Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1998, Qupperneq 6
6
MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 1998
Fréttir
Fjöldi manns hlýddi á umræður um miðlægan gagnagrunn i hátíðasal Háskólans um helgina. Hér má m.a. sjá Kára Stefánsson og Sigrúnu Jóhannesdótt-
ur, framkvæmdastjóra Tölvunefndar, en hún er lengst til hægri á myndinni. DV-myndir Pjetur
^ Afleiöingar einkaleyfis á gagnagrunni:
Islenskt vísindasam-
félag gæti stórskaðast
- segir Einar Árnason prófessor
Á málþingi sem rektor Háskóla
íslands hélt um helgina um miðlæg-
an gagnagrunn á heilbrigðissviði
sagði Einar Ámason, prófessor í
þróunar- og stofnerfðafræði, að
einkaleyfi af því tagi sem ætlunin er
Bílainnbrot
aukast
Lögreglan i höfuðborginni
beinir þeim tilmælum til fólks að
það gæti þess að læsa bílum sín-
um og taki svokallaða
„stýrifronta" úr útvarps- og
geislaspilaratækjum sínum með
sér úr bílum sínum ef þess er
kostur. Aðalvarðstjóri lögregl-
unnar sagði í samtali við DV í
gærkvöld að bílainnbrotum hafi
fjölgað að undanfomu.
„Fólk verður að passa að læsa
bílum sínum,“ sagði aðalvarð-
stjóri lögreglunnar. Hann sagði
jafnframt að bílþjófar brjóti
gjarnan hliðarrúður ef bílarnir
eru læstir en svokallaöir frontar
era enn í tækjunum. Þannig
valda þeir tjóni bæði tjóni á rúð-
um og síðan gjarnan á mæla-
borði. Séu stýrifrontarnir teknir
úr geta þjófarnir ekki komið
tækjunum í verö og því hverf-
andi líkur á að þeir brjótist inn í
bílana nema um önnur verðmæti
Afskipti af þrjá-
tíu „undir 16“
Samtals um sex þúsund manns
voru i miðborg Reykjavíkur á
fóstudags- og laugardagskvöld og
mikill erill hjá lögreglunni.
Veraleg ölvun var í borginni og
töluvert um líkamsmeiðingar. Þó
var engin þeirra talin alvarleg að
sögn lögreglu.
Á föstudagskvöld og aðfaranótt
laugardagsins haföi lögreglan af-
skipti af um 30 ungmennum und-
ir 16 ára aldri. Foreldrar og for-
ráðamenn voru látnir sækja ung-
mennin. „Foreldrar verða að vera
meira vakandi yfir þessu,“ sagði
talsmaður lögreglunnar. -Ótt
Ekið á konu
Ekið var á roskna konu á mót-
um Freyjugötu og Mímisvegar í
gær. Konan hlaut höfuðáverka og
önnur meiðsl.
Um helgina slösuðust tveir aðrir
vegfarendur í Reykjavík. Annar
þeirra var kona sem ók bíl og lenti
í árekstri við annan bíl á mótum
Miklubrautar og Grensásvegar.
Konan hlaut úlnliðsbrot og meiðsl
á mjaðmargrind.
Um helgina var einnig ekið á
reiðhjólamann á Smáragötu. Hann
hlaut minni háttar meiðsl. -Ótt
að veita íslenskri erfðagreiningu
samkvæmt gagnagrunnsfrumvarpi
heilbrigðisráðherra stefni í voða
samskiptum milli íslenskra og er-
lendra vísindamanna á þessu sviði.
„Menn eru að velta því fyrir sér að
sniðganga samstarf við íslendinga
verði frumvarpið að lögum,“ sagði
Einar í samtali við DV í gærkvöld.
