Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998
Fréttir
Sverrir Hermannsson og Samtök um þjóðareign taka höndum saman:
Herferð fram undan
- segir Bárður G. Halldórsson, varaformaður samtakanna
„Það er herferð fram undan. Ég
get alveg sagt það að Samtök um
þjóðareign og Sverrir Hermanns-
son munu taka höndum saman.
Við ætlum að slá okkur saman í
herferð. Það er ljóst að það verður
hart barist í næstu kosningum og
ekkert gefið eftir,“ segir Bárður G.
Halldórsson, varaformaður Sam-
taka um þjóðareign, í samtali við
DV í gær.
- Mun Sverrir leiða sveitina?
„Hver leiðir þennan bardaga er
ófrágengið. Það er þó ljóst í mín-
um huga að það eru ekki mjög
margir menn sem geta vakið upp
svona mikil og kröftug viðbrögð
eins og raunin er með Sverri.
Hannibal og Albert Guðmundsson
hefðu getað það. Það er ljóst að
það verður framboð á landsvísu.
Það eiga margir aðilar enn eftir að
koma fram og þar eru margir
máttarstólpar," segir Bárður.
Leitaði áður til Sverris
Harm segir það hafa verið ákveð-
ið áður en Sverrir hætti í Lands-
bankanum að hann gengi til liðs
við samtökin.
„Á sínum tíma leitaði ég til
Sverris með að skrifa undir ávarp
Samtaka um þjóðareign. Hann
hafnaði því þar sem hann var þá í
Landsbankanum. Hann sagðist
koma með okkur í leikinn um leið
og hann losnaði þaðan. Þetta var í
október sl.,“ segir Bárður.
Samkvæmt heimildum DV
munu Bárður og félagar hans
fimda með Sverri um þessi mál á
morgun þar sem línur verða lagð-
ar.
-RR/-rt
Framboð Sverris vekur feikileg viðbrögð á ísafirði:
Ekki slík viðbrögð
síðan Hannibal kom
- segir Gísli Hjartarson. Vestfirskir þingmenn liðleskjur, segir Reynir Torfason
„Hann mun sópa að sér fylgi því
hér eru menn langþreyttir á kvóta-
kerfinu. Hann mun sérstaklega ná
fylgi frá Sjálfstæðisflokknum af þeirri
ástæðu að Einar Oddur og Einar
Kristinn hafa gjörsamlega brugðist í
þeirri baráttu sem þeir þykjast hafa
staðið í gegn kerfinu. Þá mun þetta
einnig höggva fylgi af Alþýðuflokkn-
um sem haldið hefur uppi sama and-
ófi en með engum árangri," segir
Gísli Hjartarson, ritstjóri Skutuls og
starfsmaður Skipstjóra- og stýri-
mannafélagsins Bylgjunnar á Vest-
fjörðum.
Gísli, sem er yfirlýstur alþýðu-
flokksmaður, hefur áratugareynslu af
vestfirskri sijómmálabaráttu. Hann
segist ekki hafa skynjað eins mikinn
áhuga meðal Vestflrðinga á pólitík
síðan Hannibal bauð fram undir
merkjum Frjálslyndra og vinstri
manna árið 1971.
Frétt DV i gær
um að sjáifur jám-
karlinn, Matthías
Bjarnason fyrrver-
andi alþingismaður
og ráðherra, væri í
stuðningsmannaliði
Sverris vakti feiki-
lega athygli og vart
er um annað talað á
Vestfjörðum.
„Það er ekki um
annað talað hér í bænum en hinn nýja
flokk Sverris. Ég var á höfninni í
morgun og þar voru sjómenn á einu
máli um að hér væra stórtíðindi á
ferð. Allir sem ég hitti ætla að kjósa
Svemi og sumir höfðu við orð að þeir
ætluðu að yfirfara gömlu haglarana
sína og pússa af þeim ryðið og vera
klárir í slaginn," sagði Gísli þegar DV
ræddi við hann í
gær.
Reynir Torfason,
hafnarvörður á ísa-
firði, segir mikla
stemningu í bænum
með fyrirhuguðu
framboði. Hann tek-
ur undir með Gísla
og segir að það
vanti aðeins að fólk
í bænum fari að
veifa fánum; svo
mikil sé ánægjan með væntanlegt
framboð.
