Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Qupperneq 19
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998
19
Dráttarbeisli-Dráttarbeisli
Ný sending
af dráttarbeislum
í margar gerðir fólks-
og jeppabifreiða.
FJAÐRABUÐIN PARTUR HF.
Eldshöföa 10, Reykjavík.
Símar 567 8757 og 587 3720
A meðan Frakkar og
Brassar börðust
Ein af hetjum nýafstaðinnar
heimsmeistarakeppni var Michael
Owen, Liverpoolmaðurinn knái.
Enska liðið komst fyrr í sumarfrí en
það ætlaði sér eftir sorglegt tap.
Michael lét það ekki á sig fá heldur
skellti sér til Florida með kærust-
unni sinni, Louise Bonsall, og pabba
sínum, Terry. Þar léku þau við
hvert annað á ýmsan hátt og lét
Owen fara mjög vel um sig. Það er
bara vonandi að hann hafi launað
Louise nuddið á viðeigandi hátt því
einstefna í þægindum er eins og all-
ir vita óþolandi og óhugsandi til
lengri tíma.
Ólyginn sagði...
... að Jodie Foster sé mjög var-
kár. Enda ekki skrýtið ef reynt er
að drepa forseta Bandaríkjanna
bara til að fá athygli hennar. Það
má þvi ekki dæma Jodie hart fyr-
ir að eyða 35 milljónum i öryggis-
kerfi fyrir heimili sitt til að hún
feeti fylgst betur með baminu sinu
sem fæddist fyrir skemmstu. Leik-
konan
smáa
mun geta
fylgst
með
barninu
hvaðan
sem er: í
gegnum
tölvu
sem birt-
ir mynd-
ir og
hljóð.
Skyldi
vera
hægt að forrita tölvuna í bleiu-
skipti?
... að ólátabelgurinn og annar
Oasisbróðirinn Liam Gallagher
þyrfti aldeilis að opna veskið sitt.
Hann þarf nefnilega að punga út
rúmum sjö milljónum til fyrrver-
andi ástralsk aðdáanda. Það er
ekki af góðmennskunni hreinni
og tærri sem karlkvölin ætlar að
borga þetta heldur vegna þess að
Ben Jones, 19 ára Ástrali, var að
þvælast fyrir honum á tónleika-
ferðalagi með þeim afleiðingum
að Liam rak ennið í andlit Bens.
Ben var ekki sterkbyggðari en svo
að hann nefbrotnaði. Sjö milljónir
eru samt ansi hátt verð fyrir smá-
likamsrækt.
Ríki s en d u r sko öu n
óskar eftir aö ráöa starfsmerm i eftirtalin störf.
Fjárhagsendurskoöun
Viðfangsefni fjárhagsendurskoðunar felast m.a. í því að votta fjárhagsupplýsingar, láta í ljós álit á
verklagi og heimildum til ráðstöfunar á opinberu skattfé. Áherslur í endurskoðunarstörfum hjá hinu
opinbera eru breytilegar frá einum tíma til annars. Þar kemur einkum til sögu stöðug þróun i
upplýsingatækni og upplýsingamiðlun, ný verkefni og breytt rekstrarumhverfi.
Hœfniskröfur
Leitað er eftir einstaklingi með próf frá viðskiptadeild Háskóla íslands sem hefur metnað til að takast
á við fjölbreytileg viðfangsefni.
Stjómsýsluendurskoðun
Viðfangsefni stjórnsýsluendurskoðunar er m.a. að kanna meðferð og nýtingu ríkisfjár og hvort hag-
kvæmni og skilvirkni sé gætt í rekstri stofnana og fyrirtækja í eigu ríkisins.
Hæfniskröfur
Leitað er eftir einstaklingi með verkfræðimenntun og hefur metnað til að takast á við fjölbreytileg
verkefni sem tengjast stjómsýsluúttektum m.a. hjá tækni- og framkvæmdastofnunum hins opinbera.
Umhverfísendurskoöuu
Lög um Ríkisendurskoðun gera ráð fyrir að hún geti kannað og gert grein fyrir hvernig stjórnvöld
framfylgja áætlunum, lagafyrirmælum og skuldbindingum á sviði umhverfismála. Hér er um nýtt
verkefnasvið að ræða sem m.a. kallar á erlend samskipti.
Hæfniskröfur
Leitað er eftir háskólamenntuðum einstaklingi með sérþekkingu á sviði umhverfismála.
Próf til löggiltrar endurskoöunar/endurmermtun
Ríkisendurskoðun býður þeim starfsmönnum sem áhuga hafa á að taka þátt í kennslu og þjálfun til
undirbúnings fyrir löggildingarpróf í endurskoðun. Á haustmánuðum n.k. mun hefjast 2ja ára
kerfisbundið nám til undirbúnings löggildingar í umsjón kennara við Háskóla íslands.
Þá býður Ríkisendurskoðun starfsmönnum stöðuga endurmenntun til að tryggja faglega þekkingu
þeirra á hinum fjölbreytilegu viðfangsefnum sem stofnunin fjallar um. Framkvæmd endurmenntunar
felst m.a. í því að boðið er upp á þjálfun og námskeið sem haldin eru innan og utan
Ríkisendurskoðunar. Ríkisendurskoðun er fullgildur meðlimur í alþjóðasamtökum ríkisendur-
skoðana INTOSAI, Evrópusamtökum ríkisendurskoðana EUROSAI og samstarfi norrænna' ríkis-
endurskoðenda.
Starfsmenn
Fjöldi starfsmanna í föstum stöðugildum eru 42 talsins sem skiptist þannig:
Löggiltir endurskoðendur 4, viðskipta- og hagfræðingar 22, lögfræðingar 4, aðrir 12.
Launakerfi
Launakerfi Ríkisendurskoðunar veitir svigrúm til að meta frammistöðu og árangur starfsmanna.
Starfs- og frammistöðumat ásamt viðmiðun við launakjör á almennum vinnumarkaði er ráðandi við
ákvörðun launakjara.
Annaö
Ríkisendurskoðun starfar á vegum Alþingis. Hlutverk hennar felst einkum í því að gefa upplýsingar
og láta í ljós álit á ýmsum atriðum er tengjast fjárreiðum ríkisins. Þá skal Ríkisendurskoðun gera
kannanir á því hvort þeim fjármunum sem skattgreiðendur láta af hendi sé ráðstafað á skilvirkan og
hagkvæman hátt.
IJmsóknum skal skila til Ríkisendurskoöunar,
Skúlagötu 57, Pósthólf 5350, 125 Reykjavík,
fyrir 15. ágúst.
Reyklaus virmustaður.