Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Qupperneq 4
4
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998
Fréttir
Hörö viðurlög viö viröisaukaskattsbrotum:
Eiginkonan borgaði fang-
ann út seinasta daginn
- styttri refsisvist hafnaö þrátt fyrir alvarleg veikindi maka
Viðmælandi DV varö að afplána dóm sinn til síðasta dags. Alvarleg veikindi
eiginkonu hans voru ekki talin tilefni refsistyttingar. DV-mynd Hilmar Þór
„Þaö var enga vægö að hafa og ég
sat í tvígang inni fyrir sama brotið
sem snerist um að við gátum ekki
skilað virðisaukaskatti sem reikn-
aður var á kröfur sem við náðum
ekki að innheimta áður en fyrirtæk-
ið varð gjaldþrota," segir iðnaöar-
maður sem sat í fangelsi í samtals 7
mánuði vegna vangoldins viröis-
aukaskatts.
Eins og DV hefur fjallað um und-
anfarið er mjög mismunandi hvem-
ig farið er með mál þeirra sem ekki
skila virðisaukaskatti. Sumir semja
af sér skuldir með nauðasamning-
um á meðan aðrir sæta fullri refs-
ingu og fangelsisvist greiði þeir
ekki. Þannig er staðreynd að á ís-
landi sitja menn í skuldafangelsi
þrátt fyrir að slíkt hafi þegar fyrir
hundrað ámm verið mjög umdeilt.
Þannig era snauðir lokaðir inni á
meðan hinir efnuðu sleppa, kæri
þeir sig á annað borð um það. Ekki
er að sjá að dómsvaldið taki tillit til
efnahags hinna dæmdu þegar
ákveöið er hvort vararefsing komi
til framkvæmda.
Viðmælandi DV, sem eins og svo
margir aðrir sem lenda í fangelsi
vegna auðgunarbrota, vill nafn-
leynd, segir að rekja megi upphaf
málsins allt til ársins 1987 þegar fyr-
irtæki hans og félaga hans lenti í
gjaldþroti. Þá hafi staöiö út af sölu-
skattur að upphæð 5 milljónir
króna sem ekki hafi tekist að inn-
heimta. Málið hafi farið fyrir dóm
þar sem úrskurðað var að vararefs-
ing skyldi vera 7 mánaða fangelsi.
Umræddur einstaklingur hafði ekki
komist í kast við lögin áður. Gjald-
þroti fyrirtækis hans hafi jafnframt
fylgt að fjölskyldan hafi misst allt og
því engin leið að borga sektina.
Árið 1993 var dæmt í málinu og um
veturinn 1994 var hann sóttur og
honum stungið inn um tveggja mán-
aða skeið. í nóvember í fyrra var
hann svo sóttur aftur og þá sat hann
inni í 5 mánuði. Hann losnaði út af
Litla-Hrauni fyrir skömmu en segir
að málinu sé ekki lokið frá sinni
hálfu og hann muni krefjast réttlæt-
is. Hann segist hafa viðurkenningu
fyrir því að hann hafi setið í skulda-
fangelsi þó að slíkt sé ekki lögum
samkvæmt heimilt.
„Ég bað um að fá að fara í ferm-
ingu bróðursonar míns daginn áöur
en afþlánun átti að ljúka. Því var al-
farið hafnað og þá greip eiginkona
mín til þess ráðs að borga mig út.
Hún reiddi fram rúmlega 17 þúsund
krónur og þar með losnaði ég út á
sunnudeginum og komst í ferming-
una. Við geymum þessa kvittun sem
staðfestingu þess að ég sat í skulda-
fangelsi," segir hann.
Hann segir fangavistina hafa ein-
kennst af óvenjumikilli harðneskju
og enginn möguleiki hafi veriö til
þess að fá styttri
refsivist svo sem
gerist með af-
brotamenn sem
fremja annars
konar glæpi. Þá
hafi hann ekki
fengið dagpeninga
og öll fangavistin
hafi einkennst af
því að honum
bæri að taka út
sinn dóm til fulls.
„Þetta fékk
mjög á eiginkonu
mina og börn. Ég
reyndi að fá náö-
un vegna þess að
kona mín fór í
heilauppskurð en því var umsvifa-
laust hafnað á þeirri forsendu að
aldrei væri náðað í sektardómum,“
segir fanginn fyrrverandi.
