Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Side 10
iö
i ennmg
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998
Blámeisubókin fjallar
ekki bara um fugla
Þýski myndlistarmaöurinn,
tónlistarmaðurinn, rithöfund-
urinn og fuglaáhugamaðurinn,
Wolfgang Möller, komst að því
þegar hann spjallaði eitt sinn
við ameríska vinkonu sína að
Ameríkanar nota orðið Blue tit
yfir blámeisu. Þetta þótti hon-
um skrítiö þvi að blámeisur
hafa ekki blátt brjóst heldur
gult. Götumál yfir kvenbrjóst er
líka sjaldan notað yfir fugls-
bringu. Þegar Wolfgang og vin-
konan fóru að grennslast fyrir
um þetta i orðsifjabókum
komust þau að því að tit á í
raun uppruna sinn I fornís-
lenska orðinu tittr = tittur eða
tittlingur, sem er vel þekkt
fuglaheiti.
Wolfgang Miiller ætti að vera
íslendingum að góðu kunnur.
Hann hefur verið viðloðandi ís-
land um nokkurt skeið og stað-
ið fyrir fjölda listviðburða og
uppákoma. Bók hans, Þýsk-ís-
lenska blámeisubókin, er nú
komin út og er það Veturliði
Guðnason sem þýðir hana en
þýski og íslenski textinn standa
hlið við hlið í bókinni.
Wolfgang hefur óvenju ein-
lægan áhuga á íslandi. Sá áhugi
er þó ekki bara á eyðimerkur-
landslagi og jöklum heldur öll-
um hliðum hins daglega lífs ís-
lendingsins. Það er í raun mjög
erfitt að lýsa bókinni fyrir þeim
sem ekki hefur hugmynd um
efni hennar, svo ólík er hún öll-
um hefðbundnum „landkynn-
ingarbókum". Sem dæmi má þó
nefna að Wolfgang tekur snagg-
aralegt viðtal við Ólaf Ragnar
Grímsson þar sem þeir eru ekk-
ert að tala um gróðursetningu
eða fegurð íslenskrar náttúru
heldur stöðu landsins í alþjóða-
pólitík, árásargirni kríunnar og
álfa, svo eitthvað sé nefnt.
Wolfgang leggur sig fram um að lýsa Is-
lendingum eins og útlendingar fá yfirleitt
ekki að kynnast okkur. Hann tekur t.d. fyr-
ir hræðslu okkar við mengun móöurmálsins
og sýnir myndir af mjólkurfemunum sem
eiga að vera okkur stöðug áminning. Hann
segir frá islenska reðasafninu og alíslensk-
um klæðskiptingi, en rekur jafnframt klæð-
skipti Þórs í Þrymskviðu. Hann segir frá
Rósu Ingólfsdóttur sem tákni erótíkur og
Wolfgang
gefin er út
Múller, höfundur blámeisubókarinnar sem
af forlagi Martins Schmitz.
kvenleika, sem er auðvitað séríslenskt fyrir-
brigði, og rannsakar kima hommamenning-
arinnar á íslandi.
Frásagnarhátturinn er einstaklega lifandi
en Wolfgang nýtir sér í bókinni m.a. sagna-
brot, bréf, viötöl og myndir af listaverkum.
Listaverkin eru flest eftir Úlf Hróðólfsson
sem er nokkurs konar íslenskt sjálf lista-
mannsins. Verk Úlfs eru mörg einhvers kon-
ar tilbrigði við náttúruleg stef. Sem dæmi
má nefna krosskóngu-
lóareggjaleirlistaverk
og langvíueggssilf-
urskúlptúr. Wolfgang
hefur mikinn áhuga á
fuglum, eins og nafn
bókarinnar ber með sér,
og eitt listaverka hans,
sem ber nafnið Hringur,
er nákvæm eftirlíking
af hringum sem notaðir
eru til þess að merkja
relluhegra, nema þessi
hringur er settur á
mannsfingur og notaður
til þess að merkja
menn. Þær skýringar
fylgja listaverkinu að
nöfn eigenda þess séu
skráð hjá Fuglaskoðun-
arstöðinni Helgoland í
Þýskalandi og til þess
mælst að eftir lát eig-
andans sé hringurinn
sendur til fuglaskoðun-
arstöðvarinnar með ít-
arlegri skýrslu um öll
ferðalög þess sem hring-
inn hefur borið.
