Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Page 46
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998
Til hamingju
með afmælið
l.ágúst
75 ára
Helgi Oddsson,
Merkigerði 12, Akranesi.
Karl Ólafsson,
Réttarholti 5, Borgamesi.
Hann tekur á móti vinum og
vandamönnum í Félagsbæ,
húsi Verkalýösfélagsins í
Borgamesi, að kvöldi 1. ágúst
frá klukkan 19.
Kristín Axelsdóttir,
Grímstungu 1, Reykjahlið.
Ólafur Jónsson,
Urriðavatni, Fellahreppi.
Unnur Marinósdóttir,
Austurbergi 32, Reykjavík.
70 ára
Ármann Jóhannsson,
Hólalandi 6, Stöövarfirði.
Helga Guðjónsdóttir,
Skólabraut 26, Akranesi.
Óli Ingvarsson,
Geitagili, Vesturbyggð.
60 ára
Ásta Erla Ósk Einarsdóttir,
Óðinsvöllum 1, Keflavík.
Birgir Jónsson,
Laufrima 4, Reykjavik.
50 ára
Elsa Sveinsdóttir,
Skeljatanga 24, Mosfelisbæ.
Jóninna Margrét
Hjartardóttir,
Grundartanga 8, Mosfellsbæ.
Kristlaug Karlsdóttir,
Lautasmára 16, Kópavogi.
40 ára
Ágústa Hjaltadóttir,
Lundi III, Nýbýlavegi,
Kópavogi.
Hannes Haraldsson,
Víöigeröi 2, Akureyri.
Lilja Brynja Guðjónsdóttir,
Oddabraut 17, Þorlákshöfn.
Vala Haraldsdóttir,
Skógarhlíð 12, Reykjavík.
Þórunn Elídóttir,
Laugarnesvegi 106, Reykjavík.
Öra Guðnason,
Úthlíð 4, Reykjavík.
Kolbeinn Helgason
Kolbeinn Helgason, Mávahrauni
14, Hafnarfirði, verður sjötugur á
morgun.
Starfsferll
Kolbeinn fæddist á Hrappsstöðum
í Glæsibæjarhreppi í Eyjafirði.
Hann vann við verslunar- og skrif-
stofustörf á Akureyri 1949-56 og
1962-77, vann við fiskvinnslu í Vest-
mannaeyjum, á Raufarhöfn og á Ak-
ureyri 1957-61 og hefur verið skrif-
stofustjóri á Hrafnistu DAS í Hafn-
arfirði frá 1977.
Kolbeinn sat í stjóm Félags versl-
unar- og skrifstofufólks á Akureyri
1953-77, V£ir gjaldkeri þar 1953-56,
varaformaður 1967-1975 og formað-
ur félagsins 1976-1977. Hann sat
flest Alþýðusambandsþing 1956-76
sem fullrúi félagsins og var kjörinn
heiðursfélagi þess 18.4. 1996.
Kolbeinn sat í stjóm Alþýðu-
flokksfélags Akureyrar í nokkur ár,
var formaður þess 1966-69 og sat í
flokksstjórn Alþýðu-
flokksins 1966-70. Hann
sat í stjóm Krossanes-
verksmiðjunnar 1966-70
og í framtalsnefnd Akur-
eyrarkaupstaðar 1968—
1977. Þá hefur hann starf-
að í Oddfellowreglunni
um árabil.
Fjölskylda
Kolbeinn kvæntist 8.
ágúst 1964 Sigríði Aðal-
björgu Jónsdóttur, f. 13.
nóvember 1928, forstöðu-
konu á Hrafnistu DAS i Hafnarfirði.
Foreldrar hennar eru Jón Jónsson,
fyrrv. skipstjóri, frá Tjömum í Eyja-
firði og kona hans, Guðbjörg Bene-
diktsdóttir.
Dætur Kolbeins og Sigríðar em
Guðrún Emilía, f. 24. desember 1970,
og Kristín, f. 24. janúar 1974.
