Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1998, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998
9
Utlönd
Tyrkneska stjórnin sagði af sér:
Spillingin varð
Yilmaz að falli
Forseti Tyrklands leitar nú log-
andi ljósi að nýjum forsætisráð-
herra til að binda enda á óvissuna í
tyrkneskum stjómmálum í kjölfar
afsagnar minnihlutastjórnar íhalds-
manna.
Mesut Yilmaz forsætisráðherra
baðst lausnar fyrir þriggja flokka
stjórn sína í gær eftir að meirihluti
þingsins samþykkti vantraust á
hana vegna ásakana um spillingu í
tengslum við einkavæðingu banka.
Hann sagðist þó ætla að sitja áfram
þar til ný stjórn hefði verið mynd-
uð.
Suleyman Demirel forseti fyrir-
hugar að hitta Tansu Ciller, fyrrum
forsætisráðherra, og Bulent Ecevit,
leiðtoga lýðræðislega vinstriflokks-
ins, að máli í dag.
Gamalgróin óvild milli leiðtoga
stjórnmálaflokkanna gæti valdið
erfiðleikum við myndun nýrrar
stjórnar, svo og skaðað tilraunir
Tyrkja til að koma kúrdíska skæru-
liðaforingjanum Öcalan, sem nú er
á Ítalíu, fyrir rétt.
Forsetinn, sem sjálfur er gamal-
reyndur stjórnmálamaður og fyrr-
um forsætisráðherra, sagði þó að
ekki yrði um neitt valdatóm að
ræða.
„Ég mun hlusta á alla flokka sem
Mesut Yilmaz sagði af sér sem for-
sætisráðherra Tyrklands vegna
ásakana um spillingu í tengslum við
einkavæðingu banka.
eiga fulltrúa á þingi. Að þeim við-
ræðum loknum mun ég kanna
hvaða líkur eru á myndun nýrrar
stjórnar," sagði Demirel áður en
stjómin var felld í þinginu.
Fórnarlömb jarðskjálftanna sem gengu nýlega yfir Kína bíða eftir aðstoð. Að
minnsta kosti þrír fórust og fimmtán hundruð slösuðust í skjálftunum sem
voru 5 og 6,2 stig á Richter. Símamynd Reuter
Foreldrar lítils hjarta-
sjúklings taldir af
Talið er að sautján mánaða gamall
drengur frá Honduras, sem í gær
gekkst undir aðgerð í Alabama í
Bandaríkjunum vegna gats á hjarta,
hafi misst foreldra sína í fellibylnum
Mitch sem gekk yfir Mið-Ameríku á
dögunum. Drengurinn, Jose Agui-
erre, sem er með Downs-heilkenni,
kom til Bandaríkjanna síðastliðið
sumar á vegum góðgerðastofnunar.
Talsmaður sjúkrahússins, sem
Jose litli liggur á, sagði að síðast
hefði heyrst frá foreldrum drengsins
í september síðastliðnum.
Jose var sendur einn til Bandaríkj-
anna síðastliðið sumar og var honum
komið fyrir hjá bandarískri íjölskyldu.
Ráðgert var að foreldrar litla drengs-
ins myndu koma síðar til hans.
Að sögn talsmanns sjúkrahússins
dafnar Jose litli vel. Auglýst hefur
verið eftir foreldrum drengsins án ár-
angurs. „Ég get ekki hugsað þá hugs-
un til enda að foreldrarnir hafi yfir-
gefið drenginn. Þeir voru í sambandi
við okkur áður en fellibylurinn gekk
yfir. Síðan hefur ekkert heyrst frá
þeim,“ sagði talsmaðurinn.
Vörtduð
dagatöl og jólakort
í miklu úrvali.
Sérmerkt fyrir þig
Nýjar víddir
i hönnun og útgáfu
Snorrabraut54 (&561 4300 [J561 4302
Má bjóða þér betri
liancl [ b:
*
M A R T E X
handkleeði
cimerísk
hágceðavara
k Baðmottur
)( Baðhandklceði
Skrauthandklceði
avanti
Opiá
Mán. til f'ös. 09-líi
Laimard. 10-1 (»
Mörlíinni 4 • 108 Reylzjavík
bíini: 533 3500 • Fax: 533 3510 • www.mareo.is
Vlð styðjum við bakið á þér!