Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Síða 19
18
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998
íþróttir
3#f
íþróttir
Bland í polca
Gunnsteinn Jónsson, GK, sigraði á
opnu golfmóti, kenndu við BS Golf-
vörur, sem haldiö var hjá golíklúbbn-
um Keili á mánudag. Gunnsteinn lék
á 71 höggi en Björgvin Sigurbergsson,
GK, og Guðmundur Hallgrímsson,
GS, komu næstir á 72. Haukur Jóns-
son, GK, sigraði í keppni með forgjöf.
Magni frá Grenivik er í efsta sæti
Norðurlandsriðils 3. deildarinnar í
knattspymu eftir góðan sigur á Hvöt
á Blönduósi, 1-2, 1 gærkvöld. Magni
er með sex stig eftir tvo leiki. Nökkvi
frá Akureyri vann HSÞ b, 0-4, að
Laugum.
Alessandro Del Piero getur leikið
með ítölum í lokakeppni HM i knatt-
spymu. Þetta var tilkynnt í gærkvöld
en hætta var talin á að nárameiösl
kæmu i veg fyrir að hann yrði með.
Romario hinn brasilíski er ekki jafn
heppinn. Mario Zagallo, landsliðs-
þjálfari Brasilíu, ákvað í gær að
senda hann heim og nota hann ekki I
HM vegna meiðsla.
Romario
gat ekki
leynt von-
brigðum sín-
um og há-
grét þegar
tíöindin
voru kunn-
gjörð, eins
og sést á
myndinni.
Brasilískir
knatt-
spymuáhugamenn urðu hissa þegar
Zagallo valdi i staöinn óreyndan
vamartengilið, Emerson Ferreira, í
hópinn. Margir góöir sóknarmenn
með Sonny Anderson fremstan i
flokki biðu til taks utan 22ja manna
HM-hópsins.
Japanar em líka steini lostnir þvi
þeirra dýrlingm-, Kazuyoshi Miura,
var ekki valinn í HM-hópinn. Miura
hefur gert 54 mörk i 80 landsleikjum
og skoraði öll mörk Japana í 3-0 sigri
á svissnesku félagsliði í fyrradag.
Lionel Perez, Frakkinn sem varði
mark Sunderland í ensku 1. deildinni
í knattspymu í vetur, gerði í gær
þriggja ára samning viö erkifjend-
uma í Newcastle.
Perez á aö berjast við Shay Given um
markvarðarstööuna hjá Newcastle en
þeir Shaka Hislop og Pavel Smicek
verða látnir fara.
Sagan er með Utah i úrslitaleikjum
NBA við Chicago þvi i síöustu fimm
skipti þar sem sömu lið hafa mæst
tvö ár í röð hafa liðin unniö sinn
meistaratitilinn hvort.
Karl Malone var aldrei betri í vetur
en í leikjunum tveimur gegn Chicago
þar sem hann skoraði að meðaltali
32,5 stig og hitti úr 62% skota sinna.
John Stockton hjá Utah ætlar sér ör-
ugglega að reyna losna við eitt met en
hann er sá maður sem hefur leikið
flesta leiki, 141, í úrslitakeppni NBA
án þess að verða meistari.
Karl Malone er skammt á eftir með
131 leik en þeir ætla sér nú að sleppa
út af þessum lista.
Chicago hefur aldrei tapaö í úrslit-
um en liöið hefur orðiö fimm sinnum
meistari á siöustu sjö árrnn.
-VS/ÓÓJ
Skagamenn skoða
menn í Júgóslavíu
DV, Akranesi:
Skagamenn stefna að því að vera
komnir með nýjan sóknarmann
sem verður gegn Grindavík á Skag-
anum 9. júní. Síðan Mihaljo
Bibercic fór að landi brott hafa
Skagamenn verið að leita að manni
í hans stað. Örn Gunnarsson frá
knattspymudeild fór utan til
Júgóslavíu í gær í þeim erinda-
gjörðum að skoða leikmenn. Skaga-
menn hafa augastað á ákveðnum
leikmanni sem er 33 ára gamall
sóknarmaður.
