Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1998, Síða 8
8
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998
Útlönd
Mannréttindasamtök fagna niöurstööu lávaröanna:
Pinochet berst
gegn framsali
Bill Clinton Bandaríkjaforseti.
Rannsóknin á
viðkvæmu stigi
Formaður dómsmálanefndar
fulltrúadeildar Bandaríkjaþings,
Henry Hyde, tjáði Bill Clinton
Bandaríkjaforseta í bréfi í gær að
rannsóknin í málinu sem leitt
gæti til embættismissis væri
komin á viðkvæmt stig. Þörf
væri á meiri samvinnu frá Hvíta
húsinu.
Kvaðst Hyde myndu hvetja til
að Hvíta húsinu yrði birt stefna
hefðu fullkomin svör við 81
spumingu vegna Lewinsky-máls-
ins ekki borist á mánudaginn.
Hvíta húsið hafði áður tilkynnt I
gær að svörin yröu send á fostu-
daginn. Spurningarnar tengjast
aðallega viðræðum Clintons við
aðstoðarmenn sína um samband-
ið við Monicu Lewinsky, fyrrver-
andi lærling í Hvíta húsinu.
Hafa lík
Grænlendings
á sýningu
„Við höfum beðið um aö fá þaö
staðfest að um sé að ræða Græn-
lending og í framhaldi af því að
fá líkið sent heim. Það er ekki
hægt að hafa lík manns til sýn-
is,“ segir Jonathan Motzfeldt,
landstjórnarformaður á Græn-
landi, við útvarp landsins.
Nú á dögunum varð uppvíst að
lik Grænlendings, sem dó fyrir
um 200 árum, er almenningi til
sýnis í Rotterdam í Hollandi. Lík-
ið er sýnt sem dæmi um útlit
fólks af frumstæðum þjóöum og
hafa Grænlehdingar brugðist
hart við þeirri niðurlægingu sem
í þessu er fólgin.
„Hér er um að ræða
langalangaafa fólks sem nú er
uppi. Eðlilega tekur það sér þetta
nærri," segir Motzfeldt. -GK
Mannréttindasamtök í Rómönsku
Ameríku fögnuðu mjög niðurstöðu
bresku lávarðadeildarinnar í gær
þess efnis að Augusto Pinochet,
fyrrum einræðisherra í Chile, nyti
ekki friðhelgi. Þrír dómarar af
fimm voru þeirrar skoðunar. Pin-
ochet verður áfram í haldi á Bret-
landi og á yfir höfði sér að verða
framseldur til Spánar. Sjálfur segist
einræðisherrann fyrrverandi ætla
að berjast gegn framsali.
„Hann mun berjast áfram fyrir
því sem hann telur rétt vera,“ sagði
chileski þingmaðurinn Hernan
Larrain sem huggaði Pinochet á 83
ára afmælisdegi hans í gær, sama
dag og úrskurðurinn féll.
Argentínski friðarnóbelshafinn
Adolfo Perez Esquivel sagði mikil-
vægt að breska lávarðadeildin hefði
ekki varpað fyrir róða mannrétt-
indabaráttu undanfarinna fimmtíu
ára.
„Pinochet er glæpamaöur og það
á að rétta yfir honum,“ sagði Perez
Esquivel í samtali við fréttamann
Reuters.
Stjórnvöld í Chile hétu því að
berjast gegn niðurstöðu lávarðanna
fimm sem kváðu upp úrskurðinn.
Eduardo Frei Chileforseti sagðist
mundu senda mótmæli til breskra
stjómvalda vegna málsins i dag. Ut-
anríkisráðherra Chile hefur einnig
verið sendur til Evrópu til að kynna
afstöðu chileskra stjórnvalda.
Pinochet verður nú að bíða í Bret-
landi þar til dómstólar hafa tekið af-
stöðu til framsalsbeiðni frá spænsk-
um dómara sem vill sækja einræðis-
herrann fyrrverandi til saka fyrir
þjóðarmorð og fleiri glæpi á sautján
ára stjómartíð hans. Jack Straw,
innanríkisráðherra Bretlands, getur
þó ákveðið að veita hinum aldna
Pinochet frelsi. Hann hefur frest til
2. desember til að ákveða það.
