Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1998, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1998
7
Fréttir
Alzheimer áberandi í frönskum álverum:
Ekki vitað um neitt
tilfelli í Straumsvík
- og þar virðast hraustustu álverjarnir vinna
„í fljótu bragði minnist ég ekki
eins einasta tilfellis þar sem starfs-
maður hér í Straumsvík hefur
fengið þennan sjúkdóm, alzheimer.
Álverin hafa verið talin búa við
áhættuþætti gagnvart krabba-
meini, það hefur verið skoðað, en
ekkert óyggjandi liggur þó fyrir í
þeim efnurn," sagði Gylfi Ingvars-
son, aðaltrúnaðarmaður hjá ÍSAL í
gær. Gylfi sagði að engin úttekt
hefði verið gerð á dauðsfóllum
þeirra sem starfað hafa hjá fyrir-
tækinu.
Ekki verður séð að óeðlileg sjúk-
dómseinkenni hafi komið upp í ál-
verinu í Straumsvík. Frá því hefur
verið skýrt í fréttum að margir
starfsmenn franskra álvera hafi
fengið alzheimersjúkdóminn og
rekja menn það til vinnuaðstæðna
í álverum. Gylfi sagði í gær að ekki
væri ástæða til að ætla að starfs-
menn væru í áhættu gagnvart
sjúkdómum, þrátt fyrir ryk sem er
í andrúmsloftinu á staðnum, þótt
það hafi minnkað, en ljóst að menn
yrðu að sýna varkárni og fylgjast
þyrfti með heilsu fólksins.
„Þetta mál með alzheimersjúk-
dóminn hefur ekki komið upp í
viðræðum okkar við norræna
starfsbræður innan AMS, umhverf-
isstofnun áliðnaðarins á Norður-
löndum sem fylgist með umhverfis-
málum, öryggi og heilbrigöi á
vinnustaðnum. Ég var á aðalfund-
inum í Noregi í byrjun þessa mán-
aðcU- og þar kom ekkert fram um
mál eins og þetta. Það sem hefur
verið viðurkennt vandamál númer
eitt, tvö og þrjú er rykið. Þetta
vinnuumhverfi getur orsakað ert-
ingu í lungum og með því er fylgst.
Menn hafa mestar áhyggjur af
skautsmiðjunni en þar eru raf-
skautin hituð og mikÚl kolareykur
í loftinu.
í álverinu í Straumsvík kemur
trúnaðarlæknir einu sinni í viku
og er til viðtals, Andrés Sigvalda-
son, sérfræðingur í lungnasjúk-
dómum. Gylfi segir að ágætlega sé
hugsað um heilbrigði starfsmanna
en þeir vilji fremur að gerður
verði samningur við nærliggjandi
heilsugæslustöð. „Lögin gera ráð
fyrir því en atvinnurekendur inn-
an stjórnar Vinnuveitendasam-
bandsins hafa alla tið beitt sér
gegn því að þetta næðist fram,“
sagði Gylfi.
Gylfi sagði að fylgjast þyrfti
grannt með ýmsu utanaðkomandi
áreiti sem starfsmenn verða fyrir,
til dæmis seguláhrifiun, kolareyk
og ryki.
Hraustastir allra álkalla
„Ég vann í 23 ár hjá ísal og sá
um kerstartið. Þá kemur mesta
óloftið þegar kerin eru opin. Svo
hef ég reykt ofan á allt saman. En
mér hefur ekki orðið misdægurt,
aldrei fengið í lungun, þetta er svo
einstaklingsbundið," sagði Jóel
Sigurðsson, fyrrverandi verkstjóri
í álverinu, 74 ára, íslandsmeistari í
spjótkasti um miðja öldina. Hann
segist ekki vita um neitt dæmi þess
að félagamir úr álverinu hefðu
fengið alzheimer.
„Hitt er annað mál að menn
voru að kvarta í flutningunum,
súrálið fauk þá um allt og yfir all-
an Hafnarfjörð og var mesta vand-
ræðamál. Núna er þetta gert allt
öðruvísi og rykast ekki,“ sagöi
Jóel. „Við hjá ísal vorum á hverju
einasta ári langlægstir allra álvera
Alusuisse í fjarvistum frá vinnu-
stað. Þessu hefur aldrei verið flagg-
að, menn vilja vist halda fram ein-
hverju heilsuleysi, en því var bara
ekki til að dreifa." -JBP
Rassakortið frá Landsbankanum - og bakhliðin meö kærri kveðju frá þús-
und Landsbankamönnum.
