Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1998, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998 JLlV
ttir
Skortur 1 múrarastéttinni undarifarin ár:
Múrarar sóttir
á elliheimili
Að undanfórnu hefur
verið mikil þensla í bygg-
ingariðnaði á höfuðborg-
arsvæðinu og hefur borið
á skorti á múrurum.
Vegna ástandsins hafa
gamlir múrarar verið
sóttir á elliheimili. Þeir
hafa m.a. aðstoðað og leið-
beint yngri múrurum við
steiningu húsa. „Steining-
in datt niður í aldarfjórð-
ung en fagið er kennt á ný
við Iðnskólann i Reykja-
vík þar sem farið er að
steina fleiri hús en áður
með marmarasalla," segir
Ásmundur Kristinsson,
varaformaður Múrara-
meistarafélagsins.
„Þegar kreppan stóð
yfir fyrir nokkrum árum
fækkaði þeim mikið sem
lærðu til múrara. Það hef-
ur lika háð hvað launin
hafa verið léleg í öllum
iðngreinum og menn
vinna ekki eins langan
vinnudag og áður. Þetta
þrennt, auk þenslunnar í
byggingariðnaði á höfuð-
borgarsvæðinu, skýrir
skortinn á múrurum.“
Skýringuna má líka
rekja til þess hvað menn
hafa verið tregir við að
fara í Iðnskólann. Þegar
ástandið var sem verst
voru um 5 nemendur í
hverjum árgangi i skólan-
um en venjulega eru þeir
um 10. „Hingað til hafa
ófaglærðir múrarar feng-
ið ráðherrabréf eftir 10
ára starfsþjálfun en nú
hefur þeim verið gefinn
kostur á að taka sveins-
stykki. í júní sl. tóku 30
ófaglærðir múrarar
sveinsstykki." Ásmundur
segir að áhugi manna á
múraraiðninni sé áber-
andi meiri en undanfarin
ár. -SJ
I þeirri þenslu sem nú er í byggingariðnaði hafa menn rekið sig harkalega á þá staðreynd að stétt
múrara hefur dregist saman. Gripið hefur verið tii þess ráðs að sækja starfskrafta inn á elliheim-
ilin. Tekið skal fram að sá múrari sem hér sést að störfum er á besta aldri og einn fárra sem und-
anfarna áratugi hafa lært fagið. DV-mynd S
Ný sérhönnuö spárit skapa nýjung í veðurþjónustu á íslandi:
Góðar veðurspár á Vísi.is
- hægt er að velja spár fyrir ellefu staði á landinu
visir. Veóur & færó
\ Pof»lð» | PréUlr I Iþróttlr | Vlðtklptl | Veður | SmáauQl.DV \
Vindur - Island
| Veidu tpáteguna Htl Vkndur ÚfKoma SKv
vsidu sveeði: tsiand LandQQmW >MHantshaf
Fðstudagur 24. júmSSt
Vlndstlg
. 12 20 29 39 50 62 74 86 102U7
Spim íýnir vindstyik mefi hL Kvar&ma tým hv»6a vjndstyrkur i við hvaia
hl i vindítigum og kítómetrum á klukkustund. Smtíltu mni bnng 4 kortinu U1
sji veðuripárit fyiir viikomandi ««4. TöJurmr wot hrinaunum íýna
Vísir.is býður upp á vandaða
og ítarlega veðurþjónustu í sam-
vinnu við Haf- og lofthjúpsfræði-
stofuna Halo. Allt frá þvi að Vís-
ir.is var opnaöur i vor hefur veð-
urvefurinn verið í þróun og er nú
fyrsta áfanga í endurskoðun vefs-
ins lokið. Hér er á ferðinni algjör
nýjung í miðlun veðurupplýsinga
á íslandi og þótt víðar væri leit-
að. Reiknilíkön vinna þriggja
daga veðurspár úr stöðugu flæði
upplýsinga sem berast víða úr
heiminum. Spárnar eru settar
fram með spákortum og spárit-
um sem almenningur á íslandi
hefur ekki séð áður en er mjög
fljótur að læra á. Sérstakur leið-
beiningarvefur er til staðar til að
auðvelda fólki fyrstu kynnin af
þessum umfangsmikla veðurvef.
