Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1998, Page 19
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1998
19
Einyrkjar um fertugt og án lífeyrissjóðs
þurfa ekki að örvænta:
Geta átt 9
milljónir við
starfslok
sem margir hafa valið til að tryggja
sér lífeyri eftir að vinnu lýkur.
Sjóðir þessir hafa unnið reglugerð
tÚ að þeir uppfylli öll lagaákvæði.
Sjóðir eins og ALVÍB hjá VÍB, Líf-
eyrissjóðurinn Eining hjá Kaup-
þingi og íslenski lífeyrissjóðurinn
hjá Landsbréfum starfa sem full-
gildir lífeyrissjóðir og fullnægja
munandi.
Iðgjald mannsins er 20 þúsund
krónur í báðum tilvikum (10% af
launum). í báðum tOvikum getur
hann lagt meira til hliðar og notast
við íjölbreytt spamaðarform.
Segjum að maðurinn greiði í
hefðbundna lífeyrissjóðinn til 67
ára aldurs. Hann öðlast full réttindi
40 ára karlmaður með 200.000 mánaðarlaun
lögjald/mán. frá sept. ‘98 Greitt út 67-80 ára Greltt út eftlr 80 ára Andlát
Heföb. lífeyrlssjóöur 20.000 97.200*-130.000 97.200-130.000 Greiöslur hætta
Séreígnarsjóöur meö tryggingadeild 20.000 80.200** 46.479 Sjóður erfist
* miöast viö lágmarksávöxtun Lífeyrissj. verslunarmanna ** miöast viö 5% ávöxtun
Lög um skyldutryggingu lífeyris-
réttinda og starfsemi lífeyrissjóða
tóku gildi 1. júlí á þessu ári. í lögun-
um eru skýr ákvæði um að öllum
launamönnum og þeim sem stunda
sjálfstæðan atvinnurekstur sé skylt
að tryggja sér lífeyrisréttindi með
aðild að lífeyrissjóði frá 16 til 70 ára
aldurs.
í dag er staðan sú að sumir sjálf-
stæðir atvinnurekendur hafa ekki
greitt neitt að ráði í lífeyrissjóð og
eiga því ekki mikið til skiptanna
þegar starfsævinni lýkur, kannski
við 65 ára aldur. Með tilkomu lag-
anna er það ekki lengur spuming
um val að greiða í lífeyrissjóð. Það
er skylda. Ekki má gleyma að við 67
ára aldur getur viðkomandi átt eft-
ir að lifa í 20 ár og mikilvægt að
eiga fé i handraðanum til að fram-
fleyta sér og sínum og njóta lífsins.
Viðbótariðgjald
Lágmarksiðgjald til lífeyrissjóðs
skal vera 10% af iðgjaldastofni, þ.e.
heildarlaunum.
Framlag launþega er 4% en mót-
ffamlag atvinnurekanda 6%. En frá
og með næstu áramótum geta laun-
þegar hækkað hlut sinn í 6%, hafa
val um 2% viöbótarframlag í lífeyr-
issjóð. Viðbótarframlag atvinnurek-
anda verður hins vegar ekki háð
neinum takmörkunum og má semja
sérstaklega um það.
Sjálfstæðir atvinnurekendur,
þeir sem reka fyrirtæki í eigin
kennitölu, geta hins vegar eingöngu
greitt 6% mótframlag sem atvinnu-
rekendur. í dag greiða þeir samtals
10% en geta greitt 12% eftir áramót.
Séreignarsjóðir
Séreignalífeyrissjóðir eru leið
ákvæðum laga. Þeir sem þegar eru
í sjóðunum geta haldið áhyggjulaus-
ir áfram að greiða í þá. Nýir með-
limir geta byrjað að greiða í þá og
fullnægt þannig lagaskyldunni.
En hvemig er staðan fyrir sjálf-
stæðan atvinnreukanda, einyrkja,
um fertugt. Er hann búinn að missa
af lestinni eða getur hann bjargað
sér fyrir hom og safhað í sjóð sem
hann getur notið á efri árum. Hvað
þarf hann að borga á mánuði og
hvað fær hann eftir starfslok?
