Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1998, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1998, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1998 JL>V DV Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLT111,105 RVÍK, SIMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Ftjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, simi: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerö: (SAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverö á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverö 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Keikó bjargar hvölunum Flutningur Keikós höfrungs til íslands táknar endan- legan sigur hvalavina yfir hvalveiöisinnum á íslandi. Með þessari frábæru leikfléttu mun bandarískum hvala- vinum takast að fá íslendinga endanlega ofan af hval- veiðihugsjónum sínum og það með góðu. Veitingamenn í Vestmannaeyjum geta ekki haft hval- kjöt á matseðlinum, þegar útlendir hvalavinir eru fam- ir að flykkjast til Eyja og flagga gullkortunum sínum. Þegar til kastanna kemur, mun hugsjón peninganna verða yfirsterkari hugsjón hvalveiðanna. Nú þegar leggja hvalaskoðunarferðir meira til þjóðar- búsins en hvalveiðar mundu gera, ef þær yrðu leyfðar að nýju. Nokkur sveitarfélög við sjávarsíðuna hafa gert hvalaskoðun að helzta vaxtarbroddi atvinnulífsins og fleiri munu feta gróðaslóð hvalavináttunnar. Hugsjón hvalveiða hefur verið á tveggja áratuga skipulegu undanhaldi hér á landi. Fundnar voru upp „veiðar til innanlandsneyzlu“ og „vísindaveiðar“, unz Japanir þorðu ekki lengur að kaupa hvalaafurðir héðan af ótta við refsiaðgerðir Bandaríkjamanna. Allan þennan tíma hefur meirihluti þjóðarinnar stutt hvalveiðar í skoðanakönnunum. Þjóðernishugsjón hval- veiðanna hefur aldrei bilað, þótt smám saman hafi á tveimur áratugum verið að koma í ljós, að hún væri bæði óframkvæmanleg og ákaflega dýrkeypt. Lengi ímynduðu menn sér, að unnt væri að sameina hugsjón og peningadýrkun með því að selja útlending- um hvalaafurðir. Komið hefur í ljós, að svo er ekki. Ekki þora einu sinni Japanir, sem nú í vikunni voru peningalega dregnir í land af Bandaríkjunum. Enn ímynda íslendingar sér, að unnt sé að selja mönnum hvalaskoðunarferðir og selja þeim síðan hval- kjöt í kvöldmatinn. Þegar vinum Keikós verður svo boð- in amma hans í matinn, munu þeir bara taka hugsjóna- kokkinn og fleygja honum i sjóinn. Hin einfalda staðreynd þessa máls er, að peningarnir tala. Þegar sjávarsíðan er farin að hafa miklar tekjur af hvalavináttu og Vestmannaeyjar eru orðnar að heim- kynnum frægasta höfrungs heims, verður ekki aftur snúið. Sögu íslenzkra hvalveiða er endanlega lokið. Helztu aðmírálar hins hægfara undanhalds hafa ver- ið ráðherrarnir Halldór Ásgrímsson og Þorsteinn Páls- son. Sá síðarnefndi sá hættuna, sem stafaði af heimferð Keikós og svaraði umsókninni neitandi. Hann tók fram, að slíkum umsóknum yrði framvegis neitað. Davíð Oddsson veit hins vegar, að hvorki er hægt að éta kökuna og eiga hana, né að éta hvalinn og eiga hann. Hann hefur feiknarlega lítið álit á Þorsteini hugsjóna- manni og flýtti sér að taka fram fyrir hendur hans, þeg- ar heimferð Keikós var orðin að alvörumáli. Halldór Ásgrímsson hefur í tvo áratugi slegið ódýrar keilur innanlands á þrautseigju sinni við að framleiða lokleysur í fjölþjóðastofnunum til stuðnings vonlausum hvalveiðum. Gaman verður að fylgjast með, hvernig hann meltir stöðuna, sem nú er komin upp. Engu máli skiptir, hvort hvalastofnar þoli