Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1998, Page 24
32
FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1998
Spurt í Mosfellsbæ
Hvemig verða úrslit kosn-
inganna í Mosfellsbæ?
Kristján Einarsson ritstjóri:
Ég spái því aö það verði nauð-
synleg endumýjun.
Ema Eyjólfsdóttir hár-
greiðslumeistari: Ég hef ekki
hugmynd um það. Ég er ekki
spákona.
Hrefna Vestmann hár-
greiðsliuneistari: Ég held að
Framsókn vinni þetta.
Stefania Helgadóttir vakt-
stjóri: Mér finnst þetta tvíeggj-
aö. Ég vona aö sjálfstæðismenn
vinni því skuldirnar eru orðnar
allt of miklar. Ég sé ekki fyrir
mér að vinstri menn stöðvi
þessa skuldasöfnun.
iiaua rxi uasuu l cucmua vu iu.
Ég veit það ekki, það er erfitt að
segja til um það.
Björk Garðarsdóttir mat-
reiðslumaður: Ég segi að nú-
verandi meirihluti haldi. Það
eru nokkrar ástæður fyrir því.
Það eru mörg óþekkt andlit á
lista sjálfstæðismanna og núver-
andi meirihluti hefur sannað
sig í skólamálum og dagvistun.
Sveitarstjórnarkosningar 1998
Úr Mosfellsbæ þar sem tekist er á um peningamálin.
MOSFELLSBÆR
- úrslit kosninga '94
A: 9,1%
B: 26,2%
D: 42,6%
G: 22,1%
Sveitarstjórnarkosningar í Mosfellsbæ:
Tekist á um fjármálastefnu
Sjálfstæðisflokkurinn hefúr lengst-
um ráðið ríkjum í Mosfellsbæ en
missti þó meirihluta sinn í síðustu
kosningum. Framsóknarflokkur, sem
ekki hafði haft mann inni í 8 ár, vann
þá stórsigur og kom tveimur mönnum
inn. G-listi Alþýðubandalags (sem nú
er listi samstarfsflokks Alþýðubanda-
lags, Alþýðuflokks og Kvennalista)
náði einnig tveimur mönnum inn.
Þessir flokkar mynduðu svo með sér
meirihlutasamstarf en þrír bæjarfull-
trúar sjálfstæðismanna hafa verið í
minnihluta þetta kjörtímabil.
Sjáifstæðismenn segja kosningabar-
áttuna nú fyrst og fremst snúast um
peningamálin og nefna þar til gífur-
lega skuldasöfnun meirihlutans.
Framsóknarmenn og fulltrúar G-lista
segja að skuldir bæjarfélagsins hafi að
vísu aukist um 500-800 miiljónir en að
þeim hafi verið varið til uppbygging-
ar skólastarfs sem brýn nauðsyn hafi
verið til eftir stjórn sjálfstæðismanna
undanfarin ár. Meirihlutinn segir því
kosningarnar snúast um hvort bæjar-
búar vilji áframhaldandi uppbyggingu
í bæjarfélaginu.
Áframhald
uppbyggingar
„Við leggjum áherslu á að halda
áfram uppbyggingu skólamála, um-
hverfismála og breyttri stjórn-
sýslu,“ segir
Þröstur Karlsson,
efsti maður á lista
Framsóknar-
flokks í Mosfells-
bæ.
Þröstur segir að
meirihlutinn í bæj-
arstjóm hafi tekið
skólamálin fyrir á
siðasta kjörtima-
bili en þau hafi
verið í miklum
ólestri hjá fyrri
stjóm. Hann bend-
ir á að byggðir hafi verið tæplega 3000
fermetrar við gagnfræða- og bama-
skóla í bænum, auk þess sem til
standi að byggja nýjan grunnskóla og
leikskóla á vestursvæðinu sem er nýtt
byggingarsvæði í Mosfellsbæ. Þá
verði byggingu íþróttahúss lokið í
haust en það sé mjög þarft mannvirki
sem kosti um 200 milljónir króna.
„Við höfum einnig gert stórátak í
atvinnumálum í Mosfellsbæ. Hér hef-
ur verið stofnað atvinnuþróunarfélag
og atvinnuþróunarsjóður," segir
Þröstur. Hann segir skipulagsmálin
einnig ofarlega á lista hjá framsóknar-
mönnum og meirihlutinn hafi boðið
lóðir fyrir alla, jafiit fyrir atvinnu-
starfsemi sem einstaklinga.