20 þús. á mánuði
Við báðum Gunnar Baldvinsson,
forstöðumann hjá ALVÍB, að búa til
tvö dæmi fyrir mann um fertugt
með 200 þúsund króna mánaðar-
laun. Hann getur valið mn tvær
leiðir: hefðbundinn lífeyrissjóð,
sem byggist alfarið á samtryggingu,
eða sérseignasjóð eins og ALVÍB
þar sem hluti iðgjaldsins rennur í
tryggingadeild og hluti í séreigna-
sjóð. Samsetningin getur verið mis-
og miðað við lágmarksávöxtan, sem
sjóðurinn setur sér, er hann að fá
97.200 krónur á mánuði til æviloka.
Verði ávöxtun lífeyrissjóðsins
meiri getur hann verið að fá allt
aðl30 þúsund krónur á mánuði.
Velji viðkomandi einstaklingur
að eiga viðskipti við séreignasjóð
eins og ALVÍB er miðað við 5%
ávöxtun í útreikningum. Hann hef-
ur safnað 9.245.000 í séreignasjóð
þegar hann hættir að vinna. Sú fjár-
hæð tryggir honum 80.200 króna
mánaðargreiðslur úr séreignar-
hluta frá 67 til 80 ára aldurs. Þá tek-
ur tryggingadeildin við og greiðir
46.479 krónur á mánuði.
Vera kann að hefðbundni lífeyr-
issjóðurinn geti greitt meira en sér-
eignasjóðurinn við bestu ávöxtun-
arskilyrði en hafa skal í huga að ef
viðkomandi deyr á lífeyrissjóður-
inn eignimar en séreignasjóðurinn
erfist.
-hlh
Þúsundir sem keyptu hlutabréf í Landsbankanum hafa stórgrætt:
Allt að 35 prósenta
ávöxtun yfir nótt
Þeir 12.300 aðilar sem
skráðu sig fyrir hluta-
bréfakaupum í Land-
bankanum í áskrift á
dögunum geta nú brosað
breitt yfir góðri fjárfest-
ingu. Yfir eina nótt jókst
andvirði fjárfestingar
þeirra um allt að 35,05%.
Verður það að teljast
afar góð ávöxtun.
Alls voru seld hluta-
bréf að nafhvirði 1 millj
arður króna i Lcmds-
bankanum. Starfsmenn
gáta keypt bréf fýrir 325
milljónir að naflivirði á
genginu 1,285. Almenn-
ingur gat síðan keypt
bréf fyrir 625 milljónir
króna að nafhvirði á
genginu 1,9. Fyrirfram
var hámarkshlutur
ákveðinn ein milljón að
nafhverði. En þar sem mun fleiri
vildu kaupa bréfin en búist var við
endaði hámarkshlutarinn í 58.542
krónum aö nafhvirði. Fyrir þann
skammt þarf að greiða 111.230 krón-
ur (58.542x1,9).
Þessum kafla hlutabréfasölunnar,
áskriftartímabilinu, lauk á mið-
vikudag í síðusta viku. Þá voru eft-
ir 50 miljónir króna að nafhvirði
sem boðnar voru út. Bankinn
áskildi sér rétt til að hafha ölum til-
boðum undir genginu 1,9. Tilboð
voru opnuð á þriðjudag. Hæsta til-
boðið í þessar 50 millj-
ónir huta hljóðaði upp á
gengið 2,566. Ef litið er á
meðalgengi tilboða yfir
genginu 1,9 er útkoman
2,23.
Þegar hlutabréf voru
seld starfsfólki og al-
menningi í áskrift var
gengi bréfanna ákveðið
fyrirfram. Markaðurinn
hafði ekki komið til
skjalanna og raunveru-
legt gengi bréfanna því
ekki ljóst. En þegar til-
boðin voru opnuð kom í
ljós hvað fjárfestar voru
tilbúnir að borga fyrir
bréfin, gengi þeira varð
raunverulegra.
Starfsfólk getur brosað
breitt yfír hlutabréfa-
kaupum sínum en verð-
mati bréfa þeirra tvö-
faldaðist sé miðað við hæsta tilboð
á þriðjudag. Ávöxtun þeirra nam
rúmum 99%. Ávöxtun þeirra sem
keyptu bréf á genginu 1,9 var
35,05% sé miðað við hæsta gengi en
17,4% sé miðað við meðalgengi til-
boða.
A næstu dögum verða sendir
greiðsluseðlar til kaupenda hluta-
bréfanna og verður að greiða þá fyr-
ir 14. október. Þá verður hluthafa-
skráin tiL Má reikna með að bréfin
verði síðan skráð á Verðbréfaþingi
íslands mánaðamótin október-nóv-
ember.
