Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Blaðsíða 13
popp
Sænska sveitin The Cardigan
hefur sent frá sér sína fjórðu piötu,
Gran Turismo - ágætís piötu
en kannski ekki sama meistarverkið og „Life“.
Dr. Gunni sló á þráðinn til sönggyðjunnar
Ninu Persson. Eins og aðrir Skandínavar
vefst fyrír henni hvort hægt sé að þjást
af einhverju viti í velferðarþjóðféiögum.
Það er slatti
Ýmsir flytjendur - Popp í Reykjavík: ikiL
Þúsund
Nú þegar ráðherrar lýsa því yíTr
að tónlist skuli flutt út á sama hátt
og fiskur er mokveiði á íslenskum
poppmiðum. Tónlistarfólk er dreg-
ið spriklandi um borð í ryðkláfa
gamalgróinna útgerða, jafnt sem
splunkunýja frystitogara nýrri sæ-
greifa. Tilmæli poppfræðinga um
kvótaskerðingu eru að engu höfð
og má búast við hruni í stofninum
á komandi árum.
Meðal aflakónga þetta árið
hljóta að teljast útgefendur Popps
í Reykjavík. Fyrst var það bíó-
myndin, svo geisladiskurinn sem
inniheldur ekki nema að litlu
leyti lög úr myndinni - væntan-
lega svo að auðveldara verði að
selja myndbandið.
Öll lögin á Popp í Reykjavík eru
gefin út með góðfúslegu leyfi ein-
hvers, jafnvel listamannanna
á færibaucli
sjálfra. Greinilega harður bransi
þegar maður þarf að semja við
sjálfan sig um útgáfu á eigin lagi.
Það er einmitt þessi atvinnu-
mennska og ofuráhersla á að
standast samanburð við útlent
popp sem skemmir hvað mest fyr-
ir poppinu reykvíska. Alltof marg-
ir róa þar á sömu mið og koma í
land með kauðslegt danspopp með
(yfirleitt) kvenrödd yfir.
Jafnvel bönd eins og Gus gus,
Quarashi og Lhooq virka þreytt
og eru þó mun betri en ball-
öðusullið í Bang Gang eða
gangsterarappið frá Real Flavaz.
Því popp í Reykjavík er sungið á
ensku þessa dagana og í raun fátt
á plötunni sem minnir á höfúð-
borgina. Helst þá eitthvert gamal-
dags reifpartí þar sem allir eru
löngu famir heim.
Botnleðja á þó gott innskot
með Flight 666. Fínt lag og eitt af
fáum skífunnar þar sem hljóð-
blöndunin bendir ekki til þess að
allir sem við hana eru riðnir
liggi andvaka á nóttunni yfir
áhyggjum af útvarpsspilun.
Magga Stína kemur einnig vel
út að venju en það eru engar frétt-
ir. Fréttimar era þær að Popp í
Reykjavík samanstendur að
mestu af bragðdaufum eftirlíking-
um af því sem þykir/þótti fint úti
i heimi. Einnig koma sömu nöfn-
in grunsamlega oft við sögu í mis-
munandi lögum á plötunni; of oft
til að hægt sé að taka þetta trúan-
legt sem hlutlausa mynd af popp-
lífinu í landinu. En það má reyna
að selja þetta útlendingum. Það
má alltaf reyna.
Ari Eldon
„Fréttirnar eni þær að Popp
í Reykjavík samanstendur
að mestu af bragðdaufum
eftirlfldngum af þvi sem
þykir/þótti fínt úti í heimi.
Einníg koma sömu nöfnin
grunsamlega oft við sögu
í mismunandi lögum á
plötunni; of oft til að hægt
sé að taka þetta trúanlegt
sem hlutlausa mynd af
popplífinu í landinu."
Víkurröst á Dalvík. Á mótl sól verður komin
þangað annað kvöld.
Akureyri. Sálin hans Jóns míns verður í SJall-
anum I kvöld og fagnar tiu ára starfsafmæli
sinu og tvöfaldri geislaplötu með þekktustu
slögurunum.
Á Polllnum á Akureyri veröur konukvöld i kvöld.
Á morgun verður hins vegar Eyjakvöld og Raggl
SJonna ætlar að stýra veislunni. Danssveitin
KOS leikur fyrir dansi bæði kvöldin.
1 meira áf
www.visir.is
Kaffl Reykjavik. Hljóm-
sveitin Slxtles spilar í
kvöld og annaö kvöld en
á sunnudagskvöldið
verða Rúnar Júl. og
Slggi Dagbjarts á
staönum.
Snæfríður og stubbarnlr spila i siöasta skipti
saman eftir 10 ára spilamennsku á Fógetan-
um í kvöld og á morgun en á sunnudagskvöld-
iö koma Irskir og íslenskir tónlistarmenn sam-
an og spila órafmagnað.
