Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1998, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1998, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 1998 Utlönd Stuttar fréttir dv Borís Jeltsín kvefaöist í Úsbekistansferö Borís Jeltsín Rússlandsforseti var bæöi fölur og fár í opinberri heimsókn sinni til Úsbekistans í gær. Talsmaður Jeltsíns sagöi skýringuna vera kvef og hósta sem plög- uðu forsetann. Og ástæðan fyr- ir heilsuleysinu var meðal ann- ars óvenjulegur kuldi í Tasjkent, höfuðborg Úsbekistans, miðað við árstíma. Svo illa haldinn var Jeltsín við komuna til Úsbekinstans i gær að gestgjafi hans, íslam Karímov for- seti, varð að binda snarlega enda á móttökuathöfnina. Þetta var fyrsta utanlandsferð Rússlands- forseta í hálft ár. Jeltsín hefur verið fremur heilsuveill undan- farin ár. Jeltsín og fylgdæTið hans ætla að ræða alþjóöleg öryggismál og vanda þessa heimshluta við ús- bekíska ráðamenn. Á sama tíma gengur ríkisstjórn forsetans erfiölega að komast að niðurstöðu um ráðstafanir til bjargar efnahagslífinu, að sögn fjármálaráðherrans. Táningar sekir um fólskumorö Franskur dómstóll hefur dæmt unglingspar til langrar fangelsis- vistar fyrir fólskulegt morð á bekkjarfélaga sínum fyrir tveimur árum. Skötuhjúin, Véronique og Sébastien, sögðu fyrir rétti að kvikmynd Olivers Stones, Fæddir morðingjar, hefði heillað þau. í þeirri mynd tekur kærustupar upp á því að myrða mann og annan. Þetta er annað morðréttarhald- ið á stuttum tíma í Frakklandi þar sem mynd þessi er nefnd til sögunnar. Við réttarhöldin kom fram að fórnarlambið, 16 ára unglingur, var stunginn 39 sinnum með egg- vopni á meðan það haföi kynmök við Véronique. Skötuhjúin gáfu enga trúverðuga skýringu á at- hæfi sínu. Hillary var að heiman á brúð- kaupsafmælinu Hillary Clinton, forsetafrú í Bandaríkjunum, var að heiman á 23 ára brúðkaupsafmæli sínu í gær. Hillary var í Búlgaríu þar sem hún nefndi bónda sinn að- eins einu sinni á nafn í 20 mín- útna langri ræðu. Aðstoðarmenn Hillary segja að ferðin tengist á engan hátt angist vegna írafárs- ins út af kynlífshneykslinu í Hvíta húsinu. Reynt að tala um fyrir Milosevic alla helgina: Ákvörðun um loftárásir í dag Richard Holbrooke, erindreki Bandaríkjastjórnar á Balkanskaga, og Slobodan Milosevic Júgóslavíu- forseti ráðgerðu að halda fundum sínum áfram í gærkvöld og freista þess að leysa Kosovodeiluna svo koma mætti í veg fyrir loftárásir Atlantshafsbandalagsins (NATO). Holbrooke og Milosevic ræddust við í sjö klukkustundir áður en þeir gerðu hlé á fundum sínum um kvöldmatarleytið í gær. Ekki var vitað hvort Holbrooke hafði eitthvað miðað í friðarvið- leitni sinni. Hann sagði þó fyrr um daginn að hann væri reiðubúinn að tala eins lengi og nauðsyn krefði til að komast að friðsamlegri lausn. Aðildarríki NATO eru svo gott sem tilbúin til loftárása á stöðvar Serba í Kosovo láti þeir ekki af hemaðaraðgerðum sínum gegn að- skilnaðarsinnum albanska meiri- hlutans í héraðinu og hefji friðar- viðræður þegar í stað. í dag er fyr- irhugaður fundur sendiherra NATO þar sem gefa á endanlegt leyfi til loftárásanna. Sex bandarískar sprengjuflugvél- ar af gerðinni B-52 komu til her- stöðvar á Englandi í gær, þess al- búnar að taka þátt í hernaðarað- gerðunum gegn Serbum. Robin Cook, utanríkisráðherra Bretlands, sagði í gær að breska stjómin mundi halda neyðarfund í dag vegna ástandsins í Kosovo. Helmut Kohl, fráfarandi Þýska- landskanslari, og Gerhard Schröder, væntanlegur eftirmaður hans, hitt- ast einnig í dag til að ræða sam- þykki Þjóðverja fyrir loftárásunum. Igor ívanov, utanríkisráðherra Rússlands, gerði lítið úr því í gær að