Hverju sinni á sá sem skoöar vef-
inn kost á nærri 1000 mismun-
andi spákortum og nærri átta
hundruð spáritum.
Atriði úr söngleiknum Grease.
Grease-hátíð á
Kringlutorginu
Borgarleikhúsið og Kringlan
halda Grease-hátíð á Kringlutorg-
inu og í Kringlunni í dag. Hátíö-
in hefst kl. 13.30. Söngvarar og
dansarar úr Grease koma fram.
Úrslit verða í söngvarakeppni
Kringlunnar og FM 95,7, leiktæki
veröa á svæðinu og fleira verður
til skemmtunar, auk þess sem
boðið verður upp á veitingar.
Samkeppni um veðurspár-
þjónustu
Veðurþjónusta Vísis er einkarek-
inn. Aðstandendur hennar eru, eins
og áður segir, Halo auk Vísis. Halo er
sjáifstætt rannsóknar- og þróunarfyr-
irtæki í einkaeign sem unnið hefur
að fjölmörgum evrópskum rannsókn-
arverkefnum auk verkefna í sam-
vinnu við Háskóla íslands. Halo fæst
einkum við framsetningu upplýs-
inga á sviði veðurfræði og haffræði.
Grunnupplýsingar fær Halo í gegn-
um svokallað WAFS-verkefni sem er
samstarfsverkefni bresku og banda-
rísku veðurstofanna fyrir Alþjóðlega
flugumferðarráðið, ICAO. Með til-
komu Veðurvefs Vísis er því orðin
til samkeppni hér á landi við Veður-
stofu islands um veðurspáþjónustu.
Veðurspár fyrir hverja
klukkustund
Á Veðurvef Vísis er notandinn
virkur. Hann þarf að velja um þrennt:
Það eru mikil umsvif hjá krökk-
unum á Eskifirði þessa dagana. Þau
halda sig mikið á bryggjunni og
veiða grimmt. Mokveiði er og dag
spátíma, spátegund og spásvæði. Not-
andinn getur valið um veðurspá fyrir
hveija einustu klukkustund næstu
þrjá dagana. í dag er t.d. hægt að
komast að því hvernig veðri er spáð
um kaffileytið á morgun eða hvort
eftir dag fást þar yfir 100 fiskar.
Fullorðnir renna þar líka og fá þann
gula og aðra fiska sem halda sig í
firðinum.
viðrar fyrir útigriE á mánudag.
Sá sem skoðar Veðurvef Vísis vel-
ur spátegund. Hann ákveður hvort
hann vill athuga úrkomu, hita,
skýjafar eða vind. Kortin sýna með
mismunandi litum hversu hitinn er
hár, vindur er mikill og þar ffam eft-
ir götunum. Á spákorrimum eru auk
þess upplýsingar um vindátt, loft-
þrýsting og annað sem fólk þekkir.
Síðast en ekki síst velur fólk spá-
svæði en þau eru þrjú; ísland eitt,
landið og miðin og þá einnig Norður-
Atlantshaf. Til viðbótar er síðan hægt
að velja spár fyrir ellefu staði á land-
inu. Þær spár eru sýndar í sérhönn-
uðum spáritum sem fólk um allt land
mun kunna vel að meta. Þau sýna í
einni svipan spátegimdirnar fjórar:
hita, vind, úrkomu og skýjafar.
Hreyfimyndir
Spákortin er líka hægt að skoða
sem hreyfimyndir. Með því að
smella á sérstaka hnappa fyrir
hreyfimyndir er hægt að skoða
hreyfimyndir fyrir sex tíma spár í
senn. Sé smellt á kl. 18 á morgun
sprettur fram spáin fyrir annað
kvöld allt til miðnættis. Hér er á
ferðinni enn ein nýjungin í fram-
setningu á tölvuunnum veðurspám.