Bankakonum var
ekki skemmt
Kort sem „Starfsfólk Landsbank-
ans“ sendi inn á fjölda heimila í
landinu hefúr vakið nokkra eftirtekt
og jafnvel undrun. Kortið er venju-
legt póstkort með svarthvítri mynd
þar sem sést aftan á tvo kvenmenn á
sundfötum sem leiða berrassað bam
á milli sín. Aftan á kortiö er hugljúf
„sólarlandakveðja“ skrifuð með
blokkskrift, þar sem viðtakandi er
minntur á að greiða hitaveitureikn-
inginn í næsta Landsbanka. Með þvi
móti taki hann þátt í skemmtilegu
happdrætti og geti unnið ferð til
Evrópu. Á kortinu eru þýsk frí-
merki, en póststimpillinn er Nassau
sem mun vera á Bahamaeyjum.
Blaðið hefur heyrt í starfsfólki
Landsbankans sem er óánægt með
þessa auglýsingabrellu Þjónustu-
vers bankans. Starfsmennimir, á
annað þúsund, hafa ekki gefið leyfi
fyrir undirskriftinni, auk þess sem
þeim finnst myndin fyrir neðan all-
ar hellur.
Þómnn Kr. Þorsteinsdóttir, for-
maður Starfsmannafélags Lands-
bankans, sagði í gær að ekki hefði
verið fengið leyfi fyrir auglýsing-
unni hjá félaginu. Hún sagðist ekki
hafa orðið vör við mikil viðbrögð
við þessari auglýsingu sem fylgdi til
áskrifenda Morgunblaðsins, nema
hvað fólki þætti myndin á kortinu
lítt skemmtileg. Fyrir nokkrum
árum hefði það verið tekið upp að
leita heimilda fyrir birtingum sem
þessari en það var ekki gert nú.
„Þetta er óvenjuleg auglýsing sem
fólk tók eftir, út á það ganga víst
auglýsingar, þetta er meinalaust af
okkar hálfu, starfsmannanna, en
mér hefur heyrst aö sumar konur
hafi verið viðkvæmar fyrir þessum
rössum sem birtust,“ sagði Þómnn.
-JBP
Þrír handteknir vegna
tveggja innbrota
Lögreglan hefúr upplýst tvö inn-
brot sem áttu sér stað í Reykjavík
um síöustu helgi.
Brotist var inn í íbúðarhús í Mið-
túni og stolið mjög miklum verð-
mætum. Þá var brotist inn í íbúð í
Hraunbæ og þar var m.a. stolið
verðmætri tölvu.
Lögreglan handtók i fyrradag þrjá
menn vegna innbrotanna. Tveir
mannanna viðurkenndu við yfir-
heyrslur að hafa framið innbrotin.
Sá þriðji hafði hins vegar rænt þýf-
inu frá þjófunum. Allt þýfið er fund-
ið og hefur verið því verið komið í
hendur réttra eigenda. -RR
vinda!
Lágt verö!
Stór hurð sem opnast 156°
Whirlpool þvottavélarnar
© HHW
t ||
t M
1
• „Water lift system" sem
eykur gæði þvottarins.
• Ullarvagga. Vélin „vaggar"
þvottinum líkt og um
handþvott væri að ræða.
• Nýtt silkiprógramm.
• Barnalæsing.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500
www.ht.is
il
Umboðsrnenn um land allt
Byggingavörudeild KEA Akureyri Mosfell Hellu
Einar Stefánsson Búðardal Póllinn Isafirði
Elís Guðnason Eskifirði Rafmagnsverkstæði KR Hvolsvelli
Eyjaradíó Vestmannaeyjum Radíónaust Akureyrí
Fossraf Selfossi Rafborg Gríndavik
G uðni Hallgrimsson Grundarfirði Rafbær Siglufirði
Hljómsýn Akranesi Rafmætti Hafnarfirði
Kask - vöruhús Höfn Homafirði Rás Þoríákshöfn
Kaupf. Húnvetninga Biönduósi Skipavík Stykkishólmi
Kaupf. Borgfirðinga Borgamesi Skúli Þórsson Hafnarfirði
Kaupf. Héraðsbúa Egilsstöðum Tumbræður Seyðisfirði
Kaupf. Þingeyinga Húsavik Valberg Ólafsfirði
Kaupf. V- Húnvetninga Hvammstanga Viðarsbúð Fáskrúðsfirði
Kaupf. Skagfirðinga Sauðárkróki Samkaup - Njarðvik Reykjanesbæ
Kaupf. Vopnfirðinga Vopnafirði Blómsturvellir Hellissandi