Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1998, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1998
13
Fréttir
Eskiíjörður:
Iðnaðarmenn
vantar
„Vegna skorts á iðnaðarmönn-
um hefur ekki verið hægt að sinna
fullri þjónustu í þeim ibúðum í fé-
lagslega kerfinu sem eru á okkar
vegum en til stendur að ráða til
verksins einn starfsmann til þess -
ef það þá tekst," segir Hjálmar
Jónsson, bæjartæknifræðingur á
Eskifirði, í samtali við DV.
„Við höfum verið í vandræðum í
allt sumar og því hafa öll verk sem
snúa að venjulegu viðhaldi og við-
gerðum tafist verulega. Eflaust eru
ýmsir sem búa i íbúðum bæjarins
orðnir óþolinmóðir eftir þessari
þjónustu sem á að vera fyrir hendi.
Þetta endar síðan með því að
maður lofar upp í ermina sína og
verður ekkert ofsalega vinsæll fyr-
ir vikið ef það gengur ekki upp,“
sagði Hjálmar.
Hjá Hraðfrystihúsi Eskifjaröar
fengust þær upplýsingar að ekki
skorti iðnaðarmenn hjá því. Fyr-
irtækið er með hátt í fjörutíu iðn-
aðarmenn í vinnu. Það rekur
véladeild, bifreiða- og rafmagns-
verkstæði. Hjá ýmsum öðrum fyr-
irtækjum á staðnum vantar
smiði, málara og blikksmiði og
reynt hefur verið að fá slíka til
vinnu víða að.
-ÞH
Dalvíkurbyggð
samþykkt
DV, Dalvik:
Bæjarstjóm sameinaðs sveit-
arfélags Árskógsstrandar, Dal-
vikur og Svarfaðardalshrepps
samþykkti samhljóða í gær, 29.
september, að sveitarfélagið
skuli fá nafnið Dalvíkurbyggð.
Áður hafði bæjarráð lagt fram
svohljóðandi tillögu:
„Með vísan til umsagnar ör-
nefnanefndar og þess langa
tíma sem nafnamálið hefur tek-
ið, leggur bæjarráð til að nýtt
nafn sveitarfélagsins veröi Dal-
víkurbyggð.“
Á vordögum var kosið um 7
tillögur að nafni en örnefna-
nefnd taldi 5 þeirra óhæfar.
Féllst hún einungis á nöfnin
Víkurbyggð og Vallabyggð en
benti jafnframt á að heitin
Svarfdælabyggð og Dalvíkur-
byggð væru mun meira sér-
kennandi fyrir hið nýja sveitar-
félag. -HIÁ
Þelr Ilska sem róa.. Þelr flska sem róa... Þelr Ilska sem róa... Þelr
www.visir.is
FYRSTUR MEO FRÉTTtRNAR
Jón Orn Berndsen, byggingafulltrúi
á Sauðárkróki. DV-mynd Örn
Sauðárkrókur:
Nýr bygginga-
fulltrúi
DV, Skagafirði:
Jón Öm Bemdsen verkfræðingur
hefur verið ráðinn byggingafulltrúi
á Sauðárkróki. Hann var valinn úr
hópi fimm umsækjenda. Jón hefur
undanfarin ár rekið ásamt öðrum
verkfræðistofuna Stoð hf. á Sauðár-
króki en hefur frá því ljóst varð að
hann tæki við nýrri stöðu verið að
draga sig úr þeim rekstri. Hann
gegndi þessu sama starfi árin
1984-88.
Jón sagði í samtali við DV að
hann hlakkaði til að takast á við
þetta verkefni, ekki síst með tilliti
til nýafstaðinnar sameiningar sveit-
arfélaga og breytinga sem fylgja
munu í kjölfarið. Jón sagði fyrirsjá-
anlegt að mörg og umfangsmikil
mál á sviði umhverfis- og skipulags-
mála muni verða til umfjöllunar á
næstu árum sem áhugavert verði að
takast á við. Jón lét þess enn frem-
ur getið að hann fengi ágætan sam-
starfsmann þar sem kollegi hans,
Ingvar Gýgjar Jónsson, sem þjónar
dreifbýli Skagafjarðar, væri einn af
reyndustu byggingafulltrúum lands-
ins og þeirra samstarf heði ávallt
verið með ágætum.
-ÖÞ
• ••
BETRI VORUR - BETRA VERÐ
Þú kaupir eina vínþrúgu *
og færb gerjunarkút frítt með!
dL
Startsett m/öllu
lHl \
II I r=E 2 K ^ cófthreinsierni
4 # U f
... ef þú lcaupir eina vínþrúgu
3090r 35803480,4900r &500r
Imó 5V0S á m
- aWo æjl-
PRfMHlWMKir
“Cr
PLUTO
lOtegundir 17 tegundir 7 tegundir
- evíít tct vctiyenclizn,!
Suburlandsbraut 22 ■ Reykjavík - sími 553 1080
Baldursgötu 14 ■ Keflavík ■ sími 421 1432
Sunnublíb 12 ■ Akureyri • sími 461 3707
SUZUKI
NÝR LÚXUSJEPPI
þangað sem honum er ætlað að fara.
Hann er byggður á traustum grunni
Suzuki Vitara, bara enn betur útbúinn,
/breiðari og glæsilegri.
Svo er hann á sérlega ánægjulegu verði:
Grand Vitara er alvöru jeppi. Sjálfstæð grindin
og hátt og lágt drif tryggja að hann kemst
frá 2.179.000 kr.
mM
SUZUKI SÖLUUMB0Ð: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufésgötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf„
Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. fsafjörður: Bilagarður ehf.,Grænagarði, sími 456 30 95.
Keflavik: BG bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrísmýri 5, sími 482 37 00. Hvammstanga: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17.
^SUZUkA
ATLOG
ÖHYGGl
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is
SUZUKI