
Fram og Valur mætast í úrslitaleik
Reykjavikmmóts karla í knattspymu
á gervigrasinu í Laugardal á laugar-
daginn kl. 14.
ÍR og Léttir leika til úrslita í B-deild
Reykjavíkurmótsins á Leiknisvelli kl.
17 á sunnudaginn.
Alan Shearer,
fyrirliði New-
castle og enska
landsliðsins, hef-
ur verið formlega
ákærður af enska
knattspyrnusam-
bandinu fyrir að
sparka i andlitið á
Neil Lennon, leikmanni Leicester, á
dögunum.
Ekki hefur veriö ákveðið hvenær
málið veröur tekið fyrir en Shearer
hefur fengið 14 daga frest til að koma
fram með sina hliö á málinu.
Hver sem refsingin verður er ljóst að
hún kemur ekki til framkvæmda fyrr
en i upphafi næsta tlmabils.
Neil Lennon segir rangt að setja fram
kæru á hendur Shearer. „Hann hefði
átt að fá rauða spjaldið þegar þetta
gerðist, og ekkert meira. Það er of
mikið gert úr þessu rnáli,” sagði
Lennon í gær.
Einar Gunnarsson, handknattleiks-
maður úr Haukum, æfir í sumar með
hinu fræga tékkneska félagi Dukla
Prag.
Petr Baumruk, leikmaður Hauka,
kom því i kring. Baumruk lék í níu
ár með Dukla og æfir alltaf með lið-
inu á sumrin.
Bryan Robson, knattspyrnustjóri hjá
Middlesbrough, er kominn með í
hendur 2,4 milljaröa króna frá for-
ráðamönnum félagsins sem hann á að
nota til að styrkja liðið fyrir barátt-
una í úrvalsdeUdinni.
Robson hefur mikinn áhuga á að fá
þá Moreno Torricelli og Antonio
Conte frá Juventus, Gary Pallister frá
Manchester United og Stuart Ripley
sem leikur með Blackbum.
-VS
„Kemur til greina að hús-
ið rísi í Grafarvoginum"
- segir Reynir Ragnarsson, formaður ÍBR, um nýtt fjölnota íþróttahús. Enn er rætt um málið en ekkert gerist
Minna mal
Ljóst er að enn
verður malað um
þetta mál í nefndum
fram eftir árinu.
Minna verður um
framkvæmdir. Það
þarf ekki að eyða
meiri tíma í nefnda-
störf og óþarfa fjas.
Allt sem þarf er að
taka pólitíska Ekki er víst að fjölnota íþróttahús rísi í Laugardal. Mörgum finnst Grafarvogur koma sterklega til greina. Því er ekki að leyna að farið er
ákvörðun og hefja að þrengjast í Laugardalnum enda mörg mannvirki þar fyrir og varla pláss til fyrir það stærsta sem reist hefur verið hérlendis.
Enn er rætt um byggingu fjölnota
íþróttahúss en ekki hillir enn undir
að framkvæmdir hefjist enda hefur
engin ákvörðun verið tekin um bygg-
ingu hússins.
Reynir Ragnarsson, formaður
íþróttabandlags Reykjavíkur, Ómar
Einarsson, framkvæmdastjóri
íþrótta- og tómstundaráðs, og Eggert
Magnússon, formaður Knatt-
spyrnusambands íslands.
Tillaga þessarar nefnd-
ar var að byggt yrði
Qölnota íþróttahús
austan við Laugar-
dalshöllina. Með
þessari staðsetn-
ingu var ekki síst
verið að horfa til
rekstrarkostnaðar
enda möguleiki á að
samnýta starfsfólk
Laugardalshallarinnar
auk þess að nýta búningsher-
bergi og böð sem þar eru fyrir.
Skipuð nefnd og önnur
Síðan þessi nefnd sendi frá sér sína
skýrslu hefur lítið sem ekkert gerst í
málinu fyrr en á dögunum en þá var
önnur nefnd sett á laggirnar.
