Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Blaðsíða 6
Opnanir Galleri Ingólfsstrætl 8. í gærkvöld var opn- uð sýning á verkum gamla septem-brýnis- ins Guómundu Andr- ésdóttur í þessu höf- uðbóli konsept-listar. Guðmunda hefur all- an sinn feril verið trú abstraktinu og einkum hallað sér að hringform- inu. Það er áberandi á verkunum I Ingólfs- stræti sem öll eru ný af nálinni og sérstaklega unnin fýrir þessa sýningu. Vilrii f Ó k U S 13. nóvember 1998 Norræna húslð. Sýning á verkum Herdísar Tómasdóttur verður opnuö á morgun kl. 14. Sýningin verður opin kl. 14-18 alla daga nema mánudaga og stendur til 29. nóvember. Gallerí Jörð, Hafnarfirði. Stelnvör BJarnadóttlr Oþnar sýningu á morgun og stendur hún til 29. nóvember. Gallerí Hornlð. Á morgun kl. 16-18 oþnar Guðrún Lára Halldórsdóttlr, Glára, sýningu á ol- íumálverkum slnum. Sýningin verður opin alla daga kl. 11-24 en sérinngangur kl. 14-18 og stendur til 2. desember. Síðustu forvöð Listasafn ASÍ. Ásmundarsalur: Þrjár sýningar hætta á sunnudaginn: Sýning Katrínar Slgurð- ardóttur í Gryfjunni, Guörúnar Elnarsdóttur í arinstofu og Krlstlns Péturssonar í stóra saln- um. Opið verður frá kl. 14-18. Gallerí Svartfugl. Sýning í Listagillnu á verkum Drafnar Guðmundsdóttur myndhöggvara hætt- ir á sunnudaginn. Opnunartimi Gallerísins er kl. 14-18. Gallerí Stöölakot, Bókhlöðustíg 6. Steinþór Marlnó Gunnarsson er með sýningu á verkum sínum sem flest eru unnin á árunum '96-'98. Sýningunni lýkur á sunnudag en þangað til er opið frá kl. 14-18. Aðrar sýningar Llstasafn íslands. Sýningin 80/90 Speglar samtímans frá samtímalistasafninu í Ósló er úti um allt hús. Þverskuröur nútímalistar sem Norðmenn hafa safnað saman fyrir olíugróö- ann. Þótt eflaust megi sitthvað finna að úrvali þeirra þá verður að segja að það er betra en þorskgróði íslendinga hefur getið af sér í Lista- safni íslands. Hér er því tækifæri fyrir Islend- inga aö spássera um sali og ímynda sér hvern- ig Listasafnið liti út ef við værum ríkari - eða smekklegri. KJarvalsstaðlr. Þrjár sýningar eru I gangl: „Framsýnlng: Faroysk nútíðarllst" í austursal. Nýja kynslóöln í norrænum arkltektúr í vestur- sal. Myndlist og tónlist: Halldór Ásgeirsson og Snorri Slgfús Birglsson í miðsal. Sýningarnar eru opnar alla daga frá kl. 10-18. Á sunnudög- um kl. 16 er leiðsögn um sýningarnar fyrir þá sem það kjósa. Mennlngarstööln Gerðuberg. Yfirlitssýning á verkum Hann- esar Lárussonar, einkum verk frá 1978 og fram til loka ní- unda áratugarins. Hannes er einnig með verk í Galleríl Sæv- ars Karls við Bankastræti. Gerðarsafn Kópavogl. Sýning til heiðurs Sæ- mundl Valdlmarssyni áttræðum, yfirlit yfir feril hans. Það sem vartil sölu af verkunum rann út á fyrstu mínútunum - enda þykja stytturnar hans mikil heimilisprýði. Bílar og llst, Vegamótastíg 4, Reykjavík. Á morgun opnar Hildur Waltersdóttlr listmálari sýningu er ber heitið „Dýr - Leikur". Sýningin verður opin alla virka daga kl. 10-18. Laugar- daga og sunnudaga kl. 12-16 og stendur til 10. desember. svona ferðalögum er þetta bara vinna á daginn og svo á ég kvöldin eftir til að skemmta mér, spóka mig um og skoða lífið og tilveruna. Ég nýt lífsins alveg í botn og fer ekki í vont skap nema einu sinni til tvisvar á ári. Og þá verða allir mjög hissa.