Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1998, Page 22
LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998 IjV
22
iiþigt fólk
r
„Ég var rokkari," viðurkennir
hinn 19 ára gamli „tölvupoppari",
Hugh Jazz, eða Ömólfur Thorlacius,
ungur tónlistarmaður á hinum si-
vaxandi og sjóðandi vettvangi tölvu-
tónlistarinnar. „En tónlistin sem ég
ólst upp við var ekki bara rokk,
heldur líka Kraftwerk og ýmsar
syntagrúppur auk þess sem
hipphoppið komst síðar í mikið
uppáhald.
Mig langaði alltaf að vera í bíl-
skúrshljómsveit. Vandinn var bara
sá að ég lærði á píanó og átti því
hvergi séns að komast inn því þetta
var áður en hljómborðin fóru að
koma svona sterkt inn eins og núna
upp á síðkastið. Þannig að ég keypti
mér plötuspilara og gerðist plötu-
snúður. Síðar, þegar ég byrjaði í
menntó, keypti ég mér ódýran
sampler, skipti yfir í tölvutónlistina
og fór að semja sjáifur."
Örnólfur vinnur hjá Thule
Records, útgáfu Þórhalls Skúlason-
ar, sem kaUa mætti guðfoður tölvu-
tónlistar á íslandi. Hann var m.a. í
hinni frábæru hardcorehijómsveit
Ajax en hún færði íslenska danstón-
list á heimskortið í kringum ‘90 með
lögum eins og Ruffige, sem náði
miklum vinsældum í Bretlandi.
Ömólfur viðurkennir þó að hann
hafi ekki verið með í dansbylgjunni
frá upphafi heldur hafi hann látið
sópast með í kringum ‘93 þegar
rokkið sveik hann. Hann ber þó
engan kala í brjósti tU gítargrúpp-
anna: „Alls ekki. Langt i frá. Rokk-
arar em ágætis fólk. Ég var nú einu
sinni rokkari sjálfur þannig að það
væri hræsni. Það eina sem mér
finnst, án þess að ég ætli að vera að
nefna nöfn, er að sumir em svolítið
staðnaðir. Fastir í svona Jet Black
Joe-rokki sem er bara búið. Punkt-
ur.“
Bara áhugamál
Tölvutónlist er vítt hugtak sem
felur margt í sér en Örnólfur sér-
hæfir sig í dram’n’bass og
tripphoppi: „Ég geri eiginlega aUt
nema ambient. Það er eiginlega of
rólegt fyrir mig þó svo að ég hafi að-
eins fiktað við það einu sinni. Svo
hef ég aðeins fiktað við poppaðri
hluti, svona peningatónlist, en aðal-
lega er ég í drum’n’bass og
tripphoppi.
Eins og er lifi ég hreinlega fyrir
tónlist. Þetta er það skemmtilegasta
sem ég geri og ég ætla að halda því
áfram eins lengi og ég get þó svo að
ég passi mig rækUega á því að afla
mér menntunar á meðan svo ég
lendi ekki í því eins og aUt of marg-
ir gera - að vakna allt í einu upp og
kunna ekkert. Og vera ekkert. Ég
geri mér fuUa grein fyrir því að eins
og stendur er þetta ekkert annað en
áhugamál."
Össi hefur gefið út 6 tólftommur á
liðnu ári auk þess sem hann hyggur
á útgáfu breiðskífu í haust. Hefur
hann efnast eitthvað á þessu brölti
sínu: „Nó komment. Ég er í þessu
ánægjunnar vegna en ekki út af
peningunum. Ég hef aldrei fengið
beinharða ávísun fyrir plötumar
mínar en auðvitað hef ég fengið
borgað fyrir hitt og þetta, t.d. tónlist
fyrir heimasíður o.þ.h.“
LP plata Ömólfs kemur út hjá
Thule í haust en litlu munaði að
hún kæmi einnig út í Þýskalandi á
einu af merkjum Sony: „Sony í
Þýskalandi var á leiðinni að gefa út
þessa plötu þegar triphopp-undir-
merkinu þeirra þar var lokaö.