Þá var skipuð þriggja manna nefnd
á vegum borgarinnar, tveir frá R-lista
og einn frá D-lista. Þessi nefnd ku
hafa haldið nokkra fundi en málið er
greinilega enn á umræðustigi og
ákvörðunar varla að vænta fljótlega.
Með öðrum orðum: Hver nefndin af
annarri er skipuð og skoðar málið
mánuðum saman en ekkert gerist.
Staðsetningin er engan veginn
ákveðin en þrír möguleikar nefndir
sem þeir einu sem til greina koma,
austan Laugardalshallar, í Grafar-
vogi eða í nágrenni Háskóla íslands.
„Á við tvær skautahallir"
„Hér er um að ræða mjög stórt
hús. Ég hef bent mönnum á að það
þarf að vera á við tvær
skautahallir eins og þá
sem er í Laugardal. Þá
eigum við bílastæðin
eftir. Þetta verður
gríðarlegt mann-
virki og það kemur
vel til greina að
grafa það að ein-
hverju leyti niður.
Mænisásinn þyrfti
að vera um 13 metrar.
Þetta má ekki vera eins
og skrímsli innan um önn-
ur mannvirki í Laugardal,”
segir Reynir Ragnarsson, formaður
ÍBR.
Grafarvogur kemur til greina
Og hann bætir við: „Sú hugmynd
hefur verið viðruð að húsið rísi í
Grafarvogi. Þeir eru til sem álíta að
ekki sé pláss fyrir stórt ijölnotahús í
Laugardal ásamt þeim bilastæðum
sem nauðsynleg eru. Mér finnst
Grafarvogurinn koma til greina og
hugmyndin allrar athygli verð.
Það vantar tilfinnanlega annað
stórt íþróttahús í Grafarvogi. Þá er
einn mjög góður kostur við að hafa
húsið í Grafarvogi. Þá væri hægt að
verður tekin fljótlega verður hægt að allsráðandi mun fjölnota íþróttahús
taka húsið í notkun á þessari öld. Ef bíða nýrrar aldar. -SK
nefndastörfin halda áfram og verða
leigja skólunum aðgang að húsinu að
degi til þegar ella væri dauður timi.
Það koma ýmsir staðir til greina inn-
an Grafarvogs og þar
er nægt pláss fyrir
húsið og fjölda bíla-
stæða. Ég hef ekki
enn gert upp hug
minn varðandi stað-
setningu en Grafar-
vogurinn er vissulega
inni í myndinni.
Ég hef, eins og
margir fleiri, áhyggj-
ur af því að ef húsið
verður byggt í Laug-
ardal muni reynast
erfitt að reka það yfir
miðjan daginn. Það
er bara óskhyggja
þegar menn eru að
tala um að hægt sé að
leigja svona hús út
um miðjan daginn,”
sagði Reynir Ragn-
arsson.
framkvæmdir. Eftir þessu húsi er
beðið og þörfin er æpandi. Um það
eru allir sammála. Ef ákvörðun
Guðmundur
og Andrés
með Hauka
Guðmundur Karlsson og
Andrés Gunnlaugsson voru í
gærkvöld ráðnir þjálfarar meist-
araflokka karla og kvenna hjá
Haukum í handknattleik. Guð-
mundur verður með karlaliðið
og Andrés með kvennaliðið. Báð-
ir skrifuðu undir þriggja ára
rammasamning.
Guðmundur hefur þjálfað lið
Selfoss og FH. Hann tekur við
nokkuð breyttu karlaliði Hauka
þvi Gústaf Bjamason og Tjörvi
Ólafsson fara af landi brott og
Bjami Frostason hættir. Auk
þess eiga Rúnar Sigtryggsson og
Aron Kristjánsson í viðræðum
við þýsk lið.
Andrés, sem þjálfaði kvenna-
lið Gróttu/KR framan af síðasta
tímabili, tekur hins vegar við lít-
ið breyttu kvennaliði Hauka. Þar
er helst að Hulda Bjarnadóttir
fari ef Aron, unnusti hennar,
semur við þýskt lið.
