Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Blaðsíða 15
Það er engin nýlunda að
popparar barmi sér, þótt
sjaldnast hafi þeir aðrar
ástæður til þess en hversu
erfitt það er að vera frægir.
Mark Everett í Eels tekur
öllum fram í depurð og mærð
en öfugt við fíesta aðra hefur
hann fulla ástæðu til að væla:
Ojaífe.
cxkrab
■
r-
Ég er því búinn
að byggja mig
upp andlega til
að takast á við öll
óþægindin. Ég er
búinn að ákveða að
næsta plata verður
með stórum gulum
broskarii framan á
umslaginu og text-
amir verða bara um
góða og þægilega
hluti.“
.
RJ2
I poppinu er engin nýlunda að
fólk væli úr sér lungun, beri sínar
innstu tilfmningar í trogum á
torg. Menn eins og Billy Corgan
í Smashing Pumpkins og Trent
Reznor í Nine Inch Nails hafa
mikið barmað sér, svo ekki sé
minnst á Kurt heitinn Cobain og
síðan ekkjuna hans. Aðalvælið
siðustu árin hefur falist í að
kvarta yfir því hvað er erfitt að
vera frægur og ríkur, en sjaldnar
hefur verið einhver raunhæf
ástæða fyrir vælinu, ekki önnur
en sú hvað það er erfitt að vera til
og allt það.
Maður er nefndur Mark Ever-
ett. Hann kallar sig „E“ og hafði
gert tvær sólóplötur áður en hann
sló í gegn sem aðalmaðurinn í
tríóinu Eels. Önnur plata Álanna
er nýkomin út, „Electro-shock
Blues“, og þar tekur E öllum öðr-
um fram í depurð og heimspeki-
legrnn vangaveltum um lifið og
dauðann. Hann hefur lika ástæðu
til að kveina; á síðustu misserum
missti hann fjölskyldumeðlimina,
foreldrar hans og systir dóu og á
plötunni gerir hann upp þessar
hamfarir allar. Geðveiki, krabba-
mein og hugsanir við jarðarfarir
skyldmenna hafa verið tabú i
dægurlagatextum til þessa og því
má segja að textamir á plötunni
séu nýstárlegir. Textana skreyta
E og Álarnir með rólegu en
skemmtilegu poppi þar sem áhrif
frá R.E.M., Beck, Tom Waits,
sjötta áratugar Hollywood tónlist
og jafnvel Erik Satie hrærast sam-
an í sérstæða og einlæga heild.
Platan byrjar á laginu „Elizabeth
on the Bathroom Floor“, sem lýs-
ir síðustu andartökunum í lífi
systir hans og endar tveim jarðar-
förum og miklum pælingum síðar
á „PS You Rock My World“, þar
sem glittir í ljós við enda gang-
anna og E syngur: „Ég var að
pæla í hvemig allir deyja, en nú
er kominn tími til að lifa.“ E kem-
ur sem sagt jákvæður út úr þessu
uppgjöri.
„Fólk sér kannski lagaheitin og
hugsar, vá, hvílíkur bömmer," seg-
ir E, „en ég læt ekkert frá mér sem
er eingöngu svartsýnt. Ég reyni
alltaf að komast að hinu góða,
komast að sætri niðurstöðu."
Er ekki óþœgilegt aö opna sig
svona gjörsamlega?
„Auðvitað. Það er jafnvel
óþægilegra að tala um textana,
hvað þá að flytja þá á tónleikum.
Ég er því búinn _
að byggja mig upp
andlega til að
takast á við öll
óþægindin. Ég er
búinn að ákveða
að næsta plata
verður með stór-
um gulum bros-
karli framan á
umslaginu og
textarnir verða
bara um góða og
þægilega hluti.“
-glh
i/'r að spá
u plötu
Af íslenskum plötum virðist
Steins Steinarrs-platan „Heimur-
inn og ég“ seljast best á íslandi
þessa dagana. Vinsælasta erlenda
platan er hins vegar safnplatan
1980-90 með írunum í U2. Hún virð-
ist vera vinsælasta platan í öllum
heiminum um þessar mundir og
aðeins Alanis Morissette blandar
sér i slaginn. Hún hefur yfirhönd-
ina í Bandaríkjunum, seldi þar
hálfa milljón eintök af nýju plöt-
unni og sló um leið met Lauren Hill
i sölu I kvennaflokki á einni viku.
Þó U2 þurfi ekki að kviða ellinni
eru fjónnenningarnir þegar famir
að huga að næstu hljóðversplötu.
Þeir hafa fengið Brian Eno og
Daniel Lanois til að vinna með
sér, en það er sama teymi og vann
að plötunni „The Joshua tree“. The
Edge segir að í þetta skiptið verði
engin „dedlæn" með í spilinu, en
hann er ekki frá því að síðasta U2-
plata, „Pop“, hefði getað orðið betri
ef þeir hefðu ekki þurft að vinna
með deadlæn-svipuna yfir sér. Gít-
arleikarinn sagði einnig að næstu
plötu verði ekki fylgt eftir með jafn
stífu tónleikaprógrammi og „Zoo-
ropa“ og „Pop-Mart“ túramir voru.
Þótt „Brúnin" sé stoltur af þeim
túrum segir hann að bandið muni
bíða nokkuð lengi með að fara í
jafn yfirgengilega risatúra.
Fyrsti GSM síminn með íslenskri valmynd
lslenska
þ a ö e r m á L i ö v a
Sagem 725, sem erfyrsti GSMsíminn með íslenskri valmynd, býðst á sérstöku
kynningartilboði. Þetta er handhægur og traustur sími, aukþess sem íslenska
valmyndin gerir notkun hans einfaldari og skemmtilegri.
Fáðuþér nýja úrið frá Símanum sem
segirþér ekki eingöngu hvað klukkan
er heldur líka hvort GSM síminn er
að hringja.
I4.98OJ
verð áður
18.920,,,
PÓSTU RIN N Afgreidslustaöir Islandspósts um land allt
Sagem 725
Rafhlaðan endist allt að 72 klst. í bið eða
3 klst. í notkun - íslensk valmynd
Númerabirting - Geymir 20 síðustu inn- og
úthringinúmer með tima og dagsetningu - Klukka og vekjari
Hnappur til að loka fyrir hljóðnema - 2 forritanlegir hnappar
skilaboðasending og -móttaka -16 mismunandi hringitónar
Ármúli 27, sími 550 7800 • Kringlan, sími 550 6690
Landssímahúsið v/ Austurvöll, sími 550 6670 • Þjónustuver Símans, sími 800 7000
Siminn Internet, sími 800 7575 • Akureyri, sími 460 6710* Saudárkrókur, sími 455 1000
SIMINN
www.simi.is
13. nóvember 1998 f ÓkllS
15