„Eins og málin standa í dag mun ég
kjósa Sverri. Þó mér sé ekki sérstak-
lega hlýtt til hans persónulega þá felst
í framboðinu von um þverpólitíska
samstöðu gegn kvótakerfinu sem alið
hefur af sér nýja og grimma auðstétt.
Ég sem kommúnisti mun þess vegna
styðja þetta fram-
boð og ég heyri ekki
annað en fyrstu við-
brögð hjá almenn-
ingi séu þau að
þarna sé tækifæri
til að fylkja liði.
Þetta framboð mun
vinna stórsigur hér
ef miðað er við and-
ann í kringum það,“
segir Reynir.
„Sú staðreynd að
þingmenn hér eru liðleskjur hefur
kallað á nýtt afl sem mér sýnist í sjón-
máli. Ég væri tilbúinn að gera banda-
lag við sjálfan skrattann í því skyni að
afnema kvótakerfið og koma á heil-
brigðu fyrirkomulagi við fiskveiðar og
vinnslu. Sverrir er vélbyssukjaftur
sem við þurfum á að halda í þessari
baráttu," segir Reynir. -rt
Sverrir Her-
mannsson.
Reynir Torfa-
son.
Árekstur tveggja bifreiða varð á Snorrabraut í gær. Annar bíllinn lenti á hliðinni, eins og sést á myndinni. Annar öku-
mannanna var fluttur á slysadeild en meiðsl hans reyndust minni háttar.
DV-mynd S
Hreppstjórinn á Þórshöfn kærður
- vegna vanhæfis í kosningunum
Díanna Dúa:
Ihugar að-
gerðir
í gær var Díanna Dúa Helgadóttir
fyrirsæta í Spjallinu á www.visir.is og
komu yfir 1000 gestir inn á Spjallið og
ýmist fylgdust með eða spurðu
Díönnu spuminga.
Díanna Dúa er ein
stúlknanna ellefú
sem sátu fyrir nakt-
ar fyrir karlatíma-
ritið Playboy en
vegna þess var hún
rekin úr Fegurðar-
samkeppni íslands.
Meðal þess sem
kom fram í spjall-
inu við Díönnu Dúu
er að hún hyggur á aðgeröir gagnvart
Fegurðarsamkeppni Islands vegna
málsins í samstarfi við lögfræðing
sinn. Einnig kom fram að myndir af
henni í sokkum einum fata munu
birtast í ágústhefti bandaríska Play-
boy sem koma mun í búðir í júlí nk.
Hægt er að lesa spjallið við Díönnu
Dúu í heild sinni og sjá af henni
myndir í Spjallinu á www.visir.is.
í dag verður mikið um dýrðir í
Spjallinu. Söngkonan Móeiður Júní-
usdóttir kemur og spjallar um tímann
sem er fram undan hjá henni, en hún
er að fara að fylgja eftir plötu sinni
sem gefin verður út af hinu risavaxna
bandaríska hljómplötufyrirtæki
TommyBoy sem gefur út fjölda heims-
þekktra rapplistamanna, meðal ann-
ars de la soul og Coolio. Fyrsta smá-
skífan af breiðskífu Móu kemur út í
Bandaríkjunum og í Evrópu í byrjun
júlí. íslendingar eiga kost á því að sjá
Móu á tónleikunum Popp í Reykjavík.
Leiðin inn á Spjallið er einfold. Það
þarf einungis að slá inn slóðina www.
visir.is og smella á Spjallið.
„Ég kæri hreppstjórann vegna van-
hæfis í kosningunum. Hún var for-
maður kjörstjórnar hér á Þórshöfn á
sama tíma og sonur hennar var í 6.
sæti á Þ-listanum. Það teljum við
mjög óeðlilegt," segir Þorsteinn Þor-
bergsson, oddviti F-listans á Þórshöfn.
Þorsteinn hefur kært hreppstjór-
ann til sýslumanns vegna vanhæfis í
kosningunum á Þórshöfn. Þ-listinn
vann afgerandi sigur í kosningunum.
„Við kærum það að tveimur fram-
bjóðendum var leyft að draga sig til
baka af F-listanum. Við vildum fá að
bæta tveimur mönnum við í staðinn
en hreppstjóri bannaði það. Mér
finnst ekki eðlilegt ef hægt er að kom-
ast upp með svona vinnubrögð. Hlut-
verk kjörstjórnar er að tryggja rétt
kjósenda. Réttur þeirra á að vera að
velja af fuilskipuðum 10 manna lista,“
segir Þorsteinn.
