Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Qupperneq 12
12
MIÐVIKUÐAGUR 3. JÚNÍ 1998
Spurningin
Hvern þykir þér
vænst um?
Smári Ragnarsson atvinnubíl-
stjóri: Bömin mín.
Þórhalla Guðmundsdóttir leik-
skólakennari: Börnin og eigin-
manninn.
Jakobína Þórðardóttir þroska-
þjálfi: Bömin og eiginmanninn.
Sigmundur Magnússon, fyrrver-
andi forstöðulæknir á Landspít-
alanum við rannsóknastofu í
blóðfræði: Konuna mína, Guðlaugu
Sigurgeirsdóttur.
Sveinbjörn Sverrisson: Mömmu,
Sigurlaugu Sveinbjömsdóttur.
Lesendur
Óbragð í munni
Jóhann Gíslason skrifar:
Forsætisráðherra fer mik-
inn og er ótrauður við að
gefa frá sér yfirlýsingar um
það hversu heimskir borgar-
búar séu og talar m.a. um að
borgarbúar hafi gengið til
kosninga með „óbragð" í
munni!! Það skyldi þó aldrei
vera svo að það óbragð sem
ég geri ráð fyrir að forsætis-
ráðherra glími einnig við í
munni sér (hann er jú borg-
arbúi?) stafi að einhverju
leyti frá matreiðslu hans
manna á lágkúrulegum mál-
flutningi? Og áfram grætur
hann harmþrungnum sjálf-
stæðistárum og ber fram þá
skoðun sína að borgin hafi
ekki unnist vegna þeirrar
miklu „fjölmiðladýrkunar"
sem R-listi naut og reynir
með öllum ráðum að finna
einhvern blóraböggul á með-
al fréttamanna.
Það er mér, „heimskum"
borgarbúanum, afar nýstár-
leg kenning ef auðvaldsflokk-
urinn á nú orðið í vandræð-
um með að koma ásýnd sinni
á framfæri í fjölmiðlum og ekki hef-
ur mér sýnst svo aö foringinn hafi
verið í neinum vandræðum með að
senda frá sér ómerkilegar yfirlýs-
ingar undangengna daga.
Og til að breiða enn betur yfir
harmleikinn með borgina og stappa
stálinu í niðurbrotna hjörðina þá
lýsir foringinn því yfir í fjölmiðlum
að fyrirsjáanlegt sé að enginn R-listi
vérði til eftir nokkur ár. Lítið leggst
fyrir kappann!
En það er greinilegt, þrátt fyrir
„Einhvers staðar stendur: Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum. Við skul-
um gera þau orð að kjörorði.“
„heimsku" og óbragð í munni, að
borgarbúar hafa lagt mat sitt á þau
verk sem R-listinn hefur unnið að
seinustu fjögur árin og vilja greini-
lega að þeim sé haldið áfram í stað
þess að sigla inn í einhverja glans-
mynd sjálfstæðismanna sem e.t.v.
aldrei rætist!
Og til þess að feta nú í fótspor
Davíðs og gerast spámaður í eigin
borg þá spái ég því að þau verk sem
R-listinn hefur sett sér að vinna að
muni verða framkvæmd.
Það sæmh ekki forsætisráðherra
að gefa út svo aumkunarverðar yfir-
lýsingar! Brátt fara alþingiskosn-
ingar í hönd og við skulum vona að
sú baráttuaðferð sem sjálfstæðis-
menn viðhöfðu verði ekki höfð að
leiðarljósi þá. Það er ekki í verka-
hring almennings að setja á stofn
rannsóknarrétt! Einhvers staðar
stendur: Sá yðar sem syndlaus er
kasti fyrsta steininum. Við skulum
gera þau orð að kjörorði.
Hvers vegna þessi þögn?
KH skrifar:
Ég las í DV þann 27. maí að Þórði
Ingva Guðmundssyni hefði verið
ráðlagt að tjá sig ekki um hina
svörtu skýrslu Ríkisendurskoðun-
ar. Hann sagðist síðar myndu verja
hendur sínar en að það væri ekki
tímabært nú.
Hvers vegna var honum ráðlagt
að þegja um þetta? Hver ráðlagði
honum það? Hvers vegna fannst
honum hagstætt að taka þeirri ráð-
leggingu? Hvað er verið að fela?
Hvers vegna eru hann og þeh sem
málið varðar enn við störf? Er þetta
ekki talið alvarlegt mál? Eru 900
milljónir ekki mikill peningur að
allra áliti? Hvers vegna er haldið að
þessum mönnum sé enn treystandi?
Hér er dæmi: Myndi einhver
treysta meintum barnaníðingi fyrh
bami sínu? Ég efast um það. Maður
tekur enga sénsa þegar mikið er í
húfi. Því verða menn sem bera
mikla ábyrgð að vera hafnir yfir all-
an grun. Ekki má falla á þá minnsti
blettur. Það era einfaldlega gerðar
mehi kröfur til þeirra en annarra.
Því finnst mér að þessum mönn-
um ætti að segja upp störfum vegna
vantrausts, einnig þó verið sé að
kanna þetta niður í kjölinn, sé það
ekki augljóst nú þegar. Það ætti
ekki að verða töf á þessu máli þvi
efth hverju er verið að bíða? Það
þýðh ekkert að taka á þessu máli
eins og blindur kettlingur þó að
þessh menn séu í jakkafótum.
Burt með sóðana
„Lögreglan gæti líka rekið slík þægindi gegn vægu gjaldi, t.d. 500 kall tii
kviöar og 1000 kall ef til baks fylgir."