-VS
Tí) ENGLAND
----------------------
Dennis Bergkamp er allur að koma til
af meiðslum sem hann hlaut í leik
gegn Derby í síðustu viku. Sjúkra-
þjálfari Arsenal er fullviss að Berg-
kamp verði búinn að ná sér fyrir úr-
slitaleikinn gegn Barnsley þann 16.
maí í bikarnum.
Frakkinn Emmanuel Petit lék ekki
meö Arsenal gegn Liverpool í gær-
kvöld vegna meiðsla. Hann veröur
einnig Qarri góðu gamni gegn Aston
Villa á laugardag þegar lokaumferð
úrvalsdeildar fer fram.
Jiirgen Klinsmann fær rúmlega 20
milljónir króna i vasann i kjölfar
þess að Tottenham heldur sætinu í
úrvalsdeildinni. Alan Sugar gerði
samning þar að lútandi viö Klins-
mann þegar hann gekk til liðsins i
vetur.
Eitt af fyrstu verkum Terry Vena-
bles sem knattspymustjóra Crystal
Palace verður að halda ítalanum Att-
ilio Lombardo hjá félaginu. Lom-
bardo þykir félaginu mikill styrkur
en í fyrrakvöld gegn West Ham átti
hann stjörnuleik. Lombardo hefur
sjálfur lýst því yfir að hann vilji vera
áfram á Selhurst Park.
Ronaldo hampar UEFA-bikarnum eftir sig-
urinn í gærkvöld. Reuter
„Veröskulduðum
þennan sigur“
- Inter Milano UEFA-meistari
Inter Milano vann UEFA-bik£irinn í þriðja skipti í gær-
kvöld. Inter vann þá annað ítalskt félag, Lazio, 3-0, í úr-
slitaleik í París.
Ivan Zamorano skoraði strax á 5. mínútu og eftir það
dró lið Inter sig til baka. Lazio sótti stíft en komst ekk-
ert áleiðis gegn vel skipulögðu liði Inter sem síðan inn-
siglaði sigurinn með mörkum frá Javier Zanetti á 60.
mínútu og Ronaldo á 70. mínútu. Þeir Zamorano og Ron-
aldo áttu enn fremur skot í stöng og slá.
„Gegn liði eins og Inter er slæmt að fá á sig mark eft-
ir fimm mínútur því það er svo öflugt í að verjast og
beita skyndisóknum," sagði Sven-Göran Eriksson, þjálf-
ari Lazio, eftir leikinn.
„Við spiluðum vel og verðskulduðum þennan sigur,“
sagði Ronaldo sem sýndi oft stórkostleg tilþrif í leiknum.
Á lokakaflanum voru Taribo West hjá Inter og Matias
Almeyda hjá Lazio reknir af velli. -VS
Ragnar áfram með ÍR
- Einar Þorvarðarson að öllum líkindum þjálfari ÍR-inga
Handknattleiksmaðurinn efnilegi, Ragnar Ósk-
arsson, mun leika áfram með liði ÍR í Nissandeild-
inni í handknattleik.
Ragnar hefur samið við ÍR til tveggja ára. Hann
var eini leikmaður liðsins frá síðustu leiktíð sem
var með lausan samning. ÍR-ingar geta nú andað
léttar enda Ragnar mjög mikilvægur hlekkur í
leik liðsins.
Viðræður standa enn yfir við Einar Þorvarðar-
son. Samkvæmt öruggum heimildum DV eru við-
ræðurnar langt komnar og nær víst að Einar
skrifi undir samning við ÍR í næstu viku.
Allir leikmenn ÍR frá síðustu leiktíð verða
áfram með ÍR að Frosta Guðlaugssyni undanskild-
um en hann leggur handboltaskóna á hilluna
vegna meiðsla.