hvalveiðar eða ekki. Þetta mál hefur fyrir löngu yfirgefið slóðir raka og rökleysu, en flýgur á þöndum vængjum tilfmn- inga. Með því að taka við Keikó hefur íslenzka ríkið endanlega beygt sig fyrir einfaldri staðreynd. Meirihluti þjóðarinnar verður senn að kyngja hetju- skap sínum og hugsjón sinni, því að glóandi peningarn- ir hafa talað og greitt atkvæði með hvölunum. Jónas Kristjánsson Kemur kreppa úr austri? Síðustu misseri hafa margir skemmt sér yflr spám um að gósentíð í efnahagslífi Vesturlanda muni halda áfram um langan tíma, jafnvel um ókomna áratugi. Mörg vestræn ríki hafa líka notið tiltölulega mikils hagvaxtar um langt skeið án þess að nokkuð hylli undir verðbólgu og þar sem áður kreppti að, í Frakk- landi og í Þýskalandi, er efnahagslíflð loksins farið að taka vel við sér. Ástæðan fyrir því að margir hag- fræðingar hafa talið að þessi uppsveifla geti haldið áfram um langa framtíð er að opnari heimsviðskipti og upplýsingabyltingin hafa breytt sumum af fyrri forsendum i efna- hagsmálum ríkja heims. í fyrra sagði bjartsýnn hagfræðingur frá Asíu við mig að fátt annað en harð- ur jarðskjálfti í Tokyo eða Kalifom- íu gæti valdið alvarlegum hiksta í efnahagslífi heimsins á næstu fimm eða tíu árum. Fyrsti skjálftinn Fjármálakreppan sem hófst um mitt ár í fyrra átti svo sem ekki að koma meira á óvart en jarðskjálfti í Tokyo eða Kalifomíu. Það sem hef- ur komið á óvart er hversu stór- felldar og langvarandi afleiðingar fjármálakreppan virðist ætla að hafa á efnahagskerfi fjölmargra landa. Fjármálakreppan varð vegna þess að veikburða bankar í Indónesíu, Thailandi, Malasíu og Suður- Kóreu höfðu lánað ótæpi- lega, oft vegna pólitísks þrýstings. Að auki höfðu er- lendir bankar lánað gifurlegar íjárhæðir til fyrir- tækja í þessum löndum og það stundum án þess að hafa aðrar tryggingar en traust sitt á sterkri stöðu fyrirtækja sem tengdust spilltum stjórnmálamönn- um. Um leið og gjaldmiðlar þessara landa byrjuðu að síga hrundi spilaborgin sem byggðist á stöðugu gengi asískra gjaldmiðla gagnvart dollara. Eitt af því sem kom þessum vandræðum af stað var versnandi sam- keppnisstaða flestra landa Asíu gagnvart Kína sem hafði fellt gengi gjaldmiðils síns þremur árum áður. Nú beinast augu manna aftur að Kína, því að önnur gengisfelling þar gæti komið af stað atburðarás sem gæti haft alvarlegar afleiðingar á Vesturlöndum sem annars staðar. Annar skjálfti Það sem er þó öllu verra er að kreppa er hafln í Japan, öðru stærsta hagkerfi heimsins. Japan er mikilvægasta viðskiptaland flestra Asíulanda og kreppan í Jap- an mun skaða stórlega mörg Asíuríki og seinka verulega endur- reisn í efnáhagslífi um alla álfuna. Um leið er Japan eitt mikilvægasta viðskiptaland flestra ríkja á Vesturlöndum og efnahagskreppa þar getur haft mun meiri áhrif um allan heim en erfiðleikar ann- arra Asíulanda. Gengisfall jap- anska yensins hef- ur sett enn frekari þrýsting á gjald- miðil Kína og um leið á gjaldmiðla flestra ríkja Aust- ur- og Suðaustur-Asíu sem auðveldlega gæti leitt til hættulegra víxlverkana. Vesturlönd Fjármálakreppan í Asíu olli ekki miklum ugg á Vesturlöndum til að byrja með. Erfiðleikar Asíu hafa fram undir þennan tíma komið fram með augljósust- um hætti sem jákvæð þróun á Vesturlöndum. Þetta er vegna þess að gengishrun í nokkrum Asíulöndum hefur leitt til verðlækkana á marvís- legum innflutningi. Útlitið framund- an er hins vegar fjarri því að vera eins gott. Tony Blair, sem seint verð- ur sakaður um almenna svartsýni