Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Blaðsíða 26
Bestu dansmyndirnar Bíóborgin Popp í Reykjavík *★ Helsta vandamál Popps í Reykjavlk: rysjóttur taktur, blindandi leióinlegur á köflum, en með þónokkrum smart mómentum. En meö nokkrum finum vísúal-sprettum og ánægjulegri leiðsögn Páls Óskars um næturlífið þá er Popp í Reykjavík alls ekki slæm sem kynning á tónlistarmenn- ingu nútímans - og tónlistin sjálf er fín. -úd The Horse Whlsperer ★★★ Bók Nicholas Evans hlaut misjafnar viötökur og var annars vegar lofuð sem glæsilegt meistaraverk og hins vegar gagniýnd sem innihaldslaus loft- bóla. Myndin brúar að mínu mati bilið, og kannski má kalla hana fallega loftbólu. -ge Bíóhöllín/Saga-bíó Snake Eyes Sna- ke Eyes fer af stað með miklum glans, atburða- rásin er hröð og mark- vlss. Brian De Palma nær síðan að fýlgja eftir góöri byrjun á meðan sögusviðið er íþróttahöllin. Þegar síðan sagan færist úr höllinni yfir I spilavítið og ofnotkun fer að verða á myndskeiöum frá tilræðinu fer myndin að missa flugið. í lokauppgjörinu nær De Palma sér aftur á strik. -HK Wrongfully Accused ★★ Ef þú ert nægilega skilyrt I aulahúmor þá má vel skemmta sér yfir þessari þvælu. -úd Töfrasverðlð ★★ Háskólabíó Maurar ★★★ Vel heppnuð og skemmtileg tölvugrafísk teiknimynd með rómantísku ívafi sem öll fjölskyidan getur sameinast um að sjá. Woody Allen talar fyrir aðalpersónuna Z og fer á kostum í hlutverki sem skrifað var fyrir hann. Af öðrum frægum röddum er vert aö geta hlut Sylvester Stallone og Gene Hack- man sem báðir komast vel frá sínu. -HK Prlmary Colors ★★★ Mike Nichols hefur búiö til snjalla og góða kvikmynd sem er beitt í ádeil- unni á atvinnufólk I pólitíkinni, hefur góðan húmor og er skemmtilega kræf og laus við for- dóma. -HK Smálr hermenn ★★ Eina ferðina enn er það brúðu- og brellumeistarinn Stan Winston sem stendur með pálmann I höndunum því það eina skemmtilega í annars einhæfri ævintýra- mynd er sköpunarverk Winstons. -HK Danslnn ★★★ Ágúst Guðmundsson með sína bestu kvikmynd frá því hann gerði Með allt á hreinu. Áhrifamikil saga sem lætur engan ósnortinn. Vel gerð og myndmál sterkt. Oft á tíöum frumleg þar sem dansinn dunar í for- grunni og/eða bakgrunni dramatískra atburða. Leikarar í heild góðir og ekki hallað á neinn þegar sagt er að Gunnar Helgason, Pálína Jónsdóttir ogGísli Halldórsson séu best meðal jafningja. -HK BJörgun óbreytts Ryan ★★★★ Strið I sinni dekkstu mynd er þema þessa mikla kvikmynda- verks. Stórfenglegt byrjunaratriði gæti eitt sér staðið undir ómældum stjörnuflölda, en Steven Spielberg er meiri maður en svo að hann kunni ekki að fylgja þessu eftir og I kjölfarið kemur áhugaverð saga um björgun mannslífs, saga sem fær endi í öðru sterku og löngu atriði. -HK Sporlaust ★★★ Leikararnir skila sínu og sögufléttan er að mestu í anda góðra spennu- mynda. Þó er að finna slæmar holur í plottinu sem eru leiðinlegar fyrir þá sök að auðvelt hefði verið aö komast hjá þeim. Þessir hnökrar spilla þó tæplega miklu. -ge Paulie ★ -* Stjörnubíó frumsýnir dans-, ástar-, gaman- og skemmtimyndina Dance with Me: Stjömubíó tekur til sýningar í dag danskvikmyndina Dance with Me þar sem er að finna blöndu af gamni og alvöru. Þar er einnig að finna frábæra salsa-, diskó- og af- ródansa sem blandast við suður- ameríska danstónlist og að sögn þeirra sem til þekkja þá eru dans- arnir sérlega vel útfærðir. í myndinni segir frá Rafael sem ákveður eftir lát móður sinnar að yfirgefa Kúbu og halda til Houston. Rafael geislar af lífsgleði í nýjum heimkynnum og smitar hann út frá sér í dansskólanum sem gamall vinur móður hans rekur. Rafael veröur fljótt hrifinn af danskennar- anum Ruby sem ekki er móttæki- leg í fyrstu, enda hefur hún beðið nokkur skipbrot þegar ástalífið er annars vegar. Ruby á sér draum, hana langar til að keppa