Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1998, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1998, Qupperneq 38
LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998 Til hamingju með afmælið 25. júlí 85 ára Elsa D. Helgadóttir, Skúlagötu 40, Reykjavík. Kristín Stefánsdóttir, Strandgötu 27, Hafharfirði. Kristín Þ. Magnúsdóttir, Laugamesvegi 61, Reykjavík. 80 ára Bjöm Sigurðsson, Sólheimum 23, Reykjavík. 75 ára Ásta Ásmundsdóttir, Hrafnistu, Hafncirfirði. 70 ára Ástvaldur Eiríksson, Lindargötu 60, Reykjavík. Lára J. Ámadóttir, Álftahólum 2, Reykjavík. Svava Guðrún Eiríksdóttir, Höfðabraut 8, Akranesi. 60 ára Ástríður Ástmundsdóttir, Skálholtsbraut 1, Þorlákshöfh. Michael Þórðarson, Baldursbrekku 20. Húsavik. Róbert Ámason, Miðleiti 2, Reykjavík. Stefán Agnar Óskarsson, Austurgerði 3, Kópavogi. 50 ára Bjarni Gunnarsson, Laxakvísl 15, Reykjavík. Fanney Hauksdóttir, Bröttutungu 2, Kópavogi. Gunnur Gunnarsdóttir, Hrísalundi 14g, Akureyri. Kristbjörg Þorsteinsdóttir, Þingási 31, Reykjavík. Ólafur Guðjón Ársælsson, Brekkustíg 17, Reykjavík. Þorbjöm Ámason, Háuhlíð 15, Sauðárkróki. 40 ára Anna Josefin Jack, Laugamesvegi 86, Reykjavík. Ama B. Friðriksdóttir, Norðurvöllum 16, Keflavík. Ema Svavarsdóttir, Suðurhvammi 25, Hafnarfirði. Guðlaug Sverrisdóttir, Engihjalla 25, Kópavogi. Guðrún S. Þorleifsdóttir, Laugum, Holta- og Landsveit. Helgi Kristinn Grímsson, Bjargarstíg 5, Reykjavik. Herdis Herbertsdóttir, Ásbraut 17, Kópavogi Ingjaldur Amþórsson, Varpholti, Glæsibæjarhreppi. Jóhanna Sigríður Gísladóttir, Stóralág, Höfti. Jón Ingvar Jónasson, Látraströnd 40, Seltjamamesi. Marta Matthíasdóttir, Hjarðarhaga 46, Reykjavík. Gullbrúðkaup Árni Helgason og Anna Haf- liðadóttir frá Neðri-Tungu, Örlygs- höfn í Rauðasandshreppi, eiga fimmtíu ára hjúskaparafmæli í dag. Af því tilefni taka þau á móti gestum í Víkingasal Hótel Loftleiða kl. 15.00 í dag, laugardag. Þau vonast tii að sjá sem flesta vini og ættingja. Þórarinn Sigurjónsson Þórarinn Sigurjónsson, fyrrv. al- þingismaður og bústjóri í Laugar- dælum I í Hraungerðishreppi, verð- ur sjötíu og fimm ára á morgun. Starfsferill Þórarinn fæddist í Sætúni í Vest- mannaeyjum en ólst upp í Pétursey í Mýrdal. Hann lauk búfræðiprófí frá Hvanneyri 1943. Þórarinn fór til Vestmannaeyja á vertíð 1946 og 1947. Hann og uppeldisbróðir hans, Þórhallur Friðriksson, ráku land- búnaðarvéla- og bílaverkstæði í Pét- ursey á árunum 1946-52. Þá flutti Þórarinn að Laugardælum þar sem hann var bústjóri við tilraunabú Búnaðarsambands Suðurlands 1952-80. Þórarinn var alþingismaður á ár- unum 1974-87, sat á alþjóðaþing- mannaþingum 1978-87, var átta ár formaður Þingvallanefndar, sat í stjóm Byggðastofnunar um skeið, var formaður Ungmennafélagsins Kára Sölmundarsonar í Dyrhóla- hreppi, sat í jarðamefnd Ámessýslu um skeið, í sýslimefnd Ámessýslu 1959-85, sat í stjóm Kaupfélags Ár- nesinga 1962-92 og var formaður stjórnar 1966-92, sat í stjóm Meitils- ins um árabil, var formaður Fram- sóknarfélags Árnessýslu um nokkurra ára skeið, var formaður Verkstjóra- félags Suðurlands í átján ár, sat í stjóm Verkstjóra- sambands íslands um árabil. Fjölskylda Þórarinn kvæntist 4.6. 