Bræður Kolbeins, samfeðra, eru
Haukur, húsvörður Digranesskóla í
Kópavogi, kvæntur Hall-
dóru Guðmundsdóttur:
Njáll, iðnverkamaður á
Akureyri, kvæntur Öldu
Einarsdóttur, en þeir eru
báðir látnir, og Haraldur,
fyrrv. kaupfélagsstjóri
Kaupfélags verkamanna
á Akureyri, kvæntur Ás-
laugu Einarsdóttur,
fyrrv. bæjarfulltrúa á Ak-
ureyri.
Foreldrar Kolbeins
voru Helgi Kolbeinsson,
b. á Hrappsstöðum, síðar
verkamaður á Akureyri, og k.h.,
Guðrún Jónsdóttir.
Ætt
Helgi var sonur Kolbeins, b. á
Svertingsstöðum í Öngulsstaða-
hreppi, Jónssonar og konu hans,
Ingibjargar, systur Sigurlaugar,
ömmu Indriða Indriðasonar rithöf-
undar. Ingibjörg var dóttir Jósefs, b.
á Kálfborgará í Bárðardal, Þórarins-
sonar, b. á íshóli í Bárðardal, Jóns-
sonar. Móðir Ingibjargar var Helga,
systir Ásmundar á Hvarfi í Bárðar-
dal, föður Valdimars ritstjóra, föður
Héðins alþingismanns. Helga var
dóttir Sæmundar, b. á Amdísarstöð-
um, bróður Jóns, langafa Barða,
fyrrv. skrifstofustjóra VSÍ, og Krist-
jáns forstjóra, Friðrikssona. Jón var
einnig langafi Þóris, afa Höskuldar
Þráinssonar prófessors. Sæmundur
var sonur Torfa, b. í Holtakoti,
Jónssonar, b. á Kálfárborg, Álfa-
Þorsteinssonar, b. á Ytrileikskálaá,
Gunnarssonar.
Guðrún var dóttir Jóns, b. í Sól-
heimatungukoti, Bjarnasonar og
konu hans, Halldóru Jónsdóttur, b. í
Hrisnesi í Þverárhlíð, Sigurðssonar,
b. í Sanddalstungu, Jónssonar, b. og
dbrm. í Deildartungu, Þorvaldsson-
ar, ættföður Deildartunguættarinn-
ar
Kolbeinn verður að heiman.
Kolbeinn Helgason
Símon Edvald Traustason
Símon Edvald Traustason, bóndi
að Ketu í Hegranesi í Skagafirði,
verður fimmtugur á morgun.
Starfsferill
Símon fæddist í Vestmannaeyjum
og ólst þar upp til sextán ára aldurs.
Hann lauk gagnfræðaprófi frá Gagn-
fræðaskóla Vestmannaeyja 1964,
stundaði nám við Iðnskólann í Vest-
mannaeyjum og lærði þar húsa-
smíði og lauk búfræðiprófi frá
Bændaskólanum á Hólum í Hjalta-
dal 1967. Þá lauk hann einkaflug-
mannsprófi 1982.
Símon hóf búskap að Egg í Hegra-
nesi vorið 1969 en festi kaup á jörð-
inni Ketu 1974 og hefur stundað þar
búskap síðan.
Símon hefur setið í sveitarstjórn
frá 1978 að einu kjörtímabili undan-
skildu og var oddviti 1994-98, situr í
stjóm Búnaðarfélags Rípurhrepps
frá 1979 og er formaður þess frá
1989, hefur verið formaður Náttúru-
vemdamefndar Skagaíjarðar sl. sex
ár og situr í fjölda nefnda á vegum
sveitar sinnar.
Fjölskylda
Símon kvæntist 27.7. 1968 Ingi-
björgu Jóhönnu Jóhannesdóttur, f.
12.5. 1947, húsmóður. Hún er dóttir
Jóhannesar Ingimars Hannessonar,
f. 21.3. 1913, bónda að Egg í Hegra-
nesi, og k.h., Jónínu Sigurðardótt-
ur, f. 30.4. 1914, húsfreyju.