Málþingið hófst á laugardags-
morguninn og því lauk síðdegis í
gær. í því tóku þátt bæði íslenskir
og erlendir fræðimenn og stjóm-
málamenn. Meðal frummælenda
vora Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra, Kári Stefánsson,
forstjóri ísl. erfðagreiningar, Lady
Mary Warnock, heimspekilegur sið-
fræðingur og ráðgjafi bresku ríkis-
stjómarinnar á sviði gagnasöfnunar
og persónuverndar, og Peter J.
Hustinx, forseti gagnavemdunar-
stofnunar Hollands. Hustinx taldi
að veiting einkaleyfis á slíkum
Einar Árnason, prófessor í þróunar-
og stofnerfðafræði.
gagnagranni samræmdist ekki regl-
um Evrópusambandsins og væri
jafnvel mannréttindabrot.
Lögbinding framvarpsins gæti
haft það í för með sér að flutningur
á gögnum frá íslandi til annarra
landa yrðu ekki heimilaður og ís-
land myndi á þann hátt einangrast
frá alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Einar telur að verði þetta raunin sé
stórhætta á að íslenskt vísindasam-
félag bíði skaða af. „Þeir erlendu að-
ilar sem ég hef rætt við segjast hafa
hingað til litið til íslands sem fyrir-
myndar annarra ríkja hvað varðar
lýðréttindi og hversu manneskju-
legt okkar samfélag er. En ef svona
gerist þá gæti þetta land orðið fyrir-
mynd fyrir aðra og verri hluti, fyr-
irmynd í þvi hvemig á að mismuna
fólki. Þeir hafa áhyggjur af því að
verið sé að nota vísindi í annarleg-
um tilgangi og óttast áhrif þess á
eigin þjóðfélög.“ -SÁ
Prófkjör Sjálfstæðisflokks á Reykjanesi:
Þrjár nýjar konur
komnar í slaginn
Framboðsfrestur í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi rann
út kl. 18 í gærkvöld. Þá lá
það fyrir að þeir sem sækj-
ast eftir sæti á lista flokks-
ins í kjördæminu fyrir al-
þingiskosningarnar í vor
verða núverandi þingmenn
flokksins að Ólafi G. Ein-
arssyni frátöldum, þau
Árni M. Mathiesen, Árni R.
Árnason, Kristján Pálsson
og Sigríður Anna Þórðar-
dóttir. Auk þeirra bjóða sig
fram Gunnar Birgisson,
forseti bæjarstjómar Kópa-
vogs, Helga Guðrún Jónas-
dóttir, Hólmfríður Skarp-
héðinsdóttir, Sandgerði,
Jón Gunnarsson, forystu-
maður í Landsbjörg og
Sjávarnytjum, Markús
Möller hagfræðingur, Stef-
án Þ. Tómasson, Hafnar-
firði, og Þorgerður Katrin
Gunnarsdóttir, dagskrár-
stjóri á rás 2.
Fimm vikur eru þar til
prófkjörið verður haldið og
má búast við harðri bar-
áttu um efstu sætin. At-
hygli vekur að þrjár konur
hafa gefið kost á sér undir
lok framboðsfrests: Hólm-
Jón Gunnarsson. Markús Möller.
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir.
Sigríður Anna Helga Guðrún
Þórðardóttir. Jónasdóttir.
Árni M.
Mathiesen.
Kristján Pálsson. Gunnar Árni R. Árnason.
Birgisson.
fríður Skarphéðinsdóttir er
ættuð úr Keflavík en er bú-
sett í Sandgerði. Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir er
dagskrárstjóri á rás 2. Loks
vekur framboð Helgu Guð-
rúnar Jónasdóttur nokkra
athygli, en hún er fyrrver-
andi forstöðumaður Upplýs-
ingaþjónustu bænda.