-JKS/DVÓ
Frjálsar íþróttir:
Bráðefnilegur
spjótkastari
- kastaði 67,64 metra og setti unglingamet
Jón Ásgrímsson úr FH setti
glæsilegt íslandsmet unglinga í
spjótkasti á vormóti Kópavogs.
Jón, sem er 20 ára að aldri og mik-
ið efni, kastaði spjótinu 67,64
metra.
Sigmar Vilhjálmsson átti gamla
metið sem var 66,24 metrar.
Það verður spennandi að fylgjast
með Jóni í mótum í sumar en hann
er stööugt að bæta sig. Til marks
um það hefur hann bætt sig um
átta metra á síðustu tveimur mót-
um. -JKS
NBA-úrslitin heíjast í nótt:
Sjo leikja bar-
átla fram undan?
í kvöld eftir miðnætti hefjast úr-
slitin um NBA-meistaratitilinn í
Salt Lake City í Utah. Chicago og
Utah Jazz endurtaka leikinn frá því
í fyrra en þá vann Chicago í 6 leikj-
um en í ár spá flestir að úrslitin ráð-
ist ekki fyrr en í sjöunda leik.
Það er ljóst að fyrsti leikurinn í
kvöld er mjög mikilvægur. Chicago
þarf vissulega að reyna nýta sér
hugsanlega værukærð Utah eftir 10
daga hvíld til að ná inn einum úti-
sigri strax. Menn þar á bæ vita að
ef einvígið dregst á langinn er hætt
við að tveggja vikna baráttuna við
Indiana geti reynst erfitt að yfir-
stíga þegar lengra líður á. Sá besti
af þeim bestu, Michael Jordan, er ef
til vill að stíga sín síðustu spor með
liðinu og við blasir sundrung á
næsta tímabili. Margir hafa deilt á
tímasetningu margra yfirlýsinga
þar að lútandi en Jordan segir að
liöið sé meistaralið og komi sem
meistarar í þessar viðureignir til að
landa sjötta titlinum á 8 árum.
Utah er aftur á móti komið í þá
stöðu, öfugt við stöðuna í fýrra, að
geta unnið sinn fyrsta meistaratitil
á sínum eigin heimavelli þar sem
liðið hefur gífurlegan stuðning sem
mælist í 120 desíbelum þegar mest
gengur á. Félagamir rómuðu, Mal-
one og Stockton, fá færi á að enda
ferilinn á því sem þeir hafa alla tíð
stefht að frá því að þeir fyrst hófu
að leika saman 1985, að eignast
meistarahring á fingur sér.
Er Dennis Rodman lykillinn
að sigri Chicago?
Margir hafa spurt sig að því hvar
Dennis Rodman var í leikjunum við
Indiana. Hann er nausynlegur til að
stöðva „Póstmanninn" Malone og
gefa Chicago mikilvægt forskot í
fráköstum. Rodman hefur ekki
fundið sig sem skyldi í úrslitunum
til þessa, menn hafa ekki tekið eftir
neinum háralitsbreytingum í lang-
an tima og nýjustu uppsteytin hafa
þótt afar fúrðuleg. Þauerhannmeð
þegar hann er á heimavelli og byrj-
ar ekki inn á. Þá þarf að sækja
kappann inn í búningsklefa þegar
Phil Jackson vill fá hann inn á, þar
sem hann hefur verið á æfingahjól-
inu eða bara dunda sér við að telja
„tattóin". Phil Jackson segir liðið
þurfa hans framlag og Michael Jor-
dan er sannfærður um aö hann átti
sig á mikilvægi sínu í því að koma
titlinum til Chicago þriðja árið í
röð. -ÓÓJ
Met sett í
markaleysi
Aöeins 5 mörk voru skoruð í
4. umferð úrvalsdeildarinnar í
knattspymu sem lauk í gær með
0-1 sigri Keflavíkur á Val. Aldrei
áður í sögu 10 liða efstu deildar
frá 1977 hafa svona fá mörk litið
dagsins ljós í einni umferð.