Óvíst er hvort Guðmundur Þórðarson leikur
áfram með ÍR. Hann hefur svo oft hætt og byrjað
aftur að menn spá ekki í varnarmanninn sterka
fyrr en haustar. ÍR-ingar sem DV ræddi við í gær-
kvöld voru alveg eins á því að Guðmundur léki
áfram með liðinu næsta vetur. -SK
Bfland í poka
íslandsmeistarar ÍBV og bikar-
meistarar Keflavikur leika í meist-
arakeppni KSÍ á grasvellinum i Kefla-
vik klukkan 16 á laugardaginn. Leik-
urinn átti upphaflega að fara fram
síðastliðið haust en var frestað til
vors.
Lokahóf handknattleiksdeildar
Fylkis veröur haldið í sal Tann-
læknafélagsins í Síöumúla 35 laugar-
daginn 16. maí. Hægt er að kaupa
miða í afgreiðslu Fylkishallarinnar
frá og með 11. maí.
íþróttabandalag Reykjavíkur hefur
boðist til að sjá um byggingu fjölnota
íþróttahúss fyrir Reykjavíkurborg.
ÍBR segist geta byggt umrætt hús á
mun ódýrari hátt en borgin.
HSÍ hefur gert samstarfssamning
við fomvamar- og endurhæflngastöð-
ina Mátt. Samningur þessi felur i sér
aö öll landslið HSi fá aðgang að Mætti
til þrekþjálfunar og styrkingar.
HSÍ hefur einnig gert samstarfs-
samning við Lykilhótel ehf. Samning-
urinn felur í sér samstarf við Lykil-
hótel, hvar sem er á landinu. Lykil-
hótel mun sjá um gistingu fyrir er-
lend landslið sem hingað koma til
keppni svo og aðra erlenda gesti HSÍ.
Þann 7. júni verður dregið í riðla í
undankeppni fyrir HM sem fram fer i
Egyptalandi árið 1999. Undankeppnin
hefst svo í lok septembermánaðar.
Þorbjörn Jensson mun velja 18-19
manna landsliðshóp fyrir þetta verk-
efni og æfir hann 8. júní-10. júlí.
Einn rióla Evrópum'óts 20-ára lands-
liða í handbolta verður á Akureyri
5.-7. júni. ísland er þar í riðli með
Dönum og Pólverjum en Búlgarir
drógu lið sitt úr keppni. -SK/GH
Urslitakeppnin í NBA:
Charlotte lagði
Chicago Bulls
- yfirburðir Lakers gegn Seattle
Tveir leikir voru háðir í úrslita-
keppni NBA-deildarinnar í nótt.
Charlotte Homets gerði sér lítið
fyrir og sigraði Chicago í United
Center í Chicago, 78-76, og er stað-
an í viðureignum liðanna, 1-1.
Lakers vann yfirburðasigur á
Seattle á útivelli, 68-92, og þar er
staðan einnig 1-1 að loknum tveim-
ur leikjum.
Chicago hafði forystu í hálfleik,
36-30, og er þetta lægsta skor í sögu
úrslitakeppninnar. Chicago lék illa
og sagði Michael Jordan að þetta
væri leikur sem hann vildi gleyma
sem fyrst. Hann gerði 22 stig og
hitti illa í leiknum. Luc Longley
skoraöi 15 stig. Dennis Rodman tók
18 fráköst. Anthony Mason gerði 15
stig fyrir Charlotte og Glen Rice 14
stig. Vlade Divac tók 19 fráköst.
Þetta var fyrsti sigur Charlotte í
Chicgao í rúm tvö ár.
Shaquille O’Neal gerði 26 stig
fyrir Lakers og Eddie Jones 23 stig.
Lakers hafði mikla yfirburði allan
timann. Vin Baker gerði 13 stig fyr-
ir Seattle. „Við lékum afleitlega,"
sagði George Karl, þjálfari Seattle.
-JKS
Island og Japan mætast tvisvar á Austfjörðum:
Guðjón Valur í fliópinn
- leikið í Neskaupstað og á Fáskrúðsfirði
Guðjón Valur Sigurðsson,
efnilegur hornamaður úr
Gróttu/KR, er í 14 manna
landsliðshópi sem Þorbjörn
Jensson valdi fyrir tvo lands-
leiki gegn Japan á Austfjörð-
um um næstu helgi.
