Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Blaðsíða 4
CG ER A© HftlM&JA FRÁ GALUUP... I>Ú HEFUR LCNT í URTAKI FYRIR SkoÐanakönnun... aVTF EG MYNOI NÓ EKKI SG6JA Af> Éö VALRI M3Ö6 DAcMlGEROUR... AF FCIM VÖRUM gEM “í BO©l CRU Á snyrtivörumarkaonum, MVA0A HÁRNALRlNGU NOTAft kÚ? ÞETTA ERU 8ARA NOKKRAft SFURN- jngar, sú FrasrA* JKt EtNSOQ éö S6ÖI, >K Cft fcG KANNSKI EKKI fteTTI HABUftlNN I kvöld kl. 20.30 hefjast tðnleikar Kvintett Corretto ! Norræna húsinu. Kvintettinn málmblásturskvin- tett sem stofnaö- ur var 1994 og hefur haldiö sjálf- stæða tónleika og komið fram við ýmis tækifæri. Blásararnir eru allir kunnir hljóðfæraleikarar; Elnar Jónsson og Elríkur Örn Pálsson. trompetar, Emll Friöflnnsson, horn, Slgurður Þorbergsson. básúna, og Þórhallur Ingl Hall- dórsson, túba. Á efnisskránni er nær ein- göngu sænsk samtímatónlist, Höfundar verk- anna eru Torbjörn Iwan Lundquist, Folke Rabe, Bo Nllson, Sven-Davld Sandström og Witold Lutoslawsky. Qaukurlrm á Jfms ll f iMMtu viku, hann veröur flmmtðn ára immMwmimhmh ilmmtiidaa oa bvf er bétt daoskvá á nastu vlkumar. Fókus kannaöl hverjlr stóðu á bak vlð þennan fyrsta pðbb íriands og hvað flmmtán ár aru V A morgun mun Ric- hard Wagner-félagið standa fýrir sýningu á óperunni Trlstan og Isolde á stórum skermi í Norræna húsinu. Á undan sýn- ingu mun Þóröur Haróarson, prófess- or og yfirlæknir, ræða um óperuna viö gesti - sem samkvæmt spá Fókuss verða að stórum hluta starfsbræður enda hefur óperuástin lagst mjög þungt á þá stétt. Uppsetningin sem sýnd verður er að sjálf- sögðu frá Bayreuth og það er sjálfur Danlel Barenbolm sem stjórnar hljómsveit og kór en Jean-Plerre Ponnelle leikstýrir og hannar föt og sviðsmynd. Helstu söngvarar eru René Kollo, Mattl Salmlnen, Johanna Meier, Her- mann Becht, Robert Schunk og Hanna Schwarz. Fyrir þá sem ekki eru innvígðir skal það upplýst að Tristan og Isolde fjallar um ást- ina og nær ekkert annað. Að smekk Wagner- aðdáenda fjallar hún á oþinskáan og djúpan hátt um ofsafengnar ástríður mannsins. Og Wagner var svo mikið niðri fyrir við samningu hennar að hann fann uþþ nýtt tónmál til að miðla þeirri ólgu tilfinninga sem honum hafði tekist að esþa uþþ með sér. Dagskráin hefst kl. 13 og stendur í um 4 tíma. Gestum verður gert kortérshlé tvisvar sinnum. Aðgangur er ókeypis. Carltas á íslandi efnir til tón- leika til styrktar nýbyggingu og sundlaug fýrir endur- hæfingu á Reykjalundi ! Krlstskirkju, Landakdti, á sunnudaginn kl. 17. Hljóðfæraleikar- arnir eru ekki aumir heldur landsliðið sjálft: Áshlldur Haraldsdóttlr, flauta, Bryndís Halla Gylfadóttlr, selló, Elnar Jóhannesson, klarínett, Helga Þórarlnsdóttlr, víóla, Slgrún Eó- valdsdóttir, fiðla, Sigrún Hjálmtýs- dóttlr, sóþran, og guð má vita hver ekki. Á efn- Isskránni eru verk eftir ekki síðri snillinga: Atla Helmi Svelnsson, J.S. Bach, V. Belllnl, G. Haydn, J.N. Hummel og fleiri. Aðgöngumiðar verða seldir hjá skrifstofu kaþólsku kirkjunnar, í versluninni á Reykja- lundi og við inngang- inn. Miðaverð 1500 kr. meira www.visir.is a. Elías Gunnarsson, elnn af stofnendum Gauksins, Guövarður Gíslason, sömuleiöis einn af stofnendum, og Úlfar I., einn af núverandi eigendum Gauksins. Bjorííki a / Potteraeist Þaö gerðist margt árið 1983. Rík- isstjórn Gunnars Thoroddsen sprakk og Steingrímur Her- mannsson varð forsætisráðherra í fyrsta skipti (lesið allt um það í ævisögunni), Þorsteinn Pálsson varð formaður Sjálfstæðisflokks- ins, Bubbi seldi Fingrafor grimmt og Karma Chameleon með Boy George (Culture Club) var ofar- lega á vinsældalistum. Þetta var líka árið sem Nýtt líf var í bíó, svo og Poltergeist og Dr. No. Þetta er nánast alltof langt síðan. Það var ekki sjónvarp á fimmtudögum og bara ein sjónvarpsstöð. Útvarpið var lika háð einokun og lands- menn gerðu allt til að missa ekki