loftárásir á Serba kynnu að valda nýju köldu stríði, eins og landvarna- ráðherra landsins gaf til kynna fyr- ir viku. Hann sagði hins vegar að slíkar árásir kynnu að valda glund- roða á alþjóðavettvangi. Rússar eru andvígir loftárásum á Serba vegna Kosovodeilunnar. Gífurlegir skógareldar loguðu í einu hverfa borgarinnar Haífa í norðurhluta ísraels í gær. Þúsundir borgarbúa þurftu að yfirgefa heimili sín vegna eldshafsins. Að minnsta kosti tuttugu heimili urðu eldinum að bráð. Á þessari mynd má glögglega sjá við hvaða ofurefli slökkviliðsmenn áttu að etja. Líkin til krufningar Um 250 lík fórnarlamba Bosníu- stríðsins, sem fundust í stærstu fiöldagröfinni úr átökunum, hafa verið flutt til krufningar. Gyðingar reiðir páfa Jóhannes Páll páfi reitti leið- toga gyðinga mjög til reiði á sunnudag þegar hann tók nunn- una Edith Stein, sem var drepin í gasklef- unum í Auschwitz, í dýrlingatölu. Edith er fyrsti kaþólikkinn sem sneri bakinu við gyðingdóminum sem hefur verið tekinn í dýrlingatölu frá timum postulanna. Ekkert að óttast William Cohen, landvamaráð- herra Bandarikjanna, sagði í gær að arabar þyrftu ekki að óttast harðlínumanninn Sharon sem var skipaður utanríkisráðherra ísraels, slíkir menn hefðu einmitt stundum gert samninga við and- stæðingana. Dauðadómur í hæstarétt Mál þýsks kaupsýslumanns sem var dæmdur til dauða f íran fyrir kynmök við þarlenda konu hefur verið sent til hæstaréttar landsins. Nokkurra línu virði Franski hægriöfgamaðurinn Jean-Marie Le Pen sagði þýska vikuritinu Spiegel að gasklefar nasista í heimsstyrjöldinni síðari væru ekki meira en nokkurra línu virði í þúsund siðna sögubók um stríðið. Þýskar skattalækkanir Jafnaðarmenn og græningjar sem standa í stjómarmyndunar- viðræðum í Þýskalandi tilkynntu í gær að þeir mundu lækka skatta um hundruð milljarða króna á næstu fjórum árum. Hvattur til að semja Orrinb Hatch, formaður dóms- málanefndar öldungadeildar Bandaríkja- þings, hvatti Bill Clinton Banda- ríkjaforseta í gær til að semja um lok málaferla Paulu Jones fyr- ir kynferðislega áreitni svo hraöa megi rannsókn þingsins á þvi hvort rétta eigi yfir forsetan- um fyrir embættisafglöp. Karpað í Róm ítalskir stjórnmálamenn karpa nú um hver eigi að leiða næstu stjórn Ítalíu. Hugsanlega verður mynduð stjórn til að koma fjár- lagafrumvarpinu fyrir næsta ár gegnum þingið eftir að fráfarandi stjóm missti meirihluta sinn. ' yU j , VCM51GM 31.900,-) VCMH71SM möjp) SHARR VCM300SM Tveggja hausa - Árs mlnnl 8 liða - Scart tengi Allar aögerðir á skjá Islenskur leiðarvísir SHARR VCM51SM • Fjögura hausa - Árs minni Myndvaki • 8 liða - áxscart tengi - SP/LP Allar aðgerðir á skjá • Sjálfvirkur hreinsi- búnaður íslenskur leiðarvísir SHARR VCMH71SM • Fjögura hausa • Árs minni • Myndvaki 8 liða • áxscart tengi • Nlcam Sterfó - SP/LP • Ntsc afspilun Allar aðgerðir á skjá Sjálfvirkur hreinsi- búnaður • íslenskur leiðarvísir Umbcðsmenn um land allt Umboðsmenn: Vosturland: Málningarþjónustan Akranesi. Kf.Borgfirðinga, Borgarnesi. Vestfirðir: Geirseyrarbúðin, Patreksfirði. Rafver, Bolungarvík. Straumur, ísafirði. Norðurland: Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi.Verslunin Hegri, Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri. KEA, Lónsbakka. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Lónið Þórshöfn. Austurland: Kaupfólag Vopnfirðinga.Vopnafiröi. Kf. Hóraösbúa, Egilsstööum. Verslunin Vík, Neskaupstað. Kaupfélag Fáskrúðsfiröinga, Fáskrúösfirði. Vólsmiðja Hornafjarðar, Höfn Hornafiröi. Suðurland: Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Geisli.Vestmannaeyjum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.