Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1998, Side 8
8
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1998
Uppboð
munu byrja á skrifstofu embættisins að Skógarhlíö 6, Reykjavík,
sem hér segir á eftirfarandi eignum.
Leirvogstunga 5 (lóð úr landi Leirvogstungu II), Mosfellsbæ, þingl. eig. Bjami Eiríkur
Haraldsson og Þórdís Jónasdóttir, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóðurinn Lífiðn, mánudaginn
5. október 1998, kl. 10.00.
Meistaravellir 7, 6 herb. íbúð á 3. hæð austurenda, þingl. eig. Rannveig Bjömsdóttir og
Þórarinn F. Guðmundsson, gerðarbeiðendur Húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar og
Meistaravellir 7, húsfélag, mánudaginn 5. október 1998, kl. 10.00.
Unnarbraut 5, íbúð á 1. og 2. hæð í V-enda m.m., Seltjamamesi, þingl. eig. Seltjamar-
neskaupstaður, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna, mánudaginn 5. október
1998, kl. 10.00.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Arahólar 6,3ja herb. íbúð á 3. hæð D, þingl. eig. Guðmundur Fannar Kristjánsson, gerð-
arbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins, mánudaginn 5. október 1998, kl. 16.00.
Asparfell 8, 4ra herb. íbúð á 6. hæð, merkt B, þingl. eig. Sólrún Þorgeirsdóttir, gerðar-
beiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Tollstjóraskrifstofa, mánudaginn 5. október
1998, kl. 13.30._________________________________________________________________
Dalsel 38, 5 herb. íbúð á 2. hæð t.h., þingl. eig. Aldís Gunnarsdóttir og Hafsteinn Öm
Guðmundsson, gerðarbeiðendur Húsbréfadeild Húsnæðisstofhunar og Lífeyrissjóður
starfsmanna ríkisins, B-deild, mánudaginn 5. október 1998, kl. 14.00.
Landspilda úr Suður-Reykjum (II) 50% ehl., Mosfellsbæ, þingl. eig. þb. Sigurjóns
Ragnarssonar, gerðarbeiðandi Rúnar Mogensen, skiptastj. þb. Sigurj. Ragnarss., mánu-
daginn 5. október 1998, kl. 11.00.
Stíflusel 5, 3ja herb. íbúð á 2. hæð, merkt 2-2, þingl. eig. Þórey Jónsdóttir og Þorgrím-
ur Kristjánsson, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður verkamanna og Tollstjóraskrifstofa,
mánudaginn 5. október 1998, kl. 15.30.
Suðurhólar 22,3ja herb. íbúð á 1. hæð, merkt 0104, þingl. eig. Rósa Sigríður Sigurðar-
dóttir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Byggingarsióður verkamanna,
mánudaginn 5. október 1998, kl. 16.30.
Tungusel 7, 4ra herb. íbúð á 4. hæð, merkt 0401, þingl. eig. Bemhard Schmidt, gerðar-
beiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Lífeyrissjóður verslunarmanna, mánudaginn 5.
október 1998, kl. 15.00.
Þómfell 6, 3ja herb. íbúð á 4. hæð t.h. m.m., þingl. eig. Ema Amardóttir, gerðarbeið-
endur Lífeyrissjóðurinn Framsýn, Sameinaði lífeyrissjóðurinn og Tollstjóraskrifstofa,
mánudaginn 5. október 1998, kl. 14.30.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirtöldum
fasteignum verður háð á eign-
unum sjálfum sem hér segir:
Berjanes, 1/8 hl., Vestur-Landeyjalireppi,
mánudaginn 5. október 1998 kl. 15.00.
Þingl. eig. Elín Guðjónsdóttir. Gerðar-
beiðandi er Tollstjórinn í Reykjavík.
Eyvindarmúli, Fljótshlíðarhreppi, mánu-
daginn 5. október 1998, kl. 16.00. Þingl.
eig. Benóný Jónsson og Sigríður Viðars-
dóttir. Gerðarbeiðendur em Globus Véla-
ver hf., Byggingarsjóður ríkisins,
Greiðslumiðlun hf., Prentsmiðja Suður-
lands, Vélar og þjónusta hf. og Lánasjóð-
ur landbúnaðarins.