Metið áður vai' 6 mörk en 11
sinnum höfðu menn ekki náð að
skora meira en 6 mörk í umferð,
síöast í 5. umferö 1994.
Þrír eins marks sigrar, eitt
markalaust jafntefli og eitt 1-1
jafntefli skilu aðeins 5 mörkum
en aðeins hafa verið skoruð 13
mörk í síðustu tveimur umferð-
um.
Helmingur leikja jafntefli
AIls hafa 10 leikir af 20 leikj-
um til þessa í deildinni endað
með jafhtefli. Aldrei áður hafa
verið komin svona mörg jafntefli
eftir 4. umferðir í 10 liða efstu
deild en mest áður voru 9 jafri-
tefli í fyrstu 20 leikjunum árið
1984. Flest jafhtefli á einu tíma-
bili voru árið 1983 þegar það
urðu 33 jafhtefli. Fæst voru þau
1990 og 1993 eða aðeins 14. -ÓÓJ
Keflvíkingurinn Vilberg Jónasson (til hægri) og Valsarinn Ingólfur Ingólfsson kljást hér um knöttinn í leik liðanna í gær. Báðir voru þeir f fyrsta sinn í byrjunarliði
sinna liða f gær. Valsmenn nýttu sér ekki fjölmörg færi og Keflvíkingar stálu sigrinum með marki 12 mínútum fyirr leikslok. DV-mynd Brynjar Gauti
Val var refsað
- þegar Keflvíkingar skoruðu sigurmark undir lok leiksins
Þrátt fyrir að hafa fengið ófá færin
í seinni hálfleik tókst Valsmönnum
ekki að skora og þess í stað skoruðu
Keflvíkingar eitt mark undir lokin og
tryggðu sér 0-1 sigur að Hlíðarenda í
gær.
Leikurinn i gær var mikill baráttu-
leikur, deildin er mjög jöfn og liðin
vissu bæði að með einum sigri getur
staða þeirra breyst á örskotsstundu.
Keflavík var heldur sterkari aðil-
inn framan af leik en skortur á
ákveöni upp við mark Valsmanna
skilaði litlu sem engu í góðum færum.
Valsmenn fóru svo að taka við sér
þegar á leið hálfleikinn og bæði fyrir
og eftir hálfleik fékk Jón Þ. Stefánsson
fjögur mjög góð færi. Jón var mjög ið-
inn við að koma sér í færi í þessum
leik líkt og í fyrri leikjum Vals í sum-
ar en á í talsverðum erfiðleikum með
að skila knettinum í marknetið.
Með þessum sigri skutust Keflvík-
ingar upp í 3. sætið, með jafn mörg
stig og liðin tvö fyrir ofan þá.
Vandamál Valsmanna upp við
markið eru umhugsunarverð. Liöiö
gerði oft vel í að skapa sér færi og var
mun beittara heldur en Keflavikurlið-
ið í þeim efnum en það eina sem telur
er hversu oft boltinn fer yfir marklín-
una og það gerði hann aldrei hjá Val í
þessum leik.
Lukkudísir Keflvíkinga
„Þetta var draumainnkoma enda
sigur einmitt það sem liðið þurfti.
Deildin er mjög jöfii og allir leikir eru
úrslitaleikir. Við vorum betri í fyrri
hálfleik og hefðum getað skorað þá en
værukærð í upphafi seinni hálfleiks
hefði getað kostað okkur sigurinn.
Lukkudisirnar voru okkar megin í
þessum leik og ég er mjög ánægður
með úrslitin," sagði varamaðurinn og
hetja Keflvíkinga í leiknum, Guð-
mundur Steinarsson.