Wolfgang Múller hef-
ur einnig, ásamt mynd-
listarmanninum Ástríði
Ólafsdóttur, gert sér lít-
ið fyrir og stofnað nýja
Goethe-stofnun í
Reykjavík.
En eins og
flestir
muna var
þessi mikil-
væga menn-
ingarstofnun
lögð niður i
mars sl. þrátt
fyrir áköf mót-
mæli íslendinga.
Saman ætla
Wolfgang og
Ástríður að byggja
upp bókasafn,
myndbandasafn og
listasafn og auk þess
mun stofnunin m.a.
leggja áherslu á málakennslu og álfafræði.
„Fyrst Sambandslýðveldið Þýskaland vill
ekki lengur reka Goethe-stofnun á íslandi
hlýtur einkavæðing að koma til“ er haft eft-
ir Wolfgang. Nýja Goethe-stofnunin verður
opnuð í Nýlistasafninu í kvöld kl. 20.
Nafnlaus skúlptúr
Út er komin geislaplatan Kjár með þeim
Hilmari Jenssyni gítarleikara og Skúla
Sverrissyni rafbassaleikara en þeir Hilmar og
Skúli eru þekktir sem tilraunamúsíkantar úr
djassgeiranum. Samstarf þeirra tveggja er ekki
nýtt af nálinni og þótt Skúli hafi
búið í New York um árabil en Hilmar hér
heima hafa þeir unnið töluvert saman á und-
anförnum árum. Hilmar hefur verið fremstur i
flokki djassmúsíkanta hér
heima í alls kyns -
frjálsri spila-
mennsku og gaf
út plötuna Dof- -
inn árið 1995 hjá
JAZZÍS en með_____________________
honum á þeirri
plötu eru ýmsir
félagar þeirra Skúla frá New
York, að Skúla sjálfum ógleymd-
um. Á nýju plötunni eru þeir
aðeins tveir og eru upptökurn-
ar frá því í september siðast-
liðnum en Skúli tók þær síðan
með sér út og fullvann plöt-
una. Þrátt fyrir nokkra leit
og góðan vilja finnst orðið
Kjár ekki i Orðabók Menn-
ingarsjóðs svo líta verður á
nafnið sem hluta af spunan-
um. „Lög“ plötunnar bera
engin heiti, eru einungis
númeruð, enda er um
hreinan spuna að ræða i
öllum tilvikum og því
varla ástæða til sérstakra
nafngifta.
Geislaplötur
Ársæll Másson
Þaö má kannski einna helst likja plötunni
við að horfa á nafnlausan skúlptúr. Ef rýnt er
í þá má sjá ýmis kunnugleg form hér og þar en
þeir trufla mann ekki
ef litið er undan. Þegar
hlustað er á plötuna er
ekki erfltt að ímynda
sér hitt og þetta, kirkju-
klukkur, ýmis náttúru-
hljóð, bílflaut, og svo er
skyndilega á tali. Ég
ætla mér þó ekki að
fara að túlka spunann, það verður hver að gera
fyrir sig, en hann er ótrúlega látlaus, ekkert um
skyndileg skot eða snöggar styrkbreytingar. Og
þeir Hilmar og Skúli sýna það hér að þeir eru
afburðamenn í tónlist af þessu tagi. Umslag
plötunnar er snoturt, Goddur sá um útlit þess
en myndskreyting á framhlið er eftir Pétur F.
Baldvinsson. Ég er þó svo gamaldags að ég hefði
kosið aö hafa meiri upplýsingar á umslaginu.
„Landslag væri lítils viröi ef það héti ekki
neitt" sagöi borgarskáldið Tómas Guðmunds-
son einhverju sinni í ljóði og ég tek undir það.