SÝSLUMAÐURINN í RANGÁR-
VALLASÝSLU
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Digranesvegur 20,0001, þingl. eig. Guð-
mundur R. Sighvatsson og Ragnheiður
Jónsdóttir, gerðarbeiðandi Byggingar-
sjóður ríkisins, mánudaginn 5. október
1998 kl. 13.30.
Tunguheiði 6, 2. hæð t.h., þingl. eig.
Hreinn Ámason, gerðarbeiðendur Bygg-
ingarsjóður ríkisins og húsbréfadeild
Húsnæðisstofnunar ríkisins, mánudaginn
5. október 1998 kl. 14.15.
Þinghólsbraut 24, efri hæð, þingl. eig.
Sigríður Gróa Guðmundsdóttir, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður ríkisins, mánu-
daginn 5. október 1998 kl. 15.00.
SÝSLUMAÐURINN í KÓPAVOGI
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum
sem hér segir:
Heimssýningunni í Lissabon lauk í gærkvöld meö glæsilegri flugeldasýn-
ingu. Hiö forna skip Dom Fernando II e Gloria tekur sig vel út í Ijósadýröinni.
Handsprengju-
árás í Hebron
Útlönd
Að minnsta kosti 11 Palestínu-
menn og 11 ísraelskir hermenn og
lögreglumenn særðust í gær í hand-
sprengjuárás og skothríö í Hebron á
Vesturbakkanum. ísraelski herinn
sagði átökin hafa byrjað þegar
Palestínumaður fleygði hand-
sprengjum á herbíl í eftirlitsferð í
ísraelska hluta borgEirinnar. Her-
menn skutu á og særðu árás-
armanninn sem flýði í palestinska
hluta Hebron. Útgöngubann ríkir
nú fyrir Palestínumenn sem búa á
yfirráðasvæði ísraela i borginni.
Palestínska lögreglan tekur þátt í
rannsókn árásarinnar. Vísar palest-
ínska lögreglan á bug frásögn nokk-
urra Palestínumanna að róttækir
ísraelskir landnemar beri ábyrgð á
handsprengjuárásinni.
Gert er ráð fyrir aukinni spennu
milli ísraela og Palestínumanna í
kjölfar átakanna.
Yfir 20 manns særöust (
sprengjuárás og skothríö í Hebron í
gær. Símamynd Reuter
NATO hraöar undirbúningi árása vegna Kosovo:
Milosevic fær enn
eina viövörunina
NATO-ríkin hröðuðu í gær undir-
búningi sínum fyrir hugsanlegar
loftárásir á Júgóslavíu vegna
Kosovo-deilunnar eftir að þau höfðu
varað Slobodan Milosevic
Júgóslavíuforseta við því að draga
mundi til tíðinda i málinu í næstu
viku.
Sendiherrar héldu stuttan fund í
Norður-Atlantshafsráöinu þegar
fréttir bárust af grimmdarverkum
serbneskra öryggissveita gegn
óbreyttum borgurum af albönskum
uppruna í Kosovo og pólitískur
þrýstingur um hernaðaríhlutun
jókst til muna.
„Þetta er til merkis um að hreyf-
ing er komin á málið en það þýðir
ekki að búið sé að taka ákvörðun
um að láta til skarar skríða,“ sagði
embættismaður NATO sem sat
fundinn.
Bretar hafa boðað til neyðarfund-
Albanir úr Kosovo flytja burtu lík
eins fórnarlambsins í fjöldamoröun-
um í Gornje Obrinje.
ar Öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna i dag til að kanna sannleiks-
gildi frétta af fjöldamorðum á
óbreyttum borgurum í Kosovo.
Robin Cook, utanrikisráðherra
Breta, sagði að Öryggisráðið mundi
hittast til að fordæma fjöldamorðin
og varaði óbeint við að hernaðarað-
gerðir NATO kynnu að fylgja fljót-
lega í kjölfarið. Rússar hafa lýst sig
andvíga öllum hemaðaraðgerðum.
Júgóslavneska fréttastofan
Tanjug sagði í gær að ekki væru til
neinar sannanir sem styddu frétt-
irnar frá því á þriðjudag um illa út-
leikin lík sem fundust nærri þorp-
inu Gomje Obrinje. Júgóslavar sök-
uðu vestræna fjölmiðla um lygar.