Þegar niðurstaða lávarðanna lá
fyrir braust út mikil reiði meðal
stuðningsmanna Pinochets heima í
Chile. Um þrjú hundruð stuðnings-
manna hans létu reiði sína meðal
annars bitna á fréttamönnum og
hrópuðu ókvæðisorð að þeim.
Stuðningsmennirnir vom saman
komnir í Pinochet-stofnuninni sem
veitir styrki til herskólanáms í
Chile.
Meira en eitt hundraö útlagar frá
Chile komu saman í Madrid á Spáni
til að fagna. Þá sagði Mary Robin-
son, mannréttindastjóri S.Þ., niður-
stöðuna uppörvun fyrir alla þá sem
berjast fyrir mannréttindum í heim-
inum.
Hann leynir sér ekki fögnuðurinn yfir úrskurði æðsta dómstóls Bretlands í gær um aö Augusto Pinochet, fyrrum ein-
ræðisherra í Chile, njóti ekki friðhelgi í Bretlandi. Konurnar eru í samtökum ættingja fórnarlamba harðstjórans.
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Funafold 99, þingl. eig. Gunnar Hákon
Jörundsson, gerðarbeiðandi Sameinaði
lífeyrissjóðurinn, mánudaginn 30. nóv-
ember 1998 kl. 16.00.____________
Grundarhús 2, 4ra herb. íbúð á 1. hæð 2.
íbúð frá vinstri merkt 0102, þingl. eig.
Valgerður Guðmundsdóttir, gerðarbeið-
endur Byggingarsjóður verkamanna og
Páll H. Pálsson, mánudaginn 30. nóvem-
ber 1998 kl. 15.30.______________
Grýtubakki 10, 76,9 fm 3ja herb. íbúð á
2. hæð m.m. ásamt geymslu í kjallara
merkt 060002, þingl. eig. Sigríður Sigur-
bjömsdóttir, gerðarbeiðandi Byggingar-
sjóður verkamanna, mánudaginn 30. nóv-
ember 1998 kl. 17.00.
Gyðufell 4, 3ja herb. íbúð á 3. hæð f
miðju m.m., þingl. eig. Geir Snorrason,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verka-
manna, mánudaginn 30. nóvember 1998
kl. 17.30._______________________
Gyðufell 8, 2ja herb. íbúð á 4. hæð í
miðju m.m., þingl. eig. Húsnæðisnefnd
Reykjavíkur, gerðarbeiðandi Byggingar-
sjóður verkamanna, mánudaginn 30. nóv-
ember 1998 kl. 18.00.
Háberg 22, þingl. eig. Guðmundur Ámi
Hjaltason og Vilborg Benediktsdóttir,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins,
mánudaginn 30. nóvember 1998 kl.
15.00.
Hverfisgata 52, 010301, 193,7 fm íbúð á
3. hæð, þingl. eig. Rósa Marta Gunnars-
dóttir, gerðarbeiðendur Húsbréfadeild
Húsnæðisstofnunar og Tollstjóraskrif-
stofa, mánudaginn 30. nóvember 1998 kl.
13.30.
SÝSLUMAÐURINN f REYKJAVÍK
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eign veröur háð á skrifstofu
embættisins að Skógarhlíð 6,
Reykjavík, sem hér segir:
Ámes RE, skipaskmr. 994, þingl. eig. Ey-
steinn Þórir Yngvason, gerðarbeiðandi
Tollstjóraskrifstofa, mánudaginn 30. nóv-
ember 1998 kl. 11.00.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Prímakov samur við sig:
Hyggur ekki á
forsetaframboð
Jevgení Prímakov, forsætisráð-
herra Rússlands, hefur ekki skipt
um skoðun: Hann ætlar ekki að
bjóða sig fram til forsetaembættisins
þótt hann njóti vinsælda meðal al-
mennings í skoðanakönnunum eftir
tveggja mánaða stjómarforystu.
„Nei. Hún hefur ekkert breyst,"
sagði Prímakov þegar hann var
spurður hvort hann hefði skipt um
skoðun. Forsætisráðherrann lýsti
því nýlega yfir að það yrði algjört
„brjálæði" fyrir sig að bjóða sig
fram í kosningunum sem eiga að
fara fram um mitt árið 2000.