Á Kringlukránni ætlar hljómsveitin SÍN að
halda uppi stuöinu alla helgina og Vlðar Jóns-
son verður á rólegri nótunum í Leikstofu staö-
arins.
Naustlð. Að venju veröur Gleðlstund meö Ernl
Árnasyni og Kjartanl Valdlmarssyni í kvöld og
á morgun.
í Naustkjallaranum ætlar plötusnúöurinn
Skugga-Baldur að stjórna tónlistinni um helg-
ina en á fimmtudaginn verður stiginn línudans
á vegum Kántrýklúbbsins.
Grand Hótel v/Sigtún. Allir eru velkomnir að
hlýða á Gunnar Pál leika og syngja dægurlaga-
perlur um helgina.
Síðdegistónleikar Hlns hússlns og rásar 2
verða í dag klukkan fimm eins og venjulega.
Nú ætlar hljómsveitin Klamedia X að spila en
hún sigraði á Rokkstokk '98 i Reykjanesbæ.
Klúbbastemning á
Spotllght i kvöld með
DJ ívarl. Á morgun
mætir svo Páll Óskar I
eigin persónu í fyrsta
sinn á staðinn og ætlar
að flytja nýja jafnt sem
gamla danstónlist i
bland við þekkt lög úr
„gay“ tónlistarheimin-
um.
Anna Vllhjálms og Hllmar Sverrls veröa á
Næturgalanum í kvöld og annaö kvöld en á
sunnudagskvöld mætir Hjördís Gelrs og
hljómsveitin hennar með nýju og gömlu
dansana.
Tónlistinni á Slr Ollver í kvöld verður stjórnað
af hinni velkunnu útvarpskonu Stjörnunnar
Andreu Jónsdóttur. Pétur og Beggi (helming-
ur Bítlanna) mæta svo á morgun og spila og
syngja með stæl.til klukkan þrjú. Á sunnu-
dagskvöldiö veröa það Andrea Gylfa og Eddl
Lár sem vaka meö fólki fram á mánudag eða
til klukkan eitt.
Lelkhúskjallarlnn. Stjórnln leikur fýrir dansi i
kvöld en á morgun verður Slggl Hlö með það
nýjasta frá Bandarikjunum í diskóbúrinu.
í FJörunnl á Fjörukránni spilar Jón Meller á pí-
anóið en í Fjörugarðinum leikur Víklngasveltln
og syngur fyrir i Víkingaveislum i kvöld og á
morgun.
Vegamót. DJ. Maggl Legowitz verður meö
diskóvæna blöndu fyrir konur í kvöld.
Á Catalínu í Kópavogi verður hljómsveitin Út-
lagar alla helgina.
Vegna fjölda áskorana mun Jóhanna Þórhalls-
dóttir söngkona ásamt Slx-Pack Latlno laöa
gesti Kaffileikhússins fram á dansgólfiö með
blóðheitri tónlist á morgun. Kvðldverður hefst
klukkan átta og tónleikar klukkan tíu en þeir
eru aðeins fýrir matargesti. Klukkan ellefu
verður rýmt til svo hægt verði að dansa fram
á nótt.
Álafoss föt bezt. Dagskrá helgarinnar er til-
einkuö Creedence Clearwater Revlval. Rytj-
endur eru Glldrummezz.
Á Glaumbar á sunnudagskvöldið og reyndar
öll þau kvöld í vetur munu þeirfélagar úr „Bítk
unum“ vera með sneisafulla dagskrá af spilirii
og öðrum uppákomum eins og þeim einum er
lagið.
Sveitin
Búðarklettur I Borgarflröi. Rut Reginalds og
Blrglr Jóhann leika í kvöld og á morgun.
Hljómsveitin Buttercup verður í góðri stemn-
ingu í kvöld þar sem hún stendur fýrir heljar-
ins sveitaballi i Hlöðum i Hvalfirði meö nem-
endum og gestum Fjölbrautaskólans við Ár-
múla. Á morgun færa þeir sig svo upp á
Skaga og halda þar uppi viðteknum hætti á
veitingahúsinu Langasandl.
Keflavík. I Skothúslnu I kvöld verður kosn-
ingadansleikur Gunnars Blrglssonar og mun
stórsveitin Reggle On lce leika fýrir dansi til
klukkan þrjú. Húsið verður opnað klukkan tiu.
Á morgun verður svo R&B kvöld og sá allra
heitasti i danstónlistinni, DJ. Svali af FM957.
Lundlnn í Vestmannaeyjum. Hljómsveitin Haf-
rót verður þar bæði í kvöld og annað kvöld.