“ Sóley er stór. Hún er að minnsta kosti einn og áttatíu en eins og al- kunnugt er þykir það mjög gott í fyrirsætubransanum. Hins vegar væri hún alveg til í að vera lægri í loftinu og notar ýmsar aðferðir til að líta út fyrir að vera minni en hún er. „Ég á enga háhælaða skó og þess vegna fila ég þessa hipp-hopp tísku svo vel. Það er frábært að geta verið í strigaskóm og víðum fotum sem láta mann líta út fyrir að vera aðeins lægri í loftinu. Svo stend ég yfirleitt gleið og set mig í þannig stellingar að ég virki enn- þá minni. Ég er ekki nógu mikil glenna I mér til þess að rétta úr mér og gnæfa yfir alla sem eru í kringum mig.“ Kyrkislöngur um hálsinn Af hverjufluttir þú sextán ára aó heiman? „Ég ákvað það þegar ég fermdist að ég skyldi flytja að heiman um leið og ég yrði sextán. Þetta er bara einhver þrá eftir sjálfstæði. Ekki vegna þess að mér líkaði illa að vera hjá mömmu, alls ekki. Við erum mjög góðar vinkonur og vinnum meira að segja á sama stað. Það er samt miklu betra að vera ein en að hlusta á mömmu skipa mér að bursta tennumar klukkan eflefu og svona.“ Hvenær œtlar þú aö eignast börn? „Verður þetta langt viðtal?" Þaó fer bara eftir því hvað þú talar mikiö, „Ég er nú ekki þekkt fyrir að vera mikil sögumanneskja. Þegar ég fer að segja sögur verður alltaf vandræðaleg þögn og fólk lætur sig hverfa. Ég er aflt of langorð og fer út í óþarflega mikil smáatriði,“ segir Sóley og bætir því við að hún leggi miklu meiri áherslu á tónlist en tal í útvarpsþáttunum sínum á Skratz. Hún getur ekki ímyndað sér að fólk hafi gaman af því að heyra endalaust hvað klukkan sé orðin margt og hvemig viðri úti fyrir. „Þá er betra að vera með nóg af R&B og rappi og minna af blaðri. Auk þess verður þáttagerðin miklu auðveldari þannig. Persónu- lega er ég meira fyrir rappið en læt mig hafa R&B.“ Rappar þú ekkert sjálf? „Nei, ég er svo hrikalega feimin. Þá þyrfti ég líka að fara að semja texta.“ Sumir myndu nú ekki sam- þykkja þessa yfirlýsingu Sóleyjar Kristjánsdóttur, að hún sé feim- in. Þama virðist vera á ferðinni stelpa sem er einmitt alls ófeimin við að koma sér áfram. Hún var aðeins sextán ára þegar leið henn- ar lá í útvarpið í gegnum eins kon- ar kynningarstjórastarf á skemmtistaðnum Tetris. Útúrsniðug kvöld „Ég stóð fyrir sérstökum kvöld- um á Tetris fyrir sextán ára krakka. Þessi kvöld voru útúrsnið- ug og loksins var eitthvað að ger- ast fyrir þennan aldurshóp. Þau vom líka sniðug að því leytinu til að Sverrir og Júlli Kemp, sem voru þá með staðinn, misstu skemmtanaleyfið í einhvem tíma og þá fékk ég að halda svona sak- laus kvöld á meðan. Ég var eins og litla systir þeirra þar sem ég leigði hjá Júlla. Ég sá um allt sjálf í tengslum við þessi kvöld, útvegaði plötusnúða, drykki frá Sól, hélt tískusýningar, vann í fatahenginu, hengdi upp plaköt úti um allan bæ til að auglýsa þetta og svo var ég líka látin lesa sjálf útvarpsauglýs- ingamar. Það vom fyrstu skrefin mín í útvarpi," segir Sóley og skil- ur ekkert í því núna hvað hún