Prímakov hefur borið hitann og
þungann af stjóm landsins að und-
anfómu þar sem Borís Jeltsín for-
seti hefur ekki mátt sín mikils
vegna heilsubrests. Forsetinn hefur
nú legið á sjúkrahúsi með lungna-
bólgu í á fjórða sólarhring og losnar
ekkert fyrr en í næstu viku.
Prímakov hefur sjálfur alltaf sagt
að hann hafi ekki tekið forystuhlut-
verkið að sér nema fyrir þrábeiðni
Jevegení Prímakov, forsætisráð-
herra Rússlands.
forsetans. „Allt brjálæði hefur sín
takmörk. Ég fyllti kvótann þegar ég
féllst á að verða forsætisráðherra,"
sagði Primakov við fréttamenn.
Stuttar fréttir ðv
80 létust í lestarslysi
Að minnsta kosti 80 manns létu
lífið og 250 slösuðust á Indlandi
þegar hraðlest ók á vagna far-
þegalestar sem farið höfðu út af
sporinu á milli Nýju Delhi og Am-
ritsar.
Geta ekki borgað
Yfirvöld í Rússlandi hafa til-
kynnt að þau geti ekki greitt af
lánum frá vestrænum bönkum
sem gjaldfalla í næstu viku.
Styðja Milosevic
Kínverska stjómin ítrekaði í
gær stuðning sinn við Júgóslavíu
í Kosovodeil-
unni. Stjórnin
staðfesti sam-
tímis vináttu
sína við Slobod-
an Milosevic
forseta. Yfirlýs-
ingin var gefin í
Peking í boði
fyrir sendinefnd flokks Milos-
evics.
Rændu börnum
Fyrrverandi herforinginn Leo-
poldo Galtieri getur orðið næsti
argentíski herforinginn sem verð-
ur ákærður vegna stulds á böm-
um. Herforinginn Massera var yf-
irheyrður á þriðjudag vegna ráns
á bömum.
Féll í krókódílalaug
Nær áttræður Flórídabúi féll í
krókódílalaug er hann gekk í
svefni bak við hús sitt. Þegar
Flórídabúinn vaknaði syntu 1
metra langir krókódílar í kring-
um hann en honum tókst að
halda þeim frá sér með staf. Ná-
granni vaknaði við hróp og bað
lögregluna um aðstoð.
Mök við fórnarlamb
Ein af þeim 180 sænsku stúlk-
um sem tilkynntu að þær hefðu
haft mök við alnæmissmitaða
iranann sakar nú lögreglumann
sem vann að rannsókn málsins
um að hafa haft mök við sig.
Iðrast einskis
Anatolíj Onoprienko, sem játað
hefrn- að hafa framið 52 morð,
kveöst einskis
iðrast. Onopri-
enko, sem nú er
réttað yfir í
Úkraínu, kveðst
elska alla menn
og einnig þá
sem hann
myrti. Hann
kveðst hafa horft í augu barnanna
sem hann myrti og hafa vitaö að
hann yröi að ráða þau af dögum.
Afsökunin ekki nægileg
Kina og Japan geta ekki undir-
ritað í dag sameiginlega yfirlýs-
ingu um samband sitt þar sem
Kínverjar eru ekki ánægðir með
afsökunarbeiðni Japana vegna
stríðsaðgerða sinna í seinni
heimsstyrjöldinni.
Vill réttlát réttarhöld
Kúrdaleiðtoginn Abdullah
Öcalan kvaðst í gær fús til að
koma fyrir rétt í landi þar sem
hann fengi réttláta meðferð.
Fundað um írak
Sandy Berger, þjóðaröryggis-
ráðgjafi Bills Clintons Banda-
ríkjaforseta,
átti í gær fund
með æðstu
ráðamönnum
Bandarikjanna
um ástandið í
Irak. Ekki voru
teknar mikil-
vægar ákvarö-
anir á fundinum. Vopnaeftirlits-
menn Sameinuðu þjóðanna sneru
til Bagdad í síðustu viku.
Hætti við Svissferð
Netanyahu, forsætisráðherra
ísraels, hætti í gær við heimsókn
til Sviss. í staðinn reyndi forsæt-
isráðherrann að fá David Levy,
fyrrverandi utanrikisráðherra,
til að ganga til liðs við stjómina
á ný.