Starfsfólkið gekk út. Þeir vora með
pennann á ávísuninni og höfðu allt
í einu ekkert merki til að gefa svona
tónlist út á. Þetta er svona dæmi-
gerð óheppni fyrir þennan iðnað og
ekkert við því að gera.“
„íslensk dansmenning er enn þá
að byggjast upp. Það er of mikið af
fólki sem er alltaf að gagnrýna og
rífa niður í stað þess að hlusta pinu-
litið. Það er líka þekkt klisja og dag-
sönn að íslenskar hljómsveitir
þurfa oft að sláT gegn úti í löndum
áður en þær fá séns hér.“
Mike Hunt og Hugh Jazz
Allir plötusnúðar og tölvutónlist-
armenn eiga sér listamannsnafn
sem gegnir oft á tíðum því nauðsyn-
lega hlutverki að undirstrika
hversu últrasvalur og töff gæi eða
geila viðkomandi sé. Örnólfur sækir
í annan brann með nafni sínu,
Hugh Jazz: „Ég elska tvíræð nöfn
sem geta bæði virkað sem ofur-
venjuleg listamannanöfn eða alger
vitleysa eftir því hvemig horft er á
málið, til dæmis Mike Hunt. Ég sá
nafnið mitt, Hugh Jazz, í Simpson-
þætti. Bart og Lisa eru oft að
hringjá í Moe á kránni og láta hann
kalla upp klúr nöfn á fólki. Þama
báðu þau um mann sem héti Jazz,
fomafniö Hugh og Moe sneri sér við
og þrumaði yfir staðinn „Do I have
a Huge Ass. Everybody, do I have a
Huge Ass! Ég þurfti ekki að heyra
meira. Ég var fæddur."
En svo komu bakþankamir: „Ég
fór svona aðeins að velta því fyrir
mér hvort svona grín virkaði
kannski fráhrindandi á fólk, t.d.
þegar ég er að senda plötur út, og
fólk héldi að hér væri bara einhver
vitleysingur á ferðinni. Þannig að
næsta Hugh Jazz-platan kemur út
undir nafninu Cynical Trend sem
mér finnst nafn við hæfi þar sem
fólk tekur því kannski alvarlega."
„Mér finnst hins vegar ekkert að
því að heita nafni úr Simpson-þátt-
unum og til dæmis hef ég aldrei orð-
ið jafnfúll og þegar ég sá plötu með
housetónlistarmanni sem kallaði
sig Ned Flanders. Ég var alveg brjál-
aður yfir að hafa ekki fattað það
sjálfur. Ef ég héti Ned Flanders
væri ég sáttur. Fullkomlega sáttur.“
-fin
„Mig langaði alltaf að komast í bflskúrshljómsveit en svo gafst ég upp, keypti mér plötuspilara og gerðist
plötusnúður," segir Örnólfur Thorlacius, eða Hugh Jazz. Dv-mynd Teitur.
prófil
Guðbjörg
Guðmannsdóttir er nýkjörin
Sumarstúlka Vestmannaeyja.
Hún er í prófil
Fullt nafn:
Guðbjörg Guðmannsdóttir.
Fæðingardagur og ár:
Er fædd þann 15. maí 1980.
Maki: Já, hann heitir Óskar
Jósúason.
Böm: Ja, ég stend nú bara á
núlli þar.
Starf: Núna er ég að vinna í
Kránni og skóbúðinni Axel Ó.
Skemmtilegast:
Það er nú alltaf mjög gaman
að breyta um umhverfi,
ferðast eitthvað. En þó finnst
mér langskemmtilegast að
vera í góðum félagsskap og
njóta lífsins.
Leiðin-
legast: Ætli það sé
ekki bara þegar
sólarhringurinn er of stuttur
fyrir mann. Það er svo
leiðinlegt að geta ekki sofið
út.
Uppáhaldsmatur: Ég er
rosalega mikið fyrir pasta og
svoleiðis dótarí en einnig eru
ömmubollur alltaf í miklu
uppáhaldi.
Uppáhaldsdrykkur: fslenska
vatnið er alltaf jafngott en þó
finnst mér Trópí alltaf
jafngóður.
Fallegasti karlinn:
Ja, er sá fallegasti yfirhöfuð
til?
Uppáhaldslíkamshluti: Já, þið
spyrjið stórt. Ætli það séu
ekki bara augun.
Ertu hlynnt eða andvig ríkis-
stjóminni?
Ég er hlynnt henni.
Með hvaða teiknimyndaper-
sónu myndir þú helst vilja eyða
nótt? Hann Hómer Simpson
er rosasjarmerandi. Ég veit
þó ekki með nótt með
honum.
Uppáhaldsleikari: Samuel L.
Jackson, frábær leikari.
Uppáhaldstónlistarmaður:
Bono, söngvari U2.
Sætasti stjórnmálamaðurinn:
Guðjón Hjörleifsson,
bæjarstjóri í
Eyjum,
eða Gaui bæjó
eins og flestir þekkja hann.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur:
Mér finnst Vinir alveg
frábærir en Simpsons eru nú
ekki slæmir heldur.
Leiðinlegasta kvikmynd:
Ég reyni ekki sérlega mikið
að leggja þær leiðinlegu á
minnið.
Sætasti sjónvarpsmaðurinn:
Æ, hann Siggi Sveins er
svoddan krútt.
Uppáhaldsskemmtistaður:
Auðvitað Herjólfsdalur
Þjóðhátið!
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór: Mig langar að
verða tískuljósmyndari en ég
veit ekki alveg hvað verður
úr þvi svo að það kemur bara
vel til greina aö læra sjúkra-
þjálfun.
Eitthvað að lokum: Já.
|Sjáumst á Þjóðhátíð í Eyjum.