„Ég er mjög óánægður með að tapa
þessum leik. Við áttum leikinn og
höfðum færin til að klára þetta. Liðið
var að spila að mínu mati sinn besta
leik á tímabilinu til þessa en við nýtt-
um bara ekki færin og okkur var refs-
að. Það er mjög sárt að tapa þremur
stigum á heimavelli en við Valsmenn
snúum bökum saman fyrir næsta leik
og ætlum okkur betri hluti þar,“ sagði
fyrirliði Valsmanna, Lárus Sigurðs-
son, við DV eftir leikinn. -ÓÓJ
Valur (0)0
Kefíavík (0)1
0-1 Guömundur Steinarsson
(78.) með hægri fótar skot frá vita-
teigslínu eftir að Gunnar Oddsson
hafði lagt til hans boltann eftir hraða
og laglega sókn Keflavíkurliðsins sem
Kristinn Guðbrandsson átti stóran
þátt i.
Lið Vals: Lárus Sigurösson - Guð-
mundur Brynjólfsson @ (Vilhjálmur
Vilhjálmsson 63.), Stefán Ómarsson,
Bjarki Stefánsson @, Grímur Garð-
arsson - Ingólfur Ingólfsson (Amór
Gunnarsson 68.), Ólafur Stígsson, Sig-
urbjöm Hreiðarsson @, Heimir
Porca, Hörður M. Magnússon - Jón Þ.
Stefánsson @.
Lið Keflavíkur: Bjarki Guö-
mundsson @ - Snorri Már Jónsson,
Kristinn Guðbrandsson @, Gestur
Gylfason @, Karl Finnbogason (Guð-
mundur Oddsson 79.) - Róbert Sig-
urðsson, Gunnar Oddsson @, Georg
Birgisson, Adolf Sveinsson (Guö-
mundur Steinarsson ® 70.) - Vilberg
Jónasson, Ólafur Ingólfsson.
Markskot: Valur 14, Keflavík 5.
Hom: Valur 6, Keflavík 7.
Gul spjöld: Stefán (V), Sigur-
bjöm(V), Grimur(V), Hörður Már
(V), Vilberg (K), Snorri (K).
Dómari: Egill Már Markússon,
stóð sig nokkuð vel.
Ahorfendur: 601.
Skilyröi: Sól, nokkur gola, völlur-
inn ágætur en nokkuð harður.
Maður leiksins: Guðmundur
Steinarsson, Keflavfk. Draumur
varamannsins rættist - kom inn á og
skoraði sigurmarkið 8 mínútum síð-
ar.
Keflavik vann siöast Val á Hlíð-
arenda 1993, þegar liðið vann 2-0.
Valsmenn höfðu unniö Keflvíkinga
2-1 tvö síðustu ár.
Vala endurheimti
fyrri metin sin
- fór yfir 4,20 metra í Hollandi
Vala Flosadóttir endurheimti sín
gömlu íslands- og
Norðurlandamet í
stangarstökki utan-
húss á móti í Hol-
landi í fyrrakvöld.
Vala stökk 4,20
metra.
Þórey Edda setti
á fimmtudaginn
nýtt íslands- og
Norðurlandamet
þegar hún stökk
4,18 metra. Margar
af bestu stangar-
stökkskonum
heimsins tóku þátt í
mótinu í Hengelo en Emma George Þýskalandi
frá Astralíu, sem á heimsmetið, var
skráð til mótsins
en mætti af ein-
hverjum ástöæðum
ekki til leiks.
Dragila Stacy frá
Bandarikjunum
sigraö á mótinu
með því að stökkva
yfir 4,30 metra.
Þrjár konur stukku
svo yfir 4,20 metra,
þær Tatyana Grig-
orteva frá Rúss-
landi, Vala Flosa-
dóttir og Daniela
Kopernick frá
-JKS
Þrenna Jóhanns
- í 1-4 sigri á HK í Kópavogi
0-1 Jóhann Þórhallsson (2.)
1-1 Guðmundur Gíslason (17.)
1-2 Jóhann Þórhallsson (36.)
1-3 Kristján Ömólfsson (59.)
14 Jóhann Þórhallsson (76.)
Þórsarar gerðu góða ferð í Kópa-
voginn og sigruðu nýliða HK á
sannfærandi hátt, 1-4, í opnum og
skemmtilegum leik í 1. deildinni í
gærkvöld. 18 ára piltur, Jóhann
Þórhallsson, fór fyrir sínum mönn-
um og skoraði þrjú markanna.
