Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1998, Side 37
H>V FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1998
37
Eldleikur
Laugardaginn 28. nóvember kl.
15 opnar Magnús Þorgrímsson
leirlistamaður sýningu á eld- og
reykbrenndum leirkerum í Stöðla-
koti við Bókhlöðustíg. Yfirskrift
sýningarinnar er „Leikur við eld“
og vísar listamaðurinn þar í sam-
spil sitt við eldinn við vinnslu
verkanna.
Magnús lauk námi frá Myndlista-
_____________og handíða-
skólanum árið
bymngar 1992 0g er sýn-
-------------ingin í Stöðla-
koti hans fimmta einkasýning. Hún
verður opin daglega frá kl. 14-18 og
henni lýkur 13. desember.
Ljósið í myrkrinu
Nú stendur yfir sýning á list-
munum Ragnheiðar Ólafsdóttur
og Aðalsteins Gunnarssonar í
Gallerí Hár og List að Strandgötu
39 í Hafnarfirði. Verkin á sýning-
unni eru öll unnin með blandaðri
tækni og er inntak þeirra allra
„ljósið i myrkrinu". Þau eru unn-
in úr náttúruefnum, svo sem
steinum, málmum, gleri og leðri.
Flest verkin sækja efnivið í dul-
mögnun Vestfjarða og höfða til
andlegra málefna með einmn eða
öðrum hætti eins og nafii sýning-
arinnar ber með sér.
Sýningin er opin daglega frá kl.
9-18 en kl. 14-18 um helgar. Henni
lýkur 2. desember.
Námskeið í
skyndihjálp
Reykjavíkurdeild Rauða kross Is-
lands gengst fyrir námskeiði í al-
mennri skyndihjálp sem hefst í
kvöld. Kennt verður frá kl. 19-23.
Kennsludagar verða 26. og 30. nóvem-
ber og 1. desember. Námskeiðið telst
vera 16 kennslustundir og verður
haldið í Fákafeni 11, 2. hæð. Þátttaka
er heimil öllum 15 ára og eldri. Þeir
sem hafa áhuga á að komast á þetta
námskeið geta skráð sig í síma 568
8188. Námskeiðsgjald er 4.000 krónur.
Skuldlausir félagar i RKÍ fá 50% af-
________________slátt. Hægt
Samkomur S
- lagið á
staðnum. Einnig fá nemendur í fram-
haldsskólum og háskólum sama af-
slátt gegn framvísun á skólaskírtein-
um. Meðal þess sem kennt verður á
námskeiðinu er blástursmeðferðin,
endurlífgun með hjartahnoði, hjálp
við bruna og blæðing úr sárum.
Einnig verður fjallað um helstu
heimaslys, þ.m.t. slys á bömum og
forvamir almennt. Að námskeiðinu
loknu fá nemendur skírteini sem
hægt er að fá metið í ýmsum skólum.
Gigtarfélag íslands
í kvöld kl. 20.30 hefst í safnaðar-
heimili Neskirkju fræðslufundur
Kjamans, áhugahóps um
lúpus/rauða úlfa. Dr. Kristján Steins-
son læknir heldur erindi um nýjar
rannsóknamiðurstöður og framtíðar-
verkefni á sjúkdómnum á íslandi.
Kaffisala verður á staðnum og em
allir velkomnir.
Rússneskur Óþelló
Á sunnudaginn kl. 15 hefst sýning á
rússnesku kvikmyndinni Óþelló
(1956) í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10.
Myndin er byggð á samnefndu leikriti
Williams Shakespeares. Leikstjóri er
Sergei Jútkevits en tónhstin er eftir
Aram Khatsatúrjan. Sergei Bondar-
tsúk fer með titilhlutverkið, A. Popov
leikur Jagó og írina Skobtséva leikur
Desdemónu. Kvikmyndin hlaut marg-
víslega viðurkenningu á sínum tíma.
