Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1998, Side 4
4
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998
Fréttir
Áttræð kona sem lést á sjúkrahúsi flutt heim og látin standa uppi i 9 daga:
Borgaraleg útför
á Skagaströnd
- fór fram í félagsheimili án prests en jarðsett var í vígðri mold á Spákonufelli
Afmælisljóð til Rósu frá
26. maí 1998 eftir Rúnar
Kristjánsson var flutt.
Eftir að útfararstjór-
inn flutti ættartölu og
æviágrip hinnar látnu
var m.a. sungið Ó, hve
létt er þitt skóhljóð en
síðan var kyrrðarstund
í 5 mínútur. Við svo
búið sungu Álftagerðis-
bræður Hvert örstutt
spor var auðnuspor
með þér, Undir dalanna
sól og að lokum Undir
háu hamrabelti höfði
drjúpir lítil rós.
Aðspurður um
ástæðu þess að kona
hans var flutt heim og
látin standa uppi sagði
Björgvin:
„Hún vildi ráða
þessu sjálf. Hún gat
með engu móti hugsað
sér að vera geymd í lík-
húsi.“
Þetta var algengt fyrir nokkrum
árum að fólk stæði uppi heima, ekki
síst í dreifbýli, þ.e.a.s. ef fólk lést
ekki úr smitsjúkdómum, sagði
Björgvin. „Konan var flutt beint
heim af Héraðssjúkrahúsinu þegar
hún lést þann 10. október. Við
bjuggum hérna tvö ein í Miðnesi.
Það var síðan mitt mál hvort ég
vildi vera hér í íbúðinni á meöan.
Það gerði ég að sjálfsögðu."
Hvorki Rósa heitin né Björgvin
maður hennar voru í þjóðkirkjunni.
„Ég hafði reyndar verið í henni
þangað til fyrr á þessu ári. Þá ákvað
ég að færa mig. Við vorum bæði
utan trúfélaga," sagði Björgvin.
Kistulagning konunnar fór fram í
Miðnesi þann 19. október. Sama dag
fór útfórin fram frá félagsheimilinu
Fellsborg. Rósa Pétursdóttir var síð-
an jarðsett í kirkjugarði Skag-
strendinga á Spákonufelli. Þar
sungu Álftagerðisbræður sem loka-
kveðju Blessuð sértu sveitin mín.
Sá óvenjulegi atburður gerðist í
október að borgaraleg útför fór fram
í félagsheimilinu Fellsborg á Skaga-
strönd. Það var Rósa Pétursdóttir,
áttræð, sem var jarðsungin. Þegar
hún lést á Héraðssjúkrahúsinu á
Blönduósi var hún flutt heim til sin
í Miðnes á Skagaströnd þar sem
hún var látin standa uppi í 9 sólar-
hringa. Þar lá hún á líkbörum á
heimili eftirlifandi manns sins,
Björgvins Brynjólfssonar, sem
slökkti á kyndingu, opnaði glugga
og hafði logandi ljós í herbergi kon-
unnar að gömlum sið.
Útfórin var ekki auglýst. Hún fór
fram í kyrrþey, að ósk hinnar látnu.
Um fimmtíu manns voru við jarðar-
fórina sem fór ekki fram í kirkju og
var án prests. Útfararstjóri úr
Reykjavík, Rúnar Geirmundsson,
var fenginn til að koma norður og
sjá um útförina. Álftagerðisbræður
sungu en þó voru engir sálmar á
söngskránni.
„Við köllum þetta borgaralega út-
Rúnar Geirmundsson, útfararstjóri frá Reykjavík, flytur ættartölu og æviá-
grip hinnar látnu.
Úr útfararskrá Rósu Pétursdóttur.
... höfði drjúpir lítil rós
í upphafi útfarar sungu Álftagerð-
isbræður Skin við sólu Skagafjörð-
ur, Ætti ég hörpu hljómaþýða og
Ljómar heimur loga fagur, áður en
Hin látna borin inn að félagsheimilinu Fellsborg þar sem útförin fór fram.
för eða eitthvað í þá veru. Þetta var
kannski gert með svolítið óvenjuleg-
um hætti,“ sagði Björgvin Brynjólfs-
son við DV.
Vertu með á miðjunni
Kjörorð framsóknar-
manna á flokksþinginu
og væntanlega í næstu
kosningum er ákall til
þjóðarinnar um aö vera
með á miðjunni. Það geta
auðvitað ekki allir verið
með á miðjunni en Fram-
sókn mun gera sitt besta.
Það felst meðal annars í
þvi að kjósa Finn í vara-
formannsembættið í stað-
inn fyrir konu. Þannig
vill Halldór og Framsókn
fá fleiri konur í póhtík en
ekki alveg strax. Fram-
sókn vill taka upp við-
ræður við Evrópubanda-
lagið en ekki alveg strax
og Framsókn vill um-
hverfisvemd en ekki al-
veg þar sem hennar er
þörf. Framsókn og Hall-
dór vilja meira að segja
breyta kvótakerfinu en
ekki fyrr en tryggt er að
breytingin breyti engu. Arðurinn á ekki að vera
fyrir fáa útvalda en samt verður að tryggja að
þeir tapi ekki arðinu.
Þannig staðsetur Framsóknarflokkurinn sig á
miðjunni, með því að vera á móti málum en þó
með þeim og hann er með þeim til að þurfa ekki
að vera á móti þeim og er ekki á móti góðum mál-
um þó hann sé ekki endilega með þeim. Og hann
er með konum en ekki öllum konum. Siv er góð
kona og skilur þetta og sagði í ávarpi til þingsins,
eftir að þingið hafnaði henni, að Framsóknar-
flokkurinn væri góður flokkur og öll dýrin í skóg-
inum voru góð viö hvort annað og Finnur ætlar
til að mynda að vera góður við Siv, af því að
hann var kosinn og Siv hefur ekki nægilega
mikla reynslu til að taka við af Halldóri, ef Hall-
dór hættir skyndilega. Án þess þó að það standi
til hjá Halldóri að hætta skyndilega.
