Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Blaðsíða 14
I
I
!
|
i
I
!
í tuttugu og níu ára afmælið sitt
bauð Sean „Puffy“ Daddy 1200
nánum vinum, liði eins og Mari-
ah Carey, Donald Trump,
Denzel Washington, Muhamm-
ad Ali, Michael Bolton, Kevin
Costner, Mase, Chris Rock,
Christina Ricci og Lil Kim. Gest-
ir fengu boðskort í pósti, en
| boðskortið var videóspóla sem
f stóð á „Puff Daddy heldur partí -
j spilið til að fá frekari upplýsing-
} ar“. í myndbandinu sjást fyrst tær
f á gömlum manni, sem síðan kem-
i ur í ljós að er Danny Devito.
J Grínarinn Chris Rock á óumdeil-
; anlega setningu kvöldsins. Hann
, heyrðist segja við barinn; „Puff
l Daddy hélt ekkert partí. Hann
, samplaði bara gamalt partí sem
Eddie Murphy hélt 1984“.
•»
4-
namli gkítnr
pnn í fr
Wu-Tangarinn
Old Dirty Bastard j
er enn kominn í,
fréttimar fyrir sína I
miklu hæfileika, til:
að brjóta af sér, þar
að segja. Nú var
gamli skítugi bast-
arðurinn (hann
heitir Russell Jo-
nes á lögregluskýrslum) tekinn
fastur fyrir að hóta kæmstunni líf-
láti. Þetta er í þriðja skipti síðan í
júlí sem sá gamli lendir í veseni;
fyrst stal hann strigaskóm og svo
hótaði hann öryggisverði á
Des'ree-tónleikum lífláti eftir að
„veistu ekki hver ég er“ gekk ekki
upp hjá honum. Núna beilaði Bast-
arðurinn sig út með hálfri milljón
dala og gengur enn laus til að hóta
fólki ef honum dettur það í hug.
Hvemig væri nú að fara að rappa
aftur, gamli skítur?
BRIMBORG
Faxalenl 8 * Sími 5157010
Þeir tónleikar sitja enn þá í
manni.“
Hvaö hlustiö þið á núna?
„Bara poppið í útvarpinu, mað-
ur. Ég var að kaupa safnplötuna
með Depeche Mode og DMX Crew
og Nu-Romantix.“ Páll segist hins
vegar vera að fíla Rammstein
helst þessa dagana.
Ég myndi kannski
fá mér „kúkur“
Hver er tilgangurinn meó tón-
listinni ykkar, finnst ykkur þiö
vera listamenn eöa rafvirkjar?
„Bæði. Maður er alltaf aðallega
að gera þetta fyrir sjálfan sig en
vill náttúrlega að einhver hlusti á
sig. Það er ekkert gaman að hanga
inni í æfingarplássi að gera tón-
list sem enginn fær svo að heyra.“
Reyniö þiö þá aö koma meö eitt-
hvaö sem þiö sjáiö fyrir ykkur aö
fólk fíli?
„Já já, við erum ekkert að selja
á okkur rassgatið, en þessi lög eru
poppaðari en margt af því sem við
höfum gert áður.“
Hvernig er verkaskiptingin á
milli ykkar?
„Hún er mjög skýr á þessari
plötu,“ segir Þröstur, „ég samdi
öll lögin og hann fór með þau í
stúdíóið og tók þau upp.“
Hver er þá konan og hver er
maöurinn í þessu bandi?
„Ég held það vanti konuna í
þessa hljómsveit," segir Þröst-
ur, „eða kannski manninn,"
segir Páll og þeir hlæja báðir
eins og sturlaðir álfar.
Ef þiö mœttuö vinna meö
hvaöa tónlistarmanni sem er,
hvern mynduð þiö velja?
„Ennio Moricone - hann er
snillingur - eða kannski Burt
Bacharach, við hefðum ekk-
ert á móti því að láta hann út-
setja eitt lag.“
Hvað er töff?
„Mér finnst Rammstein
töff,“ segir Páll, „berir að ofan,
sleiktir í einhverri olíu og
búnir að fara í þokkalega
marga ljósatíma."
Hvaö er þá ekki töff?
„Einkanúmer á bílum, þau
eru áberandi ekki töff. T.d.
