Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998 Neytendur Löggildingarstofan vill benda fólki á fara varlega meö einnota útigrill. Grillað um helgina: Einnota útigrill varasöm Einnota grill - skoöun á markaöi framkvæmt af Aðalskoðun hf - urveg, Hafnarfiröi Bónus viö Reykjavíkurveg, Hafnafiröi Landman, Grili It (Mini-Grill) Shell viö,Reykjavíkurveg, Hafnafiröi Engángsgrill Olís við'lieykjavíkurveg, Hafnafiröi Bar-Be-Quick Verslun 10-11, Hafnarfiröi Landman Samkaup viö Miövang, Hafnarfiröi Bar-Be-Quick (Party slze) Grill It (Minl Grill) Fjaröarkaup, Hafnarfiröi Bar-Be-Qulck Grill It (Mini Grlll) Nú fer 1 hönd mesta ferðahelgi ársins. Ætla má að margir ferða- menn hugsi sér gott til glóðarinn- ar og taki með sér einnota útigrill í útileguna. Markaðsgæsludeild Löggildingarstofunnar hefur hins vegar bent á að slík grill geti ver- ið hættuleg ef óvarlega er farið. Deildinni hafa borist margar til- kynningar um tjón af völdum slíkra grilla. Mikill hiti getur myndast í botni þeirra þegar kol- in hitna og getur það leitt til þess að undirlag sviðnar eða brennur. Það er því varhugavert að nota slík grill þar sem gróður er við- kvæmur eða miklir þurrkar hafa verið. Mikilvægt aö grilla úti Samkvæmt upplýsingum Lög- gildingarstofunnar fylgja einungis sumum einnota grillum leiðbein- ingar á íslensku. Notendum úti- grilla er eindregið ráðlagt að lesa leiðbeiningar rækilega áður en hafist er handa. Löggildingarstofan bendir einnig á að aldrei má nota kola- grill innandyra, hvort sem er á heimili, i tjöldum eða hjólhýsum, jafnvel þótt loftræsting virðist nægileg. Kolin gefa frá sér kolmónoxíð sem er eitruð, lyktar- laus löfttegund sem myndast þeg- ar kolefni brennur í ónógu súr- efni. Fjórar tegundir Löggildingarstofan lét nýlega kanna einnota grill á markaðnum. Heimsóttir voru átta sölustaðir, þrjár bensínstöðvar (ein frá hverju félagi) og fimm mismun- andi matvöruverslanir. Staðirnir sem skoðaðir voru eru: Esso við Reykjavikurveg, Skeljungur við Reykjavíkurveg, Olís við Reykja- víkurveg, verslun 10-11 í Miðbæ, Samkaup við Miðvang, Fjarðar- kaup, Nýkaup við Garðatorg og Bónus við Reykjavikurveg. Á þessum átta sölustöðum fund- ust fjögur mismunandi vörmerki. Misjafnar leiöbeiningar Á öllum grillunum voru upplýs- ingar um framleiðanda ásamt heimilisfangi eða upprunalandi. Á bakhlið þess pappírs sem er ofan á grillunum voru einnig varúðar- leiðbeiningar en þó á hinum ýmsu tungumálum. Engir fætur Á Bar-Be-Ouick grillunum, sem seld voru hjá Olís, Fjarðarkaupum og Samkaupum, voru allar leið- beiningar á íslensku og skýrar varúðarmerkingar á bakhlið. Eng- ir fætur fylgdtf hins vegar grillinu en grind sem á að halda kolunum u.þ.b. einum sm frá botni grills- ins. Grill-it grillin, sem seld eru hjá Esso, Samkaupum og Bónusi, státa ekki af jafngóðum leiðbein- ingum. Á þeim eru aUar leiðbein- ingar á ensku. Engar viðvaranir eru á framhlið en aðvaranir ög myndir eru á bakhlið. Fætur und- ir grUlið fylgja. Sænskar leiöbeiningar Á sænska „engÁngsgrillinu", sem selt er hjá Skeljungi, eru all- ar upplýsingar á sænsku. Engar aðvaranir eru á framhlið en þar er sagt að leiðbeiningar séu á bak- hlið. Fætur undir griUið fylgja. Á sænsku Landmann-grillun- um, sem seld eru hjá Esso og 10-11 eru aUar upplýsingar á sænsku. Engar aðvaranir eru á framhlið en þar er sagt að upplýsingar séu á bakhlið. Fætur til að setja undir griUið fylgja. Góö ráö LöggUdingarstofan leggur ekki dóm á grUlin en gefur ferðalöng- um nokkur góð ráð við notkun einnota grUla: - Notið þau aldrei innandyra. - Notið ekki griUvökva eða aðra eldfima vökva á grUlið. - Athugið að undirlag grUlsins sé eldtraust. - Notið meðfylgjandi fætur á griUið. - Snertið ekki griUið á meðan á matreiðslu stendur. Það getur orðið mjög heitt. - Sýnið sérstaka gætni ef börn eða dýr eru nálægt. - Hafið grillið alltaf i augnsýn. - Slökkvið i grillinu með vatni eft- ir