Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1998, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1998, Qupperneq 17
MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 1998 17 Fréttir Orðrómur um Rússa á smánarlaunum hér: Útilokað í einhverjum mæli - segir framkvæmdastjóri Útlendingaeftirlitsins Sementssalan eykst stöðugt DV, Akranesi: Sala Sementsverksmiðjunnar hf. á Akranesi á sementi hefur aukist um 19,2% fyrstu níu mán- uði þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra, að sögn Tómasar Runólfssonar deildarstjóra. Fyrstu níu mánuði þessa árs voru seld 90.828 tonn en fyrstu níu mánuði síðasta árs voru seld 76.219 tonn og því er um að ræða 19,2% aukningu á sementssölu. Allt síðasta ár seldust 108.468 tonn og bjóst Tómas við því að salan á þessu ári færi sjálfsagt eitthvað yfir það. -DVÓ „Það gæti hugsast að til séu eitt eða tvö tilfelli án þess að vitað sé af því. En það er útilokað að þetta sé eitthvað meira,“ sagði Jóhann Jó- hannsson, framkvæmdastjóri Út- lendingaeftirlitsins, þegar DV bar undir hann orðróm þess efnis að talsvert væri um að rússneskir ein- staklingar væru við störf á sveita- bæjum hér á landi á litlu sem engu kaupi. Jóhann sagði að fáir Rússar hefðu dvalarleyfi hér. Þeir þyrftu að sækja um áritanir inn í landið, þannig að Utlendingaeftirlitið teldi sig hafa sæmilega mynd af þeim sem væru hér. Lögreglan hefði það hlutverk að fylgjast með því hvort fólk væri hér á röngum forsendum, auk þess sem verkalýðsfélögin væru hjálpleg ef þau yrðu vör við eitthvað slíkt. „Útlendingur sem ætlar að vinna hér og taka á móti launum þarf kennitölu til að komast inn á þjóð- skrá. Menn eru ekki teknir inn á þjóðskrá nema þeir séu búnir að fá dvalarleyfi. Fólk fær dvalarleyfi á ákveðnum forsendum og þær þurfa að vera vel haldbærar. Það er ákaf- lega erfitt að komast áfram i ís- lensku samfélagi án kennitölu, þannig að það fær tæpast staðist að svona nokkuð sé í gangi,“ sagði Jó- hann. Hann bætti við að ef fólki vissi, þrátt fyrir allt, um eitthvert tilvik um að útlendingar væru að vinna hér á lúsarlaunum vildi Útlendinga- eftirlitið gjarnan fá að vita af því. „Ég held, að allir séu sammála um að vilja að koma í veg fyrir að hlut- ir af þessu tagi þróist hér.“ -JSS Skagafjörður: Dágóð veiði á inn- fjarðarrækju Veiðar á innfjarðarrækju á Skagafirði byrjuðu 2. október og fóru vel af stað. Alls var landað um 35 tonnum af fjórum bátum um helgina sem þykir dágóð veiði. Bát- amir vom með um 5 tonn í róðri en vel viðraði til veiða um helgina. Nýbúið er að gefa út veiðileyfi á bátana fjóra en þeir eru Sandvík, Jökull og Þórir frá Sauðárlyóki og Berghildur frá Hofsósi. Hver bátur fær 200 tonna kvóta yfir tímabilið og verður sú úthlutun endurskoðuð um áramót. í fyrra var einnig veittur 200 tonna kvóti í upp- hafi en síðan bætt við 100 tonnum á bát um áramótin. Dröfnin er nú að rannsaka rækju- miðin á Húnaflóa. Heimamenn ótt- ast að mikil þorskgengd á Flóanum hafi skert rækjustofninn. -ÞÁ Golfáhugamenn geta enn notið þess að spila þessa vinsælu íþrótt á Höfn í Hornafirði þrátt fyrir að það sé kominn október. Hér sést kylfingur undirbúa pútt á golfvellinum í bænum á dögunum. DV-mynd EJE Meiríháttar Pelskápur h\A5\ö Mörkinni 6, sími 588 5518 Ofn+helluborð Verð áður kr. 96.800.- Báðar vélarnar Verð áður kr. Alvöru bökunarofn. Hægtað baka á 4 hæðum samtímis. Sér kæling á hurð, stafræn klukkao.fi. Ofnsem ánægjulegt er að vinna með í eldhúsinu. Litir: Svart, hvítt, spegill NYTT SSPS**0*^ LG Brauðvél, tilbúið brauð W. vegur ca. 700 gr. Tímastillir, hægt að stilla ' ,J|g vélina allt að 13 tímum fyrir bakstur. 3 stillingar Ijóst meðal, eða dökkt Mál: (b,h,d.)35x33x25,5 cm. 7,2kg. Gas-helluborð m/fjórum hellum þaraf einni fyrir Wok pönnu. Mjögöflugur brennarí tryggir skjóta suðu. Fullkomið gasflæðiöryggi tryggir hámarks öryggi. Litir. Svart, hvítt, stál Þessi frábæru ítölsku eldhústæki sem fengið hafa fádæma góðar viðtökur hér á landi bjóðast þér nú á einstöku tilboðsverði í nokkra daga. MS-283MC örbylgjuofn, 28 lítra, Multiwave 900W, öflugur og vandaður Ummál: (h,b,d) 53 x 32,2 x 39,2 /16,3 kg. LG 6 hausa stereo videotæki. Topptækið frá LG, NICAM HiFi stereo. Gefur fullkomna upptöku og afspilun. Long play, fjarstýringu, 80 stöðva minni, barnalæsing og fl. Wð erum í n*sta á íslandi Stærsta helmilis-og raftækjaverslunarkeöja I Evrópu Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776 VERIÐ VELKOMIN I VERSLUN OKKAR Verð nú kr. 77.800. Þú sparar kr. frfpl Verð nú kr. 9.490.- Þú sparar kr. ■■5.41 1 I V

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.