„Mér var neitaö um dagpeninga
meðan á fangavistinni stóð. Þá neit-
uðu þeir mér um aö fara á Kvía-
bryggju vegna þess að Erlendur
Baldursson hjá Fangelsismálastofh-
un sagöi að þar gæti ég haft of mikl-
ar tekjur. Ég fékk þó að vinna á
Litla- Hrauni fyrir rúmar 225 krónur
á tímann. Þetta gerist þrátt fyrir að
ég hafi verið búinn að missa allt og
orðinn eignalaus. Það er svo að sjá
að yfirvöld elti aðeins uppi litlu karl-
ana. Alla vega varð ég ekki var við
neinn af þessum hákörlum sem farið
hafa í þrot á Hrauninu," segir hann.
Hann segist nú íhuga málaferli
vegna þeirrar meðferðar sem hann
hafi hlotið.
„Þessu máli er ekki lokið af
minni hálfu,“ segir hann. -rt
Kvittunin sem sýnir að fanginn var leystur út.
Jóakim aðalönd og kónarnir
Mikil lukka var það fyrir
Sverri Hermannsson að hrökkl-
ast úr Landsbankanum. Þar sat
hann eins og Jóakim aðalönd á
peningahrúgu og lét sér leiðast
milli þess sem hann skrapp
utan, með eða án fraarinnar. Nú
hefur hins vegar lifhað yfir hon-
um. Tímann nýtir hann vel á
biðlaununum frá bankanum.
Eiturörvar hafa flogið út og suð-
ur. Eftir þá hrinu era fleiri sár-
ir en Rendi og Lalli mágur.
Bankinn og viðskilnaðurinn við
hann dugir þó ekki til lang-
frama kjaftforam manni sem
Sverri. Hann vill berjast við
fleiri en Finn, Trúmann og Þórð
Ingva.
Bankastjórinn fyrrverandi er
að vísu orðinn svo þreyttur á
bankaráði Landsbankans að
hann hótar að beita á það hagla-
byssunni. Menn era vanir því
að Vestfirðingurinn kveði skýrt
að en þama þótti fulllangt geng-
ið. Velviljaðir menn segja því að
um óheppilega myndlíkingu hafi verið að ræða
fremur en um beina líflátshótun.
Kónana sjálfa ætlar Sverrir að hitta og þeir era
ekki svo aumir að sitja aðeins í bankaráði þjóð-
bankans. Kónarnir era á Alþingi. Sverrir ætlar
sér fram á Vestfjörðum með sjálfan Matta Bjarna
í heiðurssætinu. Sverri dugar ekki að berja bara á
Finni og Framsóknarflokknum. Hann tekur helst
fyrir sinn gamla flokk, Sjálfstæðisflokkinn. Þar
fær hann fínan liðstyrk í gömlum sjávarútvegsráð-
herra þess sama flokks. Matthías Bjamason hefur
ekki mikiö álit á núverandi sjávarútvegsráðherra.
Frægt varð þá er Þorsteinn Pálsson, í hlutverki
dómsmálaráðherra, sendi sýslumanninn á Akra-
nesi í útlegð til Hólmavikur. Matti vill senda Þor-
stein sjávarútvegsráðherra út á land ekki síður en
Skagasýsla og gera að hreppstjóra.
íslendingar elska pólitískan hanaslag. Það
þekkja frægustu strigakjaftar Vestfjarða, fyrrum
ráðherrar Sjálfstæðisflokksins Sverrir og Matti
Bjama. Þeir munu þvi hóa í kvótaandstæðinga og
annað óánægjulið víða um land. Öflugastir verða
þeir félagar fyrir vestan. Það þarf ekki mikið að
hræra í Vestfirðingum í kvótamálum. Þar verður
því rífandi gangur, eins og enn einn Vestfirðingur-
inn sagði um árið.
Það fer því að hitna undir þeim nöfnum Einari
K. og Einari Oddi. Hrein unaðsstund verður þá er
þeir hittast á framboðsfundi vestra Sverrir og
Gunnlaugur framsóknargoði á „Kögunarhóli".
Kannski Pétur Bjamason komist loks á þing í
skjóli ögurvíkingsins?