Þar sem spuninn er allur nafnlaus fyndist mér
kynning á þeim Hilmari og Skúla ekki svo óviö-
eigandi, einhverjar upplýsingar ættu ekki að
draga athyglina frá tónlistinni.
Hilmar Jensson og Skúli Sverrisson: Kjár.
Smekkleysa 1998.
Leikhúsin við Tjörnina
Leikfélag íslands ehf. í Iðnó og
Vinnustofur leikara í Skemmtihúsinu
á Laufásvegi 22 hafa undirritað sam-
komulag um víðtækt samstarf þessara
húsa undir yfirskrift-
inni Leikhúsin við
Tjörnina. Samkomulagið
stuðlar að hagræðingu í
rekstri, auk þess sem
húsin munu eiga víðtækt
listrænt samstarf. Iðnó
tekur að sér miöasölu á
sýningar í Skemmtihús-
inu og upplýsingar um
sýningar beggja húsanna
verður að finna í auglýs-
ingum Iðnó i Morgunblað-
inu og víðar. Frá 29. júlí mun miðasala
Iðnó einnig annast sölu á aðgöngumið-
um á The Saga of Guðriður.
Ormstunga, sem gekk fyrir fullu
húsi í Skemmtihúsinu, verður sýnd í
Iðnó 10. ágúst nk. og er það upphafið
að frekari samnýtingu húsanna á list-
rænum viðburðum.
Áshildur Haraldsdóttir
fær góða dóma
Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari
og Pierre Morabia píanóleikari eru ný-
komin úr tónleikaferö um Frakkland
þar sem leikur þeirra fékk frábæra
dóma. Þar sagði
meðal annars í
La Nouvelle
République und-
ir fyrirsögninni
Töfraflautan að
„stórfengleg og
frumleg túlkun
þeirra hefði
dekraö við
hrifna áheyr-
endur". I blaða-
grein um tón-
leika þeirra í
Chaumontkastala stóö, aö þó að áheyr-
endur þekktu Pierre Morabia fyrir
músíkalskt næmi og tæknilega hæfi-
leika heföu þeir þetta kvöld uppgötvað
virtúósinn Áshildi en gullflauta henn-
ar heföi töfrað allan salinn.
Áshildur og Morabia hafa bæði unn-
iö til verðlauna í alþjóðlegum keppn-
um og Pierre Morabia, sem kemur nú
fram á íslandi í fyrsta skipti, hefur
hlotið verðlaun í alþjóðlegri keppni pí-
anóleikara í Epinal, Prix Albert Rous-
sel og heiðursverðlaun Akademíu
Maurice Ravels.
Áshildur og Morabia munu halda
tónleika nk. þriðjudag 4. ágúst kl. 20.30
í Listasafni Kópavogs. Á efnisskránni
verða verk eftir Mozart, Fauré, Alben-
iz, Höller, Debussy, Roussel og Bizet-
Borne.
Fagrar heyrði
ég raddirnar
Á morgun kl. 10.15 veröur fluttur
fyrsti þáttur í nýrri þáttaröö á rás 1.
Þáttaröðin ber nafniö Fagrar heyrði ég
raddimar og er
umsjónarmaður
þáttanna Aðal-
steinn Ingólfsson
listfræðingur. Þar
mun Aðalsteinn
leika lög sem
sniðin eru að tón-
listarsmekk hans
og má búast við
sígildum ljóða-
söng, djasssöng,
dægurlagasöng og
ef til vill söng
sem engin leiö er
aö flokka til hlítar, t.d. söng þar sem
óperusöngvarar syngja lög úr Broad-
way-söngleikjum og ljóðasöngvarar
syngja dægurlög.
I fyrsta þættinum fá hlustendur
meðal annars aö heyra í kontratenórn-
um Andreas Scholl sem umsjónarmað-
ur hefur að sögn sérstakt dálæti á.
Umsjón
Þórunn Hrefna
wmmmimMm