Guðjón Valur er í 20-ára
landsliðinu og Þorbjöm sagði
í gær að hann vildi gefa ein-
um ungum leikmanni tæki-
færi á að spreyta sig í þessari
ferð austur.
Fyrri leikurinn fer fram í
Neskaupstað á laugardags-
kvöldið kl. 21 og sá síðari á
Fáskrúðsfirði á sunnudaginn
kl. 16.
Austfirðingar fá að sjá öfl-
ugt íslenskt lið en hópurinn
er þannig skipaður:
Markveröir:
Guðmundur Hrafnkelsson, Val
Reynir Þór Reynisson, Fram
Aðrir leikmenn:
Björgvin Björgvinsson, KA
Patrekur Jóhannesson, Essen
Gunnar Berg Viktorsson, Fram
Dagur Sigurðsson, Wuppertal
Júlíus Jónasson, St. Otmar
Ólafur Stefánsson, Wuppertal
Daöi Hafþórsson, Fram
Valdimar Grímsson, Stjörnunni
Njörður Ámason, Fram
Geir Sveinsson, Wuppertal
Sigfús Sigurðsson, Val
Guðjón V. Sigurðsson, Gróttu/KR
Japanirnir leika síðan tvo
leiki við 20-ára landsliðið. Sá
fyrri verður á Hvolsvelli á
þriðjudag og sá síðari í Þor-
lákshöfn á miðvikudag.
í 20-ára liði íslands eru eft-
irtaldir:
Ragnar Óskarsson og Ingi-
mundur Ingimundarson, ÍR,
Kristján Þorsteinsson og Ró-
bert Gunnarsson, Fram, Hall-
dór Sigfússon, Hafþór Einars-
son, Heimir Árnason, Kári
Jónsson og Flóki Ólafsson,
KA, Sigurgeir Ægisson og
Sverrir Þórðarson, FH, Hjalti
Gylfason og Maxim Trufan,
Víkingi, Daniel Ragnarsson,
Ingvar Sverrisson, Sigurgeir
Höskuldsson og Bjarki Sig-
urðsson, Val, Guðjón Valur
Sigurðsson og Heiðar Guð-
mundsson, Gróttu/KR, og
Þorri Gunnarsson, Fjölni, en
hann er fyrsti Fjölnismaður-
inn sem valinn er í landslið i
handknattleik. -VS/GH
Meistararnir teknir í kennslustund
- Liverpool gersigraði lið Arsenal í úrvalsdeildinni, 4-0
Englandsmeistarar Arsenal riðu
ekki feitum hesti frá viðureign
sinni gegn Liverpool i ensku úrvals-
deildinni í knattspyrnu í gærkvöld.
Liverpool sigraði 4-0 og misnot-
aði að auki vítaspyrnu, Alex Mann-
inger, markvörður Arsenal, varði
frá Owen. Paul Ince skoraði tvö
fyrstu mörkin fyrir Liverpool, Mich-
ael Owen það þriðja og Norðmaður-
inn Öyvind Leonardsen það fjórða.
Marga fastamenn vantaði í lið
meistaranna og ekki nema eðlilegt
að liðið næði sér ekki á strik í kjöl-
far gleðinnar við að innbyrða titilinn
eftirsótta. Þá bíður Arsenal úrslita-
leikurinn í bikarkeppninni gegn
Newcastle og þeir fáu leikmenn
liðsins sem hafa sagt skilið við að
fagna meistaratitlinum eru komnir
með hugann á Wembley.
Það á ekki af Ian Wright að
ganga. Hann er nýrisinn á fætur eft-
ir erfið og langvarandi meiðsli. í
leiknum í gærkvöld braut Paul Ince
ruddalega á Wright sem meiddist
illa og er óvíst um framhaldið hjá
honum. -SK
Paul Ince var held-
ur betur í sviðs-
Ijósinu í gærkvöld.
t