Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1998, Síða 34
34
FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998
Fólk í fréttum
Finnur Ingólfsson
Finnur Ingólfsson, iðnaöar- og
viðskiptaráðherra, Jöklafold 15,
Reykjavík, var kjörinn varaformað-
ur Framsóknarflokksins á flokks-
þingi flokksins á Hótel Sögu sl.
sunnudag.
Starfsferill
Finnur fæddist í Vík í Mýrdal 8.8.
1954 og ólst þar upp. Hann lauk
prófi frá Samvinnuskólanum á Bif-
röst 1975, stúdentsprófi frá fram-
haldsdeild Samvinnuskólans í
Reykjavík 1978 og prófi í viðskipta-
fræði, þjóðhagfræðisviði, frá HÍ
1984.
Finnur var framkvæmdastjóri
Prjónastofunnar Kötlu í Vik í Mýr-
dal 1975-77, framkvæmdastjóri
Prjónastofunnar Dyngju á Egilsstöð-
um 1978-79, aðstoðarmaður sjávar-
útvegsráðherra 1983-87, aðstoðar-
maður heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra 1987-91. Hann hefur
verið alþm. fyrir Reykjaneskjör-
dæmi frá 1991 og er iðnaðar- og við-
skiptaráðherra frá 1995.
Finnur var formaður Stúdenta-
ráðs HÍ 1980-81 og formaður stjóm-
ar Félagsstofnunar stúdenta
1983-85.
Hann var formaður Sambands
ungra framsóknarmanna 1982-86,
hefur setið i miðstjóm Framsóknar-
flokksins frá 1982, í framkvæmda-
stjóm flokksins frá 1982, í lands-
stjórn Framsóknarflokks-
ins frá 1990, gjaldkeri
flokksins 1986-94, formað-
ur fulltrúaráðs framsókn-
arfélaganna í Reykjavík
1986- 91, formaður þing-
flokks framsóknarmanna
1994-95, sat í blaðstjórn
Tímans frá 1986, í stjórn
Prentsmiðjunnar Eddu
1987- 89, formaður nefndar
um endurskoðun al-
mannatrygginga 1988, for-
maður nefndar um sam-
starf sjúkrahúsanna í
Reykjavík 1989, í samninganefnd
Tryggingastofnunar ríkisins við
lækna 1987-91, formaður stjómar
Heilsugæsluumdæmis Austurbæjar
nyrðra 1991-94 og formaður sam-
starfsráðs heilsugæslustöðva í
Reykjavik 1991-94.
Finnur var varafuUtrúi þing-
mannasamkomu NATO 1991-93 og
varaformaður þingmannanefndar
íslands hjá RÖSE 1992-95.
Fjölskylda
Kona Finns er Kristín Vigfúsdótt-
ir, f. 30.12. 1955, hjúkrunarfræðing-
ur. Foreldrar hennar: Vigfús Magn-
ússon, f. 3.6. 1933, geðlæknir og
tryggingalæknir hjá Trygginga-
stofnun ríkisins, og k.h., Fanney
Reykdal, f. 20.12. 1933, d. 21.1. 1995,
húsmóðir.
Böm Finns og Kristínar:
Fanney, f. 30.7. 1980,
nemi við MS; Ingi Þór, f.
24.5. 1982, nemi við Borg-
arholtsskóla; Hulda, f.
7.11. 1989, grunnskóla-
nemi við Foldaskóla.
Bróðir Finns: Magnús, f.
14.2. 1948, húsasmíða-
meistari í Reykjavík,
kvæntur Björgu Jóns-
dóttur, móttökuritara
við Heilsugæslustöðina í
Grafarvogi en dóttir
þeirra er Svala.
Foreldrar Finns: Ingólfur Sæ-
mundsson, f. 3.12. 1916, fyrrv. skrif-
stofumaður hjá Kaupfélagi Skaftfell-
inga, og k.h„ Svala Magnúsdóttir, f.
20.3. 1920, d. 7.3. 1992, húsmóðir.
Ætt
Ingólfur er sonur Sæmundar, b. í
Sólheimakoti og Eyjahólum i Mýr-
dcd og síðar tómthúsmanns í Vík í
Mýrdal Bjarnasonar, b. í Hraunbæ
Þorsteinssonar. Móðir Sæmundar
var Margrét, hálfsystir Kristínar,
ömmu Vilhjálms Bjarnasonar, fram-
kvæmdastjóra Kassagerðar Reykja-
víkur, afa Elínar Hirst sjónvarps-
fréttamanns. Hálfbróðir Margrétar
var Gestur, langafl Þóris Páls Guð-
jónssonar, kaupfélagsstjóra í Borg-
amesi. Margrét var dóttir Bárðar, b.
