Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1998, Síða 43
LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1998
51
Gus Van Sant ásamt Matt Damon.
store Cowboys. Gus Van Sant sneri
sér næst að lesbískum bókmenntum
og kvikmyndaði skáldsögu Toms
Robbins, Even Cowgirls Get the Blu-
es (1993). í krafti orðspors síns fékk
hann fjölda frægra leikara til að
koma fram í myndinni en hún
reyndist vera fyrstu mistök hans.
Gagnrýnendur hökkuðu hana í sig
og hún hlaut litla sem enga að-
sókn.Sem betur fer fyrir Gus Van
Sant var hann þegar búinn að semja
um að leikstýra To Die for (1995),
fyrstu kvikmynd hans þar sem
hann skrifar ekki handritið sjálfur.
Þessi háðsádeila á meinloku Banda-
rikjamanna gagnvart frægð og
frama gekk ágætlega í bæði áhorf-
endur og gagnrýnendur og tókst að
bjarga orðspori hans. Good Will
Hunting kom síðan út i fyrra og sló
í gegn, Gus Van Sant hlaut fyrstu
óskarsverðlaunatilnefningu sína en
myndin alls niu tilnefningar og
tvær styttur.
Fyrri myndir Gus Van Sant voru
einkennilegar, ljóðrænar og drunga-
legar. Hann sýndi í þeim hina hlið-
ina á amerísku þjóðlífi, hliðina sem
Hollywood sýnir ekki, og hann var
alltaf í andstöðu við hefbundna
kvikmyndagerð. Persónur hans
voru flakkarar, eiturlyfjaneytendur,
misindismenn og þar fram eftir göt-
unum. Eftir brotlendingu fjórðu
myndar sinnar beindi hann sjónun-
um að þeirri hlið sem Hollywood er
svo upptekin af og dró glyskennda
veröld hennar sundur og saman í
háði í To Die for. í nýjustu mynd
hans, Good Will Hunting, fjarlægist
hann uppruna sinn enn meir. Ljóð-
ræn og drungaleg frásögn hefur vik-
ið fyrir þroskasögu af „feelgood“-
sortinni og Gus Van Sant stundar í
henni „hefðbundna" kvikmynda-
gerð í fyrsta skipti. Fróðlegt verður
að fylgjast með því hvemig myndir
hann gerir á næstu ámm.
-PJ
Umyndbönd
TITILL
j j
Starhip Troopers j Sam MyndbBnd j Spenna
Picture Perfect ) Skífan ! Gaman
) i
Boogie Nights j Myndform j Gaman
J ' J
Father's Day j Warner Myndir j Gaman
Jackal j CICMyndbönd j Spenna
j j
Copland j Skífan j Spenna
Seven Years In Tibet J SamMyndbönd I Ðrama
J J
8 c 1 J 6 j J j 2 Shadow Of Doubt j Mjmdfoim , j j Spenna
9 i Ný j 1 j American Warewolf In Paris j Skífan j Spenna
10 J J > 7 j ) •) 5 George Of The Jungle j j J j SamMyndbönd j i j Gaman
11 ! 9 j 9 TheGame j Háskólabíó j Spenna
12 J J i 8 i 6 j Tomorrow Never Dies j j J j SamMyndbönd j Spenna
13 i 10 i 7 il Know What You Did Last Summer j Skífan j Spenna
14 J J 1 11 1 J 11 j IilHHMiP 9 In&Out J j j SamMyndbönd j mBmja Gaman
15 * J j 12 J 5 One Night Stand i Myndform J . | ..... . ..|, Gaman
16 i 13 i j j 5 J Gattaca j J J j Skrfan J 1 . :'M Spenna
17 j 14 i 10 j LA Confidential j WamerMyndir j Spenna
18 > 20 í J j 14 i Face/Off i J J : J Sam Myndbönd J J ) Spenna
19 i 18 j 3 Prophecy II ) ,, a J j Skrfan . Spenna
20 J j í Ný j 1 i Jadced i J ! Sflömubíó J Spenna
C(CTI jFYRRI j VIKUR j
SÆTI i VIKfl jfl LISTflí
Molar um
Good Will Hunting
ROBIN WILLIAMS
hlaut óskarsverðlaunin fyrir
besta leik í aukahlutverki fyrir
túlkun sína á sálfræðingnum
Sean McGuire í Good Will Hunt-
ing og félagarnir Ben Affleck og
Matt Damon, sem báðir leika í
myndinni, fengu óskarsverð-
laun fyrir besta frumsamda
handritið.
MATT DAMON
var einnig tilnefridur fyrir besta
leik í aðalhlutverki og Minnie Dri-
ver fyrir besta leik í aukahlut-
verki. Good Will Hunting var til-
nefnd sem besta myndin og Gus
Van Sant fyrir bestu leikstjóm. Pi-
etro Scalia var tilnefndur fyrir
klippingu, Danny Elfman fyrir tón-
listina og Elliott Smith fyrir lagið
Miss Misery.