af ævintýrunum í Dallas. Aðalmál- ið þar var að Sue Ellen fór frá JR og byijaði með einhverju gæja á hækjum. Menn voru líka með i maganum yfir því hvort Bobby myndi byrja að drekka en Pamelu var sama og var alltaf jafn sæt. Það voru líka nokkrir menn sem fengu þá frábæru hugmynd að opna pöbb í landi sem aldrei hafði kynnst slíku borgarglingri nema í útlöndum. En það var mjög vin- sælt, þá sem nú, að fara til London og Amsterdam og versla og drekka eins og svín á pöbbum. Þessir menn gerðu vissa uppreisn gegn því og opnuðu Gauk á Stöng í Tryggvagötu. Húsnæðiö sem þeir fengu var áður notað af Eimskip. Þar sátu gamlir karlar og máluðu björgunarhringi og alls konar duggur og svoleiðis. Stofnendur Gauks á Stöng eru: Elías Gunnarsson verkfræðing- ur, Guðvarður (Guffi) Gíslason veitingamaður, Ámi Vilhjálmsson lögmaður, Sigurður S. Sigurðs- son viðskiptafræðingur, Páll Kr. Pálsson hagverkfræðingur og Sveinn Úlfarsson viðskiptafræð- ingur. Því miður náðist bara að koma tveim af þessum sex herra- mönnum saman fyrir myndatöku. Hvernig er að vera einn af stofn- endum fyrsta pöbbsins á íslandi? „Ólýsanlega góð tilfinning," seg- ir Elías Gunnarsson, „eins og þú getur rétt ímyndað þér.“ Ekki er laust við það að Elías fái fiðring þegar hann hleypur um staðinn til að athuga hvort þetta sé ekki allt eins og það á að vera, eða átti að vera. „Hér er allt í sóman- um!“ kailar hann af efri hæðinni og kemur aftur niður. Það er verið að bíða eftir ljós- myndaranum og Guffa. Úlli, fram- kvæmdastjóri Gauksins í dag, er að sjálfsögðu mættur og segist hafa verið viðloðinn Gaukinn frá því hann var opnaður fyrir fimmtán árum. Bjórlíkið verður strax að um- ræðuefni og Guffi og Elli minnast þess þegar það var fljótlega bann- að. í fyrstu blönduðu þeir því í Gauksins í kvöld og á morgun: Gleðisveitin Gos tekur af skarið og spilar í kvöld og annað kvöld. Sunnudagur: Skítamórall og Rokkabillyband Reykjavíkur sjá svo um fjörið og það ætti enginn að vera svikinn af þeirri skemmtun. Mánudagur: Loðin rotta og Skíta- mórall. Rottan er vinsælasta hljómsveit Gauksins fyrr og síðar en spurning hvar þetta Skíta- móralsdæmi endar. Þriðjudagur: Gleðipeyjarnir í Pöpum verða í góðum sköpum. Loðin rotta fylgir með og má jafn- vel búast við einhverju djammi. Miðvikudagur: Rokkabillyband Reykjavíkur ásamt Pöpunum. Þetta kvöld endar örugglega í einhverri geðveiki. Fimmtudagur: Bítlavinaféiagið og SSSól mæta á sjálfan fæðingardag Gauksins. Föstudagur: Land og synir, þessir með smellina, poppast fram eftir nóttu og Ijúka viku Gauksins. bollu, sem var löglegt, og siöan var reynt að dæla þessu á glösin. En það var fljótlega bannað og þá var bara selt staup af Tindavodka með pilsnemum og kúnnamir sáu sjálf- ir um að sulla því saman. Guffi mætir og menn faðmast. Það er afmælisstemning í strákun- um og strax farið að rifja upp skemmtileg atvik. En það var Gufíi sem rak staðinn og keypti fé- laga sína síðan út og átti staðinn einn í nokkur ár eftir það. Nú hef- ur hann snúið sér að öðru en man sögu eins og þegar Elías mætti eitt kvöldið og heimtaði að þeir fengju sér dyravörð. „En það var stefna Gauksins í fyrstu að vera ekki með dyraverði eins og Óðal og þessir staðir sem hleyptu ekki hverjum sem er inn. En ókosturinn við það allt saman var að fólk gekk héma út meö stóla og myndir og það var enginn til að stöðva það.“ Svo minnast þessir félagar á allt sem gerst hefur á staðnum. Ein kona var einhvem tíma bömuð á klósettinu og samkeppnisleysið á markaðinum var þeim ljúft. En síðan komu Fógetinn, Duus hús, Pöbbinn á Hverfísgötu og allir þessir pöbbar sem margir hverjir em horfnir á meðan Gaukurinn lifir allt af þrátt fyrir að hafa ver- ið bar sem gat ekki selt bjór fyrstu sex árin sín. -MT f Ó k U S 13. nóvember 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.