Þótt stjómarandstaðan kætist vegna alls þessa
kennir nokkurs kvíða í krataröðum. Atgangur-
inn vestra má ekki verða svo djöfullegur að eftir
sitji með sárt enni sjálfur formaðurinn, Sighvat-
ur. Hann er i framboöi fyrir vestan, ef rétt er
munað. Það verður enginn kvóti á krataþing-
mönnum fremur en öðru í Vestfjarðakjördæmi.
Enginn er óhultur þegar Ögurvíkingurinn leit-
ar bráöar.
Dagfari
Stuttar fréttir i>v
Aðalverktakar hagnast
Hagnaður Isl. aðalverktaka
varð 215 millj-
ónir króna á
tímabilinu 1.
júní-31. des.
1997. Velta fyr-
irtækisins
varð 3.084
milljónir kr.
Greiddur verð-
ur 7% arður. Framkvæmdastjóri
Aðalverktaka er Stefán Frið-
fmnsson. Viðskiptavefur Vísis
sagði frá.
Utanþingsviðskipti
Mikil viðskipti utan Verð-
bréfaþings hafa verið með hluta-
bréf í Granda hf. Sl. miðvikudag
námu þau tæpum 99,9 milljónir
á meðalgenginu 5,2. Viðskipta-
vefur Vísis sagði frá.
Gagnvirkur bíóvefur
Nýr gagnvirkur kvikmynda-
vefur hefúr verið opnaður á Net-
inu. Þar er að finna upplýsingar
um það sem kvikmyndaáhuga-
fólki stendur til boða hverju
sinni í kvikmyndahúsum, á
myndböndum, í sjónvarpi eða á
DVD-diskum. Viðskiptavefur
Vísis sagöi frá.
Hitaveita með Notes
Hitaveita Suðurnesja hefur
tekið í notkun forritapakkann
Gæðavörð frá Hópvinnukerfum
hf. Gæðavörður er byggður á
Lotus Notes-forritinu og nær til
flestra rekstrarþátta fyrirtækis-
ins og samskipta inni í fyrirtæk-
inu og við aðila utan þess. Um 80
manns starfa hjá Hitaveitu Suð-
urnesja.
Vilja Guðjón
Sjálfstæðismenn í Snæfellsbæ,
sem fengu
hreinan meiri-
hluta í kosning-
unum á dögun-
um, hafa ákveð-
ið að ræða við
Guðjón Peter-
sen um hvort
hann hafi
áhuga á að vera áfram bæjar-
stjóri. Viðskiptavefur Vísis sagði
frá.
Heilsuferðamennska
Helsti forystumaður samtaka
heilsuhótela og baðstofnana í
Ungverjalandi, dr. István Fluck,
heldur fyrirlestur um heilsu-
ferðamennsku á vegum Heilsu-
stofnunar NLFÍ, Ferðamálaráðs
og Reykjavíkurborgar á morg-
un, fimmtudag, að Hótel Loft-
leiðum. Hann er þekktur fyrir-
lesari og ráðgjafi um heilsu-
stofnanir og ferðamennsku
þeim tengda.
Mótmæla lögum
Húmanistaflokkurinn hefúr
mótmælt nýjum lögum um hús-
næðismál sem samþykkt vora á
Alþingi fyrir helgi. Lögin afnemi
félagsleg úrræði í húsnæðismál-
um og séu enn eitt skrefið i þá
átt að auka vald fjármagnsins
yfir lífi fólks.
Arkitektar ganga
Arkitektafélag íslands gengst
fyrir raðgöngu um Reykjavík í
samvinnu við Kjarvalsstaði.
Gengið er um hverfi borgarinnar
í fylgd arkitekts sem varpar ljósi
á helstu drætti í skipulags- og
húsagerðarsögu borgarinnar á
þessai-i öld. í dag, miðvikudag,
verður gengið um Laugarás-
hverfi, Sólheima og Voga.
Ástþór vill könnun
Ástþór Magnússon hefur fyrir
hönd samtak-
anna Friður
2000 óskað eftir
því við Um-
boðsmann Al-
þingis að hann
kanni og geri
athugasemdir
við afskipti
stjórnvalda af fjölmiðlum og
fréttaflutningi ríkisfjölmiðl-
anna. í bréfi sínu til umboðs-
manns tilgreinir hann nokkur
dæmi um meinta ritskoðun á
sjálfum sér í fréttum. -SÁ