á tilveruna, sagði nýlega að hagkerfi heimsins stæði nú frammi fyrir meiri hættu en það hefði gert í ára- tugi. Það er varla meira en ár síðan einn af ráðgjöfum hans spáði tíu ára gósentíð í efnahagslífi Vesturlanda. Hversu slæmt? Svo undarlega sem það kann að hljóma þá verður að öllum líkindum nokkru meiri hagvöxtur í Asiu en í Evrópu á þessu ári. Aðeins Indónesía og Japan virðast þurfa að þola beinan samdrátt í framleiðslu. Samdráttur þýðir atvinnuleysi og ör- byrgð fyrir tugi milljóna Indónesa en í Japan horfir þetta öðruvísi við. Samdrátturinn í japönsku efnahags- lífi er fyrst og fremst vegna þess að japanskir neyt- endur eyða of litlu og leggja of mikið fyrir. Japanska efnahagslífið myndi taka fjörkipp ef stjórnvöldum þar í landi tækist að sannfæra almenning um kosti þess að eyða meiri peningum. Japanir eru hins vegar hættir að treysta stjórnmálamönnum og kjósa þess vegna þann kost sem sýnist skynsamlegastur fyrir hvern og einn, það er aukin ráðdeild, þó að þessi fyr- irhyggjusemi sé að kyrkja hagkerfið. Þó óvíða ríki beinlínis kreppa enn sem komið er í Asíu hefur vöxt- ur alls staðar dregist stórlega saman. Samdrátturinn getur haft alvarlegastar afleiðingar í Kína sem jafn- framt er það land Asíu, auk Japan, sem mest áhrif getur haft á efnahagslíf heimsins. Þeir sem þekkja bankakerfi Kína segja það nálægt hruni komið og þar er vafalítið að finna eina stærstu hættu í efnahagslífl heimsins. Jón Ormur Halldórsson komiö og þar er vafalítiö aö finna Erlend tíðindi Jón Ormur Halldórsson „Þeir sem þekkja bankakerfi Kína segja það nálægt hruni eina stærstu hættu í efnahagslífi heimsins," segir Jón Ormur m.a. í pistli sínum. skoðanir annarra Orð og athafnir Milosevic „Allt bendir til að Slobodan Milosevic, leiðtogi Júgóslagíu, hafi áttað sig á því eftir heræfingar NATOí lofti yfir Albaníu og Makedóníu og eftir | pólitískt reiptog í Moskvu að stefna hans í Kosovo yrði bæði honum og Júgóslavíu dýrkeypt. Löndin | sex í tengslahópnum samþykktu mikilvægar kröfur I á hendur Milosevic fyrir helgi. í kjölfar erfiðra ; samningaviðræðna í Moskvu við Borís Jeltsín for- seta og aðra leiðtoga Rússlands segist Milosevic j ætla að fara að flestum þeirra. Það er þó erfitt að spá um hvort hann muni standa við orð sín. Milos- : evic hefur svo oft sagt eitt og gert annað að ástæða : er til að vera fullur efasemda." Úr forystugrein Aftenposten 17. júní. Af vandræöunum í Asíu „Kínverjar hafa orðið fyrir skakkafollum vegna ; fjármálakreppunnar í Asiu. Útflutningur í maí dróst saman um 1,5 prósent miðað við sama tíma í fyrra. Það gæti komið niður á markmiðum stjórn- valda um 8 prósenta hagvöxt. Og áhrifin af gengis- hruni japanska jensins eiga enn eftir að koma í ljós. En gengisfelling nú gæti haft skelfilegar afleiðingar bæði á stjómmála- og efnahagslífið. Markaðir eru enn viðkvæmir og af þeim sökum er hætta á að gengi Hong Kong doUarans breytist. Það gæti haft í fór með sér nýja gengisfellingahrinu." Úr forystugrein Financial Times 16. júní. Jónsmessan hátíð allra „Svíþjóð er nú samfélag margra menningarheima eins og öU önnur nútímasamfélög. Ekki má reisa þjóðernismúr umhverfis þær hefðir sem við höld- um í heiðri á Jónsmessunni. Örlæti og mannúð verða að einkenna þær. Þá fyrst verður Jónsmess- an hátíð allra. Með laufi skreyttum húsum og faðm- lögum á bak við tré. Með sUd og kartöflum, grísku salati og nokkrum júgóslavneskum kjötboUum.“ Úr forystugrein Aftonbladet 19. júní.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.