1952 Ólöfu Ingibjörgu Haraldsdóttur, f. 8.7.1931, húsfreyju. Hún er dóttir Haralds Jóhannessonar, vélstjóra í Reykjavík, og k.h., Kristínar Sveins- dóttur húsmóður. Böm Þórarins og Ólafar em Sig- ríður, f. 10.6. 1953, sjúkraþjálfi í Ólafsvík, gift Óla Sverri Sigurjóns- syni apótekara og eiga þau tvö böm; Haraldur, f. 22.12. 1954, íþróttak. og bóndi í Laugardælum, kvæntur Þóreyju Axelsdóttur húsfreyju og eiga þau þrjú böm; Kristín, f. 8.11. 1956, hjúkrunarfræðingur við Sjúkrahús Reykjavíkur, búsett í Reykjavík, gift Garðari Sverrissyni blaðamanni og eiga þau eina dóttur; Ólafur Þór, f. 3.1. 1965, ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Suðurlands, búsettur í Laugardælum en kona hans er Malen Viðarson húsmóðir og eiga þau þrjú böm. Alsystkini Þórarins eru Elín, f. 12.1.1922, hús- ffeyja að Steinum undir Eyjaijöllum; Ámi, f. 21.3. 1926, bílstjóri og trésmið- ur í Vík í Mýrdal. Hálf- bræður Þórarins, sam- feðra, em Eyjólfur, bóndi í Pétursey; Sigurður, vörabílstjóri, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Þórarins voru Sigurjón Árnason, f. 17.4. 1891, d. 29.7. 1986, bóndi og smiður i Pétursey, og k.h., Sigríður Kristjánsdóttir, f. 13.5. 1884, d. 16.2. 1941, húsfreyja. Seinni kona Sigurjóns var Stein- unn Eyjólfsdóttir, f. 1.5. 1910, d. 21.11. 1979, húsfreyja. Ætt Sigurjón var sonur Áma, b. í Pét- ursey, bróður Högna, foður Svein- bjöms alþm., föður Sváfnis prófasts. Árni var sonur Jóns, b. í Pétursey Ólafssonar, b. í Eyjáhólum Högna- sonar, b. á Svaðbæli undir Eyjafjöll- um Sigurðssonar, pr. í Ásum, Presta-Högnasonar. Móðir Sigurjóns var Þórann, systir Ragnhildar, móður Svein- bjöms Högnasonar alþm. Þórann Vcir dóttir Sigurðar, b. í Pétursey Eyjólfssonar. Móðir Þórunnar var Þórunn, systir Þorsteins, langafa Karitasar, móður Jóhönnu Sigurð- ardóttur alþm. Þórann var dóttir Þorsteins, b. í Úthlíð, Þorsteinsson- ar, b. á Hvoli, hálfbróður Bjama Thorsteinssonar amtmanns, foður Steingríms skálds. Þorsteinn var sonur Þorsteins, b. í Kerlingadal, Steingrímssonar, bróður Jóns „eld- klerks". Sigríður var dóttir Kristjáns, b. á Hvoli í Mýrdal, Þorsteinssonar, b. á Hvoli, Magnússonar. Móðir Þor- steins var Sigríður, systir Þorsteins á Hvoli og Bjama amtmanns. Móðir Sigríðar var Elín Jónsdóttir, b. i Eystri-Sólheimum, Þorsteinssonar og Ingibjargar, systur ísleifs, langafa Einars Ágústssonar ráð- herra. Ingibjörg var dóttir Magnús- ar, hreppstjóra á Kanastöðum, bróð- ur Þorsteins, afa Eggerts, alþm. í Laugardælum, afa alþm. Eggerts Haukdal og Benedikts Bogasonar og langafa Þórhildar Þorleifsdóttur. Þórarinn verður að heiman. Þórarinn Sigurjónsson. Sveinn Kjartan Gestsson 20.3. 1961, búsett í London; Kristín Guðrún, f. 25.5. 1963, leiðbeinandi á Höfn; Svala, f. 15.1.1967, d. 26.11. 1971. Foreldrar Sveins: Gest- ur Zóphanías Sveinsson, f. 3.10. 1920, d. 29.12. 1980, bóndi og síðar verkamað- ur í Hafnarfirði, og k.h., Guðrún Valdimarsdóttir, f. 28.3. 