Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1998, Side 12
12
K
LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998 UV
\fyrir 15 árum_______________________________
X 'W |
Þing mosafræðinga á Laugarvatni 1983:
Mosinn ervinurminn
- segir Bergþór Jóhannsson, eini mosafræðingurinn á íslandi
Hvað er að vera mosafræðingur?
„Það er að eyða öllum tíma sólar-
hringsins í að hugsa um mosa,
skoða mosa, greina mosa, skrifa um
mosa, safna mosum og hafa gaman
af því,“ segir Bergþór Jó-
hannsson mosafræðingur,
sá eini sinnar tegundar á ís-
landi, sem fyrir fimmtán *
árum var kjörinn formaður
Félags norrænna mosafræð-
inga á fjölþjóðlegu þingi mosa-
fræðinga á Laugarvatni. Við
það tækifæri sagði Bergþór
m.a. að það væri ómetanlegt að
fá tækifæri til þess að ræða við
erlenda stéttarbræður og
krjúpa við hlið þeim við mosa-
söfnun úti í guðsgrænni ís-
lenskri náttúru. Síðan þá hefur
hann unnið óslitið að mosarann-
sóknum og
-söfnun
og á stóran
þátt í því að
þekktum
mosateg- fg
undum á ís-
landi hefur á
þeim tíma
fjölgað úr um
560 í U.þ.b. 600.
„Það er engin tegund á íslandi sem
ekki frnnst annars staðar. Ég hef
ekki trú á því að til sé alíslensk teg-
und. Landið er of ungt til þess en
hér eru hins vegar tegundir sem
fínnast hvergi annars staðar í Evr-
ópu og jafnvel afar sjaldgæfar á
heimsvísu."
Mosafræðingar eru, eins og fram
hefur komið, ekki fjölmenn stétt á
íslandi en hvað með hinn stóra
heim? „Ég býst við að ég kannist við
alla þá helstu, sama hvar þeir eru.
Þetta er fámennur hópur og mikið
samband á milli þeirra sem á annað
borð þekkjast. Við erum eins og stór
fjölskylda, a.m.k. hér á norður-
hvelinu."
Fjórar nýjar tegundir
Og hvað fór svo fram á þinginu á
Laugarvatni? „Þetta var fyrst og
fremst starfsfundur. Ekki fyrirlestr-
ar heldur aðallega vinna. Við fórum
á hverjum morgni út og söfnuðum,
greindum svo tegund-
irnar í smásjá og ræddum niður-
stöðumar. Meðan á þinginu stóð
fundust fjórar nýjar tegundir
þannig að nokkur ávöxtur
varð af
—.segir®e'
o,«i» V ltt * ■ B««í>4r
s2saSi*.*ís
—ns jssSSSi SsStzgssz
Wsgæ. ifís,
S«-SS SSSmssimor 1
te«B»««W# JlvPrt «r “*‘W * "££r
feMSaíSw ’
starfi okkar, fyrir
utan það eiginlega gagn sem við
höfðum af þinginu."
Bergþór var kosinn formaður
norrænu samtakanna og segir hann
starf sitt að mestu hafa falist í þvi
að það gæti gerst aftur að formaður
væri skorinn frá öðrum stjórnar-
mönnum og því eiginlega óstarfhæf-
ur: „Það var erfitt að vera formaður
án þess að vera í nánu sambandi við
hina þannig að síðan hefur sá hátt-
ur verið hafður á að reynt er að
hafa stutt á milli stjórnarmannanna
svo starf félagsins lamist ekki vegna
landafræðinnar."
En hvemig myndi hann bera sig
að við að glæða áhuga á mosum hjá
samborgurum sínum? „Ég myndi
segja fólki að líta niður fyrir fæt-
uma á sér. Fólk gengur á þessu dag-
lega án þess að velta fyrir sér hvað
er undir iljunum á því. Þetta eru
geysilega fallegar plöntur margar
sSSKSSísSsl
„Mosafræöingar í heiminum eru nánast eins og ein, stór fjölskylda,“ segir
Bergþór Jóhannsson sem gegndi formennsku í félagi þeirra fyrir 15 órum
síöan.
hverjar og ekki allt eins, eins og við-
kvæðið er oft. Það er mikill mis-
skilningur."
Bergþór segir að þegar fólk á ann-
að borð taki eftir mosa og hrífist af
honum sé það við sérstakar aðstæð-
ur: „Það sem fólki finnst oftast fal-
legast við mosana byggist á því aö
horft sé á eina tegund, með sömu
áferð og lit. Þegar fólk sér stórar
breiður af mosa, t.d. á dýjum eða
hraunum þá kann það að meta
hversu fallegar þessar plöntur eru í
raun og veru.“
Hvergi betra að skoða
mosa
Bergþór segir það afar gott að
vera mosafræðingur á íslandi:
„Hvergi nokkurs staðar betra í
heiminum. Það era fáir sem hafa
jafnvíðlent svæði og eru einir um
það. En það er að einu leyti ákaflega
óþægilegt: Maður getur ekki rætt
vandamálin við nokkurn. Ég stend
einn í þessu.“
Af hverju? Hvað dregur þig út á
daginn að rýna í svörðinn og reyta
upp mosa? „Þetta er svipað og þegar
maður var strákur. Þá skoðaði ég
háplöntur. Ef maður fann nýja teg-
und þá var maður að finna nýjan
kunningja. Þetta er alveg eins með
mosana. Mosarnir eru vinir
manns.“
-fin
fímm breytingar
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáö kemur í ljós að á
myndinni tii hægri hefur fimm
atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja
við þau með krossi á myndinni
til hægri og senda okkur hana
ásamt nafni þínu og heimilis-
fangi. Að tveimur vikum liðn-
um birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
Hitachi-útvarpsvekjari frá
Sjónvarpsmiðstöðinni,
Síðumúla 2, að verðmæti kr.