aftur í al- þjóðlegri danskeppni þar sem suð- ur-amerískir dansar em í fyrir- rúmi. Þegar hún loks lætur undan Rafael og fer með honum út á lífið velja þau vinsælan salsa-dansstað. Meðan Ruby fer eftir formfostum dansreglum og sýnir agaðar dans- sveiflur dansar Rafael óheflað og lætur tilfinningar sínar ráða danstaktinum. Þau ná vel saman í dansinum og æfa saman en Ruby ákveður á síðustu stundu að slíta sambandinu við Rafael og taka aft- ur upp samband við fyrrverandi ástmann sinn og dansfélaga sem er víðfrægur atvinnudansari. í helstu Flottir dansarar í spennandl dansl í Dance with Me. hlutverkum era Vanessa L. Willi- ams, Chayanne, Kris Kristofferson og Joan Plowright. Vanessa L. Williams, sem leikur Ruby, hefur jöfnum höndum feng- ist við söng og leik og er skemmst að minnast hennar í Eraser þar sem mótleikari hennar var Amold Schwarzenegger. Tveir atburðir munu þó alltaf tengjast lífi henn- ar. Hún var árið 1983 fyrsta svarta konan sem kosin var Ungfrú Am- eríka og ári síðar var hún fyrsta Ungfrú Ameríka sem svipt var titlinum. Það gerðist þegar karla- tímaritið Penthouse birti nektar- myndir af henni sem teknar höfðu verið áður en hún varð fegurðar- drottning. Með þvi að tapa þessum titli missti hún ekki aðeins tvær milljónir dollara í tekjur heldur missti hún af aðalhlutverki í söng- leik á Broadway sem henni hafði boðist. Flestir töldu að ferill henn- ar í skemmtanabransanum væri á enda, en Williams er hörkukona og gafst ekki upp; hún lék í sjónvarpi og gaf út plötu og gæfan brosti við henni aftur þegar lag með henni, Save the Best for the Last, komst i efsta sæti vinsældalista viða um heim og á sama tíma fékk hún mjög góða dóma fyrir leik sinn i Kiss of the Spider Woman á Broad- way. Leikstjórinn Randa Haines er sjálfsagt frægust fyrir að hafa leik- stýrt Children of a Lesser God, sem var fyrsta kvikmynd hennar. Einnig má nefna The Wrestling of Emest Hemingway og The Doctor, tvær ágætar kvikmyndir sem hún gerði. Haines er búin að vera lengi í bransanum, hafði leikstýrt í sjón- varpi mörgum seríum áður en hún tók til við kvikmyndaleikstjóm. -HK 3Ínn ttair - Inn tv@ir - tgn .lObestu,, danemynaimar 1. All That Jazz 1979 Dance with Me, sem Stjörnubíó frumsýnir í dag, fellur í þann flokk mynda sem kenndar eru við dans og era aðgreindar frá þeim sem kenndar era við söngleiki þó þar séu oft og tíðum frábærir dansar, samanber West Side Story og Sweet Charity. Dansmyndir njóta kannski ekki sömu virðingar og söngleikja- myndir enda eiga söngleikir oft og tiðum mikla sögu á bak við sig og meira lagt i kvikmyndir gerðar eft- ir þeim. í gegnum tíðina hafa þó komið fram margar góðar kvik- myndir þar sem dansinn er í fyrir- rúmi. Það vekur athygli að á þess- um lista sem hér er birtur og valinn var af nokkrum gagnrýnendum er japanska myndin Shall We Dance, sem gerð var í fyrra og hefur vakið heimsathygli; hér á landi fór hún beint á myndbandamarkaðinn. Þess má geta að í Bandaríkjunum er nú verið að undirbúa ameríska útgáfu Leikstjóri: Bob Fosse 2. The Red Shoes 1948 Leikstjórar: Michael Powell og Emeric Pressburger Saturday Night Fever, 1977 Leikstjóri: John Badham Shall We Dance? 1997 Leikstjóri: Masayuki Suo Ginger and Fred 1985 Leikstjóri: Federico Fellini Carmen 1980 Leikstjóri: Carlos Saura Fame 1980 Leikstjóri: Alan Parker The Turning Point 1977 Leikstjóri: Herbert Ross Stríctly Ballroom 1992 Leikstjóri: Baz Luhrman Dirty Dancing 1987 Leikstjóri: Emiie Ardolino 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. John Travolta í frægri stellingu í Saturday Night Fever. af þessari mynd. Að öðra leyti er lítið um nýlegar myndir á þessum lista sem segir okkur að dansinn er kannski ekki svo hátt skrifaður í kvikmyndaiðnaðinum í dag. 26 f Ó k U S 13. nóvember 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.