Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1998, Qupperneq 21
20
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998
21
Iþróttir
íþróttir
Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari:
Ekki eins áhyggjufullur
„Eftir þennan leik er ég ekki eins áhyggjufullur og ég
var viö að fara til Ungverjalands. Við getum spilað örlít-
ið betri vörn og þurfum að laga sóknarleikinn. Við vor-
um að sækja of mikið ofan í þá á miðjunni og þá sér-
staklega þegar við vorum að tapa niður forskotinu. Og
þá vorum við líka að misnota mög dauðafæri. Þannig að
það er allt sem segir okkur að við getum alveg eins unn-
ið leikinn í Ungverjalandi eins og þeir. Ungverjamir
spiluðu nákvæmlega eins og ég er búinn að sjá þá spila.
Þeir eru vel samæfðir enda að spila margir með sama
liðinu. Núna á ég eftir að kryfla þennan leik og í fram-
haldinu að ákveða hvort ég geri breytingar," sagði Þor-
björn Jensson landsliðsþjálfari.
Varnarleikurinn og markvarslan til
fyrirmyndar
„Það var mjög erfitt að horfa á leikinn. Ég ætlaði að
vera rólegur en ég gat það ekki. Ég var mjög ánægður með
vinnsluna í liðinu. Vamarleikurinn og markvarslan var
til fyrirmyndar og bjó til þetta forskot sem hðið náði. Óða-
gotið varð hins vegar fúllmikið þegar viö vorum komnir 7
mörkum yfir. Við hefðum þurft að spila örhtið klókari
bolta undir lokin. Um framhaldið er það að segja að það
ræðst mikið af því hvort við þurfum að ná í stig eða tapa
með tveimur mörkum. Strákamir fara auðvitað í leikinn
með því hugarfari að vinna,“ sagði Geir Sveinsson, sem
fylgdist með félögum sínum úr stúkunni.
Við förum áfram
„Ég var búinn að segja fyrir leikinn að auöveldasta
leiðin væri að vinna leikinn hér heima og ná í stig úti.
Það hefði ekki verið betra að vinna stóran sigur því þá
hefðum við þurft að verjast en nú þurfum við að sækja.
Við eigum góða möguleika ef við leggjum okkur svona
vel fram eins og í þessum leik. Við eigum samt meira
inni og ég hef alltaf haldið því fram að við vinnum
riðilinn og fóram áfram,“ sagði Valdimar Grímsson.
-GH
Vörnin og markvarslan var í góðu lagi hjá íslenska liðinu í gærkvöld gegn Ungverjum. Þegar aðeins stundarfjórðungur var eftir af leiknum hafði ungverska liðið aðeins skorað 14 mörk hjá því íslenska. Hér er besti leikmaður Ungverja, József Eles, að reyna markskot. Það er eins gott
fyrir okkar menn að hafa góðar gætur á honum í síðari leik þjóðanna ef ekki á illa að fara. íslendingar mæta Ungverjum aftur á sunnudaginn og þann leik verða íslendingar að vinna.
Island (13) 22
Ungveijaland (10) 19
1-0, 2-1, 3-2, 5-3, 7-4, 8-5, 10-6,
12-7, 12-9, (13-10), 13-11, 14-12,
17-12, 18-13, 21-14, 21-18, 22-18,
22-19.
Mörk íslands: Gústaf Bjarna-
son 5, Patrekur Jóhannesson 4,
Róbert Sighvatsson 4, Ólafur
Stefánsson 4, Valdimar Gríms-
son 4/3, Bjarki Sigurðsson 1.
Varin skot: Guðmundur
Hrafnkelsson 15.
Mörk Ungverjalands: József
Eles 6/2, László Sótonyi 4,
György Zsigmond 4, István
Pásztor 3, Balázs Kertész 1, Ist-
ván Gulyás 1.
Varin skot: János Szatmári
11/1.
Brottvísanir: ísland 8 mín.,
Ungverjaland 10 mín.
Dómarar: Vaclav Kohout og
Ivan Dolejs, Tékklandi. Góðir í
heildina, lentu í vandræðum í
hamaganginum í seinni hálfleik
en komust út úr því.