Böm Símonar og Ingibjargar Jó-
hönnu em Jónína Hrönn Símonar-
dóttir, f. 10.1. 1969, kennari á Þing-
eyri við Dýrafjörð, gift Sigurjóni
Hákoni Kristjánssyni og eiga þau
tvö börn; Jóhannes
Hreiðar Símonarson, f.
24.8.1973, nemi við búvís-
indadeild Bændaskólans
á Hvanneyri, kvæntur
Helgu Sigurðardóttur og
eiga þau eitt barn; Ragn-
heiður Hlín Símonardótt-
ir, f. 6.8. 1979, nemi en
maður hennar er Rögn-
valdur Óli Jónsson og
eiga þau eitt bam; Gígja
Hrund Símonardóttir, f.
7.12. 1984, nemi.
Systkini Símonar eru
Halldóra Traustadóttir, f. 28.6. 1939,
ljósmóðir í Reykjavík; Guöjón
Traustason, f. 23.4. 1943, vélvirki í
Kópavogi; Komelíus Traustason, f.
30.5. 1946, húsasmíðameistari í
Kópavogi; Sólveig Rósa Traustadótt-
ir, f. 12.7. 1950, sjúkraliði
í Reykjavík; Vörður Leví
Traustason, f. 21.10. 1952,
bifvélavirki og forstöðu-
maður Hvítasunnukirkj-
unnar í Reykjavík, bú-
settur í Kópavogi; Guð-
rún Ingveldur Trausta-
dóttir, f. 5.3. 1954, sjúkra-
liði í Reykjavík.
Foreldrar Símonar eru
Trausti Guðjónsson, f.
13.8. 1915, húsasmíða-
meistari í Kópavogi, og
Ragnheiður Jónsdóttir, f.
12.10.1917, húsmóðir.
Símon og Ingibjörg eru að heim-
an og dvelja um þessar mundir í ís-
lendingabyggðum í Kanada.
Sfmon Edvald
Traustason.
Olafur Agúst Veturliðason
Ólafur Ágúst Vetur-
liðason múrari, Vestur-
túni 38, Bessastaðahreppi
verður sjötugur á morg-
un, 1.8.
Starfsferill
Ólafur fæddist í Vatna-
dal í Súgandafirði sem
var æskuheimili hans til
tuttugu ára aldurs. Þar
var fært frá til ársins
1942 og var Ólafur með
síðustu hjásetudrengjum.
Hann flutti tvítugur til
Suðureyrar og stundaði
þar fiskvinnu. Síðan flutti hann til
Ísaíjarðar, hóf nám við Iðnskóla ísa-
fjarðar og lauk prófi í múraraiðn
1961.
Ólafur flutti, ásamt eiginkonu
sinni, til Hafnarfjarðar 1962 þar
sem þau byggðu sér hús
að Blómvangi 18 og áttu
þar heima lengst af. Ólaf-
ur hefur ætíð unnið við
iðn sina, m.a. vann hann
í sjö ár við múraravinnu
í Borgarsjúkráhúsinu, en
lengst af hefur hann unn-
ið við flokkstjórn yfir
múrurum í kersmiðju hjá
íslenska Álfélaginu í
Straumsvík. Einnig hefur
Ólafur gegnt mörgum
trúnaðarstörfum í Múr-
arafélagi Reykjavíkur.
Fjölskylda
Eiginkona Ólafs er Kristín S.
Guðmundsdóttir, f. 14.9.1941, en hún
hefur starfað hjá DAS í Hafnarfirði.
Foreldrar Kristínar voru Guðmund-
ur Sveinsson, skrifstofumaður við
Kaupfélag ísfirðinga og síðar kaup-
félagsstjóri í Hafnarfirði, og Guðrún
Sigurðardóttir kaupakona. Þau eru
bæði látin.
Böm Ólafs og Kristínar eru Andr-
ea, f. 5.11. 1960, leikskólakennari,
gift Erlendi Gunnarssyni húsasmið
og eiga þau tvö böm; Guðrún, f.