211237-4069 skrifar:
Mér kom í hug gamalt vísukorn,
sem byrjar á: Piss, piss og pelamál,
þegar ég heyrði í fréttum að lögregl-
an í Reykjavík hygði á hert viðurlög
gagnvart veggjakroturum og þeim
er kasta af sér vatni utan í veggi.
Gott er það eitt því löngu er kom-
inn tími til að hegna útigangs- og
utangarðslistamönnum, sem og
fyrrnefndum sóðum. Þeim síðar-
nefndu er þó nokkur vorkunn því
með örri fjölgun borgarbúa og auk-
inni sölu gosdrykkja og landa á síð-
kvöldum í miðbænum hefur ekki
íjölgað þeim þarfaþingum sem kall-
ast salemi. Það er ljóst að hin vhðu-
lega stofnun, Bankastræti núfl, get-
ur ekki tekið lengur við því aukna
gos- og landablandi sem niður um
kok káha miðbæjargesta rennur á
helgarkvöldum.
Fyrst hið gamla og gróna núll get-
ur ekki lengur annað álaginu væri
ráð að einhverjar framtakssamar
einkarekstrarhetjur tækju að sér að
reka slíka þjónustu gegn samkeppn-
ishæfu gjaldi. Lögreglan gæti líka
rekið slík þægindi gegn vægu gjaldi,
t.d. 500 kall til kviðar og 1000 kall ef
til baks fylgir. Tekjur af þessu gæti
svo lögreglan sett í snauða stéttarfé-
lagssjóði sína og kór.
Ef hins vegar væri fylgt ráði vísu-
komsins hér að framan má búast
við aö skókaupmenn í miðborginni
kættust því skótau endist sennilega
illa til þessara þarfa. Þeh gætu þá
jafnvel farið að hafa opið á síðkvöld-
um um helgar.
Bætum borgina. Burt með óá-
byrga listamenn. Burt með sóða.
Meira af
Derrick
Ásdís hringdi:
í DV 28.5. biður Gunnar Ein-
arsson um að þættirnh um
Derrick lögi’egluforingja verði
endursýndir í Sjónvarpinu. Ég
var í Þýskalandi fyrir sex árum
og sá þá mjög skemmtilega
splunkunýja syrpu af Derrick-
þáttum, reyndar talsvert behi en
þá sem síðast var sýnd hér og
var einum of heimspekileg fyrh
minn smekk. Þessa þætti hef ég
ekki séð enn þá í íslenska sjón-
varpinu. Ætli þeh séu ekki falir?
„Klögumálin
gengu
á víxl“
HÞ skrifar:
Þannig orðaði Bólu-Hjálmar
það er hann botnaði fyrripart
stöku er annar skarpur byrjaði
ögrandi þannig: „Vondh menn
með vélaþras...“
Vísa þessi lifnaði aftur í huga
mér við orðræðurnar allar aö
undanförnu út af banka okkar
landsmanna alha og i kjölfar
kosninganna nú í mánuðinum.
Tapsárh stórlaxar hafa m.a.
verið að hreyta skætingi í hina
ágætu Kristínu Þorsteinsdóhur
hjá RÚV í viðtölum hennar við
þá. í bókinni góðu stendur á ein-
um stað: Sá er stjórnar skapi
sínu er meiri en sá er vinnur
borgh ... og gæti Reykjavikur-
borg verið þar meðtalin.
Dagskrá
RÚV
Ásdís Arthúrsdóttir skrifar:
Ég er mjög undrandi á um-
mælum flölmiðlakonu sem ég
heyrði fyrh skömmu þar sem
hún deilir á RÚV fyrh að draga
úr dagskrárgerð yfir sumartím-
ann og bæth svo við að á þess-
um tíma blómgist Stöð 2 sem
aldrei fyrr. Sér er nú hver
blómgunartíminn hjá Stöð 2! Sú
stöð hefur árum saman þurft að
beita alls konar gylliboðum til
að stemma stigu við öllum upp-
sögnunum yfir sumartímann en
dugh ekki til. Flesth reyna að
nýta þennan stutta sumartima
með sín björtu kvöld í eitthvað
annaö en sjónvarpsgláp.
Nei, RÚV á hrós skilið fyrh
að vera ekki aö spreða miklu í
dagskrá sem vitað er að lítið er
horft á og geyma frekar púðrið
til vetrarins.
Veggjakrotið
burt
Kristjana J. hringdi:
Veggjakrot er farið að setja
heldur leiðinlegan svip á borg-
ina og er óskandi að lögreglan
fari að ná þessum mönnum.
Þeh valda einstaklingum eigna-
spjöllum upp á tugi þúsunda
með þessu kroti sínu og ættu að
fá að greiða sekth fyrh það eða
fá að hreinsa eftir sig.
Takk, Snorri!
Elín í Grafarvogi skrifar:
Loksins eru að hefjast fram-
kvæmdir við tvöfóldun á Gullin-
brú. Borgarstjóri og ýmsir borg-
arfulltrúar af báðum listum
hafa reynt að þakka sér þessa
framkvæmd í fjölmiðlum. Sann-
leikurinn er hins vegar sá að
við, íbúar í Grafarvogi, höfum
þrýst mikið á þetta mál og kraf-
ist nauðsynlegra úrbóta í sam-
göngumálum. Þar hefur Snorri
Hjaltason verið i fararbroddi og
ég vil ekki að forysta hans í mál-
inu gleymist. Því segi ég fyrh
mína hönd og annarra íbúa
Grafarvogs: Takk fyrir brúna,
Snorri.