Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1998, Qupperneq 19
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998
19
Sé eignaskatturinn þyrnir í augum má losna við hann á einfaldan hátt:
Ríkistryggð bréf
keypt fyrir lánsfé
- seld eftir áramót og skuldin gerð upp
Eignaskattur er mörgum þyrnir í
augum enda er veriö að borga skatt
ár eftir ár af sömu eigninni, oft íbúð
eða húsi. Að auki er eignaskattur
hár á íslandi miðað við aðrar þjóð-
ir.
Eignaskattur er reiknaður út frá
eignaskattsstofni sem er hrein eign,
þ.e. eign að frádregnum skuldum.
Til eigna teljast allar fasteignir, bú-
peningur, lausafé sem ekki er heim-
ilt að fyma og ekki er notað í at-
vinnurekstri eða sjálfstæðri starf-
semi, vörubirgðir, hutabréf á nafn-
verði, erlendir peningar, innstæður
og kröfúr o.fl.
Tvö þrep
Ekki verður farið í það hér
hvemig eignaskattsstofn er reikn-
aður. En um tvö skattþrep er að
ræða: eignaskatt sem nemur 1,2%
og sérstakan eignaskatt (Þjóðarbók-
hlöðuskatt) sem nemur 0,25%.
Til að greiða eignaskatt verður
hrein eign einstaklings að vera
meiri en 3.651.249 krónur. Hjón
mega eiga tvöfalt meira eða
7.303.498 krónur áður en þau byrja
að greiða eignaskatt.
Sérstakan eignaskatt byrja ein-
staklingar að greiða þegar þeir eiga
meira en 5.277.058 krónur í hreinni
eign. Hann leggst þá ofan á eigna-
skattinn og skattprósentan verður
því 1,45%. Hjón mega hins vegar
eiga hreina eign að verðmæti
10.554.116 krónur áður en eigna-
skattsaukinn leggst á þau.
Gripið til aðgerða
Á álagningarseðlinum, sem kem-
ur inn um lúguna í byrjun ágúst,
má sjá hver eignaskattsstofninn er.
Hafi menn greitt eignaskatt og vita
að eignirnar hafa aukist á árinu
sem er að líða geta þeir gripið til að-
gerða til að losna við eignaskattinn.
Reyndar verður að reikna út áður
hvort þær aðgerðir svari kostnaði.
Aðgerðirnar ganga einfaldlega út
á það að fá lánsfé, t.d. yfirdráttar-
heimild, í banka eða sparisjóði og
nota féð til kaupa á rikistryggðum
bréfum sem ekki eru eignaskatts-
skyld - ríkisskuldabréfum, ríkis-
víxlum eða húsbréfum. Við áramót
á viðkomandi eignaskattsfrjálsa
eign upp á
ákveðna upp-
hæð og skuldar
sömu upphæð í
bankanum.
Skuldin kemur
til frádráttar við
útreikning á
eignaskatts-
stofni.
Einfaldað dæmi
getur litið svona
út: Hjón eiga
hreina eign upp
á 10 milljónir
króna. Þau
greiða 32.360
krónur í eigna-
skatt. Til að
fara með hreina
eign niður að
lágmarkinu fyr-
ir eignaskatt, úr
10.000.000 kr.
niður í 7.303.498
kr., fá þau
2.700.000 kr. yf-
irdrátt, t.d. í
desember, og
kaupa ríkis-
skuldabréf fyrir
sömu upphæð.
Eftir mánuð, í
janúar, selja
þau bréfin og fá
ávöxtun af þeim. Kostnaðurinn við
yfirdráttinn (14,95%) er um 32 þús-
und krónur fyrir einn mánuð. Það
er svipað og fjármagnstekjuskattur-
inn. Ávöxtun bréfanna ætti síðan
að gefa um 10-12 þúsund krónur
sem er hreinn hagnaður við aðgerð-
ina. Þetta dæmi lítur síðan betur út
því hærri sem upphæðirnar eru.
-hlh
Bpiartltittt prétMfe Eignarskattur og sérstakur eignarskattur Bnst. Hjón 10.554J16 mill. kr. 1,45% 1,45%
Hjón 1,2%
7.303.498 * P ■ 1,2«'" ifz%
Hjón 3K917M ^ 1.2% 0%
Ðnstaklinpjr 0%
Refsiákvæðum beitt greiði menn ekki í lífeyrissjóð:
10 prósent af reiknudu endurgjaldi
Frá og með 1. júlí í sumar var
öllum sem þiggja laun gert skylt
að greiða 10% af launum í lífeyris-
sjóð. Með þessum reglum var ekki
síst verið að ná til sjálfstæðra at-
vinnurekenda og einyrkja hvers
konar auk þeirra sem sinnt hafa
verktöku meðfram fastri vinnu. Ið-
gjaldagreiðslur þessara aðila hafa
í mörgum tilfellum verið litlar eða
alls engar.
