Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 11 Fréttir Björk fær góða dóma í Ameríku DV, Akranesi: Björk Guðmundsdóttir hélt marga tónleika í Bandaríkjunum og Kanada í maí og var uppselt á þá alla. Bandarísk blöð hafa farið mik- inn og fæst þeirra eiga orð til að lýsa hrifningu sinni á þessari ís- lensku poppdrottningu. Eitt blað- anna sagði til dæmis að Björk væri ein besta söngkonan í heiminum og músík hennar væri hreint ótrúlega góð. Hún hélt meðal annars tónleika fyrir fullu húsi í Hollywood Pallad- ium. Gagnrýnandi Daily Entertain- ment News sagði að fólk hefði beðið í biðröð i tilhlökkun eftir einum af tónleikum ársins. Gagnrýnandinn sagði að Björk hefði byrjað tónleik- ana á laginu Hunter af síöustu plötu sinni, Homogenic, síðan keyrði hún á lögum af öllum plötum sínum. Mikil stemning var, að sögn gagn- rýnandans, þær 90 mínútur sem tónleikarnir stóðu. I lok gagnrýn- innar segir: „Þegar nóttin nálgaðist og Björk var búin að taka síðasta lagið var hún klöppuð upp, hún tók eitt lag en áhorfendur klöppuðu og klöppuðu og vildu fá miklu meira, svo hrifnir voru þeir af íslensku tónlistardrottningunni sem kom inn á sviðið berfætt og í hvítum kjól.“ -DVÓ Björk fellur vel í kramið vestanhafs. Akureyri: Sviptur ökuleyfi sam- kvæmt nýrri reglu DV, Akureyri: Lögreglan á Akureyri þurfti eins og venjulega um helgar að hafa nokkur afskipti af ökumönnum um hvítasunnuhelgina vegna hraðakst- urs. Einn ökumaður var sviptur öku- leyfi en hann ók á 96 km hraða á Þingvallastræti þar sem leyfður há- markshraði er 50 km eins og víðast i bænum. Þar sem 50 km eru hámarkshraði eru menn sviptir ökuleyfi aki þeir á 91 km hraða eða hraðar en „svipt- ingarhraði" á þeim stöðum hefur til þessa veriö 101 km en því var breytt nýlega. -gk Snæfellsbær: Gjaldskrá alvarleg fyrir feröaþjónustu DV, Vestnrlandi: „Bæjarstjórn Snæfellsbæjar hef- ur ekki ályktað sérstaklega um gjaldskrá Hvalfjarðarganga en mín persónulega skoöun er að þær væntingar að göngin yrðu lyfti- stöng fyrir ferðaþjónustu og nálg- un atvinnufyrirtækja við mark- aðssvæði SV-homsins hafi beðið alvarlegan hnekki við gjaldskrár- ákvörðunina," segir Guðjón Peter- sen, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, við DV. -DVÓ Gulir drykkir Alltaf ferskt... Select Dúndurtilboö Bjóöum þessa bíla með föstum 5% vöxtum, óverötryggö til 36 mánaða : Mazda 323 '87. Ásett verö: 290.000. Okkar verö: 250.000 Nissan Sunny Van '94 Ásett verö: 810.000. Okkar verö: 690.000 Nissan Micra '87. Ásettverð: 190.000 Okkar verö: 90.000 Chrysler Saratoga '91 Listaverð: 832.000 Okkar verö: 790.000 Peugot 405 '89. Ásett verö: 450.000 Okkar verö: 370.000 Renault 19 '94. Listaverð: 890.000. Okkar verö: 790.000 fl .W." Peugeot 605 '91. Ásett verð: 1.190.000. Okkar verö: 1.050.000 Suzuki Vitara ssk. '91 Ásett verö: 790.000. Okkar verö: 750.000 Dodge Neon '95. Ásett verö: 1.300.000. Okkar verö: 1.190.000 VWGolf'87. Ásett verö: 290.000 Okkar verö: 220.000 Jeep Cherokee Laredo '87. Ásett verö: 990.000. Okkar verð: 725.000 Mazda 626 '92. Ásett verö: 1.150.000 Okkar verö: 1.090.000 Fjórar góöar ástæöur fyrir aö versla hjá Jöfri • 5% vextir • Lán til 36 mánaða • Engin útborgun • Allir bílarnir eru söluskoðaðir Í fc ;/ ■;/ Sjgaí Ezk-.’ÆÍr. '~.5l Vlrr*"—-- ~~~ ~ \íSS_ a SJOÐUR FIMM Nafnávöxtun síðastliðið 1 ár % Nafnávöxtun síðastliðna 6. mánuði VÍB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Kirkjusandi • Sími 560 89 00 • Veffang: www.vib.is • Netfang: vib@vib.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.