1924, húsfreyja. Ætt Sveinn Kjartan Gestsson. Sveinn Kjartan Gestsson, bóndi að Staðcirfelli á Fellsströnd í Dala- sýslu, er fimmtugur í dag. Starfsferill Sveinn fæddist í Reykjavík og ólst þar upp og á Grund á Fells- strönd. Hann var i skóla að Laug- um, stundaði síðan unglinganám hjá séra Þorgrími Sigurðssyni á Staðarstað og stundaði nám við Bændaskólann að Hvanneyri 1965-67. Sveinn vann á Hvanneyrarbúinu 1967-69 og starfaði við nautastöðina á Hvanneyri 1969-71. Hann hefur verið bóndi að Staðarfelli frá 1971. Þá hefur Sveinn verið sláturhús- stjóri hjá Norðvestiu’bandalaginu í Búðardal frá 1997, auk þess sem hann hefur verið bílstjóri hjá Vest- fjarðarleið á sumrin. Sveinn sat í hreppsnefnd Fells- strandarhrepps um skeið, sat í stjóm Ungmennasambands Dala- manna og Norður-Breiðfirðinga og var formaður þess um skeið, sat í búnaðarfélagsstjóm, sat í stjóm björgunarsveitarinnar Ósk í Dala- byggð og hefur setið í stjóm Lions- klúbbsins í Búðardal. Fjölskylda Sveinn kvæntist 14.9. 1968 Þóra Stellu Guðjónsdóttur, f. 18.9. 1947, matráðskonu. Hún er dóttir Guð- jóns B. Gíslasonar og Ólafar Run- ólfsdóttur, bænda að Syðstu-Fossum í Borgarfirði sem bæði era látin. Börn Sveins og Þóra Stellu: Kjart- an, f. 12.3. 1973, d. 19.3. 1973; Anna Kristín, f. 16.4.1971, starfsmaður við leikskóla, búsett í Garðabæ, gift Jó- hannesi Jóhannessyni og era synir þeirra Sveinn Sigurður, f. 22.1.1995, Páll Halldór, f. 31.7. 1996; Ingibjörg, f. 21.12. 1972, starfsmaður við Mjólk- ursamsöluna í Búðardal, búsett í Búðardal; Kristján Ellert, f. 14.9. 1974, búsettur að StaðarfeÚi. Systkini Sveins era Svavar, f. 26.6. 1944, alþm. í Reykjavík; Helga Margrét, f. 29.10. 1949, búsett í Nor- egi; Málfríður, f. 19.1. 1953, búsett í Noregi; Valdimar, f. 4.6. 1956, raf- virki í Hafnarfirði; Guðný Dóra, f. Gestur var sonur Sveins, b. á Sveinsstöðum, Hallgrímssonar, b. í Svínaskógi, Jónssonar. Móðir Sveins var Haraldína Haraldsdóttir, b. á Hellnafelli í Eyrarsveit, Páls- sonar, bróður Pálínu, ömmu Soffan- íasar Cecilssonar, útgerðarmanns í Grandarfirði, og langömmu Cecils Haraldssonar fríkirkjuprests. Móðir Gests var Salóme, systir Þórðar á Breiðabólstað, fóður Frið- jóns, fyrrv. alþm. og ráðherra, fóður Þórðar, forstöðumanns Þjóðhags- stofnunar og Lýðs, framkvæmda- stjóra, en systir Friðjóns er Guðbjörg, móðir Þor- geirs Ástvaldssonar út- varpsmanns. Salóme var dóttir Kristjáns, hrepp- stjóra á Breiðabólstað á Fellsströnd, Þórðarsonar, b. þar, Jónssonar. Guðrún er dóttir Valdi- mars, b. á Guðnabakka í Stafholtstungum, Davíðs- sonar og Helgu, systur Helga Jósefs íslensku- fræðings og Ástríðar, móður Sigurðar Helga- sonar, deildarstjóra í menntamála- ráðuneytinu. Helga var dóttir Hall- dórs, b. á Kjalvararstöðum, Þórðar- sonar. Móðir Halldórs var Helga Sighvatsdóttir, systir Kristínar, ömmu Tryggva Emilssonar rithöf- undar. Móðir Helgu var Þorgerður Jónsdóttir. Móðir Þorgeröar var Valgerður Jónsdóttir, ættfóður Deildartunguættarinnar, Þorvalds- sonar. Sveinn tekur á móti gestum í fé- lagsheimilinu á Staðarfelli í kvöld, laugardagskvöld. Kristján Reykdal Kristján Reykdal, öku- kennari, Sjávargötu 20, Njarðvík, verður áttræð- ur á mánudaginn kemur. Starfsferill Kristján fæddist að Heiði í Sléttuhlíð í Skaga- firði en ólst upp á Reykj- arhóli í Vestur-Fljótum