„Kosningamar snúast í raun um
það hvort fólk vill áframhald á því
starfi sem við höfúm unnið hér und-
anfarin fjögur ár,“ segir Þröstur.
Hann segir að bæjarfélagið hafi safn-
að skuldum en það sé ekki ólíkt því
sem gerist hjá einstaklingum sem era
að byggja fyrir sjálfa sig og að nauð-
synlegt hafi verið að taka á skólamál-
tun í Mosfellsbæ.
„Við höfum bætt 500-800 milljónum
við skuldir bæjarfélagsins á kjörtíma-
Þröstur Karls-
son, oddviti
Framsóknar-
flokks.
bilinu en það er allt vegna byggingar
mannvirkja i bænum," segir Þröstur.
Ahersla á
fjölskylduna
„Við leggjum áherslu á stærstu
málin sem við höfum unniö að á
>au sömu og við
T1
Jónas Sigurðs-
son, oddviti G-
lista.
þessu kjörtimabili,
lögðum áherslu á i
Alþýðubandalag-
inu í síðustu kosn-
ingabaráttu. Þetta
era skólamálin, að-
staða bama og
unglinga, umhverf-
ismál og málefni
aldraðra," segir
Jónas Sigurðsson,
oddviti G-listans i
Mosfellsbæ, sem er
samstarfslisti Al-
þýðubandalags, Al-
þýðuflokks og Kvennahsta, þó svo að
boðið sé fram undir bókstafiium G.
Jónas segir núverandi meirihluta
hafa unnið ötullega aö skólamálum
sem séu eðli málsins samkvæmt jafn-
framt frekust til flárins. Hann segir að
byggðar hafi verið 18 skólastofúr á
kjörtímabilinu og stefiit sé að því að
ná einsetningartakmarkinu árið 2003.
Umhverfismálin segir hann að
skipi stóran sess og meirihlutinn hafi
leyst til sín land í nágrenni við þétt-
býlið þar sem unnið sé að uppgræðslu
tU að ná tökum á foki. Þá sé verið að
ganga frá skipulagningu Varmár-
svæðisins en þar eigi að vera útivist-
arsvæði frá upptökum til ósa Varmár.
Jónas segir mál aldraðra verða í
brennidepli á næsta kjörtímabili, ver-
ið sé að undirbúa að heimili fyrir
aldraða verði reist í bænum í sam-
starfi við ríkið. „Leikskólamálin era
einnig ofarlega á baugi. Við höfúm
bætt við einni deild á kjörtímabilinu
og til stendur að byggja nýjan leik-
skóla á vestursvæðinu. Við höfum séð
til þess að nú er hægt að vera með
böm í lengri vistun en hálfan daginn,
eins og var í tíð sjálfstæðismanna, og
ætlum að útrýma biðlistum í haust,"
segir Jónas.
Stöðvum
skuldasöfnun
„Okkar megináherslupunktar era
skólamálin og við viljum að þau hafi
forgang á næsta kjörtímabili. Þá leggj-
um við áherslu á
ábyrga fjármála-
stjóm bæjarins og
viljum virkari fjár-
málastýringu,"
segir Hákon
Bjömsson, oddviti
lista sjálfstæðis-
manna í Mosfells-
bæ.
Hákon segir að
sjálfstæðismenn
vilji að unnið verði
eftir mótaðri skóla-
stefnu í skólamál-
um en ekki einungis farið eftir stefnu
menntamálaráðuneytisins. „Við telj-
um einnig að þeirri lántökustefnu
sem rekin var á síðasta kjörtímabili
eigi að ljúka. Við viljum virkari fjár-
málastýringu og vfljum stöðva þessa
skuldasöfnim í bænum,“ segir Hákon.
Hákon segir sjálfstæðismenn telja
að þessi fjármálastefna, sem meiri-
hlutinn hafi fýlgt síðustu 4 ár, geti
leitt til stöðnunar bæjarfélagsins og
að það verði bundið í klafa vegna of
hárra afborgana og vaxtagreiðslna á
lánum.