MINNIE DRIVER
leikm- Skylar, kærustu Wills
Huntings, en Skylar var nafn
kærustu Matts Damons. Upp úr
sambandi þeirra slitnaði meðan
á tökum stóð og Matt Damon og
Minnie Driver felldu hugi sam-
an.
í MYNDINNI
sjást oft útreikningar á töflum
sem eiga að vera þróuð stærðfræði-
dæmi sem aðeins lærðustu stærð-
fræðingar gætu skilið. I rauninni
eru þetta tiltölulega einföld dæmi
úr grundvallarstærðfræðikúrsum,
svo sem línulegri algebru. En við,
þessir venjulegu jólasveinar,
þekkjum hvort eð er ekki muninn.
GUS VAN SANT
er með tvær myndir í deigl-
unni og er stefnt að því að Ijúka
báðum á næsta ári. Önnur
þeirra er á frumstigi og mun
vera byggð á skáldsögu F. Annie
Proulx, Brokeback Mountain.
Hin myndin er endurgerð klass-
ískrar myndar eftir Alfred
Hitchcock, Psycho, og í helstu
hlutverkum verða Robert Forst-
er, Anne Heche, WiUiam H.
Macy, JuUanne Moore, Viggo
Mortensen og Vince Vaughn.
Þessar ráðagerðir hans hafa
strax vakið miklar deUur og
telja hörðustu Hitchcock-aðdá-
endur það hreinustu helgispjöU
að ætla að fara að hrófla við
gamla meistaraverkinu. -PJ
Myndband vikunnar I Good Will Hunting:
-- * ■ ■ — - ■■ ■ - ■ ’''! ^'
Snillingur á krossgötum
Matt Damon leikur Will Hunting og Minnie Driver stúlkuna hans.
Will Hunting er sennilega
greindasti maður á jarðríki. Hann
hefúr lesið flest sem hægt er að
finna á bókasafninu, getur útskýrt
hér um bil hvaða fræðikenningu
sem er og leysir erfiðustu stærð-
fræði- og raungreinadæmi eins og
að drekka vatn. Hann er hins vegar
munaðarlaus íbúi fátækrahverfis og
flakkaði á milli munaðarleysingja-
hæla og fósturforeldra þegar hann
var krakki. Það lengsta sem hann
hefur komist í skólakerfinu er að
skúra gólf í virtum háskóla. Líf
hans tekur breytingum þegar stærð-
fræðiprófessor stendur hann að
verki þar sem hann er að leysa
þraut á töflu. WiII Hunting á yfir
höfði sér fangelsisvist vegna líkams-
árásar en prófessor-
inn fær dómarann til
að breyta refsing-
unni í skilorðsbund-
inn dóm gegn því að
Will sæki tíma hjá
prófessornum og
einnig hjá sálfræð-
ingi. Eftir að nokkrir
sálfræðingar gefast
upp á Will fær pró-
fessorinn gamlan
skólafélaga sinn,
Sean McGuire, sem
ólst upp í sama
hverfi og Will, til að
taka hann að sér.
Sean nær að vinna
traust hans og hjálpa
honum að staðsetja
sig í lífinu.
Það að félagamir Matt Damon og
Ben Affieck skuli
hafa fengið ósk-
arsverðlaun fyrir
besta handritið fyr-
ir Good Will Hunt-
ing er hreinasti
brandari því að í
þessari annars
þéttu mynd er hand-
ritið veiki hlekkur-
inn. Sjáif hugmynd-
in um tilfinningaleg
vandamál snillings
er athyglisverð en
það er illa unnið úr
henni. Snilligáfa
Wills Huntings er
alltof ýkt til að per-
sónan verði trú-
verðug og bæði boðskapurinn og
framvinda sögunnar eru bamaleg
og einfeldningsleg. Það er fyrst og
fremst frábær leikur sem bjargar
myndinni. Matt Damon nær að ljá
persónu Will Hunting tiúverðug-
leika sem er langt mnfrarn það sem
persónusköpunin í handriti hans og
Affleck gefur tilefni til. Robin Wifli-
ams getur sýnt afburðaleik þegar
hann fær tækifæri til að leika í
dramatískum myndum, eins og
hann sannaði í Awakenings, og á
mun meira fyrir sínum óskar en
handritshöfundamir. Annars er
leikhópurinn allur í essinu slnu og
greinilegt að Gus Van Sant hefúr
náð að kreista allt sem hægt er út úr
honum. Sagan er í einu orði sagt
lúðaleg en frábær leikhópur gerir
myndina þess virði að sjá hana.
Pétur Jónasson *»