„Ég er ekki búin að senda mína
greinargerð um málið. Að öðru leyti
vil ég ekki tjá mig um þetta mál,“ seg-
ir Brynhildur Halldórsdóttir, hrepp-
stjóri á Þórshöfn. -RR
Díanna Dúa.
Stuttar fréttir i>v
Staöa Þórðar Ingva
Utanríkisráðuneytið athugar nú
stöðu Þórðar
Ingva Guð-
mundssonar,
íyrrverandi
framkvæmda-
stjóra Lindar, í
ráðuneytinu.
Málefni Lindar
eru jafnframt til
skoðunar hjá Ríkissaksóknaraemb-
ættinu.
Dæmdur fyrir dópsmygl
35 ára gamall maður hefur verið
dæmdur í Héraðsdómi Reykjavík-
ur fyrir að smygla í innyflum sín-
um 135 grömmum af amfetamíni
frá Amsterdam. Hann hefur hlotið
nokkra fikniefoadóma áður. Bylgj-
an sagði frá.
Sjö vilja Hollustuvernd
Sjö hafa sótt um stöðu forstjóra
HoOustuvemdar ríkisins frá 1. júlí.
Umsækjendur eru Anna Kjartans-
dóttir, Björgvin Leifsson, Davíð Eg-
ilsson, Hermann Sveinbjömsson,
Jón Gíslason, Ólafur Oddgeirsson
og Þuríður Gísladóttir.
Sérlegur sýslumaður
Dómsmálaráðherra hefur sett
Hervöra Pálsdótt-
ur héraðsdómara
sériegan sýslu-
mann í kosning-
akærumáli gegn
Þórólfi Halldórs-
syni, sýslumanni á
Patreksfirði. Þór-
ólfur sýslumaður var og er varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins i Vest-
urbyggð. RÚV sagði frá.
RÚV hlutlaust
Útvarpsráð hefur komist að
þeirri niðurstöðu að fréttastofur
ríkisfjölmiðlanna hafi ekki brotið
hlutleysisreglur í aðdraganda nýaf-
staöinna sveitarstjómarkosninga.
RÚV sagði frá.
Ráðherrafundur EFTA
Ráðherrafundur EFTA stendur
nú yfir í Reykjavik og er Halldór
Ásgrímsson í forsæti. ísland hefur
gegnt formennsku í EFTA það sem
af er árinu. Meginviðfangsefni
fundarins era samskipti við ríki
utan Evrópusambandsins.
Örtröð
Tryggingastofnun hefur borist á
þriðja þúsund umsóknir um endur-
greiðslu hluta sérfræðilæknis-
kostnaðar frá því að læknarnir
voru samningslausir við stofnun-
ina á síðasta ári. MikO örtröð hef-
ur veriö í stofnuninni vegna þess-
ara mála undanfarið.
Haglabyssan
RannsóknardeOd Lögreglunnar
hefur haft sam-
band við Sverri
Hermannsson
vegna orða hans
um að við suma
menn talaði hann
ekki heldur sækti
hann haglabyss-
una. Lögreglan telur ekki ástæðu
til frekari aögerða.
Hlutlægnikönnun
Útvarpsstjóri hefur fengið fyrir-
tækið Hagvang tO að rannsaka
fréttaflutning ríkisfjölmiölanna af
kosningabaráttunni nýafstöðnu og
hlutlægni fréttanna og viðhorf
frambjóðenda tO þess máls. Einnig
verður kannað áhorf og hlustun á
kosningaútvarp og -sjónvarp og
hvort neytendur telja að aOt hafi
verið með eðlOegum hætti. RÚV
sagði frá.
Átta kosningakærur
Sveitarstjórnarkosningar hafa
verið kærðar í aOs átta sveitarfé-
lögum. í A-Landeyjum er kært
vegna hóps fóiks sem flutti lög-
heimili sín inn í sveitarfélagið
skömmu fyrir kosningarnar.
Kærendur telja að með því hafi átt
aö hafa áhrif á niðurstöðuna.
Jaröskjáiftar
Jarðskjálftahrina hefur gengið
yfir Herðubreiðarlindir undan-
farnar vikur. Skjálftar hafa
mælst að styrkleika 3,5-3,7
Richterstig. RÚV sagði frá.
-SÁ/JHÞ