3.490. ^
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verð-
mæti kr. 1570, Sekur eftir Scott
Turow og Kólibrísúpan eftir
David Parry og Patrick Wit-
hrow.
Vinningarnir verða sendir
heim.
Merkió umslagió med
lausninni:
Finniir þú flmm breyting-
aT?469
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
Rnnur þú fimm breytingar? 473
Ekki draga rangar ályktanir, herra minn góöur. Keikó vinnur bara hérna.
Nafn:
Heimili:.
Vinningshafar fyrir getraun
númer 471 eru:
1. verðlaun: 2. verðlaun:
Páll Pálsson,
Bergþórshvoli,
861 Hvolsvelli.
Sigrlöur Heiöa,
Hvannhólmi 12,
200 Kópavogi.
METSOLUBÆKUR
BRETLAND
SKÁLDSÖGUR - KIUUR:
1. Arundhatl Roy: The God of Small
Things.
2. lan McEwan: Enduring Love.
3. Clare Francls: A Dark Devotion.
4. Helen Relding: Bridget Jones’s Diary.
5. Patricla Cornwell: Unnatural Exposure.
6. Louis de Berniéres: Captains Corelli's
Mandolin.
7. Arthur Golden: Memoirs of a Geisha.
8. James Patterson: Cat and Mouse.
9. Elizabeth George: Depotion on His
Mind.
10. David & Lelgh Eddlngs: Polgara the
Sorceress.
RIT ALM. EÐLIS - KIUUR:
1. Dava Sobel: Longitude.
2. Paul Wllson: The Little Book of Calm.
3. John Grey: Men Are from Mars, Women
Are from Venus.
4. Frank Mccourt: Angela’s Ashes.
5. Blll Bryson: Notes from a Small Island.
6. Adeline Yen Mah: Faliing Leaves.
7. Frances Mayes: Under the Tuscan Sun.
8. Craig Brown: The Little Book of Chaos.
9. Slmon Slngh: Fermat's Last.Theorem.
10. Sebastlan: The Perfect Storm.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. Terry Pratchett: The Last Continent.
2. Jack Higgins: Right of Eagles.
3. Bernard Cornwell: Sharpe’s Truimph.
4. Jeffrey Archer: The Eleventh Command-
ment.
5. John Grlsham: The Street Lawyer.
INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS:
1. John Palmer: Superstars of The World
Cup.
2. Dirk Bogarde: For the Time Being.
3. John Diamond: C - Because Cowards
Get Cancer too.
4. Anthony Beevor: Staiingrad.
5. Simon Winchester: The Surgeon of
Crowthorne.
(Byggt á The Sunday Times)
BANDARÍKIN
SKÁLDSÖGUR - KIUUR:
1. Patricia Cornwell: Unnatural Exposure.
2. Rebecca Wells: Divine Secrets og the
Ya-Ya Sisterhood.
3. Wally Lamb: She's Come Undone.
4. Nora Roberts: Rising Tides.
5. Caleb Carr: Angel of Darkness.
6. Jack Hlgglns: The President's
Daughter.
7. Arundhati Roy: The God of Small
Things.
8. Robert Ludlum: The Matarese
Countdown.
9. Nicholas Sparks: The Notebook.
10. Sandra Brown: Fat Thuesday.
RIT ALM. EÐLIS - KILJUR:
1. Sebastian Junger: The Perfect Storm.
2. Jon Krakauer: Into Thin Air.
3. Frances Mayes: Under the Tuscan Sun.
4. Jon Krakauer: into the Wild.
5. Robert Atkln: Dr. Atkin's New Diet
Revolution.
6. Dr. Andrew Weil: Eight Weeks to Optim-
um Health.
7. Richard Carlson: Don't Sweet the
Small Stuff and it's all Small Stuff.
8. Katharine Graham: Personal History.
9. James McBrlde: The Color of Water.
10. Doris Kearns Goodwln: Wait till next
Year: A Memoir.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. Patricla Cornwell: Point of Origin.
2. Wally Lamb: I Know This much Is True.
3. Helen Relding: Bridget Jones's Diary.
4. Danlelle Steel: The Klonde and I.
5. Judy Blume: Summer Sisters.
INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS:
1. Jlmmy Buffett: A Pirate Look at Fifty.
2. Blll Bryson: A Walk in the Woods.
3. Mltch Albom: Tuesday with Morrie.
4. John Gray: Mars and Venus Starting
Over.
5. Malachy McCourt: A Monk Swimming.
(Byggt á The Washlngton Post).