„Nei hæ“.“
„Mér finnst nú ,jæja“ hel-
víti gott,“ mótmælir Þröstur
en Páli verður ekki haggað og
finnst þetta ömurlega hallæris-
legt; „ég myndi kannski fá mér
„kúkur,“ en er svo sem ekkert
á leiðinni með það, á ekki einu
sinni bíl.“ -glh
Hvernig líöur ykkur núna þegar
platan er komin út?
„Það er helvíti gott að vera bú-
inn að koma þessu frá sér, þetta
er skemmtileg plata,“ fullyrðir
Þröstur. „Við vorum lengur með
hana en hinar,“ segir Palli, „við
fengum fullt af dóti; trommara,
vinýlklórara, söngvara og gítar-
leikara. Við forunnum hana í bíl-
skúrnum hjá okkur en þetta er
fyrsta platan sem við klárum í
stúdíói."
Aðstoðarmenn eru Hössi úr
Quarashi sem rappar eitt lag,
Franz úr Ensíma syngur eitt,
Tómas Tómasson úr Rokka-
billíbandi Reykjavíkur leikur á
rennigítar í einu, Haffi
trommari úr Sólinni spilar í
einu og trommarinn Addi úr
Stolíu kemur mikið við sögu.
Búnir aö hlusta mikiö á plötuna
eftir aö hún varö tilbúin?
„Alveg helling. Hún venst
m.a.s. aftur eftir að maður er bú-
inn að fá leiða á henni.“
Er þetta danstónlist eöa head-
phone-tónlist?
„Þetta er ekki eins mikið önd-
ergránd og hefur verið,“ segir
Þröstur, „en það koma tvær, þrjár
dífur.“
„Það eru allavega tvö lög sánd-
lega séð sem eru pjúra head-
phona-lög fyrir mér,“ segir Páll.
Súrefni eru kumpánamir
Páli og Þröstur. Þeir gáfu
út tvær plötur í fyrra,
„Geimdjass11 og
„Súrefni" og sú þriðja
var að koma út og heftir
„Wide Noise“. Þetta er
spriklandi góð plata hjá
strákunum; þeir hræra
kraftmikla takta og tóna
úr raftækjunum og hafa
sjaldnar verið f betra
stuði, enda svínvirka
þeir á sveitaböllum, jafnt
sem öðrum böllum.
Dr. Gunni ræddi við
Súrefni, þá Pál og Þröst.
„En það er hægt að dansa við alla
tónlist og það er mikið partí í
þessari plötu.“
Tölvudæmið
opnaði nýjan heim
Hvernig sjáiói hlustendur fyrir
ykkur - hvaö eiga þeir aö vera aö
gera þegar þeir hlusta á plötuna?
„Ýmsilegt fyrir okkar parta.
Okkur er alveg sama hvað fólk
gerir. Ef við miðum við aldurs-
hópa þá förum við bæði neðar og
aðeins ofar. Jafnvel eldri kelling-
ar gætu verið að fíla eitt, tvö lög.“
Er þá tónlist kynslóöaskipt?
„Krakkarnir núna, frá þrettán
og upp úr, hafa náttúrlega alist
upp við aðra tónlist en við. Það
var engin danstónlist í gangi þeg-
ar við vorum að alast upp. Ég fór
ekkert að hlusta á þetta fyrir
nema svona fimm árum eða svo,
maður var í nágrönnunum í HAM
og svoleiðis. Rokkiö er auðvitað
að blómstra líka núna, en þetta er
allt farið að hrærast saman, bæði
hjá krökkunum og tónlistarmönn-
unum. Krakkamir fíla alveg að
heyra Metallica á eftir Fatboy
Slim.“
Hvenær ákváöuó þiö aö fara aö
spila tónlist?
„Hann byrjaði fjórtán að plokka
einhvem bassa og ég byrjaði sext-
án á einhverjum gítar,“ tekur
Þröstur viö af Páli.
Af hverju snérust þiö í tölvu-
bransann?
„Ætli það hafi ekki verið frels-
ið. Tölvudæmið opnaði fyrir
manni nýjan heim. Ég held við
höfum fyrst verulega vaknað þeg-
ar við heyrðum „Dub no bass
with my head man“ með Und-
erworld og sáum þá í Höllinni.
Puffy
heldur
partí
f Ó k U S 13. nóvember 1998
14
FÓKUSMYND: BG