á Hemra Jónssonar, og Guðrúnar
Sæmundsdóttur.
Móðir Ingólfs var Oddný Runólfs-
dóttir, b. á Suður-Fossi, bróður Ein-
ars, föður Þorleifs jarðfræðings.
Systir Runólfs var Þórunn, amma
Þórs Vigfússonar, fyrrv. skólameist-
ara á Selfossi, og Eggerts slökkvi-
liðsstjóra. Runólfur var sonur Run-
ólfs, b. í Skálmarbæ Gunnsteinsson-
ar, og Guðlaugar Eiríksdóttur. Móð-
ir Guðlaugar var Hildur Gísladóttir.
Móðir Oddnýjar var Guðný Ólafs-
dóttir.
Systir Svölu er Hulda, amma Egg-
erts Skúlasonar fréttamanns. Svala
er dóttir Magnúsar, skósmiðs og
pósts í Vík í Mýrdal Einarssonar, b.
i Steig Runólfssonar. Móðir Magn-
úsar var Kristín Magnúsdóttir, b. á
Brekkum Jónssonar, Lafranssonar.
Móðir Magnúsar var Þóra Jónsdótt-
ir. Móðir Kristínar var Ólöf Bjarna-
dóttir, b. á Litlu-Hólum Guðmunds-
sonar, og Karitasar Ólafsdóttur.
Móðir Svölu var Sigurbjörg Ein-
arsdóttir, f. á Giljum Hjaltasonar, b.
í Suður-Götu Einarssonar, Jóhanns-
sonar. Móðir Hjalta var Ragnhildur
Jónsdóttir. Móðir Einars var Tala
Runólfsdóttir, b, á Skaganesi Sig-
urðssonar, og Ingveldar Jónsdóttur.
Móðir Sigurbjargar var Ingibjörg
Siguröardóttur, b. á Giljum Áma-
sonar og Önnu Gísladóttur.
Andlát
Þórður Guðjohnsen
Þórður Guðjohnsen, verslunar-
maður við verslunina Hamborg í
Reykjavík, lést á Sjúkahúsi Reykja-
víkur, miðvikudaginn 18.11. sl.
Útfor hans fer fram frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík i dag, fimmtudag-
inn 26.11. kl. 13.30.
Starfsferill
Þórður fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann stundaði nám
við Verslunarskóla íslands, lauk
þaðan verslunarprófi 1956, lauk
stúdentsprófi þaðan 1958, stundaði
nám í verslunarrekstri í Kaup-
mannahöfn um skeið og stundaði
nám við lagadeild HÍ.
Þórður starfaði við verslunina
Hamborg um árabil. Þórður var rit-
stjóri Viljans, skólablaðs Vl, og gaf
út um skeið, ásamt Magna Magnús-
syni og Finni Kolbeinssyni, tímritið
Frímerkið. Hann var einn af stofn-
endum Félags frímerkjasafnara.
Fjölskylda
Sonur Þórðar er Friðjón Stefán
Guðjohnsen, f. 2.12.1967, kerfisfræð-
ingur í Reykjavík, kvæntur Gíslínu
Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra hjá
Marvís. Móðir Friðjóns er Herborg
Margrét Friðjónsdóttir, f. 20.11.
1937, þingskrifari.
Systkini Þórðar eru Kristin
Guðjohnsen, f. 10.5. 1928, fyrrv.
skrifstofumaður hjá Flugleiðum og
á hún eina dóttur; Stefán Guðjohn-
sen, f. 27.5.1931, viðskiptafræðingur
og forstjóri i Garðabæ, kvæntur
Guðrúnu Egilsdóttur Ragnars og
eiga þau fjögur böm; Dóra Guöjohn-
sen, f. 29.5. 1938, liffræðingur í
Reykjavík, gift Bergþór Jóhanns-
syni grasafræðingi og eiga þau fjór-
ar dætur.
Foreldrar Þórðar voru Jakob
Guðjohnsen, f. 23.1. 1899,
d. 11.10. 1968, verkfræð-
ingur og rafmagnsstjóri í
Reykjavík, og k.h., Elly
Hedwig Nowottnick, f.
2.3. 1903, d. 12.11. 1962,
húsmóðir.