Júgóslavnesk stjómvöld halda
því eindregið fram að þau hafi hætt
öllum hernaðaraðgerðum gegn
skæruliðum aðskilnaðarsinna al-
banska meirihlutans í Kosovo.
NYT vill láta
ávíta Clinton
Bandaríska blaðið New York
Times, sem fyrir þremur vikum
fordæmdi Clinton forseta fýrir
samband hans við Monicu Lewin-
sky, hefur nú mildað afstööu sína
og mælir með því aö forsetinn
verði aðeins ávíttur þannig að
hann geti haldið starfi sínu. Borg-
ararnir vilji ekki draga málið
endalaust á langinn. Þetta kemur
fram í leiðara blaðsins í gær.
Stuttar fréttir i>v
Dauðsföll rannsökuð
Lögreglan í Lyon í Frakklandi
rannsakar nú hvort rekja megi
dauða tíu sjúklinga á sjúkrahúsi
þar í borg til rafmagnsbilunar sem
varð um liðna helgi, eða hvort
ástæðan er önnur.
Jospin í forsetaembætti
Mikill meirihluti franskra kjós-
enda telur að Lionel Jospin forsæt-
isráðherra muni
einhvem tima
setjast á forseta-
stól. Þetta kemur
fram í skoðana-
könnun sem
franskt vikurit
birti í gær. Vin-
sældir Jospins meðal þjóðarinnar
hafa engu að síður minnkað aðeins
frá síðustu könnun.
Indíánar á hvalveiðum
Einhvem tíma á næstu dögum
munu indíánar í norðvesturhluta
Bandaríkjanna hefja veiðar á þeim
hvölum sem þeim hefur verið
heimilað. Veiðarnar hafa legið
niöri í sjötíu ár.
Linsur í eftirlit
Danskur augnlæknir telur að all-
ir þeir sem nota snertilinsur eigi að
fara í eftirlit einu sinni á ári þar
sem áhætta fylgi notkuninni.
Bílasprengja í Ríga
Bilasprengja sprakk í Ríga í Lett-
landi i nótt. Fjöldi særðist í
árásinni. Kosningar fara fram í
Lettlandi á laugardaginn.
Flúði eftir 45 ár
S-kóreönskum hermanni, sem
talið var aö hefði fallið í Kóreu-
stríðinu 1950 til 1953, hefur tekist
að flýja frá N-Kóreu til heimalands
síns. Þúsundir stríðsfanga em enn
í N-Kóreu.
Andrés í fíkniefnapróf
Andrés prins slapp ekki er fikni-
efnalögregla breska sjóhersins
gerði skyndirann-
sókn i varnar-
málaráðuneyti
Bretlands 15. sept-
ember siðastlið-
inn. Andrés, sem
starfar í ráöuneyt-
inu, varð eins og
aðrir starfsmenn að afhenda
þvagprufu. Var prufan neikvæð.
Efnavopn í flugvél
ísraelska flutningavélin, sem
hrapaði strax eftir flugtak frá
Amsterdam 1992, var með efni um
borð til framleiðslu banvæns
taugagass.
Segja Majko leikbrúðu
Pandeli Majko, nýútnefndur for-
sætisráðherra Albaníu, kvaðst í gær
vonast til að geta myndað stjóm í
dag. Stjórnarandstæðingar segja
Majko leikbrúðu fyrirrennara síns.
Efnahagsáætlun
Búist er við að Jevgenij Prima-
kov, forsætisráðherra Rússlands,
kynni í dag drög að áætlun um að-
gerðir í efnahagsmálum. í henni er
lagt til að flestir bankar verði þjóð-
nýttir og að gengið verði fast.
Vopnadeila
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, hitti í gær n-írska leið-
toga til að reyna
að finna lausn á
deilunni um
vopnabirgðir
hryðjuverka-
manna sem
kastað hefur
skugga á friðar-
ferlið. Ágreiningurinn kom upp er
David Trimble, forsætisráðherra N-
írlands, sagði að írski lýöveldisher-
inn yröi að afhenda hluta vopna
sinna áöur en Gerry Adams, leið-
togi Sinn Fein, tæki sæti sitt á ný-
kjömu þingi.
Læknir styður Anwar
Læknir, sem rannsakaði
brottrekinn aðstoðarforsætisráð-
herra Malasíu, Anwar Ibrahim,
styður frásögn hans um að honum
hafi verið misþyrmt i fangelsi.