Hún er nú sýnd með rússnesku tali,
textalaús, en efnisútdrætti verður
dreift til sýningargesta. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
Skítamórall á Astró
I kvöld fagna meðlimir Skíta-
mórals útgáfu bókcU sinnar, Prívat, á
veitingastaðnum Astró. Þar munu
þeir sýna nýja stuttmynd við lögin
Augun og SMM auk þess sem sýndur
verður sjónvarpsþáttur sem gerður
hefur verið um hljómsveitina. Á
Astró munu meðal annars koma
fram Sigríður Hannibalsdóttir söng-
kona sem þylur upp gamlar gleði- og
gamansögur um hljómsveitma. Hilm-
ar Hólmgeirsson flytur tónlist af plöt-
um Skitamórals á þriggja borða
Yamaha station skemmtara. Ragnar
Már Gunnarsson, verðbréfamiðlari
Skemmtanir
og áhugamaður um íslenska popptón-
list, mun í örfáum orðum segja frá
gildi þess fyrir íslenskan fjármála-
míukað að hafa blómlegt tónlistarlíf í
landinu. Veitingar verða í boði og
verður húsið opnað fyrir almenning
kl. 23.07 stundvíslega.
Funkmaster 2000
í Kaffileikhúsinu
I kvöld kl. 21 hefjast tónleikar
með Funkmaster 2000 en húsið
verður opnað kl. 20. í hljómsveit-
inni eru fimm ungir menn og spila
Skítamórall kemur fram á Astró í kvöld.
þeir fönktónlist frá 7. og 8. áratugn-
um í anda Herbie Hancock og The
Meters. Funkmaster 2000 hefur
komið fram víða en gefur nú út sinn
fyrsta geisladisk sem ber heitið
„Funkmaster 2000 - Á vegamótum"
en diskurinn var tekinn upp „live“
á veitingahúsinu Vegamótum.
Veðrið í dag
Vægt frost víðast
hvar á landinu
Við Jan Mayen er minnkandi 987
mb. lægð sem þokast norðaustur.
Um 1100 km suður af Hvarfi er vax-
andi 988 mb. lægð, einnig á norð-
austurleið.
í dag verður norðvestankaldi og
él við norðausturströndina fram eft-
ir degi en annars fremur hæg
breytileg átt og að mestu þurrt. Suð-
austangola eða kaldi vestan til síð-
degis. Vægt frost víðast hvar. Vax-
andi suðaustanátt í nótt með slyddu
og síðar rigningu á sunnanverðu
landinu og hlýnandi veðri.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
suðaustangola eða kaldi og skýjað
síðdegis. Vaxandi suðaustanátt í
kvöld, ahhvasst eða hvasst og
slydda og siðar rigning í nótt. Vægt
frost í dag en hlýnandi í nótt.
Sólarlag í Reykjavík: 15.59
Sólarupprás á morgun: 10.33
Síðdegisflóð í Reykjavík: 23.46
Árdegisflóð á morgun: 12.19
Veðrið kl. 6
i morgun:
Akureyri skýjaö -2
Akurnes léttskýjaö 0
Bergstaöir alskýjaö 0
Bolungarvík léttskýjaö -2
Egilsstaóir 1
Kirkjubœjarkl. heiðskírt 1
Keflavíkurflv. léttskýjaö 0
Raufarhöfn skúr 1
Reykjavík léttskýjaö -1
Stórhöfði léttskýjaö 0
Bergen rigning 6
Kaupmhöfn þokumóöa 1
Algarve léttskýjaö 11
Amsterdam þoka 2
Barcelona léttskýjaö 4
Dublin skýjaö 9
Halifax alskýjaö 0
Frankfurt þokumóóa -1
Hamborg þokumóöa -1
Jan Mayen snjókoma 1
London þokumóöa 2
Lúxemborg þokumóöa -2
Mallorca leiftur 5
Montreal heiöskírt 4
Nuuk alskýjaö -7
París þokuruóningur 2
Róm þokumóöa 8
Vín kornsnjór -1
Winnipeg heiöskirt -2
Snjóþekja og
hálka
Hálka og hálkublettir eru víöa á landsbyggðinni
og einnig víða snjóþekja á vegum. Á Vesturlandi og
Vestgörðum er hálka á fjallvegum og víða með
ströndinni. Á Norðaustur- og Austurlandi er vetrar-
færi á fjallvegum og hálka með norðausturströnd-
Færð á vegum
inni. Ófært er um Lágheiði og Öxarfjarðarheiði.
Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði eru þungfærar.
Unnið er að lagfæringu á leiðinni Botn-Súöavík og
Grundarfj örður-Ólafs vik.
Ástand veg*
Skafrenningur
13 Steinkast
0 Hálka
QD Ófært
fZI Vegavinna-afigát
Œl Þungfært
1*1 Öxulþungatakmarkanir
(g) Fært fiallabnum
WSfflis
Árni
eignast
Litli drengurinn, sem situr hér
í fanginu á stóra bróður sínum,
Bam dagsins
René
bróður
Árna René, fæddist á fæðingar-
deild Landspítalans 30. júlí. Við
fæðingu vó hann 3345 g og mæld-
ist 52 sm. Foreldrar drengjanna
eru Laufey Ósk Þórðardóttir og
Alvaro Miguel Calvi.
Z og Bala á hættuslóðum.
dagsÚ5G>
t
Maurar
Háskólabíó sýnir Maura (Antz)
sem er lýst sem rómantískri gam-
anmynd, ólíkri öhum öðrum sams
konar myndum. Ekki er hægt að
efast um þessa útskýringu því
rómantíkin og gamanið gerist í
þúfú þar sem íbúamir eru maur-
ar og íbúafjöldinn skiptir mihjón-
um. Aðalpersónan er Z-4195, sem
er óbreyttur vinnumaur, einn úr
hópnum. Z hefur háleitar hug-
myndir, hann viU kynnast Bölu
prinsessu enda ástfanginn af
henni, en þar sem hann hverfur
inn í fjöldann á hann nánast
enga möguleika á ,
að hitta prinsess- /////////
Kvikmyndir 'MjM
una. Z er þó ekki á því -
að deyja ráðalaus og fær vin sinn,
stríðsmaurinn Weaver, i lið með
sér tU að ná athygli prinsessunn-
ar. Forlögin taka síðan völdin af Z
og óvænt veröur hann hetja í ný-
lendunni þegar honum tekst óvUj-
andi að koma í veg fyrir valda-
töku hins metnaðargjama herfor-
ingja Mandible.
Nýjar myndir í kvikmynda-
húsunum:
Stjörnubió: Blade
Háskólabíó: Out of Sight
Bíóhöllin: A Smile like yours
Kringlubíó: The Avengers
Saga-bío: Snake Eyes
Stjörnubíó: Dance with me
Regnboginn: There's something
about Mary
Krossgátan
1 2 3 4 5 6 7
8 9
10 11 12
13 14 15
16 17 18
19 20
21
Lárétt: 1 þrengsli, 3 sekt, 4 ofn, 8
andi, 9 tíð, 10 sjóða, 13 slá, 14 kænu,
16 tré, 18 reim, 19 óstöðugur, 20
gleði.
Lóðrétt: 1 grætur, 2 leit, 3 haUi, 4
dugleg, 5 frjóangi, 6 fýrirhöfh, 7 átt,
11 rennsli, 12 leikföng, 15 hugar-
burði, 17 fjölguðu, 18 fæddu, 20
fóðra.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 grýta, 6 pá, 8 aura, 9 pín,
10 stakan, 12 pækU, 14 dr, 15 fúm, 17
eik, 19 auruga, 21 rás, 22 mark.
Lóðrétt: 1 gasprar, 2 Rut, 3 ýr, 4 «
taki, 5 apalega, 6 píndi, 7 ánar, 11
akurs, 13 æfú, 16 mun, 18 kók, 20 ar.
y
KJ
rval
A NÆSTA
SÖLUSTAÐ
EÐA
í ÁSKRIFT
ÍSÍMA
550 5000
IIJ
f i