Jóhann var ekki lengi að finna
leiðina í net andstæöinganna en
HK-menn gáfust ekki upp og náðu
að jafna leikinn. Eftir það fengu
liðin sitt hvort dauðafærið áður en
Jóhann skoraði aftur eftir tölu-
verða pressu Þórsara.
HK byrjaði hins vegar síðari
hálfleikinn betur en náði ekki að
nýta sér það og svaf síðan á verðin-
um þegar Þór bætti við marki. Eft-
ir það var allur vindur úr Kópa-
vogsliðinu og það skipti engu þó að
Ingi Heimisson Þórsari hefði feng-
ið að líta rauða spjaldið. Jóhann
fullkomnaði samt þrennuna.
HK-menn léku oft á tíðum vel
saman úti á vellinum og Steindór
Elíson og ívar Jónsson voru hættu-
legir ffammi, auk þess sem Danny
Brown lék vel á vinstri kantinum.
Mesti veikleiki HK er hins vegar
vömin og hana þarf að laga ef HK
ætlar að halda sér í deildinni.
Þórsarar áttu ágætan dag i gær
og gætu hæglega blandað sér í bar-
áttuna um úrvalsdeildarsæti. Auk
Jóhanns lék Kristján prýöilega og
Heiðmar Felixson og Orri Hjaltalín
áttu einnig góða spretti.
Maður leiksins: Jóhann Þór-
hallsson, Þór. -HI
Aftur lágu FH-ing-
ar á heimavelli
- nú gegn Stjörnunni, 1-2
1-0 Brynjar Gestsson (16.)
1-1 Valdimar Kristófersson (51.)
1-2 Kristján Másson (60.)
Stjömumenn gerðu góða ferð í Fjörð-
inn þar sem þeir lögðu FH-inga, 1-2, og
unnu þar með fyrsta sigur sinn í deild-
inni á þessu tímabili.
Fyiri hálfleikurinn einkenndist af
mikilli baráttu en heimamenn vom ívið
sterkari aðilinn. í síðari háifleiknum
snerist dæmið. Gestimir náðu heldur
undirtökunum í leiknum og náðu að
knýja fram sigur þegar varamaðurinn
Ki'istján Másson batt enda á vel útfærða
sókn Stjömunnar og skoraði meö fóstu
skoti í bláhomið.
FH-ingar urðu því að sætta sig við
annað tap sitt á heimavelli í sumar og
ljóst má vera að leikur liðsins þarf mik-
ið að batna ef það ætlar að vera í topp-
baráttunn en fyrir tímabilið var FH spáð
toppsætinu í deildinni.
Sprækastir í liði FH-inga, sem léku án
Harðar Magnússonar, vom Davíð Ólafs-
son og Amar Viðarsson. Stjömumenn
náðu að innbyrða 3 mikilvæg stig eftir
að hafa gert jafntefli í fyrstu tveimur
umferðunum og þessi sigur ætti að auka
sjálfstraustið í liöinu. Ragnar Ámason
var mjög sprækur á kantinum, Valdimar
Kristófersson gerði góða hluti og vara-
maðurinn Kristján Másson átti góða inn-
komu.
Maður leiksins: Ragnar Ámason,
Stjömunni.
-GH
Fylkissigur
í spennuleik
- 2-1 gegn Skallagrimi í Árbænum
O-l Hjörtur Hjartarson (6.)
1- 1 Ómar Bendtsen (40.)
2- 1 Sjálfsmark (65.)
Það vom Fylkismenn sem báru
sigur úr býtum gegn Skallagrími,
2-1, í jöfnum og spennandi leik í 1.
deildinni í Árbænum.
