Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1999, Blaðsíða 8
8
MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1999
Útlönd
Stuttar fréttir r>v
Fyrrverandi eiginkona utanríkisráðherra Breta:
Cook kvennabósi
og drykkjurútur
Robin Cook, utanríkisráðherra Bretlands, með núverandi eiginkonu sinni
Gaynor sem áður var hjákona hans. Símamynd Reuter.
Alexandra búin
að fá nóg af
pressunni
Danska prinsessan Alexandra,
eiginkona Jóakims prins, er búin
að fá nóg af umfiöllun danskra
vikurita um þau hjón. „Við getum
ekkert gert. En okkur þykir þetta
hafa síversnað," segir prinsessan
í viðtali við Berlingske Tidende í
gær.
„Blöðin grípa hvað sem er úr
lausu lofti og búa til Alexöndru-
sögu vikunnar. Það eina sem við
getum gert er að láta þetta ekki
hafa áhrif á okkur.“ Prinsessan
gagnrýnir ekki sist umfjöllun
vikuritanna um mögulega fjölgun
í fjölskyldunni. „Það er fullt af
heimskulögum sögum um barn-
leysið og hvað það sé leiðinlegt."
Alexandra segist ekki hafa get-
að varist hlátri þegar hún flaug til
Uganda með Jóakim. Vikublöðin
fullyrtu þá að nú hlyti hún að
vera bamshafandi þar sem hún
heföi verið bólgin á fótunum.
Prinsessan gagnrýnir einnig um-
fjöllun dönsku vikublaðanna um
Friðrik prins og biður þau að láta
hann í friði.
Robin Cook, utanríkisráðherra
Bretlands, hélt fram hjá fyrrverandi
eiginkonu sinni, Margaret, með sex
konum. Hann á auk þess við áfengis-
vandamál að stríða. Margaret Cook
greinir frá þessu í nýrri bók sem
hún hefur skrifað.
Breska blaðið The Sunday Times
birti í gær útdrátt úr bókinni, A
Slight and Deilcate creature. Þar er
breska utanríkisráðherranum, sem í
fyrra skildi við eiginkonu sína og
kvæntist ritara sínum, Gaynor Reg-
an, lýst sem kvennabósa og
drykkjurút.
Margaret Cook fullyrðir að eigin-
maðurinn fyrrverandi, sem hún var
gift í 28 ár, hafi haldið fram hjá
henni með sex konum. Hann stóð í
ástarsambandi við eina þeirra þegar
Margaret gekk með Peter son þeirra.
Margaret segir Robin Cook einnig
stöðugt hafa daðrað við ungar kon-
ur, meira að segja í návist konu
sinnar. „Þessa myndi ég vilja taka
með mér heim,“ sagði Cook við eig-
inkonuna eftir að hafa tekið eftir fal-
legri flugfreyju í opinberri heimsókn
í Hong Kong.
í bókinni segir Margaret í smáat-
riðum frá þeim degi á árinu 1997 þeg-
ar eiginmaður hennar tjáði henni að
hjónabandi þeirra væri lokið eftir að
blaðafulltrúi Tonys Blairs, forsætis-
ráðherra Bretlands, hafði sagt hon-
um að velja á milli eiginkonunnar og
hjákonunnar. Margaret og Robin
Cook voru stödd á Heathrow-flug-
velli á leið í frí þegar hann greindi
henni frá því að fjölmiðlar heföu
komist að ástarsambandi hans og að
hann ætlaði að yfirgefa hana. Þau
skildu árið eftir og Robin Cook
kvæntist ástkonu sinni.
Breskir íhaidsmenn lýstu því yfir
í gær að Cook ætti að segja af sér þar
sem hann væri aðhlátursefni bæði
heima og erlendis. Tony Blair for-
sætisráðherra, sem nýlega hefur
misst tvo ráðherra úr stjórn sinni
vegna lánahneykslis, lýsti hins vegar
yfir stuðningi við utanrikisráðherra
sinn. Hann sagði þjóðina eiga að
dæma stjórnina eftir gjörðum henn-
ar en ekki eftir einkalífi ráðherra
stjórnarinnar.
OSE bjartsýn
Talsmaður Öryggis- og sam-
vinnustofnunar Evrópu, ÖSE, var
í gærkvöld bjartsýnn á að Alban-
ar myndu sleppa serbneskum
föngum sínum i Kosovo.
Dauðasveitir myrtu 100
Hægrisinnaðar dauðasveitir í
Kólumbía hafa undanfarna daga
myrt yfir 100 manns. Meðal fórn-
arlambanna eru börn.
Blair engin hetja
Danskur tannlæknir, Hans
Jorgensen, kveðst ekki hafa verið
í lífshættu þeg-
ar hann var á
sundi undan
strönd Seyehell-
eyja fyrir viku.
Hann hefði
bara beðið
menn í bátnum
um far og þeir
því ekki bjargað lífi hans. Meðal
bátsverja var Tony Blair, forsæt-
isráðherra Bretlands.
Lofa sanngirni
Trent Lott, leiðtogi repúblikana
í öldungadeild Bandaríkjaþings,
lofar að réttarhöldin yfir Bill
Clinton Bandaríkjaforseta verði
háttprúð og sanngjöm.
Buðu Kína hjálp
Bandaríkin buðu Kína myndir,
sem njósnahnettir tóku af Sovét-
ríkjunum og beina símalínu á
dögum kalda stríðsins.
Egyptar gegn Saddam
Hin opinbera fréttastofa Sádi-
Arabíu hvatti í gær írösku
þjóðina til að koma Saddam
Hussein íraksforseta frá völdum.
Utanríkisráðherra Egyptalands,
Amr Moussa, segir í viðtali við
þýska blaðið Berliner Kurier að
trak þurfi nýja stjórn.
]jy]Jy rÍJ úú
m fcíjiií
ATH!
Opnad fyrir
pantanir
kl. 12 í dag!
Mokhtar Mat Hassan í Perak í Malasíu nýtur aðstoðar apa við
kókoshnetutínslu. Apinn, sem tínir að meðaltali 35 kókoshnetur á dag,
heimtar hins vegar gos til að hressa sig á áður en hann klifrar upp í trén.
Símamynd Reuter
Bill Clinton ekki
faðir blökkudrengs
DNA-rannsóknir sýna að Bill
Clinton Bandaríkjaforseti á ekki
bam með fyrrverandi vændiskonu.
Þetta kom fram i blaðinu Time í gær.
Blóðsýni, sem tekin vom úr Danny,
13 ára syni blökkukonunnar Bobbie
Ann Williams, stemma ekki við
erfðaefni forsetans.
Æsifréttablaðið Star er sagt hafa
borgað blökkukonunni fyrir aö fá að
skrifa um sögu hennar. Á blaðið að
hafa borið saman blóðsýni úr Bobbie
Ann Williams og syni hennar við
DNA-rannsóknina sem bandaríska
alríkislögreglan gerði í sambandi við
Lewinskymálið. Clinton hefur alltaf
neitað því að hafa hitt
blökkukonuna.