11.11.1961, kjólameistari en sambýl-
ismaður hennar er Skúli Gunnars-
son kennari og eiga þau tvö böm;
Ármann, f. 3.2. 1964, pípulagninga-
maður, kvæntur Árdísi Olgu Sig-
urðardóttur tannsmið og eiga þau
tvö böm; Helga, f. 6.12. 1969, mót-
tökustjóri, var gift Ágústi Helgasyni
en þau skildu og eiga þau tvö börn
en sambýlismaður hennar er Berg-
ur Helgason verkfræðingur; Ágúst,
f. 20.5.1972, sölumaður en sambýlis-
kona hans er Rebekka Rut Sævars-
dóttir verslunarmaður.
Systkini Ólafs eru Guðmundur
Andrés, f. 19.11. 1914, d. 14.4. 1959;
Guðni Egill, f. 21.2. 1916, d. 6.4. 1916;
Helga Guðríður, f. 13.8. 1917, d. 7.1.
1993; Guðrún, f. 31.5. 1921, búsett á
ísafirði; Þórdís Sigríður, f. 17.7.
1926, d. 29.3. 1927; Guðrún Jónsdótt-
ir, f. 4.10.1931 (fóstursystir), búsett í
Reykjavík.
Foreldrar Ólafs voru Veturliði
Híram Guðnason, bóndi í Vatnadal,
Súgandafirði, vann síðar við áhnýt-
ingar, seglasaum og seglaviðgerðir
á Suðureyri, og Andrea Guðmunds-
dóttir, húsmóðir í Vatnadal. Þau
em bæði látin.
Ólafur verður heima á afmælis-
daginn. Heitt verður á könnunni frá
kl. 15.00 og vonast hann til að sjá
sem flesta vini og ættingja.
Ólafur Ágúst
Veturliöason.
Guðrún Möller Magnússon
Guðrún Möller Magnússon hjúkr-
unarkona, Skólavegi 5, Keflavík,
verður níræð á mánudaginn, 3.8.
Starfsferill
Ella Gudrun Möller Magnússon
fæddist í Kaupmannahöfn. Hún
lauk hjúkrunamámi við Roskilde
Amts sygehus 1936 og framhalds-
námi í geðhjúkmn við Sct. Hans
Hosp. Hróarskeldu í desember sama
ár.
Guðrún vann síðan við Frantz
Howits Födehjem til 1937, St. Jos-
ephs Hospital I Kaupmannahöfn í
eitt ár, St. Josephs Hospital í Óðins-
véum í sex mán., starfaði á St. Jós-
epsspítalanum í Hafnarfirði 1939-
1949 og á Landspítalanum og Landa-
koti til ársins 1977.
Fjölskylda
Guðrún giftist 5.8. 1949 Kristjáni
Magnússyni frá Garðhúsum í Höfn-
um, f. 31.1. 1904, d. 20.7. 1985, Hann
var sonur Magnúsar Gunnlaugsson-
ar, bónda í Garðhúsum í
Höfnum, og Guðnýjar
Þórðardóttur húsfreyju.
Hálfsystkini Guðrúnar:
Hans Peder Pedersen, f.
13.10.1917, d. 1984, verka-
maður; Anne Kristíne
Petrea Hedvig Hansen, f.
26.12.1918, dömuklæðskeri
í Kaupmannahöfn; Hag-
barth Sígúrd Pedersen, f.
9.3.1921, bakarameistari,
á Jótlandi; Tage Peder-
Gubrún Möller
Magnússon.
sen, f. 6.1. 1923, d. 1982,
portör; Ejgil Pedersen,
sjómaður, f. 2.6. 1930, d.
1972.
Foreldrar Guðrúnar
voru Arne P. Möller, f.
26.12.1875, f. 13.10.1914,
skrifstofustjóri, og Etna
Möller Pedersen, f. 16.3.
1887, d. 14.4. 1964, kenn-
ari.