Skallagrímur náði yfirhöndinni
strax þegar dæmd var umdeild víta-
spyma á Fylkismenn. Eftir markið
var jafnræði með liðunum og barist
um hvem bolta. Um miðjan hálf-
leikinn varði Kjartan, markvörður
Fylkis, glæsilega gott skot Kristjáns
Baldurssonar. Fylkismenn áttu
nokkur hættuleg færi en það var
loks Ómar sem sendi knöttinn
skemmtilega í mark gestanna.
Spennan hélt áfram eftir hlé og
sóknir Fylkismanna fóm að þyngj-
ast þegar líöa tók á. En það voru
svo gestirnir sem buðu upp á loka-
markið í þessum jafna leik, sem
heimamenn þáðu með þökkum.
í liði gestanna vom Valdimar
Sigurðsson og Jakob Hallgeirsson
sterkastir. Einnig átti Stefán Ólafs-
son góða spretti. Ómar Bendtsen
og Gunnar Þór náöu vel saman í
liði Fylkis. Ómar Valdimarsson og
Kjartan Sturluson vom báðir
sterkir.
Maður leiksins: Ómar Valdi-
marsson, Fylki. -EÞG
Fimm nýliöar gegn Suður-Afríku:
Kærkomið
tækifæri
- segir Guðjón Þórðarson
Guðjón Þórðarson,
landsliðsþjálfari í
knattspyrnu, valdi í
gær fimm nýliða í
landsliðshópinn fyrir
vináttuleikinn gegn
Suður-Afríku sem
fram fer í Stuttgart í
Þýskalandi á laugar-
daginn.
Mikið er um forfóll í
islenska liðinu, aðal-
lega vegna þess að
leikurinn kom upp
með skömmum fyrir-
vara og margir at-
vinnumannanna vom
búnir að ráðstafa sínu
fríi. Þannig em þeir
Sigurður Jónsson, Þórður Guðjóns-
son, Helgi Kolviðsson, Lárus Orri
Sigurðsson og Eyjólfur Sverrisson
allir forfallaðir og þá em nokkrir
uppteknir með liðum sínum í Nor-
egi og Svíþjóð.
Fjórir nýliðar koma erlendis
frá
Nýliðarnir fimm hafa allir leikið
með yngri landsliðum íslands og
fjórir þeirra koma erlendis frá. Það
em Gunnar Einarsson, Haukur Ingi
Guðnason, Stefán Þ. Þórðarson og
Ólafur Öm Bjamason. Síðan er
markahæsti leikmaður úrvalsdeild-
arinnar, Steingrímur Jóhannesson,
í hópnum.
„Forfollin em mikil en þar með
fæ ég kærkomið tækifæri til að
prófa nýja leikmenn og breikka með
því flóruna hjá okkur. Verkefnið
verður mjög erfitt, ég sá talsvert til
Suður-Afríkumanna í Afríkukeppni
landsliða og þeir em með hörkulið.
Við munum spila svipað og undan-
farið, halda liðinu þétt saman og
verjast fast og ákveðið og sækja sið-
an hratt þegar færi gefast," sagði
Guðjón Þórðarson við DV í gær-
kvöld.
Lokaverkefnið
fyrir HM í ■*.
Frakklandi
Suður-Afríkumenn
hafa dvalið um skeið í
æfingabúðum í Stutt-
gart en þeir taka þátt í
lokakeppni HM í
Frakklandi og mæta
þar Frökkum í sínum
fyrsta leik annan
föstudag. Þeir hafa
spilað tvo upphitunar-
leiki i Stuttgart, gerðu
fyrst jafiitefli við 2.
deildarlið Stuttgart
Kickers, 1-1, en burst-
uðu varalið Stuttgart í
gærkvöld, 5-0. .
Suður-Afríka komst í undanúrslit '
í Afríkukeppni landsliöa í vetur og
sigraði í næstu keppni þar á undan.
í hópnum þar era 15 leikmenn frá
evrópskum félögum og margir eru á
því að Suður-Afríka geti komið á
óvart í HM í Frakklandi.
íslenski landsliöshópurinn er
þannig skipaður:
Markverðir:
Birkir Kristinsson, Norrköping .... 50
Kristján Finnbogason, KR..........19
Vamarmenn:
Hermann Hreiðarsson, Cr. Palace . . 12 ifí.