Hljómsveitin Sóldögg leikur á Mællfelll á
Sauðárkróki i kvöld en á Hótel Akranesi á
morgun.
Hlööufell á Húsavík. Á móti sól leikur í kvöld.
Það eru orðin sex ár síðan Sví-
amir í Cardigans stungu fyrst í
samband í bílskúr í Janköping
með það að leiðarljósi að verða
frægir popparar. Þetta voru
krakkar sem höfðu gaman af
indírokki banda eins og Stone
Roses og Smiths og áhugi á þung-
arokki Black Sabbath hefur
einnig alltaf verið viðloðandi. Á
fyrstu plötunni, „Emmerdale" var
þó komið annað og djassaðra
hljóð í strokkinn, í indírokkið var
kominn poppaður tónn og ferskir
straumar frá sixtís barnatíma-
djassi. Frá og með annarri plöt-
unni, „Life“, var persónulegi stíll-
inn orðinn fullmótaður, platan sló
í gegn um allan heim, sérstaklega
voru Japanir áfjáðir í poppið,
enda er „Life“ mikið meistara-
verk. Sigurgöngunni fylgdu tón-
leikaferðir, Svíarnir fimm með
hina eðaltýpísku sænsku gyðju
Ninu Persson í fararbroddi komu
m.a. til íslands og spiluðu á Hótel
íslandi í febrúar ‘96. Sama ár kom
þriðja platan, „First band on the
moon“ og enn vænkaðist hagur
strympu þegar lagið „Lovefool“
var notað í Rómeó og Júlíu-kvik-
myndinni. Lagið var spilað í ræm-
ur á MTV og sænsku peysurnar
héldu áfram í heimsferðinni. Ný-
lega kom út fjórða plata sveitar-
innar, „Gran Turismo". Það leyn-
ir sér ekki hverjir em þar á ferð
þótt poppið sé ekki jafn grípandi
og áður. Ágætis plata, en ekki það
besta sem frá Cardigans hefur
komið. Nina Persson er á línunni.
Hvaö er aö gerast í rokkinu í Sví-
þjóð?
„Það er góð rokksena hérna,
mörg minni bönd sem em frábær;
Eggstone og Soundtrack of our
lives, og svo auðvitað Bob Hund,
það er kannski besta bandið í Sví-
þjóð eins og er.“
Var þaö meóvituð bisnessákvörö-
un aö syngja á sœnsku og hafiö þiö
einhvern tímann pœlt í aö syngja á
sœnsku?
„Sænskan er mjög hart og beint
mál. Þú verður að vera frábært
skáld ef þú ætlar að gera sómasam-
lega texta á sænsku. Og við neitum
því ekki að okkur langaði að meik-
aða út fyrir landsteinana. Og svo er
enskan líka okkar annað tungumál.
Flest öll tónlistin í Svíþjóð er sung-
in á ensku, það eru fáar hljómsveit-
ir sem ná því að syngja á sænsku."
Margir tónlistarmenn nota tón-
listina til aö losna viö reiði og tjá
firringu og óánœgju. Hvaö liggur aö
baki hjá ykkur?
„Við erum ekki í neinum sálræn-
um kröggum, en, jæja ókei, við
erum Skandínavar! Við erum vík-
ingar og það er slatti af myrkri í
sálum okkar.“
Hvað segiröu þegar þú ert beðin
um aö lýsa tónlist Cardigans? Reyn-
iróu aö foröast einhverja merki-
miða?
„Það er alltai' pirrandi fyrir band,
allavega okkur, að vera brenni-
merkt einhverri einni stefnu. Við
erum ekki bara „altemative" hljóm-
sveit og við erum alveg öragglega
ekki stofupopphljómsveit (easy-
listening). Það er ótrúlega pirrandi
þegar fólk kallar tónlistina okkar
stofupopp, við bara þolum það
ekki!“
Er einhver tónlist sem þú þolir
ekki sjálf?
„Já, ég á í líkamlegum erfiðleik-
um með að hlusta á raggí. Frekar
skrýtið, takturinn passar bara ekki
við hjartsláttinn í mér og ég verð
veik þegar ég heyri hann. Nágranni
minn er gengilbeina og kemur yfir-
leitt heim kl. 4 á nóttinni og fer að
spila þetta helvíti. Ég get hvorki sof-
ið né vakað við helvítis raggíið, fy
faan!“
Þiö hafiö veriö kölluö popphljóm-
sveit, hvað er popp fyrir þér?
„Popp er ákaflega flókið fyrir-
bæri. Ég pæli nú meira í því hvort
tónlistin sé góð eða vond. Ef hún er
góð er mér alveg sama hvort hún er
popp eða eitthvað annað." -glh
13. nóvember 1998 f Ó k U S