Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1998, Blaðsíða 10
M dtmn Hafnarkráin er alvörustaður, mannaður alvörufólki sem drekkur bjór og spekúlerar í lífinu. Norræn pöbbastemning er loksins komin til landsins eftir tæp tíu ár í bjórnum. Mikael Torfason vakti fram eftir og stýrði eldhúsdags- umræðum á Hafnarkránni rétt eftir miðnætti. enn Kúi, iur, lítil skip og alls konar fiskidrasl hangir í loftinu. Minnir óneitanlega á Hamborg. Það eru ekkert svo margir á staðnum. Sex á bamum og þrjú í einu homi. Við göngum að bamum og biðjum um Geira. Ekki það að ég eða Ijós- myndarinn þekki hann. Geiri er bara þekktur fyrir góðmennsku og því athugum við hann fyrst. „Sælir,“ segir hann og brosir. Ég kynni mig og blaðið og segi að erindið sé að spjalla við fólk. Taka púlsinn á stemningunni og svona. Geiri kinkar kolli og segir að það sé nú í lagi en það séu nú kannski ekki margir í kvöld. „Nóvember hefur aldrei verið feitur," segir Geiri. „Það er alltaf meiri stemning í desember og á sumrin. Veðriö spilar líka inn í héma í miðbænum og því er alltaf minna um að vera fyrst þegar byrjar að kólna,“ heldur Geir áfram og hlær að öllu saman. En eru menn ekki aö rœöa landsins gagn og nauösynjar hérna? „Auðvitað er sjálfsagt rætt um heims- og landsmálin héma eins og annars staðar. Það vita náttúrlega allir hvemig best er að reka þessa blessuðu veröld. Ég tala nú ekki um þegar búnir eru nokkrir bjórar." Geiri bætir því við að hann vilji bjóða okkur ljósmyndar- anum upp á bjór. Okkur þyk- ir ekkert sjálfsagðara en mis- nota aðstöðu okkar í þessari dimmu yfirvinnu svo við þyggjum hressingu að út- lenskum sið og lítum líka á það sem vopn í baráttunni við að gestirnir treysti okkur. Enda mildast augu gesta þegar við fáum bjórinn. Það er nú búið að vera rólegt í kringum þig undanfarið, Geiri. Var ekki alltaf verið að skammast og kvarta undan þér í fyrravetur? Nágrannamir? „Jú. Ég hef töluvert reynt að gera andlitslyftingu á staðnum. Fyrir nokkmm árum var orðið pakkfullt héma upp úr hádegi en nú reynum við að vanda valið.“ Hagfræðingur, öryrki og heimilishjálp Þessi þrjú í horninu benda mér að setjast hjá þeim. Ég brosi sett- lega og hlamma mér með bjórinn, Ekkert jafnast a við goða skal eftlr eldhusdagsumræður. Kannski væri ráð fyrir þingmenn landslns að halda fundi á Hafnarkránnl hér eftir. Þetta fólk var langt frá því að vera vitlausara en alþinglsmennirnir. Geiri er kóngurinn á Hafnarkránnl. Hann á og rekur slotiö sem hefur gengið í gegnum breytingar hvað kúnnahópinn varöar. kynni mig og þau vilja vita hvað- an ég er og hvar ég ólst upp. Ég svara samviskusamlega og bið þau að gera það sama. „Björgvin Ómar. Ólst upp í Skipasundi og er öryrki," segir skeggjaður og hippalegur maður á miðjum aldri. Hann er með hreim og framburðurinn minnir að einhverju leyti á Kára Stef- ánsson. „Einar Gimnarsson. Ólst upp í Hlíðunum. Ég er hagfræðingur, starfa sjálfstætt og sé um bókhald Hafnarkrárinnar,“ segir rólegasti maðurinn á svæðinu. Handa- hreyfingarnar eru mjög yfirveg- aðar, bjórglasið svífur hægt að vörum hans og sopinn rennur hæglega ofan í þennan hagfræð- ing sem virðist taka öllu með stóískri ró. Konan í hópnum tek- ur til máls. „Ég heiti Ástríður, kölluð Ásta. Ólst upp i vesturbæ og vinn við heimilishjálp," segir þessi drottning staðarins. Ertu þá KR-ingur? „Já.