Brynjar Gunnarsson, Válerenga ... 11
Steinar Adolfsson, ÍA..............6
Óskar H. Þorvaldsson, Str’godset ... 3
Gunnar Einarsson, Roda.............0
Tengiliðir:
Einar Þór Daníelsson, KR..........13
Sverrir Sverrisson, Malmö..........7
Jóhann B. Guömundsson, Watford . . 2
Siguröur Örn Jónsson, KR...........2
Sigurvin Ólafsson, ÍBV ............1
Ólafur örn Bjamason, Malmö.......0
Sóknarmenn:
Haukur Ingi Guönason, Liverpool . . 0
Stefán Þ. Þórðarson, öster.........0
Steingrímur Jóhannesson, ÍBV .... 0
-VS
Steingrímur Jóhannes-
son hefur byrjað
íslandsmótið mjög vel
og fær tækifæri með
landsliðinu að launum.
Svíar skelltu ítölum
Svíar sigmðu HM-lið ítala, 1-0, í vináttulandsleik í knattspymu sem
fram fór í Gautaborg i gærkvöld. Kenneth Andersson skoraði sigurmark-
ið með skalla á síöustu mínútu leiksins. Svíar, sem sitja heima á meðan
HM stendur yfir í Frakklandi, virðast í góðu formi þessa dagana því þeir
möluðu Dani i síðustu viku, 3-0.
Austurríkismenn, sem leika á HM, hituðu upp með 6-0 sigri á ná-
grönnum sínum frá Liechtenstein í Vínarborg. Toni Polster og Peter Stö-
ger gerðu tvö mörk hvor en leikmenn Liechtenstein voru manni færri
nær allan leikinn því einn þeirra fékk rauða spjaldið á 8. mínútu. -VS
jZ f ÚRVALSPEILP
ÍBV 4 2 1 1 9-5 7
Leiftur 4 2 1 1 4-3 7
Keflavík 4 2 1 1 4-5 7
KR 4 1 3 0 3-1 6
Þróttur 4 1 3 0 7-6 6
Grindavík 4 1 2 1 94 5
ÍR 4 1 1 2 94 4
Valur 4 0 3 1 4-5 3
ÍA 4 0 3 1 4-6 3
Fram 4 0 2 2 1-5 2
Markahæstir:
Steingrímur Jóhannesson, ÍBV . . 5
Hreinn Hringsson, Þrótti .........3
Jens Paeslack, ÍBV................3
Kári S. Reynisson, Leiftri.......3
Sinisa Kekic, Grindavík...........3
Guðmundur Steinarsson, Kefl. .. 2
Jón Þ. Stefánsson, Val ...........2
Pall Einarsson, Þrótti............2
Sigurður R. Eyjólfsson, ÍA .......2
Næsta umferð er leikin helgina
13.-14. júni.
1» DEILD KARLA
^
Vikingur 3 3 0 0 5-1 9
Skallagr. 3 2 0 1 94 6
Breiðablik 3 2 0 1 4-3 6
Fylkir 3 2 0 1 4-3 6
Stjaman 3 1 2 0 3-2 5
KA 3 1 1 1 2-3 4
Þór 3 1 0 2 54 3
FH 3 1 0 2 34 3
KVA 3 0 1 2 4-6 1
HK 3 0 0 3 3-12 0
Markahæstir:
Hjörtur Hjartarson, Skallagr. ... 4
Jóhann Þórhallsson, Þór...........3
Sváfnir Gíslason, Víkingi........3
Boban Ristic, KVA.................2
Ólafur Þórðarson, Fylki ..........2
Kristján Ömólfsson, Þór...........2
fvar Siguijónsson, Breiðabliki .. 2
Brynjar Gestsson, FH..............2
Kristján Másson, Stjömunni .... 2
Valdimar Sigurðsson, Skallagr. . . 2
Emil Sigurðsson, Skallagr........2
f-