Greiðsla iðgjalda hjá sjálfstæð-
um atvinnurekendum eða einyrkj-
um miðast við reiknað endurgjald
sem tekið er fram i reit F á Skila-
grein vegna launagreiðslna, ljós-
bláa miðanum frá ríkisskattstjóra.
Sé reiknað endurgjald 74.900 krón-
ur nemur iðgjaldið 10% af þvi eða
7.490 krónum. Iðgjald þetta skal þá
greitt í lífeyrissjóð eða viður-
kenndan séreignasjóð.
Þeir sem hafa tekjur af verktöku
meðfram fastri launaðri vinnu
verða einnig að greiða 10% lífeyr-
isiðgjald af reiknuðum launum
eða endurgjaldi. Sé um óreglulega
verktöku að ræða eða alls óvist
um tekjur kemur reiknað endur-
gjald einfaldlega fram við uppgjör
eftir áramót þegar rekstrarreikn-
ingur liggur fyrir. Er þá hægt að
greiða 10% iðgjald í lifeyrissjóð
samkvæmt því.
Upplýsingar bornar
saman
Nú, þegar rúmur mánuður er til
áramóta, huga sjálfsagt margir að
þessum málum og hugsa með sér
anburður hefur reyndar verið fram-
kvæmdur síðastliðin ár og hefur
bjargað þúsundum aðila sem gleymt
hafa að tilgreina iðgjöld í lífeyris-
sjóði, sem eru frádráttarbær, á
skattskýrslunni.
„Þetta gerist þannig að tölvukerf-
RSK
Slaðgreiðsla opinberra gjalda
Skilagrein vegna launagreiðslna
|(
ii
II í
j 999999-6669 10 1998 í*$ «ííw5í^ H >&&&&& ? — ú 4 p _ f S JH5is**5T y | iawRSpS'riisjjíeey 9. Mfc 326
j Jón Jónsson Langloku 16 999 Vaxtabæ \ ***•» — | ,«sfK«(.Án ttnfjujtfjúSl! 4 697
1 O **%*«&<&W&S 4. 629
]f *,***> C 74 .900 3
] Ai B *£- SlWMtrfiji’íi; 93 .552
\
1 ***** | ÍWittt 't*,n | _ J
Skatturinn inn-
heimtir ekki
- En hvað með mann sem borgar
ekki krónu í lífeyrissjóð?
„Það er ekki skattayfirvalda að
meta það en það er
ákvæði í lögunum sem
refsar mönnum fyrir
slíkt.
Lrfeyrisiðhjald:
, 10%=7.‘
hvað gerist hafl þeir ekki greitt iö-
gjöld eins og þeim ber. Samkvæmt
lögum var skattayfirvöldum gert að
fylgjast með greiðslu iðgjalda af
launum.
Steinþór Haraldsson, yfirlögfræð-
ingur hjá Ríkisskattstjóra, segir að
á næsta ári verði keyrðar út launa-
upplýsingar sem bornar verða sam-
an við iðgjaldagreiðslur. Þessi sam-
ið hjá okkur leitar að viðkomandi
kennitölu alls staðar, hjá öllum líf-
eyrissjóðum og launagreiðendum,
og þá kemur fram hvort samræmi
er milli launagreiðslna og reiknaðs
endurgjalds og síðan iðgjalda. Þeir
sem ekki hafa ekki staðið skil á ið-
gjöldum eiga þá að koma upp á mis-
munalista hjá okkur,“ segir Stein-
þór.
Það
er
þá
hið
opinbera sem fram-
fylgir því. Skatturinn er
einungis upplýsinga-
gjafi."
í samtölum við starfs-
menn lífeyrissjóða kom
fram að enn væri á huldu
hvemig þeir sem ekki
geiddu lífeyrisiðgjöld
yrðu „eltir uppi“.
Sá misskilningur hefur verið á
kreiki að greiði menn ekki í lífeyris-
sjóð muni iðgjaldið verða innheimt
með álagningarseðlinum í ágúst. Þá
verði margir fyrir 10% álögu og ið-
gjöldin rukkuð af launum manna það
sem eftir lifir árs. Þessi hugmynd
kom reyndar fram í upphaflegum
frumvarpsdrögum en var varpað fyrir
róða. -hlh
Bílalán
á ör-
skots-
stundu
Aldrei hefur verið auðveld-
ara en nú að fá bílalán. Gerð
hafa verið reikniforrit vegna
fjármögnunar bfiakaupa sem
þýða að sölumaður í bílaum-
boði getur fengið svar við um-
sókn um bílasamning á 10-15
sekúndum. Lýsing prófaði
beintengingu hjá nokkrum
bílaumboðum á höfuðborgar-
svæðinu í sumar og gekk vel.
Sé kaupandinn 25 ára, með til-
skilda útborgun og ekki skráð-
ur á vanskilalista, getur sölu-
maðurinn fengið samþykki og
umsóknamúmer um tölvu á
örskammri stundu. Nú er búið
að koma á þessari beinteng-
ingu í flest bílaumboð á höfuð-
borgarsvæðinu og nokkur um-
boð á Akureyri.