Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1998, Síða 23
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998
23
Bland í poka
Frode Olsen, markvörður norska
knattspyrnuliðsins Stabæk, er líklega
á leiö til Bolton i Englandi á láns-
samningi.
Guðni Bergsson er byrjaður að æfa
létt með Bolton eftir nárauppskurð-
inn á dögunum. Vonast er til að hann
geti leikið gegn Wolves 5. desember
en um það leyti fer annar varnarmað-
ur liðsins, Andy Todd, í uppskurð á
nára.
Selfoss og ÍBV leika i kvöld og ann-
að kvöld tvo leiki um Suðurlands-
meistaratitilinn i handknattleik
karla, og er spilað mn KÁ-bikarinn.
Spilað er samkvæmt reglum í Evr-
ópukeppni og veröur fyrri leikurinn i
Eyjum í kvöld kl. 20.30 og sá síðari á
Seífossi annað kvöld kl. 20.
Golfklúbbur Ness heldur aðalfund
sinn í A-sal Hótel Sögu á 2. hæö, á
laugardaginn kemur, 28. nóvember,
kl. 15.00.
Sigurd Rushfeldt, norski marka-
kóngurinn hjá Rosenborg, fer í upp-
skurð á ökkla um miðjan desember.
Þar með verður ekkert af sölu á hon-
um á næstunni en Rushfeldt hefur
verið oröaður viö Arsenal og fleiri
þekkt félög.
Norski knattspyrnumaðurinn Jan
Aage Fjortoft er á leiðinni frá Barns-
ley til þýska liðsins Eintracht Frank-
furt. Ef allt gengur að óskum verður
gengið frá samningsgerðinni í dag.
Þýska liðiö mun borga um 45 milljón-
ir fyrir leikmanninn sem ætlað er að
friska upp á sóknina sem hefur verið
slök í vetur. Þess má geta að Fjortoft
kom til Bamsley frá Sheffield United
í janúar og keypti Barnsley þá hann
fyrir 100 milljónir.
Brasilía og Júgóslavia standa best
að vigi á heimsmeistaramótinu í
blaki sem nú stendur yfir í Japan.
Þjóðirnar hafa fullt hús stiga eftir sex
leiki. Júgóslavar hafa aðeins tapað
einni hrinu til þessa og Brassamir
tveimur.
JKS/VS
íþróttir
w
Orn heföi náð
langt í Ríó
Örn Arnarson er í miklum ham þessa
dagana.
Afrekin sem sundkapp-
inn Örn Arnarson vann
um helgina og á mánudag
heföu fleytt honum langt á
fyrsta heimsbikarmóti
vetrarins í sundi sem
fram fór í Ríó de Janeiro í
Brasilíu um síöustu helgi.
Öm hefði sigrað í 200
metra baksundi, orðið
annar í 100 metra
baksundi og sjötti í 100
metra skriðsundi, miðað
við þá tíma sem þar náð-
ust.
Öm sagði í samtali við
DV sl. mánudag að hann
hefði ekki hvílt sig að
fullu fyrir bikarkeppnina
og ætti þar af leiðandi
eitthvað inni.
Fullhvíldan verður
fróðlegt að sjá þennan 17
ára gamla sundmann etja
kappi við þá bestu í Evr-
ópu en dagana 11.-13. des-
ember hittir hann þá fyrir
í Evrópumóti í ShefField.
-VS/JKS
„sjúkrarrúm
með nuddi,,
Gæðarúm
á góðu verði
á RB-rúmi
Stórsigur hjá Brynjari
Brynjar Valdimarsson, fyrrum
sexfaldur íslandsmeistari í snóker,
vann Jóhannes B. Jóhannesson, 5-0,
á fjórða og síðasta stigamóti ársins
um síðustu helgi. Arnar Petersen og
Jóhannes R. Jóhannesson urðu í
þriðja til fjórða sæti. Arnar Ric-
hardsson sigraði í 1. flokki, Zoph-
anias Árnason í 2. flokki og Gylfi
Ingason í öldungaflokki. -VS
Ragnar Bjömsson
Dalshraun 6, Hafnarfirði • Sími 555 0397
ÞORIRÞUTILKINA?
COKE, VÍSIR.IS, BUNAÐARBANKINN OG SAMBÍÓIN FAGNA HUGREKKI
í TILEENI AF SÝNINGU MULAN, NÝRRI STÓRMYND FRÁ DISNEY
Það eina sem þ«i þarft að gera til að eiga möguleika á að vinna glæsilega vinninga er að smella
þér inn á Vísir.is og svara nokkrum spurningum. Þó ertu kominn í pott sem verður
dregið úr mánudaginn 14. desember í beinni útsendingu á FM 95.7
AÐALVINNINGURINN
Aðalvinningurinn er einstök Mulan ævintýraferð fyrir tvo til Kína, sögustaðar
kvikmyndarinnar. Gist er í fimm daga á 5 stjörnu hóteli og allir markverðustu staðir
landsins heimsóttir. Vinningshafarnir fá 100.000 krónur í gjaldeyrí ogferðast
ásamt öðrum vinningshöfum víðs vegar að úr heiminum sem hafa unnið
Mulan feiki í sínu heimalandi.
lORSÝNiNCí
í KVÖl .D
(ENSKT TAU
. ir * :
MuIan
ÞÁTTTÖKUSEÐLAR
Ef þú ert ekki nettengdur geturðu orðið þér út um þátttökuseðil á Mulan
deginum á Smáratorgí laugardaginn 28. nóvember. Þar mun Vífilfell
gefa Mulan dót og gos og ýmsar uppákomur verða , tengdar myndinni, m.a.
heldur HK sýningu á Tae Kwan Do. Þátttökuseðlar verða að auki fáanlegir
um einhvern tíma, í útibúi Búnaðarbankans í Kringlunni.
=3*
FRUMSYN D A M O R G U N
3)
ÆSK U
BUNAÐARBANKINN
Traustur banki
iriiinTjxixiitiiiiiiTiiiiiriiiiiiiiiiii
www.visir.is