að matreiðslu lýkur. - Munið að hiti helst lengi í griU- inu, jafnvel þótt svo virðist sem slokknaö sé í kolunum. - Munið að svæðið undir griUinu verður heitt. - Munið að losa úr grillinu með varúð í rusl. -GLM Litríkt pastasalat Þetta litríka pastasalat er upp- lagt í útUeguna fyrir þá sem stöðugt hugsa um línurnar. Uppskrift: 225 g pastakoddar 100 gular baunir 100 grænar baunir ein gulrót, skorin i bita 4 seUerístilkar, skomir i bita 1 græn parika, skorin í bita 6 saxaðir vorlaukar 2 msk. söxuð steinselja 250 ml léttmajónes 3 msk. kaífirjómi 225 g pepperoni salt og svartur pipar Aöferö: Sjóðið pasta í söltu vatni sam- kvæmt leiðbeiningum á pakka og skellið þvi síðan í skál. Setjið gulu baunirnar, grænu baunirnar og gulrótarbitana á pönnu og bætið vatni út á. Látiö suöuna koma upp og bætið seUeríinu viö og látið sjóða aftur í 5 mínútur. Þerrið grænmetið og bætið því út í pa- stað. HeUið paprikubitunum, vor- laukunum og steinseljunni út í. Þynnið majónesið með ijómanum og skeUið því yfir pastaö. Stráið nokkrum sneiðum af pepperoni yfir og saltið og piprið eftir smekk. -GLM Pastasalat þetta gleöur bæði augu og maga. sandkorn Foringinn hjá Aco Á tölvumarkaönum fer sam- keppni vaxandi svo um munar. Tölvurisinn Aco hf. festi nýlega kaup á Apple-umboðinu sem er enn ein rós í hnappagat fyrirtækis- ins en Aco er á mik- Uli siglingu um þess- ar mundir undir stjórn Bjarna Áka- sonar sem jafn- framt er fyrrv. for- maður handknatt- leiksdeUdar Vals. Bjarni þykir einn efnílegasti stjórn- andinn í tölvugeiranum í dag og er líklegur tU að fara mjög vaxandi á næstu misserum og hrifsa til sín aukna markaðshlut- deild á tölvumarkaðnum. Aðstoðar- maður Bjarna hjá Aco er Jón Krist- jánsson, þjálfari handknattleiksliðs Vals og Akureyringur. Hann er gjarnan nefndur um þessar mundir sem framtíðarleiðtogi framsóknar- manna á Akureyri... Atvinnuleysi Palla Ný könnun Vinnumálastofnunn- ar sýnir að atvinnuleysi mælist minna í júni en á sama tíma i fyrra. Vekur athygli aö atvinnuleysið mælist mest í Norðurlandi vestra, í heimakjördæmi fé- lagsmálaráðherrans Páls Péturssonar, og væntanlegu framboðskjördæmi aðstoðarmanns hans Áraa Gunn- arssonar. Á heimaslóðum Páls eru menn sem hafa verið án atvinnu í lang- an tíma, eru orðnir fullsaddir á ráð- herranum og aðstoöarmanni hans og vUja hvorugan sjá á lista flokks ins fyrir næstu kosningar. Er því leitað að nýjum frambjóðanda tU að sinna atvinnulausum í kjördæmi ráðherra atvinnumála... Nýtt Atlanta Starfsmenn Flugleiða eru ekki par hrifnir um þessar mundir af fyrir- huguðum breytingum á rekstri fé- lagsins. Þeir benda á að breytingar á útiiti og ýmsum öðrum þáttum til að bæta ímynd félagsins kosti of fjár en ekk- ert á ttil að spara þegar út í breyting- arnar er farið. Til- raunin er talin vera síðasta tæki- færi Sigurðar Helgasonar for- stjóra til að halda en enn er leitað að forstjóra fyrirtækis- ins. Óbreyttir starfsmenn Flugleiða hafa hins vegar fundið betri leið til að ná félaginu á flot - að breyta nafn- inu í Atlanta... Tveir ráðherrar Reykjaness Ef af því verður að Geir H. Haarde fjármálaráðherra færi sig um set og fari fram í Reykjanekjör- dæmi sjá menn möguleika á því að fjölga ráðherrum úr engum í tvo í kjördæminu. Þá er auk þess líklegt að meö því að gefa Geir möguleika á aö leiða lista Sjálf- stæðisflokksins á Reykjanesi megi ráða honum frá því að fara í slag- _ inn um varaformannsstól flokksins og forðast baráttu við Bjöm Bjarnason sem er talinn lík- legastur tU að hreppa hnossið og hefur mestan stuðning innan Sjálf- stæðisflokksins. Ef af prófkjöri verður er talið nær öruggt aö Ámi M. Mathiesen muni ná öðru sæt- inu og verði annar ráðherra Sjálf- stæðisflokksins á Reykjanesi. Þá er aðeins eftir aö úthluta forsetastóli Alþingis... Umsjón Hjálmar Blöndal Netfang: sandkom @ff. is starfi sínu væntanlegum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.