Þetta eru fyrstu skrefin en búast má
við þróun framsetningar af þessu
tagi á næstu misserum. Slóð
Vísis.is er www.visir.is -rt
Magnús Örn Hafdal, Georg Pétursson og Rebekka og Kolfinna Níelsdætur
með ágætan þorsk sem þau veiddu, vel klædd og halda sig í skjólinu af afla-
skipinu Jóni Kjartanssyni. DV-mynd Þórarinn
Mokveiði af bryggjunni
stuttar fréttir
Skiljanlegt
|! Andstaða við kvótakerfiö er
skiljanleg, segir Einar K. Guð-
finnsson, þing-
maður Sjálf-
stæðis-fiokks-
f ins. Hann seg-
ir mikla and-
stöðu við kerf-
ið meðal kjós-
enda stjómar-
| flokkanna
heldur ekki koma á óvart og
: vitnar þar tO skoðanakannanar
1 sem Gallup hefur gert fyrir RÚV.
Skjálftar viö Hestvatn
Jarðkjálftar, sem mældust 2,6
;• og 2 á Richter, urðu rétt fyrir
j klukkan eitt í dag. Þótt skjálft-
: amir væru litlir varð þeirra vart
í Grímsnesi og Biskupstungum.
Samkvæmt upplýsingum Veður-
| stofu voru upptök þeirra norð-
i vestan við Hestvatn en skjálfta-
j virkni á svæðinu mun ekki vera
| mikO.
j í hópum aö Hágöngum
Skipulagðar ferðir em famar
j að hverasvæðinu við Hágöngur
j um helgina. Það er síðasta tæki-
i færið til að skoða svæöið þvi eft-
f ir helgi hverfur það undir miðl-
i unarlón.
I Óviöunandi eignarhald
HaUdór J. Kristjánsson,
j bankastjóri Landsbankans, sagði
á fundi í morg-
un að í kom-
I andi breyting-
um á fjármála-
markaðinum
j væri eignar-
hald sparisjóð-
anna algerlega
óviðunandi.
j Hann sagði að það gengi ekki að
sparisjóðimir gætu keppt um að
kaupa fjármálafyrirtæki, en önn-
ur fjármálafyrirtæki gætu ekki
S keypt í þeim.
Tæknival hækkaöi
í Lokagengi bréfa Tæknivals í
I fyrradag var 5, lokaverðið í gær
j var 5,75 og hefur því gengið
hækkað um 15% mUli daga.
Kringlan á markað
Áformað er að gera Eignar-
j haldsfelagið Kringluna hf að
j þingskráðu almenningshlutafé-
j lagi á næsta ári. Félagið mun
eiga 66% í Kringlunni eftir
* breytingar og eigiö fe þess nema
| 1-500 milljónum króna en heild-
j areignir 3.600 miUjónum.
Milljónaviöskipti
| Viðskipti á Verðbréfaþingi í
| gær námu alls 348 miUjónum
j króna. 150 miUjóna króna við-
skipti vom með bankavíxla og
1 viðskipti með spariskírteini
I námu 96 mUljónum króna. Við-
j skipti á hlutabréfamarkaði
námu 40 milijónum króna.
Minna framleitt
j Boðuð skerðing Landsvirkjun-
ar á afgangsorku tU stóriðju hef-
ur mikil tímabundin áhrif á af-
komu og framleiöslu Áburðar-
verksmiöjunnar en hún mun
j þrátt fyrir það framleiða og út-
vega nægan áburð fyrir næstu
vertið.
j Fengu skírteinin aftur
Héraðsdómur Reykjavíkur
feUdi úr gUdi í gær tvær bráða-
3 birgða öku-
leyfissvipting-
ar og
I sömuleiðis
'{ ákvörðun lög-
reglustjórans í
i Reykjavík og
sýslumanns-
ins á Akur-
I eyri, annarsvegar vegna
j hraðaksturs og hins vegar fyrir
meintan ölvunarakstur. Vafi
i þykir leika á því að reglugerð
| dómsmálaráðherra um bráða-
j birgðasviptingar standist lög.
j -SÁ