Áhorfendur: 3.500, full höU og
mögnuð stemning.
Maður leiksins: Guðmund-
ur Hrafnkelsson. Yfirburða-
maöur f liði íslands.
Munum keyra
upp hraðann
á heimavelli
- sagöi László Sótonyi, leikstjórnandi Ungverja
„Þetta var slags-
málaleikur og á köfl-
um ekki líkur hand-
bolta. Við getum ekki
verið annað en sáttir
við úrslitin en þau
voru á þann veg sem
við höfðum rætt fyrir
leikinn. íslenska vörn-
in var okkur erfið og
markvörðurinn sömu-
leiðis en hann var
besti maður liðsins.
Síðari leikurinn verð-
ur svipaður þessum,
barátta út í gegn en
við munum keyra upp
hraðann og spila betur
en við gerðum í þess-
um leik,“ sagði László
Sótonyi (nr. 4) leik-
stjórnandi ungverska
liðsins.
„Þetta var leikur
tveggja sterkra varna
en ég er fyrst og
fremst ánægður með
sigurinn þó svo hann
hefði mátt vera stærri.
Ég met möguleika okk-
ar á að komast áfram
mjög góða. Ef við höld-
um sömu stemningu í
liðinu og baráttu er ég
ekki smeykur," sagði
Guðmundur Hrafn-
kelsson.
„Við vorum að
klikka of mikið úr
dauðafærunum og þar
af leiðandi var sigur-
inn ekki eins stór. Við
vitum alveg stöðuna
fyrir síðari leikinn. Ég
reikna með þeim mjög
grimmum á sínum
heimavelli og við meg-
um passa okkur á að
verða ekki of varkár-
ir,“ sagði Bjarki Sig-
urðsson.
„Vörnin var mjög
góð hjá okkur en í
sókninni voru við
kannski að flýta okkur
of mikið. Þessi sigur
verður bara að duga.
Þeir koma til með að
spila hraðari bolta í
seinni leiknum og við
verðum bara að vera
tilbúnir aö mæta því,“
sagði Patrekur. -GH
tlHArgRR
riðill
Island-Ungverjaland..........22-19
Finnland-Sviss ............i kvöld
Ungverjal. 5 3 0 2 133-111 6
ísland 5 4 0 1 121-1016
Sviss 4 2 0 2 92-106 4
Finnland 4 0 0 4 79-107 0
Finnland leikur gegn Sviss í dag kl.
16.30 aö íslenskum tíma.
Guðm. Guðmundsson:
„Ég saknaði
Duranona"
„Ég var mjög ánægður með leik
liðsins á köflum, bæði í vöm og
sókn. En þegar upp var staðið var
það sóknarleikurinn sem varð
okkur að falli. Síðari háifleikurinn
var ekki nægilega góöur, þar var
mjög mikið af mistökum og ég
saknaði Duranona sárlega. Ég tel
aö hann hefði getað nýst okkur
mjög vel vinstra megin, það var
mjög lítil ógnun þar síðustu 20
mínúturnar, og Ólafur fann sig
ekki hægra megin. Þetta var því
mjög erfitt og á brattann að sækja
í sóknarleiknum. Vömin og
stórkostleg markvarsla héldu
liðinu uppi,“ sagði Guðmundur
Guðmundsson, þjálfari Fram. _yg
Guðmundur Guðmundsson,
þjálfari Framara.
- mikill klaufaskapur íslenska liðsins kom í veg fyrir stóran sigur á Ungverjum í stað aðeins þriggja marka sigurs, 22-19
Gústaf Bjarnason var markahæsti leikmaður íslenska liðs-
ins gegn Ungverjum og fagnar hér einu markanna.
Það er yfirleitt venjan að kætast
yfir sigmm, ekki síst ef lið númer 4
í síðustu heimsmeistarakeppni er
lagt að velli í mikilvægum leik eins
og þeim sem fram fór í Laugar-
dalshöllinni í gærkvöld. En það var
erfitt að fagna mikið eftir 22-19 sig-
urinn á Ungverjum - einfaldlega
vegna þess að það var mikill klaufa-
skapur að vinna ekki mun stærri
sigur og styrkja stöðuna í einvíginu
við Ungverja um Egyptalandsför enn
betur.