“ Varstu svekkt þegar þeir klúöruöu titlinum? Einar Gunnarsson er alinn upp í Hlíðunum. Hann er sjálfstætt starfandi hag- fræðlngur og sér meðal annars um bókhald Hafnar- krárinnar. Ástríður, kölluð Ásta, ólst upp í vesturbænum og er því KR-lngur. Hún starfar við heimilishjálp og finnst vera of mlklð um þjófa í þessu landi. „Nei,“ svarar Asta og hlær að öllu sam- an. En hvaö finnst ykkur um gagna- grunnsfrumvarpiö? Björgvin finnst eðlilegt að það verði samþykkt. „Sérstak- lega ef það bjargar mannslífum." Einar: „Ég er sömuleiðis fylgjandi því.“ „Mér finnst það ekkert sér- stakt,“ segir Ásta og bætir því við að þetta sé glæpaþjóðfélag sem við lifum í. Ég spyr þá hvort það sé eitt- hvað sem fari í taugarnar á þeim við samfélagið, fyrir utan þá stað- reynd að við lifum í glæpaþjóðfé- lagi. Björgvin baðar út höndum og segir að bjórinn og brennivínið sé allt of dýrt. Honum er mikið niðri fyrir. „Þetta er einfaldlega of dýrt vegna þess að það eru alkóhólist- ar sem drekka mest af þessu og þeim er alveg sama. Þetta gengur fyrir hjá þeim og því mótmæla þeir ekki.“ Hagfræðingurinn Einar er greinilega frjálshyggjumaður hvað bjór og léttvín varðar því hann vill selja það í matvöru- verslxmum og vitnar í könnun sem Bónus gerði um þetta mál. Hvaö um fíkniefni, á aö lögleiöa þau? „Það eiga bara ekki að vera til nein fíkniefni," svara Ásta, alvar- leg. Þetta var best 1974 Þorsteinn (Steini) Jón Ósk- arsson sjómaður mætir á staðinn. Fastagestirnir okkar heilsa og hann fær sér sæti hjá okkur og segir mér að skipið sé í slipp og því sé hann blankur þessa dagana. Þá biður hann um sopa af bjórnum en fær ekki. Ljósmyndarinn gefur honum bara sinn bjór, vel rúmlega hálfan. Finniöi fyrir góöœrinu? „Já, ég finn fyrir því,“ segir Einar og kveikir yfir- vegað í sígarettu. „Sérstak- lega eftir að áætlaður hagn- aður eftir níu mánaða upp- gjör íslandsbanka nam níu Þorsteinn Jón Oskarsson, kallaður Stelnl, ólst upp á Nesinu. Hann er sjómaður á rækjutogaranum Guðrúnu Hlín sem er í slipp. Stelni er því pínu blankur þessa dagana. hundruð milljónum. Og svo finnst mér matvöruverð fara lækkandi.“ Ásta er ósammála því og segir: „Ég finn jafnvel minna fyrir góð- æri nú en áður. Því það eru allir glæpamenn í þessu þjóðfélagi." „Ég finn fyrir góðæri," segir Steini. „Nema að það þarf að fara að veiða þorskinn svo við getum farið á rækju og það þarf líka að leyfa hvalveiðar." „Þetta var best hérna 1974,“ fullyrðir Björgvin og vinirnir kinka kolli til samþykkis. Hvaö um veiöileyfagjald, eruö þiö hrifin af því? „Nei,“ segir Einar. „Ég er mjög hrifinn af stefnu Þorsteins Páls- sonar og ríkisstjórnarinnar í þessum málum.“ Björgvin: „Við getum ekki lifað án kvóta.“ Ásta segir þá að þetta séu allt saman þjófar en Steini sjómaður hefði ekkert á móti því að útgerð- armennimir greiddu fyrir afnot- in af auðlynd allra landsmanna. Tár yfir jarðarförinni Ef það yrði kosið á morgun, hvað mynduð þið kjósa? Einar myndi að sjálfsögðu exa við D-listann, Davíð og hans fólk í Reykjavík. En Einar skýst snöggvast á barinn og heyrir ekki svör hinna. „Ekki neitt,“ segir Ásta í fússi. „Ég hef alla tíð verið sjálfstæð- ismaður," segir Björgvin og hall- ar sér fram á borðið. „Og ég verð það á meðan stefnan þeirra er eins og hún er.“ „Ég bara veit það ekki,“ segir Steini og tekur sopa af bjómum. „Ég á mjög erfitt með að ákveða 10 f Ó k U S 13. nóvember 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.