var dugleg. Sextán ára krökkum til mikillar ánægju er hún samt að vinna í því að endurtaka leikinn. Sóley hefur gert fleira en að vera í útvarpinu og skemmtana- bransanum. Hún hefur unnið við fyrirsætustörf víða um heim síðan hún var fjórtán ára. Dvalið í aðal- borgunum, London, París, New York, Mílanó og Tokyo sem hún segir vera „geðveik- ustu“ borg í veröldinni. „Ólíkt því sem ég hafði ímyndað mér er þetta önn- ur mesta hipp-hopp borg heims á eftir New York. Maður sér fyrir sér að þama sé allt morandi í litl- um körlum með skjala- töskur en svo kemur í ljós að unga fólkið er í geð- veikislega flottum hipp- hopp fötum og frábær tónlist ómar um allt.“ Sóley er stór Er gaman aö vera fyr- irsœta? „Það fylgir því rosa- mikil vinna og sumar stelpur hringja grenj- andi heim og gefast upp af heimþrá og vanlíð- an. Ég nýt þess hins vegar að kynnast fólki og lít ekki endilega á mig sem módel. Á átján ára og ennfærri hafa verið reglulega í loftinu í meira en ár. Þess vegna er Sóley Kristjánsdóttir á útvarpsstöðinni Skratz svolítið sérstök. Sóley er alttaf hress og svo er hún líka sæt þó það sjáist ekki í útvarpinu. Hún hef- ur starfað sem fýrirsæta vfða um heim, er hávaxin en gerir altt til að líta út minni en hún er. „Úff. Ég veit það ekki. Ég er eig- inlega miklu meira fyrir dýr. Svo væri líka betra að vera búin að finna hinn eina sanna áður en ég fer að hlaða niður bömum.“ Þegar Sóley segist vera hrifin af dýrum er hún ekki að tala um litla, sæta hvolpa og kettlinga. Þau eru öllu hárlausari kvikindin sem hún hefur tekið ástfóstri við. „Ég elska kyrkislöngur, hef átt einar þrjár og líka risastóra tar- antúlukönguló. Slöngur eru bestu dýr í heimi. Þær hafa allar mis- munandi persónuleika. Það tekur bara soldinn tíma að kynnast þeim. Þær lykta ekki, fara ekki úr hárum, gefa engin hljóð frá sér og ég get farið frá þeim í mánuð án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því að þær fái ekki að borða. Svo er líka æðislegt að hafa þær vafðar um hálsinn þegar maður er að slaka á eða horfa á vídeó.“ Erfitt að veija Þó Sóley hafi verið að vinna í skemmtanabransanum, útvarpinu og sem fyrirsæta er ekki þar með sagt að hún hafi gefið allt nám upp á bátinn. Hún er á öðru ári í Kvennaskólanum í Reykjavík og stefnir á stúdentspróf. Hvaö hún ætlar svo að leggja fyrir sig í fram- tíðinni er hins vegar alls óvíst. „Ég skipti um skoðun á hverjum degi. Ætlaði einu sinni að verða skordýralíffræðingur en hætti við þegar ég komst að því að það bygg- ist allt á stærðfræði og skýrslu- gerð. Það heillar mig ekki. Ég vil bara gera það sem er skemmti- legt.“ Nú ert þú komin meö kosninga- rétt. Ætlar þú aó kjósa í alþingis- kosningunum? „Já, örugglega ef ég get ákveðið mig. Ég er enn ekki búin að kom- ast aö því hvar ég stend í pólitík en þarf að finna einhvern til að setja mig inn í þau mál. Mér finnst bara svo erfitt að velja þegar úr- valið er mikið. Eins og þegar ég fer út í sjoppu til að kaupa mér lang- loku og það eru til margar tegund- ir. Þá ruglast ég alveg í ríminu og veit ekkert hvað ég vil.“ -ilk FÓKUSMYNDIR: ÞÖK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.