Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Blaðsíða 35
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998
39
llýsingar |
berast fyi
Langur laugardagur í midborg Reykjavíkur
Kaupmenn, veitingamenn og adrir þjónustuaðilar í miðborginni, athugið:
Til hamingju með nýjan Laugaveg
Sviðsljós
Kate Winslet
komin í megrun
Titanicbuddan Kate Winslet
lifir bara á rósakáli þessa dag-
ana. Leikkonan unga er sem sé
komin í megrun vegna fyrirhug-
aðs nektaratriðis í kvikmynd
Jane Campion, Holy Smoke, að
því talið er. Þar leikur Kate
stúlku sem flýr úr sértrúarsöfn-
uði. Kannski hefur þó stríðni
Titanicleikstjórans James
Camerons haft eitthvað að segja.
Annars var Kate kærkomin fyr-
irmynd allra þeirra ótal kvenna
og stúlkna sem ekki eru jafn
þvengmjóar um mittið og ofur-
fyrirsætumar. En svo bregðast
krosstré sem önnur tré, eins og
þar segir.
Mikki vill fleiri
skemmtigarða
Skemmtikrafturinn Michael
Jackson má ekki til þess hugsa
að heimurinn fari á mis við þá
miklu sælu að leika sér í
skemmtigarði. Sérstaklega er
honum umhugað um aö Asíubú-
ar fái að njóta herlegheitanna,
enda kannski mikið um svoleið-
is dýrðir í þeim heimshluta.
Popparinn hefur í hyggju aö láta
reisa tvo slíka garða í Japan og
enn einn í einhverju öðru Asíu-
landi. Hann ætlar þó ekki að láta
þar við sitja því ætlunin er að
stofna leikfangabúðakeöju sem á
að teygja anga sína um gjörvalla
heimsbyggðina. „Þetta verða al-
veg einstakir skemmtigaröar,"
segir popparinn.
Flestir þekkja hann undir nafninu Prince en þessi mæti tónlistarmaöur hefur skipt um gír og kallar sig nú
Listamanninn. Hann mætti í rauðri fleglnni skyrtu í útgáfuteiti nýjustu plötu sinnar „Newpower Soul“ en plötuna gaf
hann út sjálfur. Hann seglst aldrei hafa verið hamingjusamari í tónlistinni og blæs á þá sem segja að tónlistarferll
hans sé lokið. Símamynd Reuter
Geri kryddpía
styður gott mál
Kryddpían fyrrverandi, Geri
Halliwell, hefur alltaf verið
brjóstgóö. Hún hefur nú ákveðið
að selja tugi muna frá kryddpíu-
dögum sín til
styrktar
krabbameins-
sjúkum börn-
um. Munirnir
fara á uppboð
í september og
meðal þess
sem áhuga-
samir geta
slegist um eru hinn frægi fána-
kjóll hennar og rauð mussa sem
hún klæddist þegar hún fór að
hitta Karl ríkisarfa.
Þótt Geri geri sér vonir um að
létta af sér fargi fortíðarinnar,
gerir hún sér engu að síður
grein fyrir því að kryddpían
mun fylgja henni til æviloka.
Cher ekki beint
kynbombuleg
Bandaríska söng- og leikkon-
an Cher var ekki beint kyn-
bombuleg þegar hún mætti í
upptökur á nýju mynd glans-
myndakóngs-
ins Francos
Zeffirellis, Te-
boð hjá Mus-
solini. Nei,
Chér var ósköp
grá og guggin
ög ekkert lík
þeirri glam-
úrpíu sem eigum að venjast þeg-
ar hún er annars vegar. Skýring-
in á þessu hörmungarástandi
hinnar 52 ára gömlu Cher er ein-
fóld, að mati erlendra blaða. Jú,
Cher varð svo upprifin yfir hlut-
verkinu aö hún dreif sig til ítal-
íu löngu áður en upptökur
skyldu hetjast. Franco var hins
vegar ekkert til í að breyta áætl-
un sinni og því varð Cher aö
leika túrista í hálfan mánuð.
Næsti langi laugardagur er 8. ágúst.
Þeim sem vilja tryggja sér pláss fyrir auglýsingu
í DV föstudaginn 7. ágúst er bent á ab hafa
samband vib Sigurö Hannesson sem fyrst
í sima 550 5728.
Eddi litli í hnapphelduna:
Prins í hamingjuleit
Nýjustu fregnir úr Buckingham-
höll herma að brúðkaup Játvarðar
prins og unnustu hans til mrgra
ára, Sophy Rhys-Jones sé að vænta
í haust.
Játvarður einsetti sér það ungur
að flana ekki að neinu í kvennamál-
um og forðast umfram allt að gera
sömu mistök og bræður hans, en
hjónabönd þeirra beggja voru mis-
heppnuð og enduðu bæði með skiln-
aði.
Játvarður og Sophy hafa átt í
sambandi síðustu fimm árin en búa
þó enn hvort á sínum staðnum. Ját-
varði þykir hins vegar nóg komið af
slíku og talsmaður hallarinnar hef-
ur staðfest að prinsinn sé búinn að
bera upp bónorðið.
„Hann hefur óskað eftir því að
brúðkaupið verði látlaust og lítið
verði gert úr því. Hvað brúðinni
fmnst um þetta veit ég ekki en Ját-
varður telur að með því að gera
þetta svona sé hann ekki að kalla yf-
ir sig sömu bölvun og ríktu í hjóna-
böndum bræðra hans,“ sagði tals-
maðurinn viö breska fjölmiðla.
Faðir Játvarðar, Filip prins, hef-
ur gert syni sínum ljóst að fyrst
bónorðið sé komið upp á borðið þá
sé honum hollast að ákveða brúð-
kaupsdaginn ekki seinna en í ágúst.
Játvarður mun sjálfsagt hlýða
föður sínum en þessa dagana hefur
hann um annað að hugsa. Hann er
nefnilega að biða eftir að fá að vita
hvort hann muni hljóta nafnbótina
Hertogi af Sussex eða Cambridge.
Raunar sagði prinsinn nýlega í við-
tali í Bandaríkjunum að konungleg-
ur titill væri frama hans í sjónvarpi
til trafala.
„Þeir sem bera konunglegan titil
á Englandi eru almennt álitnir
heilalausir hálfvitar," sagði Ját-
varður.
Hvað brúðkaupið varðar þá segja
talsmenn hallarinnar að það verði
vart á þessu ári enda þótt það eigi
að vera látlaust þá taki tíma að und-
irbúa það.
i