En þannig er Framsókn inni á miðjunni og
með allt á hreinu og er með án þess að vera á
móti og á móti án þess að vera beinlínis með.
Gamli foringinn, Steingrimur Hermannsson, er
farinn að bila í þessari pólitík. Steingrímur kom
á flokksþingið og las upp pabbasögur úr bókinni
sinni og sjálfsagt líka kafla um það hvemig hann
skildi við amerísku konuna sína og annað það
sem hann taldi að ætti erindi við framsóknar-
menn. Var gerður góöur rómur að þessum sögu-
lestri gamla foringjans en svo klikkaði Steingrím-
ur á því að fara taka aftur til máls og hvetja flokk-
inn til að setja Eyjabakkana í umhverfísmat.
Þaö gekk ekki hjá Framsókn, sem vill vera á
miöjunni. Framsóknarmenn vilja að vísu mn-
hverfismat, en ekki umhverfismat í Eyjabökkum,
vegna þess að það kann að eyðileggja stefhuna í
orkumálunum og þess vegna samþykkti flokks-
þingið umhverfismat, án þess að tilgreina hvar
það umhverfismat ætti að fara fram, enda stang-
ast það á við þá stefnu aö vilja vera með á miðj-
unni ef menn segja of mikið og margt áður en
flokkurinn er búinn að segja hvort hann sé með
eða á móti.
Steingrímur er of gamall til skilja þetta.
Dagfari
Stuttar fréttir i>v
Verður frestað
Ríkisútvarpið greindi frá því að
yfirfærslu á málefnum fatlaðra til
sveitarfélaga
yrði frestað með
breytingum á
lögum. Sam-
kvæmt gildandi
lögum áttu sveit-
arfélögin að taka
við hlutverki rik-
isins á þessu
sviði 1. janúar en komið hefur í
ljós að mörg þeirra þurfa lengri
tíma til undirbúnings. í fréttinni
sagði að félagsmálaráðherra vildi
ekkert segja um hvenær sveitarfé-
lög hafa að fullu tekið við málefn-
um fatlaðra.
20% meira
Ríkisútvarpið greindi frá því að
útflutningsverðmæti saltfískaf-
urða hefði verið um 20% meira
fyrstu 9 mánuöi ársins en á sama
tíma í fyrra samkvæmt Hagtíð-
indum sem gefin eru út af Hag-
stofu íslands.
Geta lækkað verð
Ríkisútvarpið greindi frá því að
EFTA-dómstóllinn heföi sent frá
sér ráðgefandi álit vegna ákvörð-
unar Lyijaverðsnefndar um verð-
lækkun á lyfjum til samræmis við
lyfjaverð í nágrannalöndunum en
hér var heildsöluverðið 20-120%
hærra en þar. Dómstóllinn taldi
að yfirvöld gætu lækkað há-
marksverð í heildsölu til þess að
lækka lyfjaverð til almennings.
Fellur ekki frá kröfu
Ríkisútvarpið greindi frá því að
Kvennalistinn hefði ekki fallið frá
kröfu um eitt af þremur efstu sæt-
um á framboðslista í Reykjanes-
kjördæmi. Viðræðunefndin fund-
ar á mánudaginn og í næstu viku
verður einnig félagsfundur
Kvennalistans í Reykjaneskjör-
dæmi.
Kerfið ræst
í dag kl. 14.30 verður öryggis-
myndavélakerfið fyrir miðborg
Reykjavíkur tek-
ið formlega í
notkun. Pétur
Sveinbjamar-
son, fram-
kvæmdastjóri
Þróunarfélags
Reýkjavíkur,
mun fyrir hönd verkefnisstjómar
afhenda Böðvari Bragasyni lög-
reglustjóra kerfið til starfrækslu
en að því loknu mun Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
ræsa kerfið.
Jarðskjálfti
Ríkisútvarpið greindi frá því að
jarðskjálfti heföi orðið á Hengils-
svæðinu í fyrrakvöld. Hann
mældist 3,5 á Richter og vom upp-
tök hans rétt norðan Hveragerðis.
Nokkrir eftirskjálftar fylgdu í
kjölfariö.
Mikilvægara en fyrr
Dagur greindi frá því að Ólafur
Ragnar Grimsson, forseti íslands,
hefði sagt í viðtali við Göteborgs-
Posten að norrænt samstarf væri
mikilvægara en nokkru sinni
fyrr. Hann sagði að íslendingar
gætu ekki látið Evrópusamband-
inu eftir forsjá fiskimiðanna en
taldi að yrði breyting á og íslend-
ingum tryggt forræði fiskstofn-
anna væri aðild að Evrópusam-
bandinu ekki útilokuð.
Gegn ölvunarakstri
í dag verður kynnt átakið
„Endum ekki jólagleðina með ölv-
unarakstri" en
að því standa ís-
lensku bifreiða-
tryggingafélögin,
Sjóvá-Almennar
tryggingar hf.,
Trygging hf.,
Tryggingamið-
stöðin hf. og Vát_
lands hf. Samstarfsaðilar eru
Læknafélag íslands, lögreglan og
Umferðarráð auk þess sem fleiri
aðilar styðja átakið. Meðal þeirra,
sem koma fram á kynningunni,
era Guðmundur Björnsson, for-
maður Læknafélags íslands, og
Haraldur Johannessen ríkislög-
reglustjóri. -SJ