Sjálfstæðismenn sem rætt
var við í gærkvöld töldu al-
mennt að þessi óvænti liðs-
auki kvenna í prófkjörið
myndi ekki veikja stöðu Sig-
ríðar Önnu Þórðardóttur
sem væri sterk fyrir. Á þess-
ari stundu væri líklegt að
hún hreppti annað til fjórða
sætið. Nýju konurnar þrjár
gætu hins vegar raskað
stöðu karlframbjóðendanna
að Árna M. Mathiesen þó
undanskildum. Fátt benti til
annars en þess að hann yrði
kjörinn í fyrsta sætið. Sjálf-
ur sagði Árni í samtali við
DV í gærkvöld að hann teldi
ekkert gefið í þeim efnum og
fráleitt að gefa sér niður-
stöðuna fyrirfrEim. Hún yrði
ekki ljós fyrr en búið yrði að
telja upp úr kjörkössunum
eftir fimm vikur.
-SÁ
sandkorn
Rússnesk lýsing
Svo sem greint var frá í Sand-
korni hafa stjórnarherramir
Davíð Oddssonog Halldór Ás-
grímsson tekið upp þann hátt að
boða til blaðamannafunda til að
ítreka góðærið. Til
nýjunga á þessum
fundum í Ráð-
herrabústaðnum
telst að þeir félag-
ar eru sminkaðir
og hafa látið
bregða upp lýs-
ingu til að létta
sjónvarpsstöðv-
unum lífið.
Vandinn er bara sá að lýs-
ingin gengur illa upp og nýtist
ekki. Reyndar sagði einn sjón-
varpsmanna að í stað þess að fá
fram glæsta umgjörö svo sem ætl-
að er væri heildarmyndin eins og
i rússnesku yfirheyrsluher-
bergi...
Oþægð í jeninu
Stjómendur Sparisjóösins í
Bolungarvík eru sagði vera á
glóðum vegna lána
sem þeir tóku í
japönskum jenum
og lánuðu áfram til
trillukarla á gífur-
lega „hagstæðum
kjöram“ miöað
við það sem við-
gengst í banka-
kerfinu. Þá var
gengi jensins
mjög lágt og vextimir sömuleiðis,
eða núll komma eitthvað smáveg-
is. Nú veður gengið á jeninu upp
á við og Sólberg Jónsson spari-
sjóðsstjóri er sagður naga negl-
umar ...
Hringja í alla
í hörðu prófkjöri sjálfstæðis-
manna í Reykjaneskjördæmi rík-
ir mest óvissa um
stöðu Gunnars
Birgissonar odd-
vita flokksins I
Kópavogi. Stuðn-
ingsmenn hans
hugsa sér gott til
glóðar með að
virkja Kópavog
allan í prófkjör-
inu og ætla að
hringja í hvem einasta Kópa-
vogsbúa. Þannig gera þeir sér
vonir um að ná allt að 4000 íbú-
um bæjarins í prófkjörið til aö
styðja Gunnar. Það myndi fleyta
honum langt að fyrsta sætinu.
Þeir benda á árangur Rannveig-
ar Guðmundsdóttur, þing-
manns krata, sem náði efsta sæt-
inu í hörðu prófkjöri Alþýðu-
flokksins fyrir síðustu kosningar
með þvi að hringja út Kópavog
allan og ná þar 3700 manns í próf-
kjörið ...
Bæjarstjóragen
Það þarf vart miðlægan gagna-
grunn til að finna það gen sem
ræður því hvort
menn verða bæjar-
stjórar eður ei.
Bæjarstjórarnir
Jón Gunnar
Stefánsson í
Vesturbyggð,
áöur í Grinda-
vík, og Jónas
Ólafsson, sveit-
arstjóri og bæjarstjóri í
fjarðarbæ, hafa báðir skilað af
sér bæjarstjórum. Þannig er nú
Stefán Jónsson Stefánssonar
sveitarstjóri í Dalabyggð. í ná-
grannasveitarfélaginu Snæfells-
bæ heldur síðan Kristinn Jónas-
son Ólafssonar um bæjarstjóra-
embættið. Þetta þykir sjálfskip-
uðum erfðafræðingum vísbend-
ing um að genið sé til staðar ...
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkorn @ff. is