Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Side 16
MAGENTA
16
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998
Hvað er í
tisku ?
Varla andmælir því nokkur að sumaríð sé loksins komið.
Blíðan undanfaríð hefur lokkað landann út undir bert íoft
og skyndilega eru vetrarfötin orðin allt of hlý. Sólin laðar
fram í okkur sumarfiðrínginn og ósjálfrátt birtir yfir klæða-
burðinum. Tilveran fór í bæjarferð og komst að þvt að
margt nýtt er á döfinni í tískuheiminum þar sem næstum
allt er leyfilegt í sumar.
Hör er efni sumarsins
- segir Elínrós Líndal, verslunarstjóri Evu
Sumarfatnaðurinn í Evu ber keim af tímabilinu sem oft er kennt við
kvikmyndina Grease. Þar er mikið um hnésíða kjóla og pils, litlar,
hnepptar peysur og bandaskó. Elínrós Líndal, verslunarstjóri í Evu,
segir hör þó vera efni sumarsins.
„Hör er búinn aö vera vinsæll erlendis í nokkurn tíma en einhverra
hluta vegna virðast íslendingar ekki hafa meðtekið hann almennilega fyrr
en núna. Líklega eru eiginleikar efnisins helsta ástæðan fyrir því. Hör hent-
ar sérstaklega vel í heitu loftslagi vegna þess að hann andar, er frekar kald-
ur og í miklum hita sléttist úr honum. Á íslandi er hann þar af leiðandi
Cargo-buxur njóta vax-
andi vinsælda. Þessar
eru úr teygjanlegu
nælonefni og eins jakk-
inn. Einnig er hægt að
fá hnésítt piis úr sama
efni. Þröngur, hvítur
bolur og hvítir striga-
skór fara vel við.
Hvftur hörkjóll, Iftil, bleik peysa og hvftir skór eru einkennandi fyrir sumariö
í Evu. Fyrirsætan heitir Þorgeröur Þóröardóttir og var valin Ijósmyndafyrir-
sæta DV í fyrra. DV-myndir Hilmar Þór
f r e m u r
krumpaöur og
það er í góðu
lagi. Hann á
að vera það. Ef
kona er vel til-
höfð, vel förð-
uð og greidd,
kemur hún
glæsilega út í
fatnaði úr hör,“
segir Elínrós.
Þá mun róm-
antísk lína
einnig einkenna
sumariö í Evu.
Fínlegir silkikjól-
ar, sem líkjast helst
undirkjólum, eru vin-
sælir, að sögn Elínrósar
og við þá er gjaman verið
í litlum, hnepptum peysum
og sandölum.
„Svokallaðar Cargo-buxur eru
líka að ryðja sér rúms hjá okkur
núna,“ segir Elínrós. „Þær eru fyrst
og fremst þægilegar, víðar og hanga á
mjöðmunum. Líkt og með hörinn hefur það
tekið þær tíma að ná athygli fjöldans en nú
virðast þær ætla að ná vinsældum."
Elfnrós Lfndal verslunarstjóri
segir hör eiga aö vera
krumpaöan. íslendingar virö-
ast loksins vera aö átta sig á
því núna.