Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1998, Síða 26
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998
26
Fréttir
Svíöur gagnrýni formanns ÁTVR:
Eins og þeir séu í
gíslingu í Kópavogi
- segir verslunarstjórinn í vínbúð Kópavogsbúa
Einkarekstur á áfengissölu þýðir að aðeins tveir fastir starfsmenn vinna þar dags dag-
lega. Hér eru þau Ólafur Sveinsson, framkvæmdastjóri Listakaupa hf., Gunnhildur Ósk-
arsdóttir afgreiðslumaður, Sigrún Guðmundsdóttir, afgreiðslumaður á álagstímum, og
Ari Eggertsson verslunarstjóri. DV-mynd Teitur
Ef stjóm ÁTVR bæri saman
kostnaðinn sem er af vínbúðunum í
Kópavogi og í Hafnarfirði mundi
hún eflaust komast að raun um að
Kópavogur kemur betur út fyrir rík-
issjóð. Þetta telur Ari Eggertsson,
verslunarstjóri í vinbúðinni í Kópa-
vogi, afar líklegt. Verslunin er rek-
in af Listakaupum/Quelle-vörulist-
anum í samstarfi við ÁTVR að Dal-
vegi 2 í Kópavogi. Ari segir að
greinilega komi stjómin af fjöllum
og hafi ekki kynnt sér þessi mál
nægilega vel. Það hafi komið í ljós
þegar hann ræddi við Hildi Peter-
sen, formann stjómarinnar, í kjöl-
- far fréttar í DV.
Eins og DV greindi frá í fyrradag
hefúr stjóm Áfengisverslunarinnar
tekið U-heygju frá fyrri stefnumið-
um. Hún vill að hvarvetna þar sem
einhver mannskapur er fyrir skuli
ÁTVR annast um útsölu. Aðeins á
stöðum þar sem færri en 3.500
manns búi komi einkaframtakið til
greina.
„Hildur talar um í blaðinu að
ekki sé bara um að ræða peninga-
hliðina heldur líka þjónustuna.
Þama finnst mér að verið sé að
gagnrýna opinberlega starfsfólkið í
búðinni okkar. Eg skil bara ekki
hvert Hildur er að fara, hún hefúr
aðeins einu sinni mér vitanlega
komið héma í búðina, og það var
kvöldið áður en við opnuðum fyrir
tæpum tveimur árum,“ sagði Ari
Eggertsson 1 gær. Hann
segist ekki hafa fengið
gagnrýni af þessu tagi
fyrr, viðskiptavinir séu
þvert á móti afar ánægðir
með þjónustuna.
„Maður fær það á til-
finninguna að ÁTVR sé í
einhverri gíslingu í Kópa-
vogi en þannig er það
auðvitað ekki. En eflaust
hefði ÁTVR viljað hafa
meira um reksturinn að
segja varðandi ýmsar
breytingar í rekstri sem
kostar samstarfsaðilann
aukin fjárútlát sem
ÁTVR þarf þá að bæta,“
sagði Ari.
Vínbúð Kópavogsbúa
hefúr reynst vel frá upp-
hafi og umferðin á svæð-
inu margfaldast eftir að
Hagkaup og Rúm-
fatalagerinn fluttu í
Smárann. Einkarekstur-
inn þýðir að aðeins tveir
starfsmenn sjá um af-
greiðsluna en fá liðstyrk þegar al-
mestu annimar era.
-JBP
Fjölskyldu-
messa á
Eskifirði
DV, Estofitöi-
Fjölskyldumessa var nýlega í
Eskifjarðarkirkju. Fermingar-
börn og foreldrar þeirra fjöl-
menntu og fermingarböm, ásamt
yngri bömum og nemendum Tón-
listarskólans, tóku virkan þáttt í
messugjörðinni sem var með tón-
listarlegu ívafi, og spilaði prest-
urinn á gítar. Að lokinni messu
buðu foreldar fermingarbama öll-
um kirkjugestum í kafíi í húsi
Slysavamarfélagsins.
Var veitt af mikilli rausn. Ósk-
andi væri að allir væru jafh
ánægðir með sinn prest og við
Eskflrðingar eram með séra Dav-
íð Baldursson. Hann kennir böm-
unum frá unga aldri og undirbýr
þau vel fyrir ferminguna og þetta
jarðneska líf.
Séra Davíð kemur til okkar
eldra fólksins í Hulduhlíð á 3ja
vikna fresti og eram við glöð með
hve hann er mikilhæfúr prestur
því hann gefur okkur gott vegar-
nesti í sínum orðum. Hann fær
okkur til að skilja hvert annað
betur, þar af leiðandi er sam-
komulagið hjá okkur vistmönn-
um betra. Það er min ósk að allir
prestar landsins sinni sínum
verkum eins vel og séra Davið
gerir svo sannarlega í okkar
sókn. Regina
u
wwwvisirJs
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR
í
Selur eigin línu
út um allan heim
ÆHiíH'Mii
ustu ú
Anna Kristine
er vinsælust
Sérfræðingar
Að Sunnan á Héraði
Spilar
velmegunarpönk
Hef alltaf fílað
að stunda
kynlif á almannafæri
Farin að syngja
það sem henni líkar
f okus