Hvað snertir skipulagsmálin segir
Hákon að efst á baugi sé að fá Vestur-
landsveginn tvöfaldaðan og að í skipu-
lagningu sé lögð áhersla á að Mosfells-
bærinn sé útivistarbær.
„Viö viljum jafnframt vinna að
uppbyggingu miðbæjarins, og halda
þar með áfram vinnu sjálfstæðis-
manna, og gera hann aðlaðandi, jafnt
fyrir einstaklinga sem fyrirtæki til að
hefja atvinnustarfsemi hér í bænum,“
segir Hákon.
Engar öfgar
Mosfellslistinn er nýr listi og er
Gylfi Guðjónsson, ökukennari og fyrr-
um bæjarfulltrúi Framsóknarflokks-
ins, oddviti hans.
Aðspurður af
hverju hann væri
ekki á lista Fram-
sóknar eins og síð-
ast sagði Gylfi Ijóst
að það hefði ekki
verið þörf fyrir
hann þar. „Ég fór
fram á þriðja sætið
á listanum eins og
síðast þegar mikill
sigur vannst. Auk
þess vildi ég verða formaður skipu-
lagsnefndar eins og verið hafði, ef sú
staða hefði komið í hlut Framsóknar-
flokksins. Þetta var ekki samþykkt.
Það greip um sig mikil reiði meðal
fólks á öllum listum þegar það varð
ljóst að ég yrði ekki lengur með og
mér var jafnvel boðið að taka sæti á
lista hjá einum flokki. Ég þáði það
ekki en þakkaði heiðurinn.
Þannig varð þetta framboð til, það
kom til mín fólk sem stendur utan
flokka og vildi gera eitthvað. Þetta er
gott og duglegt fólk og sumir hafa
reynslu af sveitarstjómarmálum og
aðrir ekki. Það tók viku að koma list-
anum upp.“
— En hefur Mosfellslistinn ein-
hverja sérstöðu meðal annarra lista í
Mosfellsbæ?
„Ég veit ekki, þarf hann endi-
lega að einkenna sig frá öðrum?
Þetta er fólk sem hefúr unnið að
bæjarmálum eins og ég og fleiri.
Það er enginn flokkur búinn að
setja raunverulega fram sína
stefnuskrá svo það er erfitt að
svara þessu. Það eru eflaust ein-
hver mál sem að eru með öðrum
hætti en hjá öðrum en þetta er
enginn öfgalisti," sagði Gylfi Guð-
jónsson. -Sól.
B-listi. D-listi. G-listi. M-listi.
1. Þröstur Karlsson 1. Hákon Bjömsson 1. Jónas Sigurðsson 1. Gylfi Guðjónsson
verslunarstjóri. viðskiptafræðingur. bæjarfulltrúi. ökukennari.
2. Helga Thoroddsen 2. Ásta Björg Bjömsdóttir, 2. Guðný HaHdórsdóttir 2. Jóna Dís Bragadóttir
deildarstjóri. formaður Meinatæknafélags íslands. kvikmyndagerðarmaður. uppeldisfræðingur.
3. Björgvin Njáll Ingólfsson 3. Herdís Sigurjónsdóttir 3. Þóra B. Guðmundsdóttir, 3. Ólöf Björk Bjömsdóttir
verkfræðingur. meinatæknir. formaður Félags einstæðra foreldra. skrifstofumaður.
4. Ævar Sigdórsson 4. Pétur U. Fenger 4. Ólafur Gunnarsson 4. Guðlaug Kristófersdóttir
bifreiðarstjóri. framkvæmdastjóri. véltæknifræðingur. skrifstofustjóri.
5. HaUa Karen Kristjánsdóttir 5. Elísabet S. Ólafsdóttir 5. Dóra Hlín Ingólfsdóttir 5. Kolbeinn Hreinsson
íþróttakennari. skrifstofustjóri. rannsóknarlögreglumaður. múrarameistari.
6. Eyjólfur Ámi Rafnsson 6. Haraldur Sverrisson 6. Ríkharð Öm Jónsson 6. Þorbjöm Sigfússon
verkfræðingur. rekstrarstjóri. bílamálari. múrarameistari.
7. Sigríður Sigurðardóttir 7. Alfa Jóhannsdóttir 7. Guðrún Ólafsdóttir 7. Marta Hauksdóttir
skrifstofustjóri. kennari. irmanhússarkitekt. sjúkraliði.