En - sigur var það samt, og nú
bíður íslenska liðsins svipað dæmi
og fyrir HM í Kumamoto. Að fara á
erfiðan útivöll og sækja þangað stig.
Það er þó hætt við að suðupotturinn
í Nýiregyháza á sunnudaginn verði
þyngra dæmi en Álaborg var um
árið. Stig verður ísland að fá - nema
Finnar taki stig af Sviss í kvöld eða
á sunnudaginn. Þá myndi tveggja
marka tap nægja.
Vörnin og markvarslan drógu
þennan sigur að landi. Hvorttveggja
var í hæsta gæðaflokki, baráttan í
vörninni með Júlíus Jónasson í
aðalhlutverki var gífurleg frá upp-
hafl og Guðmundur Hrafnkelsson
var í sínu besta formi fyrir aftan
hana. Það var hins vegar sóknarleik-
urinn sem brást. Hann skilaöi ekki
nema 13 mörkum í hús, hin níu
komu úr hraðaupphlaupum. Þetta
vom stóru vonbrigði kvöldsins. Með
eðlilegum sóknarleik hefði þessi
leikur unnist með 10 mörkum. Góð
tækifæri til að ná meira en fimm
marka forskoti í fyrri hálfleik fóru í
súginn og aftur þegar 10 mínútur
voru eftir og staðan 21-14. Það vant-
aði ógnunina fyrir utan og augljóst
að Róbert Julian Duranona hefði
verið góður liðsstyrkur síðasta
korterið. Því miður var hann ekki í
hópnum og það eru mistök.
Jú, það vom ljósir punktar í sókn-
inni, Róbert Sighvatsson og Gústaf
Bjarnason. Þeir nýttu sín færi vel.
Dagur Sigurðsson og Patrekur Jó-
hannesson vom mennimir á bak við
flest mörkin, bæði úr hefðbundnum
sóknum og með frábærum send-
ingum í hraðaupphlaupunum. Þeir
eiga það hins vegar sameiginlegt að
vanta aga og yfirvegun þegar mest
liggur við og gera sig seka um ótrú-
leg mistök af og til. Þá hefúr lengi
skort herslumun til að komast í
virkilegan heimsklassa og virðast
seint ætla að ná honum.
Ungverjar voru slegnir út af lag-
inu með grimmdarvörn og Ijóst er að
ekkert annað en endurtekning á
þeirri baráttu dugir á sunnudaginn.
Þorbjörn hafði greinilega unnið
heimavinnuna vel, sóknarleikur
ungverska liðsins var brotinn niður.
Hvort það dugar aftur er hins vegar
spurningin. Ungverjar eru með
sterkt lið og hafa eflaust dregið sinn
lærdóm af þessum slag. József Eles
hugsar eflaust íslendingum þegjandi
þörfma eftir slagsmálin í gærkvöid
og verður sá maður sem mest ríður
á að stöðva í Nýiregyháza. Ef það
tekst ekki eiga íslendingar ekki
annað erindi til Egyptalands næsta
vor en að skoða pýramída. -VS
íþróttafréttir eru einnig á bls. 22
Þorbjörn þjálfari og Júlíus fyrirliði hvetja félagana í Höllinni
í gærkvöld.
Kristján Arason, þjálfari FH-
inga I Nissandeildinni.
Kristján Arason:
„Góð vörn og
markvarsla"
„Vörnin og markvarslan vom
mjög góð, sem og hraðaupp-
hlaupin. Vandamálið var að við
skoruðum of fá mörk fyrir utan.
Við verðum að vinna leikinn í
Ungverjalandi á þessum atrið-
um. Þetta mun ráðast á varnar-
leiknum ásamt markvörslunni í
Ungverjalandi, og að skora úr
hraðaupphlaupum. Ungverjar
spiluðu fantagóða vörn en sókn-
arleikur þeirra er ekki beysinn.
Það verður mjög erfítt að spila
úti. Ef sóknin væri beittari væri
maður kannski ekki svo smeyk-
ur,“ sagði Kristján Arason,
þjálfari FH, við DV.