Langtímafjárfesting
„Að fagfjárfestar eru reiðubúnir
að kaupa 100 milljóna króna hluta-
bréf að nafhvirði í Landsbankanum
á genginu 2,566 segir okkur að
menn hafa talsverða trú á bréfun-
um. Sömu skilaboð má fá út úr til-
boði lífeyrissjóða sem buðu t.d.
gengið 2,450. Svo segir fjöldi þátt-
takenda i áskriftartilboðinu í raun
allt sem segja þarf,“ segir Sigur-
steinn Gunnarsson, verðbréfamiðl-
ari hjá Landsbréfum, við DV.
Verðbréfamiðlarar sem DV hefur
rætt við segja að með kaupum á
Landsbankabréfum sé fólk í flestum
tilfellum að fjárfesta til lengri tíma
og sjái þessi bréf sem mjög hag-
kvæma fjárfestingu. Þó séu mark-
mið fólks mismunandi, allt frá lang-
tímafjárfestingu og lífeyrisspamaði
til skammtímagróða. Þegar efna-
hagsreikningur Landsbankans er
skoðaður og menn sjá síðan árang-
ur hagræðingar og markaðsaðlög-
unar sem farið verður í næstu
misseri megi búast við að gengi
bréfanna hækki verulega. Á það er
þó minnt að ávöxtun i fortíð er ekki
örugg ávísun á ávöxtan í framtíð."
-hlh
Heit-
ustu
hluta-
bréfin
DV hafði sam-
band viö verð-
bréfamiðlara hjá
þremur veröbréfafyrir-
tækjum og bað þá um að
gefa ráð um kaup á ís-
lenskum hlutabréfum.
Lögð var áhersla á að
fólk dreifi hlutabréfa-
kaupum milli starfsgreina og
dreifl þannig áhættunni.
Bankarnir
Bankamir komu fyrst upp í
samtölunum. Þeir væru heitir og
ef vel gengi í þjóðfélaginu gengi
vel hjá þeim. Tveir mælta með
bréfum í Landsbanka og íslands-
banka meðan einn vildi einungis
mæla með íslandsbanka. Þar á
bæ væm menn að gera góða hluti
en langt væri í land hjá Lands-
bankanum. Hætta væri á að efha-
hagslífið yrði í niðursveiflu þegar
kæmi að því að njóta ávaxta hag-
ræðingar innan bankans.
NÝHERJI
Tækni spennandi
Tölvufyrirtækin hafa hækkað
mest allra fýrirtækja frá áramót-
um og þetta talinn spenanndi
markaður. Bréf í Nýhjerja fengu
meðmæli hjá öllum þremur og
einnig var mælt með bréfum í
Opnum kerfum. Tæknival var
sagt eiga góða möguleika, hagn-
aður gæti þýtt verulega gengis-
hækkun. 2000-vandamálið er sagt
tryggja tölvufyrirtækjum mikil
verkefni næstu misseri.
Eimskip
Eimskipafélagið gekk eins og
rauður þráður í öllum samtölum,
klassíker á markaðnum. Hluta-
bréf í felaginu fengu einfaldlega
dóminn; traust og örugg.
Ahætta í slorinu
Allir miðlaramir vildu fara
varlega gagnvart sjávarútvegsfyr-
irtækjunum en gengi þeira hefði
lækkað og greinin áhættusöm
fýrir fjárfesta. Þá var nefnt að
hagnaður í hálfsársuppgjöri væri
að stórum hluta vegna gengis-
hagnaðar. Hann væri að nokkru
genginn til baka. Einn miðlari
fullyrti reyndar að hlutabréf í SÍF
væru besta kaupin á markaðnum
en annars var Samherji helst
nefndur og Haraldur Böðvarsson.
Ekki hámarks-
skattaafsláttur
Þeir sem kaupa hlutabréf i
Landsbankanum njóta skattaaf-
sláttar að því tilskildu að þeir
eigi bréfin í að minnsta kosti 3 ár.
Til að njóta hámarksafsláttar
þurfa hlutabréfakaup einstak-
lings að nema 129.900 krónum. Þá
nemur endurgreiðslan í ágúst
1999 20.275 krónum. Afslátturinn
sem kaup á Landsbankabréfum
gefur nær ekki hámarki en sölu-
verð hámarksskammts er 111.230
krónur. Endurgreiðsla í ágúst
mun því verða 17.351 króna.