hjá Eiríki Ásmundssyni, bónda þar og oddvita, og sambýliskonu hans, Önnu Sigríði Magnúsdóttur húsfreyju. Hann lauk gagnfræöaprófi frá Gagnfræðaskóla Akureyrar 1940. Kristján hefur stundað ýmis störf um dagana. Hann rak um skeið trilluútgerð með mági sínum, var á síldveiðum fyrir Norðurlandi nokk- ur sumur og var skurðgröfustjóri á Skagaströnd í sex ár. Þá hefur hann verið ökukennari frá 1946. Kristján var á biblíuskóla hjá Fíladelfiu í Stokkhólmi árið 1950 en hann starfaði sem sunnudagaskóla- kennari á Sauðárkróki, Skaga- Kristján Reykdal. strönd, í Njarðvík, Kefla- vík, Grindavík og Garði. Þá var hann meðal stofn- enda Fíladelfíusafnaðar- ins á Sauðárkróki. Fjölskylda Kristján kvæntist 18.5. 1940 Jóhönnu Ögmunds- dóttur frá Sauðárkróki. Hún lést 27.5. 1997. For- eldrar Jóhönnu vora Ög- mundur Magnússon söðlasmiður og k.h., Kristín Björg Pálsdóttir húsfreyja. Kristján og Jóhanna eignuðust flögur böm. Þau era Sigurjón Reyk- dal, f. 26.1.1941, vélstjóri, en hann á tvo syni og tvo fóstursyni, var fyrri kona hans Guðrún Jóhannesdóttir en seinni kona hans er Nakkaew Seelarak og búa þau í Njarðvík; Ás- mundur Reykdal, f. 27.7.1945, stöðv- arstjóri Sorpu, en hann á tvo syni og tvo fóstursyni, kvæntur Stellu Stefánsdóttur og búa þau í Reykja- vík; Ingibjörg K. Reykdal, f. 12.2. 1948, húsmóðir í Keflavík, gift Mar- geiri Margeirssyni forstjóra en þau eignuðust fjórar dætur og einn son sem lést 5.11.1980; Anna S. Reykdal, f.30.4. 1949, húsmóðir á ísafirði, gift Snæbirni Halldórssyni skrifstofu- manni en þau eiga einn son og átti hún tvo syni fyrir. Kristján átti tvo hálfbræður, sammæðra. Annar var Símon Jóns- son, f. 5.11. 1922, d. 1.9.1996, smiður, og hinn er Guðmundur Guðmunds- son, f.13.4.1934, framkvæmdastjóri í Reykjavik. Foreldrar Kristjáns vora Krist- ján Jónsson, f. að Torfúfelli í Saur- bæjarhreppi 19.4. 1893, d. 2.9. 1956, listmálari, og k.h., Ingibjörg Jóns- dóttir, f. á Reykjarhóli í Haganes- hreppi 3.10. 1895, d. 6.1. 1970, hús- móðir. Ætt Kristján listmálari var sonur Jóns, frá Guðrúnarstöðum í Eyja- firði, Hanssonar, b. á Guðrúnarstöð- um, Jóhannessonar, b. á Efstalandi í Öxnadal, Jónssonar. Móðir Hans var Guðrún Jónsdóttir frá Stekkjar- flötum í Eyjafirði. Móðir Jóns var Guðrún Einarsdóttir, Ólafssonar og Sigríðar Sigurðardóttur, frá Kambafelli í Djúpadal. Móöir Kristjáns listmálara var Sigríður Hjálmarsdóttir, húsmanns á Hofsstöðum á Skagaströnd, Guð- mundssoncir, Daníelssonar og Helgu Magnúsdóttur frá Sölvabakka. Móð- ir Sigríðar var Karitas Sigurðar- dóttir, b. í Syðriey, Ámasonar, og Ingibjargar Þorleifsdóttur. Ingibjörg var dóttir Jóns frá Mið- hóli í Sléttuhlíð, Guðvarðssonar, b. ,á Miðhóli Guðmundssonar, í Syðstamói, Jónssonar. Móðir Jóns var Sólveig Ólafsdóttir frá Miðhóli, Ólafssonar. Móðir Ingibjargar var Guðbjörg Magnúsdóttir, b. á Hugljúfsstöðum og í Garðshomi í Skagafirði, Gísla- sonar, b. í Hvammkoti, Guðmunds- sonar. Móðir Guðbjargar var Anna Sigriður Sölvadóttir, b. á Ljótsstöð- um, Erlendssonar. Kristján tekur á móti gestum á hótelinu við Bláa lónið 26.7. frá klukkan 14.00-17.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.