Ætt
Jakob var sonur Stef-
áns Guðjohnsen, kaup-
manns á Húsavík, bróður
Þóru, móður Baldurs
Möller, fyrrv. ráðuneytis-
stjóra, fóður Markúsar Möller hag-
fræðings. Stefán var sonur Þórðar,
verslunarstjóra á Húsavík, bróður
Mörtu Maríu, móður Ingibjargar
Thors forsætisráðherrafrúar. Þórð-
ur var sonur Péturs, organleikara
við Dómkirkjuna og ættföður
Guðjohnsenættarinnar. Móðir Þórð-
ar verslunarstjóra var Guðrún Sig-
ríður Knudsen, dóttir
Lauritz Knudsen, ættfóð-
ur Knudsenættarinnar,
og Margrethe Andreu
Hölter. Móðir Stefáns
kaupmanns var Halldóra,
systir Sveinbjörns Svein-
björnsson tónskálds og
Lárusar dómstjóra. Hall-
dóra var dóttir Þórðar,
háyfirdómara í Reykjavík
Sveinbjörnssonar, og
Kristínar Katrínar, syst-
ur Guðrúnar Sigríðar
Knudsen.
Móðir Jakobs rafmagnsstjóra var
Kristín Jakobsdóttir, kaupmanns á
Vopnafirði Helgasonar og Elísabet-
ar Ólafsdóttur.
Elly Hedwig var dóttir Johan
August Nowottnick, vélfræðings á
Aldershof í Þýskalandi, og Berthu
Marie Nowottnick, f. Ackermann.
Þórður Guðjohnsen.
FYRSTUR MEÐ FRETTIRNAR
Til hamingju með afmælið 26. nóvember
95 ára
Sigríður Sigurðardóttir, Hafnarbraut 17, Hólmavík.
90 ára
Sveinbjörg Klemensdóttir, Grettisgötu 19, Reykjavík. Ársól Klara Guðmundsdóttir, Hrafnistu, Reykjavík. Sigurmundur Guðnason, Hringbraut 50, Reykjavík. Anna Halldórsdóttir, Víðilundi 6 H, Akureyri.
75 ára
Ingibjörg Pétursdóttir, Efstalandi 6, Reykjavík. Hjalti Sigfússon, Kambaseli 31, Reykjavík. Jón Bragi Hlíðberg, Smáraflöt 36, Garðabæ.
70 ára
Valdimar Ásgeirsson, Krammahólum 6, Reykjavík. Sigurveig Kristjánsdóttir, Skarðaborg, við Húsavík.
60 ára
Eggert Þorsteinsson, Hamrabergi 22, Reykjavík. Jóhanna Haraldsdóttir, Vesturbergi 163, Reykjavík. Guðný Hrönn Þorsteinsdóttir, Engihjalla 9, Kópavogi. Ester Bára Gústafsdóttir, Álfaskeiði 84, Hafnarfirði. Helgi Ingvarsson, Sólheimum, Hvolhreppi.
50 ára
Guðmundur Karl Stefánsson, Miðtúni 64, Reykjavík. Finnur Sigfús Illugason, Háaleitisbraut 34, Reykjavík. María Björg Jensen, Klyijaseli 6, Reykjavík. Gunnar Vilhelmsson, Unufelli 23, Reykjavík. Kristbjörg Guðjónsdóttir, Bjamhólastíg 9, Kópavogi. Svanhildur Leifsdóttir, Sævangi 40, Hafnarfirði. Steinxmn B. Geirdal, Eyrarkoti, Mosfellsbæ. María Ragnhildur Eyþórsdóttir, Sunnubraut 2, Búðardal. Pálmi Sveinsson, Hvannahlíð 6, Sauðárkróki. Júlíus Fossberg Arason, Aðalstræti 3, Akureyri. Marianne Ósk B. Nielsen, Stekkholti 7, Selfossi.
40 ára
Einar Þór Garðarsson vélamaður.Brekkuhl íð 16, Hafnarfirði. Einar er í útlöndum á afmælisdaginn. Jóhanna Jóhannsdóttir, Þingholtsstræti 30, Reykjavík. Sólveig Jakobsdóttir, Nökkvavogi 41, Reykjavík. Ottó Ólafur Gunnarsson, Starengi 20b, Reykjavik. Einar Eyjólfsson, Smyrlahrauni 34, Hafnai-firði. Ásdís Viggósdóttir, Neðribraut 7, Mosfellsbæ. Birgitta Bragadóttir, Lágholti 9, Stykkishólmi. Karl Jóhann Jóhannsson, Borgarbraut 9, Grundarfirði. Laufey Sigurlaug Sigurðardóttir, Klettagerði 4, Akureyri. Birgit Maria Braun, frá Saar Louis í Þýskalandi, Högnastöðum I., Hrunamannahreppi.