Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Qupperneq 8
8
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998
Utlönd
Stuttar fréttir i>v
Talebanar í Afganistan samir við sig:
Neita að hjálpa fórn-
arlömbum skjálftans
Taliebanar, sem ráða yfir um 80
prósentum lands í Afganistan, neita
aö lýsa yfir vopnahléi til að hjálpa
þeim sem eiga um sárt að binda eft-
ir jarðskjálftann mikla um helgina.
Talið er að fimm þúsund manns
hafi farist í náttúruhamforunum.
„Við höfum ekki hugsað okkur að
senda þangað neina neyðaraðstoð.
Við verðum fyrst og fremst að verja
hendur okkar,“ sagði Amir Khan
Muttaqi, upplýsingaráðherra tale-
bana, í gær.
Þýska fréttastofan DPA skýrði frá
því á mánudag að fregnir hefðu borist
um átök í Takhar, héraði sem varð
illa úti í skjálftanum á laugardag.
Talebanar gerðu stutt hlé á bar-
dögum eftir jarðskjálftana sem urðu
í landinu í febrúar síðastliðnum.
Sameinuðu þjóðimar fóra fram á
það í gær að fleiri þyrlur og meira
eldsneyti yrði sent til skjálftasvæð-
anna.
„Við hvetjum alla sem geta séð
okkur fyrir þyrlum að gera það
núna,“ sagði Alfredo Witschi-Cest-
ari, sem samhæfir aðgerðir SÞ í
Afganistan.
Hann sagði að ekki skorti vistir
fyrir fómarlömb skjálftans, heldur
ættu hjálparsveitir í erfiðleikum
með að koma aðstoðinni á leiðar-
enda.
í yfirlýsingu sem SÞ sendu frá sér
segir að þyrlumar þrjár sem hjálp-
arsveitirnar hafa til afnota séu upp-
teknar við að flytja sjúka og særða
frá afskekktum þorpum til sjúkra-
skýla. Á meðan sé ekki hægt að
Þessar mæðgur misstu heimili sitt í
jaröskjálftanum t Afganistan.
flytja hjálpargögnin til þeirra sem
þurfi á þeim að halda.
Hjálparstarfsmenn sögðu í gær að
enn væri of snemmt að slá nokkru
fóstu um fjölda látinna. Ljóst væri
þó að fleiri hefðu látist nú en í febr-
úar þegar allt að fjögur þúsund
manns fórast.
Alþjóðanefnd Rauða krossins var-
aði við því I gær að svæðið sem
varð illa úti í jarðskjálftanum væri
40 prósentum stærra en í fyrstu var
talið.
Skjálftinn á laugardag mældist
7,1 stig á Richter-kvarða en sá í febr-
úar var 6,1 stig. SÞ áætla að jarð-
skjálftasvæðið sé 1.750 ferkílómetr-
ar að stærð og að 70 þúsund manns
hafði orðið fyrir barðinu á hamför-
unum.
Varað við mjög
löngu verkfalli
Franska ríkisflugfélagið Air
France þurfti að aflýsa flestum
áætlunarferðum sínum í morg-
un, þriðja daginn í röö. Flug-
menn vöruðu jafnframt við þvf
að verkfall þeirra yrði langt.
Deilendur hittast síðar í dag en
ekkert miðaði á fundum þeirra í
gær.
Ef verkfallið leysist ekki gæti
það haft alvarlegar afleiðingar
fyrir heimsmeistarakeppnina í
knattspyrnu sem hefst í Frakk-
landi eftir viku.
Milosevic þegir
þunnu hljóði
Slobodan Milosevic
Júgóslavíuforseti hafði síðdegis í
gær ekki enn tjáð sig um úrslit
kosninganna i Svartfjallalandi
um helgina. Þar vann erkifjandi
hans, Milo Djukanovic, stórsigur.
Það þykir auka líkumar á að
júgóslavneska sambandsríkið,
sem i era Serbía og Svartfjalla-
land, klofni. Djukanovic hefúr jú
hótað því.
Grunaðir um að
þynna vínið
Nokkrir háttsettir starfsmenn
franska víngerðarfyrirtækisins
Chateau Giscours í Bordeaux-
héraðinu liggja undir grun um að
hafa þynnt vínið með vatni og
bætt í það sykri og gert annan
óskunda við það. Rannsókn er
hafin á málinu.
Gular
melónur
Select
Gífurlegir hitar hafa verið á Indlandi að undanförnu og hafa rúmlega eitt þúsund manns dáið af þeirra völdum, að
því er indverskir fjölmiðlar hafa skýrt frá. I ríkinu Orissa hafa aö minnsta kosti 380 manns orðið hitanum að bráð.
Mestur hefur hitinn oröiö 49 gráður á Celsius. Unga fólkinu á myndinni fannst hitinn í höfuöborginni Nýju-Delhi orð-
inn óþarflega mikill, eöa rúm 40 stig, í gær og brá sér því undir vatnsúða í skemmtigarði einum.
Danir með ráðabrugg
um að ná olíu Færeyinga
Danska stjómin hefur, undir for-
ystu Pouls Nyrups Rasmussens for-
sætisráðherra, í mörg ár gert áætl-
anir um að afturkalla rétt færeysku
landstjórnarinnar til ráðstöfunar á
mögulegum olíufundi. Þetta kom
fram í netútgáfu danska blaðsins
Politiken í gær. Blaðið kveðst hafa
undir höndum gögn um málið. í
mörgum þeirra komi fram samsær-
iskenningar.
Lausafjársuppboð
Eftirtalið lausafé veröur boðiö upp að Aðalstræti 92, Patreksfirði,
___________miðvikudaginn 10. júní 1998, kl. 18.40.____
JL 0074 Steinbock Boss rafmagnslyftari.
Greiðsla áskilin við hamarshögg. Ávísanir ekki teknar gildar nema með samþykki upp-
boðshaldara.
SÝSLUMAÐURINN Á PATREKSFIRÐI
Færeyingar óttast aö Danir vilji
sölsa undir sig þá olíu sem ef til vill
er að finna í færeyska landgrunn-
inu og sem bjargað gæti efnahag
Færeyja. Danskir embættismenn
hafa vísað kenningunum á bug sem
hugarburði.
Politiken segir að Færeyingar
hafi haft ástæðu til að óttast. Stjóm
Nyraps hafi í mörg ár unnið að því
að ógilda ákvörðun Pouls Schlúters,
fyrrverandi forsætisráðherra Dan-
merkm-, um að færeyska landstjórn-
in fái ráðstöfunarrétt yfir land-
grunninu. Á fundum haustið 1992
gagnrýndu Poul Nyrup Rasmussen
og Poul Nielson, fyrrverandi orku-
málaráðherra, Schlúter harðlega.
Lögðu þeir áherslu á að fyrirtækið
Dansk Olie & Naturgas fengi sams
konar lykilaðstöðu í mögulegu fær-
eysku olíuævintýri eins og það hef-
ur á Grænlandi.
Poul Nyrup Rasmussen.
Lán til Indónesíu
Alþjóðabankinn ákvað í gær
að veita nýju stjórninni í
Indónesíu lán upp á 225 milljónir
dollara.
GIA-leiðtogi felldur
Öryggislögregla Alsírs til-
kynnti í gær að leiðtogi skæra-
liðahreyfmgarinnar GIA hefði
verið fellldur.
Monica rak Ginsburg
Monica Lewinsky, sem grunuð
er um að hafa logið eiðsvarin um
samband sitt
við Clinton
Bandaríkjafor-
seta, rak í gær
lögfræðing
sinn, William
Ginsburg. Mon-
ica var orðin
þreytt á laus-
mælgi lögfræðingsins. í opnu
bréfi til Clintons í síðustu viku
gaf lögfræðingurinn í skyn að for-
setinn og Monica hefðu átt í sam-
bandi. Lögfræðingurinn vísaði
þessu á bug.
Kona drukknaði
Kona nokkur í Bandaríkjunum
diukknaði þegar hún fór að
hinstu ósk sonar síns og dreifði
ösku hans í fljótið Big Hole í
Montana.
Hlutlaus ríki sek
Ríki, sem talin voru hlutlaus í
síðari heimsstyrjöldinni, stóðu
undir stríðsrekstri nasista, að því
er fram kemur í bandarískri
skýrslu.
Kosovo lokað
Stór svæði í vesturhluta
Kosovo vora í gær einangrað eft-
ir árásir serbneskra hermanna á
albanska skæruliða. Um 2 þúsund
manns flúðu frá Kosovo til Alban-
íu um helgina.
Þreyttur á letingjum
Vaclav Havel, forseti Tékklands,
er þreyttur á samstarfsmönnum
sínum. í sam-
ræðum við ráð-
herrann Vladi-
mar Mlynar
sagði Havel að
starfsmenn sín-
ir hættu að
vinna um leið
og hann sneri
við þeim baki. Sjónvarpsfrétta-
maður, sem var nærstaddur,
heyrði athugasemdina og sagði
þjóðinni frá. Havel hefur beðist af-
sökunar og gefið þá skýringu að
hann hafi verið í vondu skapi.
Moröingi Guccis laus
Bílstjórinn, sem keyrði flótta-
bílinn með morðingja tískukóngs-
ins Maurizios Guccis, sagði fyrir
rétti í gær að morðinginn gengi
enn laus. Fyrrverandi eiginkona
Guccis er sökuð um að hafa lagt á
ráðin um morðið.
Létust í sprengjutilræði
Tveir létu lífið og sex særðust
er sprengja sprakk í íslamska
byltingardómstólnum í Teheran í
gær.
Ferðasjóður uppurinn
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, hefur farið fram
á aukið fé til
ferðalaga er-
lendis. Hefur
forsætisráð-
herrann þegar
eytt öllu því fé
sem duga átti
út árið til ferða-
laga. Stjórnar-
andstæðingar gagnrýna Netanya-
hu harðlega og segja ferðir hans
hafa verið árangurslausar. Net-
anyahu fer fram á 100 milljónir ís-
lenskra króna til viðbótar.
Vili Berlusconi í fangelsi
Saksóknari krefst þess að fyrr-
verandi leiðtogi stjórnarandstöð-
unnar á Ítalíu, Silvio Berlusconi,
verði dæmdur í 5 ára fangelsi fyr-
ir ólöglega fiármögnun í kosn-
ingasjóð. Reuter